Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
6.1.2009 | 22:41
Allt sömu rotturnar
Íslensku fjölmiðlarnir eru allir undir svínslegum áhrifum spilltra auðmanna eða pólitíkusa. Fögnum því að þessi spilaborg og þeirra blekkingarvefur er á leið niður.
Prentun Fréttablaðsins í bleikum lit er góð áminning um að lesa svínsfóðrið með fyrirvara. Fækkun útgáfudaga er byrjunin á endinum hjá fjölmiðlaveldi svínakónga.
Nú aðeins 3 auglýsingar í dag hjá DV og þeim fer fækkandi sem vilja lítisvirða viðskiptavini sína með því að borga undir ærumeiðingarnar og lygamörðinn úr þeirri sorptunnu.
Morgunblaðið á barmi gjaldþrots. Blaðið sem hæddist að forsetakosningum í Rússlandi í ritstjórarleiðurum meðan þeir tryggðu spilltum forseta sovéska kosningu hérlendis. Látum þessa rottuna deyja drottni sínum.
Fallið ekki í þá gryfju að treysta RÚV. Þeir stunda þöggun og ritskoðun með svo grófum hætti að erlendir sérfræðingar líktu við misnotkun fjölmiðla í einræðisríkjum.
Minni einnig á nýlega grein Árna Snævarr fyrrverandi fréttamanns sem talaði um að Elín Hirst hafi verið sérstakur fulltrúi tveggja forkólfa Sjálfstæðisflokksins á fréttastofu Stöðvar2 og látin fara fyrir vikið.
Páll Magnússon fór einnig frá Stöð2 yfir á RÚV en þá líklegast til að standa þar vaktina fyrir Baugssvínin og passa uppá Elínu á nýja staðnum.
Slæm reynsla af fréttastofu RÚV
Lesið hér um ritskoðun RÚV
Ritskoðun á MBL blogginu
Fjarlægt að kröfu Hreins Loftssonar?
Lýðskrumari Fréttablaðsins afhjúpaður. Ritrotta í svínastíu auðhrings.
![]() |
Flestir treysta RÚV |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.1.2009 | 22:22
Var flokkeigendafélagið á staðnum?
Geta blaðamenn fundið út hvort flokkseigendafélagið var á staðnum. Verður þetta ekki áfram spilltasta greni landsins?
Mjög viðeigandi að þeir færðu Framsóknar fundinn ofaní kjallara. Það liggur við manni finnist best að múrað sé uppí alla glugga og hurðir á kjallaranum til að vernda þjóðina frá þessu flokksskrípi
Hin leiðin er kannski að ná í Soffíu frænku á efri loftin og fá kerlinguna til að sópa út skítnum og framsóknarþjófunum úr þessum Kardimomubæ.
Hversvegna ekki í gæsluvarðhaldi?
Höfnum spilltum pakkaferðum alþingismanna
![]() |
Hiti á fundi framsóknarmanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.1.2009 | 19:16
DV, aðeins aular kaupa auglýsingar í ruslatunnu
"Lygar DV, dagskipanir Hreins Loftssonar og co." segir Jónína Ben um leið og hún lýsir enn einni lygafréttinni um sig á síðum sorpritsins.
En hvernig dettur þér í hug Jónína að auglýsa í DV ruslatunnunni? Þeir geta ekki einu selt þessar auglýsingar nema á brunaútsölu því þær draga auglýsandann niður fyrir allt velsæmi. Er það ekki bara aulaskapur að borga fyrir að sverta nafn þíns fyrirtækisins með DV sorpinu?
Eitt sinn hringdi til mín sölumaður frá DV að bjóða mér auglýsingar í blaðinu. Ég sagði Nei. Hann spurði aftur og aftur og fékk alltaf NEI! Á endanum gerði ég honum grein fyrir því að ef svo ólíklega vildi til að einhver starfsmaður í mínu fyrirtæki aulaðist til að kaupa af honum auglýsingu á brunaútsölunni yrði sá hinn sami rekinn samstundis.
Ég sýni ekki mínum viðskiptavinum þá lítisvirðingu að auglýsa í skítugri ruslatunnu sem sérhæfir sig í þeim sora að flytja ærumeiðingar og ofbeldishótanir.
Flestir virðast nú hættir að auglýsa í DV. Líklegast er fólk byrjað fylgjast með síðunni sorprit.com og lætur ekki draga sig eins og aula í það svínslega peningaplott að borga undir lygamörðinn.
Í dag voru það aðeins 3 fyrirtæki sem borguðu undir sorpkarlinn Reynir Traustason, Smáralind, Baðhúsið, Wilson´s Pizza og svo fáeinar smáauglýsingar. Ég sneiði hjá þessum fyrirtækjum og versla hjá öðrum sem eru vandaðri að virðingu sinni.
Að sjálfsögðu hættum við öll að versla við fyrirtækin á sorprit.com
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvað ætlar drottningin í "Stórasta landi heims" að sitja lengi aðgerðalaus á meðan "litlustu sálir heims" hin þjóðin hennar í Ísrael, morðóð gyðingaþjóðin murkar lífið úr saklausu fólki, börnum, gamalmennum og almennum borgurum í Palestínu?
Hvað þarf til að hreyfa við steinhjörtunum á Bessastöðum. Ég er búinn að skrifa bréf eftir bréf þangað og biðja þau að leggja friðarmálunum lið.
Ég skora einnig á Svein Rúnar Hauksson formann Ísland Palestínu félagsins að mæta með sína mótmælendur á Bessastaði og krefjast þess að Virkja Bessastaði til friðarmála!
Mér lenti saman um þetta mál við Svein fyrir nokkrum árum þegar honum fannst forsetinn, vinur sinn og samherji úr Keflavíkurgöngunum, alltof heilagur til að ónáða hann með friðarmálin. Hvenær ertu tilbúinn að kasta slíkri helgislepju Sveinn Rúnar? Hvað þarf að myrða marga áður en formaður félagsins Ísland-Palestína bankar blygðunarlaust á allar dyr?
Út með grísinn og Virkjum Bessastaði
Ég horfði á þá spúla eins og í sláturhúsi blóðið innan úr sjúkrabílunum
Forsetahjón, Ólafur Ragnar og Dorrit, hversvegna svarið þið ekki?
Dorrit, ætlar þú að sitja aðgerðarlaus á meðan landsmenn þínir myrða þetta fólk?
Af hverju gerir okkar þjóðhöfðingi ekkert?
Sorglegt og við í trylltum darraðadansi á gröf þeirra
Forsetahjónin á næsta flug til Ísrael
![]() |
12 úr sömu fjölskyldu létust |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
6.1.2009 | 13:37
Út með grísinn og Virkjum Bessastaði
Vonandi er gullkálfs dansvíman að renna af þjóðinni og spilltu fjölmiðlarnir að syngja sín síðustu kvæði spilltum forseta til lofs og dýrðar.
Þegar Íslendingar fara að sjá hlutina umbúðalaust í réttu ljósi verða þeir fljótir að átta sig á tækifærunum í boðskap Friðar 2000 og forsetaframboðum mínum 1996 og 2004 um að Virkja Bessastaði.
Ég er þess fullviss að í framtíðinni rís á Íslandi miðstöð friðargæslu Sameinuðu þjóðanna. Á Keflavíkurflugvelli stjórnstöð alþjóðlegrar friðargæslu, friðarháskóli og þjálfunarbúðir friðargæsluliða ásamt alþjóðlegri þróunarstofnun fyrir beint og milliliðalaust lýðræði.
Í nær tvo áratugi hef ég kynnt Ísland sem land friðarins víða um heim, m.a. á fjölda ráðstefna og fundum grasrótarsamtaka sem tengjast starfi Sameinuðu Þjóðanna og friðarháskóla S.Þ.
Hugmyndin vakti t.d. hrifningu hjá báráttufólki friðarmála í New York, heimaborg Yoko Ono svo og í Tokyo, Washington, San Fransisco, London og víðar þar sem ég hef talað fyrir þessum hugmyndum Friðar 2000.
Ég er tilbúinn að vinna að þessu verkefni ásamt fjölda erlendra sérfræðinga þjóðinni og heimsbyggðinni allri til heilla. Sjá nánar á www.forsetakosningar.is
![]() |
Friðarsúlan hlaut bronsið |
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana. |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
6.1.2009 | 10:30
Getur hann mokað svona mikinn flór?

Örugglega fínn strákur hann Guðmundur Steingrímsson og pabbi hans öðlingsdrengur.
Getur Guðmundur mokað allan þann flór sem þarf til að ræsta út spilltasta greni landsins?
Hvernig ætlar hann að henda flokkseigendafélaginu fyrir borð? Skipta um skrár og banna þeim að mæta? Klippa á gullslegnar símlínur og aðra strengi?
Hvar á ég heima? Áhugaverð grein um pólitíska hugmyndafræði sem þarfnast skýringa.
Höfnum spilltum pakkaferðum alþingismanna
Hversvegna ekki í gæsluvarðhaldi?
![]() |
Guðmundur í Framsóknarflokk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.1.2009 | 09:56
Leyfum fjölmiðlarottunum að deyja drottni sínum
Langþráð hreinsun að gerast hér. Spillingin að flæða uppá yfirborðið hjá stjórnvöldum og fjölmiðlunum. Jörðin skelfur undir þeim. Hægt og bítandi losar sig við spilltu grísina.
Ekki hræðast hreinsunareldinn sem er jákvæð þróun. Í nútíma tæknisamfélagi tekur nýtt og betra við.
Það kæmi mér ekki á óvart, og ég myndi ekki gráta það, að Baugssvínið og allt þeirra fyrirtækjahyski fari í þrot. Ágæt leið að losa Íslenskt þjóðfélag úr síðasta kolkrabbanum.
Á Íslandi í dag eru við völd spillt stjórnvöld, spilltur forseti og spilltir ritstjórar sem árum saman aðstoðuðu glæpamenn í að arðræna okkur og blinduðu þjóðina með ævintýralegri uppákomu á Nýju fötin keisarans.
Ritskoðun og þöggun fjölmiðla
![]() |
Útgáfudögum Fréttablaðsins fækkað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.1.2009 | 00:08
Kennitöluflakkarar kalla Morgunblaðið og Nýja Glitnir óreiðumenn
Sorpritstjórinn Reynir Traustason grýtir stórgrjóti úr glerhýsi ruslatunnu uppá nær hvern einasta dag.
Í gær ásakaði hann Nýja Glitni að kasta út um gluggann 150 milljónum króna á mánuði og að ríkisbankinn sé að senda hverri fjölskyldu landsins tvö þúsund kall reikning um hver mánaðarmót til að halda Morgunblaðinu úti.
Sorpritstjóranum finnst ótækt að búið sé að setja reglur um hver geti keypt Moggann. Steinar lagðir í veg alræmdra fjölmiðlasvína og erfiðara að endurtaka kennitöluflakkið og leynimakkið sem umlykur eignarhaldið á DV. Vonandi Moggamenn freistist ekki að láta Hreinsgerninga taka yfir Árvakur.
Sorparinn Reynir fullyrðir að verið sé að pukra með að koma Mogganum í hendur vina valdsins. Hvaða vald á hann við hér? Svínsvaldið sem hann situr sjálfur undir eins og þægur og aumkunnarverður rakki?
Ruslakarlinn Reynir segir Birnu Einarsdóttur bankastjóra ekki vera aðeins skjól fyrir eigin spillingu, "hún er hýsill alls þess versta sem getur átt sér stað á Íslandi. Hún fer með almannafé eins og sitt eigið og hendir út um gluggann fjármunum fólksins í landinu. Verst er þó að samtrygging fjölmiðla er slík að þeir stærstu þegja um svínaríið í kringum óreiðumenn Árvakurs og spilltan bankastjóra"
Ég lýsi enn eina ferðina eftir því að Reynir Traustason upplýsi okkur hin þorpsfíflin hver það var sem kippti í spottana á honum sjálfum þegar þessi "heiðarlegi og vandaði söguritari" ritstjórnarskörungur og "hornsteinn frjálsrar fjölmiðlunar" stöðvaði nauða ómerkilega frétt úr Landsbankanum.
Á meðan sorpritstjórinn hylmir yfir og þegir yfir þessari stærstu frétt ársins sem gæti afhjúpað rotnu spillinguna í fjölmiðlunum, þá er Reynir Traustason marklaus strengjabrúðu trúður og lygamörður úr sorptunnu DV.
Ég bendi á DV-VÁLISTANN og síðuna www.sorprit.com. Áhugaverð lesning um fjölmiðlasvín og leppað eignarhald Hreinsgerninga.
Fyrri grein: Skálmöld DV sem reynir að hleypa þjóðfélaginu upp í ofbeldi
DV flúði en skildi eftir fingaför
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þegar ég var í Palestínu fyrir nokkrum árum lenti ég inní miðri skothríð og horfði á fólkið falla allt í kringum mig. Sjúkrabílarnir komu og fóru stöðugt, rennandi af blóði eins og í sláturhúsi.
Þeir spúluðu blóðið innan úr sjúkrabílunum á milli ferðanna meðan aðrir komu nýju fólki á börurnar.
Á sjúkrahúsi bæjarins horfði ég á þá síðan einn af öðrum látast á skurðaborðunum. Ungt fólk, börn og gamalmenni, dauðinn fer ekki í manngreinarálit eftir skotbardaganna.
Það er erfitt að fordæma ekki Ísraelsmen eftir að verða fyrir slíkri lífsreynslu að sjá þetta með eigin augum. Enn erfiðra er að skilja hversvegna hjónin á Bessastöðum svara ekki ítrekuðum beiðnum um aðstoð.
Myndirnar með greininni eru mínar eigin. Smelltu á linkana:
Forsetahjón, Ólafur Ragnar og Dorrit, hversvegna svarið þið ekki?
Dorrit, ætlar þú að sitja aðgerðarlaus á meðan landsmenn þínir myrða þetta fólk?
![]() |
Ekki hægt að flytja særða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.1.2009 | 19:39
Grímklæddir mótmælendur og þorpsfífl til verndar fjölskyldunni
Í áhugaverðri grein Helga Jóhanns Haukssonar stjórnmálafræðings og kennara segir hann frá átakanlegri reynslu fjölskyldu afa síns sem fékk ekki vinnu vegna verkalýðsbaráttu langömmu.
Rúður voru brotnar og fólki hótað, kannski ekki ósvipað og gerst hefur hérlendis eins og þegar járnlóðum var hent inn um glugga eins mótmælenda. Eða hvernig DV-malefnin.com hefur birt hótanir um að henda í mig stólum vogi ég mér að mæta á fundi um þjóðfélagsmál.
Nafnlausa ritrottan sem hvatti fólk til ofbeldis gegn mér var lýsa mikilli ánægju með hvernig ég var borinn út hjá Opnum Borgarafundi eftir að ég vogaði mér að benda aðstandendum á mikla vinstri slagsíðu á frummælendum mótmælafunda og nauðsyn þess að taka upp lýðræðisleg vinnubrögð.
Í gegnum árin hef ég svo sannarlega fengið það óþvegið m.a. fyrir þær sakir að stinga málsskjölum sem ég tók við úr hendi héraðsdómara í jólasveinapoka. Að mínu mati var það rétti staðurinn fyrir þá dæmalausu ákæru sem mér var birt af dómnum vikunni fyrir jól árið 2002, eftir að ég hafði neitaði undir hótunum um 16 ára fangelsi að draga til baka ádeilu mína á brjálaðan stríðsstuðning Halldórs Ásgrímssonar og Davíðs Oddsonar og vopnaburð með Icelandair flugvélum.
Þegar landráðamálið var svo aftur tekið fyrir daginn sem innrásin hófst í Írak, 15. apríl 2003, og þúsundir lágu þar í blóði sínu eftir að sprengjum rigndi að himnum ofan með stuðningi okkar Íslendinga yfir börn, gamalmenni og aðra óbreytta borgara, fannst mér einnig mjög viðeigandi að skipta í hvíta skyrtu og ata hana og andlit mitt rauðri tómatsósu og mæta þannig fyrir skrípadómstól Íslendinga. Þess má geta að síðan þetta gerðist hafa meira en ein milljón manns verið myrt með stuðningi okkar í Íraq!
Blindir og ofursnobbaðir fréttamenn í sínum tryllta dansi um gullkálfinn eða gullsvínið voru ekki lenga að gefa mér ýmsa "viðeigandi" titla fyrir mótmælin mín gegn morðóðum stríðsherrunum.
"Þorpsfífl" öskraði Gunnar Smári Egilsson ritstjóri Fréttablaðsins á mig í leiðara blaðsins. Landskunnur vitleysingur, smekksemisfangi, geðveikur rugludallur kölluðu aðrir á síðum fjölmiðlanna.
Meira segja konan mín varð fyrir aðkasti á vinnustað. Oft var það menntafólkið sem var hvað dómharðast. Margir spekúlantarnir í Háskóla Íslands virtust í sínum tryllta gulldansi alveg gleyma því að morðóða innrásarliðið var með stuðningi okkar Íslendinga ekki aðeins að myrða köldu blóði kollega þeirra í Íraq, verið var að sprengja í loft upp og þurka út eitt öflugasta menntakerfi Mið Austurlanda. Senda heila þjóð til steinaldar.
Eftir að horfa uppá uppskrúfun fordóma gagnvart mótmælanda sem þó beitti mótmælum sínum á einstaklega friðsaman hátt algerlega gegn eigin skinni í Héraðsdómi Reykjavíkur, er að sjálfsögðu eðlilegt að Helgi stjórnmálafræðingur spyrji hvort við ættum öll að mæta "andlitslaus" í mótmæli þessa dagana, þótt ekki sé nema til að hindra offfjölgun þorpsfífla í Reykjavík.
Auðvitað skil ég freistinguna að hylja andlit sitt í mótmælum. En því miður held ég það sé slæmur kostur. Við sjáum hve óvægnar árásirnir verða úr frá nafnlausum ritrottum. Á sama hátt má búast við að nafnlausir mótmælendur myndu fljótlega þróast í sama farveg og kollegar þeirra í Mið Austurlöndum og fljótt yrðu hendur á lofti með annað og sterkara en egg og tómata.
Fyrri grein:
Hvar á ég heima? Áhugaverð grein um pólitíska hugmyndafræði sem þarfnast skýringa.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)