Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
8.1.2009 | 21:43
Kommúnistar báru jólasveininn út af Opnum borgarafundi
Ég gekk að dyrunum, fjöldi svartklæddra öryggisvarða í skeggræðum og ég smeygði mér hljóðlega framhjá þeim grímuklæddur sem jólasveinninn.
Barði stafnum hennar mömmu minnar sálugu í gólfið og hrópaði "Fær jólasveinninn að tala hér?"
Mikið fát kom á Gunnar leikstjóra sem hótaði að slíta fundinum ef jólasveinninn fengi orðið. Ekki mátti heldur afhenda lögreglustjóra kærugjafir úr poka sveinka.
Eftir vel æfðum handabendingum af leiksviðinu var ég um leið umkringdur svartklæddum öryggisvörðunum sem tóku sig til og í orðsins fyllstu merkingu báru jólasveininn út af Opnum borgarafundi undir hrópum mínum "Það er verið að bera jólasveininn út af fundinum"
Þegar út í bíl var komið og búið að taka niður skegg-grímu sveinka komu aðvífandi nokkrir fundargesta og sögðu að búið væri að "kjósa þig" inná fundinn. Ég gekk með þeim til baka að hurð leikhússins en þar biðu þá aftur öryggisverðirnir, nú ekki eins utangátta, og vörnuðu mér inngöngu.
Segir þetta ekki allt sem segja þarf um leiksýninguna Opinn borgarafund?
Útilokað er að byggja nýtt Ísland á grímuklæddum leiksýningum og sovét-fasískum vinnubrögðum.
4.12.2008 | 00:21 Borinn út af borgarafundi. Þjóðin blekkt með leikstýringu.
3.1.2009 | 12:29 Kommúnískum áróðri troðið í 8 ára barn
3.1.2009 | 19:37 Hvar stöðvar barnaþulan Dimmblá?
![]() |
Lá við að fundurinn leystist upp |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 12.1.2009 kl. 23:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (103)
8.1.2009 | 20:09
Hæðst að mótmælendum í bandaríska sendiráðinu
Undirtylla í bandaríska sendiráðinu tók á móti Sveini Rúnari Haukssyni formanni Ísland-Palestína skælbrosandi út að eyrum þegar hann tók fyrir hönd bandaríkjanna við yfirlýsingu Íslenskra mótmælenda.
Lítisvirðingin skein úr asjónu starfsmanns sendiráðsins sem eins og landsfeðrum virðist virðist þeim skítsama þótt verið sé að murka lífið úr börnum og saklausu fólki í Palestínu með stuðningi þjóðar sinnar.
Landsfeður okkur nær missa heldur ekki svefn yfir blóðugum ásýndum barnanna í Gaza. Íslenska demantsdrottningin Dorrit frá Jerúsalem og eiginmaður hennar forseti Íslands sofa værum blundi á Bessastöðum því Sveinn Rúnar Hauksson þorir ekki að ónáða þennan gamla samherja sinn úr Keflavíkurgöngunum með einhverru smákvabbi úr grenjandi krakkaskríl á Gaza.
Pissað upp í vindinn
Hvað þarf að myrða marga áður en formaður félagsins Ísland-Palestína bankar blygðunarlaust á allar dyr?
Hvar ert þú Ólafur Ragnar Grímsson og þín Ísraelska frú? Svarið mér!
Utanríkisráðherra fordæmir með froðusnakki
![]() |
Á milli 300-400 mótmæltu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
"Ástþór og Lýðræðishreyfingin er eina alvöru lýðræðið, þú ættir að kynna þér hvernig þar öllum er gefið valfrelsi" öskraði einn hneykslaður framsóknarmaður yfir fundinn í hita leiksins þegar tekist var á um kosningu fulltrúa á flokksþingið.
Framsóknarmenn hafna lýðræðislegum vinnubrögðum segir einn fundarmanna sem skýrði mér frá atburðarrásinni í Þjóðleikhúskjallaranum þegar spillingaröfl flokksins voru að makka með fulltrúalistana.
"Hann er bara vitleysingur" galaði á móti einn af fulltrúum spillta flokkseigendafélagsins, "ekki hægt að vinna með Ástþóri því hann tekur engri tilsögn" spangólaði annar.
Skarplega athugað hjá ykkur framsóknarmenn, að sjálfsögðu tek ég ekki "tilsögn" í því að tryggja spilltum flokkseigendafélögum völd á Alþingi.
Við næstu alþingiskosningar fækkar vonandi þeim vitleysingunum sem kjósa yfir sig framsóknarræði Finns Ingólfssonar og Ólafs Ólafssonar og strengjabrúðurnar úr spilltasta greni landsins.
Framsóknarfólk sem vilja yfirgefa spillta grenið og til betri vegar lýðræðis fá tækifæri í Lýðræðishreyfingunni boða sitt málefni með einstaklingsframboði á þverpólitískum lista.
Kynntu þér málið á www.lydveldi.is og hér: Höfnum spilltum pakkaferðum alþingismanna.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.1.2009 | 01:33
Ingibjörg Sólrún, ekki bíða eftir vindmyllum S.Þ.
Ingibjörg Sólrún, brjóttu nú odd af oflæti þínu og kallaðu eftir aðstoð Friðar 2000.
Förum til Ísrael og Palestínu með forsetann og forsetafrúna í hönd sem fædd og uppalin er í Jerúsalem og boðum þar nýja hugmyndafræði til friðar.
Það eru vindhögg og hræsni að gala fyrir tómum kofum á meðan verið er að slátra fólkinu í Palestínu. Ekkert mun að viti koma frá S.Þ. þessa dagana.
Utanríkisráðherra fordæmir með froðusnakki
Gerðu þá eitthvað í þessu Ingibjörg
Ógeðslegt! Hvar ert þú Ólafur Ragnar Grímsson og þín Ísraelska frú? Svarið mér!
Hvað þarf að myrða marga áður en formaður félagsins Ísland-Palestína bankar blygðunarlaust á allar dyr?
![]() |
Ráðaleysi í Öryggisráðinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 04:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
8.1.2009 | 00:56
Pissað upp í vindinn

Mér er óskiljanlegt hversvegna félagar í Ísland-Palestína eyða tímanum fyrir framan sendiráð þar sem enginn er heima á meðan fólkinu er slátrað miskunarlaust í Palestínu.
Bush á leið út og ekkert að hlusta. Obama á leið inn og heldur ekki að hlusta. Að standa við sendiráð þeirra á smáeyju í miðju Atlantshafi er svo sannarlega að pissa upp í vindinn.
Ekkert mun af viti koma frá kananum í þessu máli. Það er búið að brenna flaggið þeirra, sendiráð þeirra víða um heim og þeim stendur augljóslega á skítsama.
Ég skora á Svein Rúnar Hauksson formann Ísland-Palestína félagsins að ganga með mér á fund forseta Íslands og forsetafrú Dorrit sem fædd og uppalin er í Jerúsalem, og KREFJAST að þau sinni þessu máli fyrir hönd þjóðarinnar.
Tækju forsetahjónin sig saman í andlitinu og í samstarfi við Frið 2000 og Ísland-Palestína félagið mynduðu samstarfshóp til að mæta í Ísrael og Palestínu að boða nýja hugmyndafræði, væri kannski von til að hlustað yrði á okkur Íslendinga.
Sjá nánar hér:
Hvað þarf að myrða marga áður en formaður félagsins Ísland-Palestína bankar blygðunarlaust á allar dyr?
Ógeðslegt! Hvar ert þú Ólafur Ragnar Grímsson og þín Ísraelska frú? Svarið mér!
![]() |
Mótmæli boðuð við sendiráð Bandaríkjanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.1.2009 | 19:18
Aular dagsins: 80% neytenda vantreysta auglýsendum DV
Áhugavert að samkvæmt fréttum RÚV vantreysta yfir 80% landsmanna því sem prentað á sorpsíður DV.
Heyrst hefur að þrátt fyrir að bjóða auglýsingar á brunaútsölu, undir 20þús á heilsíðuna, sé nánast orðið útilokað að selja auglýsingar í DV.
Þeim fer fækkandi aulunum sem vilja borga undir flutning á ærumeiðungum og lygum. Enda hver vill leggja nafn síns fyrirtækis við svínslegan sora og vanvirða viðskiptavini sína með því að auglýsa í skítugri sorptunnu. Aular dagsins eru: Office1, Smáralind og Fjölbrautarskóli Norðurlands Vestra.
Sorpritstjórinn segir í leiðara DV í dag "tilgang blaðsins vera að upplýsa fólkið í landinu og aflétta óeðlilegri leynd" Af hverju upplýsir þú þá ekki þjóðina og afléttir leynd um hver togaði í þína spotta strengjabrúðu aulinn þinn?
Bendi á sorprit.com sem er ágæt síða um þessa aula.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
7.1.2009 | 18:44
Vertu velkominn í Lýðræðishreyfinguna
Gott hjá Bjarna Harðarssyni að segja sig úr lögum við spillinguna. Ég býð Bjarna velkominn í Lýðræðishreyfinguna. Þar getur hann og hans ágætu málefni fengið að njóta sín í einstaklingsframboði á þverpólitískum lista. Kynntu þér málið á www.lydveldi.is og hér: Höfnum spilltum pakkaferðum alþingismanna
![]() |
Bjarni sagði sig úr Framsóknarflokknum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.1.2009 | 18:38
Burt með skrílinn

![]() |
Fjandsamleg yfirtaka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.1.2009 | 23:53
Ekkert breytist í spilltasta greni landsins
Framsóknarspilling í kjallaranum er uppfærsla á gömlu leikriti sem var endurflutt í kvöld í Þjóðleikhúsinu, í dimmum kjallaranum. Enda þolir það sem þarna er að gerast ekki dagsins ljós.
Nú er flokkseigendafélag Finns Ingólfssonar & Co búið að finna lepp til að tryggja áframhaldandi völd í Framsókn og áfram á að mergsjúga þjóðina og viðhalda spillingu.
Eina sem þurfti til hjá Finni Ingólfssyni var að finna sér leppræfil í frekar óþekktum strákpjakk, bjóða honum í skötuveislu á Hótel Loftleiðir eins og DV-malefnin skýrði frá 28 desember, og síðan gamla aðferð Finns, eins og hann gerði þegar hann komst þar til valda í upphafi, að smala saman grísum og nú með góðri aðstoð kosningasmala frá Fjármáleftirlitinu!
Aðeins þurfti 68 grísi! Svo ekki of margir þyrftu á ælupoka að halda þegar rynni upp fyrir þeim spillingingarfenið þeir væru nú dottnir í, var smalað útlendingum sem yrðu ekki með neinn kjaft á kjallarafundinum.
Eyjan.is segir að ráðabrugg Finns og félaga hafi heppnast svo vel að "Svo virðist sem stuðningsmenn Sigmundar geti ráðið mestu um það hverjir verða valdir á flokksþingið".
Þegar ég ætlaði að kópera þetta "gamla trikk Finns" hér um árið með 2000 félögum Friðar 2000 og afleggja spillinguna í Framsóknarflokknum, þá lokuðu þeir fyrir nýskráningar í flokkinn.
Er virkilega ekki tími kominn á að loka Finn Ingólfsson inná viðeigandi stofnun undir eftirliti Margrétar Frímannsdóttur fangelsisstjóra og henda lyklunum?
Stjórnmál og samfélag | Breytt 7.1.2009 kl. 00:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.1.2009 | 22:56
Hvað þarf að myrða marga áður en formaður félagsins Ísland-Palestína bankar blygðunarlaust á allar dyr?
Ég skora á Svein Rúnar Hauksson formann Ísland-Palestína félagsins að ganga með mér á fund forsetahjónanna á Bessastöðum og fylgja þessu eftir:
Ógeðslegt! Hvar ert þú Ólafur Ragnar Grímsson og þín Ísraelska frú? Svarið mér!
![]() |
Fordæma Hamas og Ísraelsher |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)