Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
30.12.2010 | 11:11
Boðaður í yfirheyrslu. Mæti ekki hjá glæpalögreglu!
Í dag kl. 13 er ég boðaður til yfirheyrslu hjá Lögreglustjóranum í Reykjavík. Mæti ekki. Get ekki tekið lögreglu sem gengur erinda glæpamanna alvarlega.
Fyrrum stjórnarformaður gjaldþrota fyrirtækjasamsteypu sem nú skuldar 550 milljarða án þess að eignir finnist hefur kært mig til lögreglunnar. Heldur því fram að ég skrifi illa um útrásarvíkinga og vill að löggan stoppi mig.
Hreinn Loftsson hæstaréttar- lögmaður fyrrum stjórnar- formaður Baugs rekur Lögmenn Höfðabakka. "Sérhæfir sig í verkefnum fyrir atvinnulífið og opinbera aðila" segir á vefsíðunni justice.is (réttlæti á Íslensku!) Áfram segir á síðu réttlætisins: "Meðal viðskiptavina fyrirtækisins má nefna fyrirtæki á fjármálamarkaði, hið opinbera, sveitarfélög og sum öflugustu einkafyrirtæki á Íslandi".
Ef þetta er rétt er það reginhneyksli. Hvernig geta opinber fyrirtæki og stofnanir leyft sér að skipta við mann sem var innsti koppur í búri og einn helsti hugmyndasmiður fyrirtækjasamsteypu sem stolið hefur hundruðum milljarða af þjóðinni með lagaklækjum og flóknum leikfléttum? Mann sem reyndi að múta sjálfum forsætisráðherra þjóðarinnar með 300 milljónum!
Morgunblaðið birti í gær yfirlit um 27 einkahlutafélög með lögheimili að Túngötu 6 sem fara nú í gjaldþrot eitt af öðru. Skulda 550 milljarða. Nánast engar eignir finnast. Ljóst að peningunum hefur verið stolið því útilokað er að bóka slíkar skuldir án þess að fá eignir á móti nema peningunum sé hreinlega stolið!
Er það séríslenskt réttlæti að bankaræningjar og þeirra skósveinar gangi lausir á meðan gagnrýnisraddir séu ofsóttar af lögreglunni?
Ég hef sent fleiri kærur til Lögreglustjórans í Reykjavík vegna lygaþvælu sem birt hefur verið um mig í DV undanfarin ár. Kærunum er jafnan vísað frá. Hinsvegar gengur Lögreglustjóri glaðbeittur erinda útrásarvíkinga og vill nú hneppa mig í gæslu. Þagga niður í mér.
Löggan og Ríkissaksóknari segja mig halda úti vefsíðunni www.sorprit.com og þar sé ólögmætt efni um útrásarvíkinga.
Dómar fyrnast og bið eftir afplánun nemur allt að 4 árum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.12.2010 | 13:26
Sanna ljóta jólasagan um Samspillinguna
Ég skrifaði ljóta jólasögu. Létta skáldsögu byggða á sönnum atburðum um svikráð í viðskiptum og hvítþvott höfuðpaursins í stærsta prentmiðli landsins.
Jólasagan mín var mest lesna jólabloggið. Vakti upp aðra fjölmiðlahóru úr Samspillingunni. Svavar Bjarnason sem segir Moggann hafa sett upp sína bloggsíðu án sinnar vitundar!
Aldrei hefur stafkrókur verið skrifaður í Svavars bloggið. Notað til að skrifa athugasemdir undir dulnefni eða nafni sem gæti tilheyrt fleirum. Engin mynd eða upplýsingar um höfundinn veittar. Andlitslaus og í raun nafnlaus bloggari.
Nafnleysinginn segir í athugasemd um söguna Jóla hóra Jóns Ásgeirs:
"Það að kalla heiðvirða konu hóru, lýsir mjög vafasömum siðferði þess sem það gerir"
Ekki veit ég hver er penninn sem skrifar undir Svavars blogginu. Nafnlausi bloggarinn virðist þekkja betur til innviða 365 messu Jóns Ásgeirs en ég. Segist vera í Samfylkingunni. Kannski tengingin? Samfylkingin var á Jóns spenanum um árabil og þingmenn hennar gengu erinda Jónsmessunar m.a. á Alþingi.
En hvað er heiðarleiki? Hverjir plægðu akurinn fyrir fjárglæframennina sem rændu bankana innanfrá? Áttu fjölmiðlar þátt í þeim leik? Brugðust þeir eða stóðu þeir vaktina um heiðarleika í viðskiptum og stjórnmálum? Standa heiðvirðir fjölmiðlamenn enn vaktina fyrir fjárglæframenn og bankaræningja?
Hér má lesa ljótu jólasöguna og athugasemdir Samspillingarinnar undir nafninu Svavar:
24.12.2010 | 13:45
Jóla-hóra Jóns Ásgeirs - Myndband á Youtube!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.12.2010 | 13:45
Jóla-hóra Jóns Ásgeirs - Myndband á Youtube!
Ég fann jóla-hóru Jóns Ásgeirs Jóhannessonar! Hún er ungur "femínista" blaðamaður á Fréttablaðinu. Starfar þar sem "vaktstjóri" og passar uppá að "réttar fréttir" berist innum lúgur landsmanna um jólin.
Jólahóra Jóns stefnir á undraskjótan frama í blaðamennsku hins nýja Íslands. Hún viskar burt samviskusamlega allar ljótar sögur um Séra Jón áður en víðlesnasta blað landsmanna er borið út.
Jólahóran stóð vaktina sína samviskusamlega á Þorláksmessu. Ó minn góði Jón veinaði hún af sinni fréttafrygð, opnaði sig kylliflöt undir Jóni Ásgeiri og tróð grýlusögunni sem Mogginn birti í dag um Séra Jón í ruslagatið. Ógeðslega ljót saga sem gæti hrætt bæði börn og fullorðna á Djöflaeyjunni. Slíkt er ekki hlutverk Fréttablaðsins. Það segir bara góðu fréttirnar af Séra Jóni.
Jólahórunni finnst Héraðsdómur Reykjavíkur eiga skammir skilið fyrir sín ljótu orð um fallega og góða jólasveininn JÁJ sem árum saman gaf fullt af jólalærum í Mæðrastyrksnefnd. Hverjum er ekki sama þótt þeim hafi verið stolið með flóknum leikfléttum snillingsins. Ljótt af Mogganum að bera þetta út. Hinsvegar á Sérstakur Saksóknari miklar þakkir skilið fyrir að taka ekki slorið úr Héraðsdómi og Mogganum alvarlega. Engum nema vitleysingum dytti í hug að setja góða Jón jólasvein í fangelsi.
Fyrri grein 23.12.2010:
Birtu ekkert um dóm. Fréttablaðið segist ekki hafa vitað um dóminn!
Stjórnmál og samfélag | Breytt 25.12.2010 kl. 10:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
23.12.2010 | 17:36
Birtu ekkert um dóm. Fréttablaðið segist ekki hafa vitað um dóminn!
Fréttablaðið þagði en Morgunblaðið birti á forsíðu að Jón Ásgeir Jóhannesson eigandi 365 miðla hafi setið öllum megin "við samningaborðið" þegar 305 milljónum var stolið frá Glitni banka í leikfléttu til að hirða fjölmiðlaveldið undan kröfuhöfum.
Vakti athygli mína að blaðið sem segist lesið 187% meira en Morgunblaðið þagði yfir málinu. Svo ég hringdi í vaktstjórann á ritstjórn Fréttablaðsins og spurði hversvegna þau fjölluðu ekki um þetta. Dóm sem lýsir svo alvarlegum fjársvikum að Sérstakur hlýtur nú að sækja manninn sem sat öllum megin við borðið og stinga beinustu leið í næsta fangelsi.
Fréttastjórinn sagði blaðið ekkert hafa vitað um þennan dóm. Góð fréttamennska þetta? Svo ég spurði hvort þau myndu fjalla um málið í blaðinu á morgun. "Við upplýsum ekkert um hvað við munum fjalla um á morgun" var svarið. Ætli sé kveikt á öllum hjá ritstjórn Fréttablaðsins eða liggur fréttastjórinn flöt eins og hóra undir Jóni Ásgeiri? Upplýsist á aðfangadag.
Nýtt 24.12.2010 - Hér kom svarið:
Jóla-hóra Jóns Ásgeirs - Myndband á Youtube!
Sami maður við allar hliðar borðsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 25.12.2010 kl. 10:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.12.2010 | 14:45
Neita að mæta í yfirheyrslu hjá lögreglunni - Get ekki tekið Lögreglustjórann í Reykjavík alvarlega!
Fyrir 3 mánuðum hringdi til mín lögreglumaður frá embætti Lögreglustjórans í Reykjavík og vildi fá mig til skýrslutöku vegna kæru frá DV vegna vefsíðunnar www.sorprit.com sem þá grunar að ég standi fyrir.
Nú standa mál þannig að ég hef ítrekað sent þessu embætti kærur vegna ærumeiðinga DV í minn garð. Þeir vísa mínum kærum alltaf frá og veita DV ritsóðunum áframhaldandi skotleyfi á mína persónu og mannorð.
Ég hef misst tölu á þeim fjölda lygasagna og rógburðar sem DV, þetta myrkasta ræsi Íslenskrar fjölmiðlunar, hefur birt um mína persónu. Það skiptir tugum innslaga. Þá stóð DV fyrir vefnum malefnin.com og þar birtust þúsundir ærumeiðinga um mína persónu yfirleitt étið með tilheyrandi slori uppúr sorpritinu.
Þar sem jafnræðis gætir ekki hjá Lögreglustjóranum í Reykjavík get ég ekki tekið þetta embætti alvarlega. Ég mun ekki mæta í yfirheyrslu vegna kæru á mig frá sérstökum vinum Lögreglustjórans á meðan mínar kærur gegn sama aðila eru settar í ruslafötuna án tilhlýðarlegrar rannsóknar.
Óski Lögreglustjórinn að fá mig í þessa yfirheyrslu þarf að flytja mig þangað nauðugan. Ég hef í dag tilkynnt lögmanni Lögreglustjórans í Reykjavík um þessa ákvörðun mína. Jafnframt upplýst um komu mína til Keflavíkurflugvallar. Embættið er nú að íhuga hvort ég verð handtekinn við komu til landsins og færður til yfirheyrslu um vefsíðuna sorprit.com og meintar ærumeiðingar í garð DV.
Áhugaverð síða: www.sorprit.com
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
13.12.2010 | 10:09
Útilokað að höfuðstöðvar S.Þ. séu í hryðjuverkaríki
Tími er kominn á að leiðtogar Íslands og annarra lýðræðisríkja krefjist þess að höfuðstöðvar Sameinuðu Þjóðanna verði fluttar frá því morðóða hryðjuverkaríki bandaríkjunum.
Wikileaks uppljóstranir hafa til viðbótar ýmsum öðrum upplýsingum síðustu ára afhjúpað ríki undir stjórn brjálæðinga í ameríku.
Snarklikkað fólk starfar einnig á flugvöllum bandaríkjanna. Fjöldi fólks hefur lent í klónum á þessu liði við komu til landsins. Gestir sem hafa þurft að sækja fundi eða ráðstefnur hjá S.Þ. hafa verið lítisvirtir m.a. sendiherra Indlands:
Var gestur Birgittu í sendiráðinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.12.2010 | 23:30
VISA og MASTERCARD svíkja lit
Visa og Mastercard eiga að halda sér á sínu sviði, greiðslumiðlun. Misnotkun þeirra á greiðslukerfinu til að verja alþjóðlega spillingu bandarískra pólitíkusa réttlætir aðgerðirnar gegn þeim.
Nú þurfum við nýtt greiðslukortakerfi. Nýtt hlutlaust kerfi sem ekki tengist trúðunum í Washington!
Tölvuþrjótar herja á vef Visa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.12.2010 | 03:28
Utanríkisráðuneytið svarar ekki fyrirspurn um peningabruðl í sendiráðum
Hversvegna svarar ekki Utanríkisráðuneytið þessari fyrirspurn sem ég sendi þeim fyrir mánuði síðan:
Ég er að skrifa greinar um einstaka liði í fjárlögum, m.a. vegna sendiráða og Varnarmálastofnun.http://www.austurvollur.is/thor
Kostnaður nánast fjórfaldast | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.12.2010 | 18:28
Símafyrirtækið TAL IP Fjarskipti ehf heldur fyrirtæki mínu í gíslingu
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.12.2010 | 14:56
Hergagnaframleiðsla á Íslandi?
Ætla Íslendingar að leggja fyrir sig hergagnaframleiðslu í framtíðinni?
Mbl.is flytur frétt af tveggja milljarða hergagnasamningi Íslenska fyrirtækisins Arctic Trucks fyrir norska og sænska herinn.
Vonandi er þetta ekki þróun í þá átt að Íslendingar og Ísland verði virkir þátttakendur í framleiðslu hergagna í framtíðinni.
Æskilegra er að nota sérstöðu landsins sem land friðar til að laða hingað starfsemi tengt friðarmálum. Eins og ég hef lýst í hugmyndafræðinni "Virkjum Bessastaði" og á vefnum www.austurvollur.is gæti á Íslandi risið nýr atvinnuvegur með tugmilljarða tekjum tengt friðar, mannréttinda og lýðræðismálum. Allt sem þarf til þess er raunverulegur og ákveðinn vilji þjóðarinnar.
Samið um smíði fyrir norska og sænska herinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)