RÚV umfjöllun til sölu - Sjá video með 40 milljónum á borðið!

Mér 7176 og öðrum frambjóðendum til Stjórnlagaþings barst tilboð frá RÚV í dag.  Hér getið þið séð svar mitt ásamt auglýsingu í Silfur Egils og 40 milljónir í tvöþúsundköllum tilbúið í slaginn:

Sæll Gunnar Ingi Hansson auglýsingadeild RÚV
Vísa í tilboð þitt hér að neðan. Reyndi mikið að komast í Silfur Egils fyrir síðustu alþingiskosningar, þannig að frábært tilboð hjá þér að bjóða mér að vera í kringum þáttinn!
Já takk ég tek þessu tilboði ykkar hjá RÚV.
Hjálagt er auglýsing sem ég óska að birtist á undan Silfri Egils og í auglýsingahlé þáttarins.

Ágæti frambjóðandi,
 
Nú styttist í kosningar og eru sumir frambjóðendur strax byrjaðir að kynna sér möguleika í auglýsingum.
Við á RÚV höfum fengið fyrirspurnir varðandi auglýsingaverð og ákváðum við að senda á alla frambjóðendur hvað við bjóðum.
 
Við höfum ákveðin afsláttakjör sem gengur jafnt yfir alla frambjóðendur. Þetta er svo kallaðu kosninga afsláttur.
Þessi 25% kosninga afsláttur gengur til allra frambjóðenda Stjórnlagaþings og gengur sá afsláttur bæði í útvarp og sjónvarp.
 
Við bjóðum uppá ansi sterkar auglýsinga leiðir – í kringum umræðu þætti, fréttir og annað efni sem virkir kjósendur horfa og hlusta á.
Allir frambjóðendur ganga að sama borði hér á RÚV.
 
Sem dæmi er skjáauglýsing í kringum Silfur Egils að kosta 11.940,- (án vsk)
Svo eru samlesnar auglýsingar í útvarpi einnig mjög sterkar – þær birtingar eru í kringum frétta tíma útvarpsins.
 
Fyrir þá frambjóðendur sem er alvara með að komast inn, þá munu auglýsingar án efa spila stórt hlutverk í vali í þessum kosningum.
Það eru margir frambjóðendur og hver og einn má kjósa um 25 einstaklinga – það er pláss fyrir nokkra á hverjum kjörseðli og því um að gera að vera ofarlega í huga kjósandans.
 
Ef ég get hjálpað ykkur að setja upp auglýsingaplan endilega verið í sambandi.
 
Virðingarfyllst,
Ríkisútvarpið AuglýsingadeildGunnar Ingi HanssonBeinn sími: 515-3263
Sími : 515-3263Fax : 515-3255   GSM : 822-2434 Netfang: gih@ruv.iswww.ruv.is


mbl.is 35 klukkustundum hlaðið á Youtube á mínútu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband