Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Útilokað er að ríkisstjórnin og Alþingi sitji áfram. Ég skora á mótmælendur að standa vaktir um Alþingishúsið eins og þarf næstu daga og vikur með friðsömum og ábyrgum hætti en með staðfasta kröfu um að stjórnarþingmenn OG EINNIG stjórnarandstaða segi af sér í mótmæla- skyni við ruglið sem er í gangi innandyra.
Þingið verður í raun óstarfhæft og úthrópað einræði erlendis gangi stjórnarandstaðan út í mótmælaskyni.
Ráðherrarnir verða að átta sig á stöðunni og segja sig frá völdum nú STRAX:
1. Trúverðugleikinn er enginn, hvorki á Íslandi né erlendis. Ég er í dag staddur í Hollandi og dagurinn hefur farið í að leita að nýju nafni á fyrirtækið mitt islandus.com. Erlendir viðskiptafélagar okkar segja að allt sem bendlar okkur við Ísland eyðileggi fyrir viðskiptum. Sama saga berst frá breskum samstarfsaðilum, að Ísland sé orðið samnefnari fyrir bankamisferli og fjárglæframenn.
2. Fjórir mánuðir eru liðnir og ALLIR FJÁRGLÆFRAMENNIRNIR ganga enn lausir. Hér er í Hollandi er litið á þetta sem fáranlegt grínleikrit. Menn tala um að stjórnvöld hljóti að vera með eitthvað óhreint í pokanum úr því að þau taka ekki á ævintýralegu peningaþvættinu í bönkunum og þjófnaði útrásarvíkinganna á sparifé almennings. Nýjasta, skýrasta og eitt öfgafyllsta dæmið er Ólafur Ólafsson í Samskip. Hversvegna er þessi maður ekki kominn í gæsluvarðhald?
3. Útilokað er fyrir Íslensk útflutningsfyrirtæki að senda peninga til Íslands á meðan þar situr við völd snarbrjáluð ríkisstjórn og fjárglæframenn ganga lausir með löngutangir inní bönkum og stofnunum þjóðfélagsins beint eða í gegnum leppa og stjórnmálaflokkaskrípi.
Það virðast flestir nú farnir að sjá í gegnum lygavefinn nema valdasjúkir og veruleikafyrrtir ráðherrar sem enn sitja sem fastast í brennandi Alþingishúsinu.
Þeir setja ólög á Alþingi sem hóta 2ja ára fangelsi þeim sem ekki vilja stunda fjárdrátt af sínum erlendu viðskiptavinum og senda pengingana þeirra í gjaldþrota bankastofnanir á Íslandi. Hver getur tekið mark á slíkum lögum? Hvaða dómara ætlar að dæma mann fyrir að neita að gerast þátttakandi í fjársvikum Íslensku bankanna?
Ísland á sér ekki viðreisnar von fyrr en allur þingheimur, stjórnarliðar og stjórnarandstaða yfirgefa Alþingishúsið, ríkisstjórnin segir af sér, forsetinn segir af sér, stjórnendur bankanna segja af sér, stjórn seðlabanka og fjármálaeftirlits segja af sér. Skipuð verði neyðarstjórn með amk 50% erlendum sérfræðingum er starfi fram yfir kosningar til að hreinsa upp spillinguna.
Í kjölfarið þarf að setja bráðabirgðalög til að breyta kosningakerfinu og koma á beinu og milliliðalausu lýðræði.
Slík uppstokkun og valdið til þjóðarinnar sjálfrar er eina leiðin sem getur tryggt að spillingapésarnir geti ekki grafið um sig aftur í stofnunum og Alþingi Íslendinga. Nánar um beint og milliliðalaust lýðræði: www.lydveldi.is
![]() |
Mótmæli halda áfram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
20.1.2009 | 18:11
Veruleikafirrt stjórnarandstaða í leikhúsi fáránleikans
"Nei nei við Vinstri græn fórum bara út til þess að taka þátt í þessum mótmælum og tala við fólk svo förum við í okkar vinnu núna" svaraði Álfheiður Ingadóttir þingmaður VG skælbrosandi út að eyrum þegar blaðamaður spurði hvort búið væri að loka Vinstri græna úti úr Alþingishúsinu.
Hvaða vinnu er þessi mótmælandi að tala um? Vinnu við að lífróður undir galeiðu snarbrjálaðrar ríkisstjórnar? Vinnu við að sigla þjóðarskútunni í strand? Vinnu við að gala ofaní tóma tunnu um hvort selja eigi áfengi í matvörubúðum á meðan húsið brennur og þjóðin missir endanlega allt?
Fylgir ekki nægjanlegur hugur máli hjá þingmönnum VG til að segja af sér þingmennsku og ganga úr Alþingishúsinu og sýna þannig í verki að þeir styðja ekki þinghaldið?
Ætlar Steingrímur J og hans lið áfram að kynda undir að börn og unglingar séu handtekin af lögreglu við Alþingishúsið á meðan þeir sitja inní hlýjunni í veruleikafirrtu Alþingi og viðhalda leiksýningunni?
Eins og ég sagði í fyrri grein: "Yfirgefi stjórnarandstaðan þingið yrði það heimsfrétt. Erfitt fyrir ríkisstjórn að sitja áfram á slíku þingi því þing án stjórnarandstöðu myndi á augabragði afhjúpa séríslenska ráðherraræðið sem einhverskonar einræðistilburði í augum heimsins. Stjórnvöld myndu endanlega missa alla tiltrú og hitna svo undir ráðherrastólum að ekki yrði í þeim vært stundinni lengur".
Þessi aðgerð myndi einnig afhjúpa hvort stjórnarandstaðan er eitthvað betri. Hvort þeir sem þarna sitja fyrir Vinstri Græna eða aðra flokka eru þar af hugsjón eða sem áskrifendur að þægilegu launaumslagi.
4.1.2009 | Höfnum spilltum pakkaferðum alþingismanna
![]() |
Þjóðin var í Alþingisgarðinum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 21.1.2009 kl. 01:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
20.1.2009 | 00:22
Bankaræningjann Ólaf Ólafsson í gæsluvarðhald og eignafrystingu STRAX!!!
Að reyna að troða því bulli í þjóðina að hlutabréfaviðskipti í Kaupþing hafi farið í gegnum Jómfrúreyjar vegna "skattahagræðingar" er bara hálf sagan.
Hinn hluti falsmyntarinnar er blekkingin sem Ólafur setti á svið til að spila á almenna hluthafa bankans, þjóðina og stjórnvöld.
Ef slíkt peningaþvætti eins og þarna átti sér stað varðar ekki við lög hérlendis, þá þarf að setja slík lög (sem allar siðmenntaðar þjóðir hafa) STRAX Í DAG OG SÆKJA ÞENNAN FJÁRGLÆFRAMANN OG HANS EIGNIR EINS OG SKOT!!!
Blekkingarvefur Ólafs Ólafssonar hefur meira en hjálpað til að setja þjóðina á hausinn og draga orðstír okkar þannig í svaðið að heiðarleg Íslensk fyrirtæki geta varla átt eðlileg viðskipti á erlendri grund í dag vegna vantrausts erlendra viðskiptavina og hræðslu þeirra við að senda peninga til landsins.
Ég er í dag í Hollandi og þar segja þeir Ísland vera svikamylluland því ekkert hafi breyst, þarna séu enn sömu stjórnendur, sömu bankarnir og fingralöngu fjárglæframennirnir gangi enn lausir.
Ólafur Ólafsson í Samskipum grenjar um það í fjölmiðlum að hann sé "dreginn inn í svaðið sem fjárglæframaður". En þetta er nákvæmlega það sem þessi maður er, einn stórtækasti fjárglæframaður okkar tíma.
Kaup Ólafs og félaga á Búnaðarbankanum var einnig byggt á blekkingarvef og bankanum í raun stolið af þjóðinni. Sama sjónhverfingabullið var með sambandsfyrirtækin sem Ólafur sölsaði undir sig með siðlausum stuðningi úr spilltasta greini landsins, Framsóknarflokknum.
Trúverðugleiki Íslensku þjóðarinnar og viðskiptavild erlendis á sér ekki viðreisnarvon fyrr en búið er að taka helstu glæpamennina úr umferð. Nú er komið að skuldadögum bankaræningjans Ólafs Ólafssonar. Starfsmenn Ríkislögreglustjóra: Sækið þennan mann og hans eignir STRAX!!!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
17.1.2009 | 23:12
STJÓRNSÝSLUKÆRA vegna Lögreglunnar í Reykjavík
Kærð er framganga þeirra starfsmanna Lögreglustjórans í Reykjavík er höfðu í hótunum við friðsæla mótmælendur og létu fjarlægja ræðupall Nýrra radda á Austurvelli.
Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu sagði ósatt í fjölmiðlum. Haft er eftir honum á visir.is: samkvæmt lögum þurfi ekki að fá leyfi til að mótmæla. Hins vegar þurft mótmælendur að tilkynna til lögreglustjóra að þeir hyggist efna til mótmæla. Geir Jón sagðist ekki vita til þess að síðari mótmælin hafi verið tilkynnt. Hann sagði þó að engin viðurlög lægju við slíku en ef að mótmælin yllu röskun, til dæmis á umferð, þá myndi lögreglan grípa til ráðstafana.
Eftir að leita upplýsingar um hvert skyldi senda tilkynningu um fyrirhuguð mótmæli sendu Nýjar raddir á Austurvelli tilkynningu föstudaginn 16 janúar á lhr@lhr.is sem starfsmaður embættisins upplýsti í hljóðrituðu samtali að væri vaktað allan sólarhringinn.
Engar athugasemdir bárust frá lögreglunni, fyrr en um kl. 15 á Austurvelli eftir búið var að leigja sendiferðabifreið og annað búnað undir aðgerðina.
Þá mætti lögreglan á staðinn og ætlaði sjálf að aka sendibifreiðinni í burt undir þeim formerkjum að ekki væri gefið leyfi fyrir því að magna hljóð úr þessum bíl á þessum stað.
Þá var boðist til að láta bílinn standa sem þögul mótmæli án þess að senda út nokkurt hljóð eða að tala úr bílnum. Því einnig hafnað af lögreglu á staðnum og yfirvarðstjóra á lögreglustöðinni við Hverfisgötu.
Lögreglan hafði í hótunum við bílstjóra þar til hann fjarlægði bílinn.
Sendibifreiðin truflaði á engan hátt umferð á staðnum.
Framganga lögreglunnar hindraði ekki aðeins eðlilegt lýðræði á Austurvelli, aðgerð lögreglu olli einnig samtökunum tugþúsunda kostnaði sem mátti afstýra ef athugasemdin hefði borist fyrr.
Slík framkoma sem þessi af hálfu lögreglunnar mun ekki stöðva Nýjar raddir á Austurvelli. Við áskiljum okkur rétt til að mæta með ræðupalla og mótmæli hvar sem okkar þóknast. Slíkt er okkar lýðræðislegur réttur.
Þeim ábendingum er komið til lögreglunar að friður gæti ríkt um mótmælafundi á Austurvelli fáist Hörður Torfason til að leggja niður gerræðislega einræðistilburði sem hann því miður stundar núna gersamlega þvert á kynningar fundanna í fjölmiðlum sem er undir allt öðrum formerkjum sem raddir fólksins og breiðfylking gegn ástandinu sem öllum er opin. Verið er að blekkja þjóðina.
Verði tekin upp lýðræðisleg vinnubrögð við val á ræðumönnum í stað þess að valda þeim illdeilum sem raun ber vitni við lýðræðissinna og einstaka mótmælendur, þá gætu aðilar sem vilja leggja orð í belg notast við sama ræðupall með afskaplega friðsömum hætti.
Við minnum einnig á fyrra erindi til Umboðsmanns Alþingis og fleiri að óheimilt er og verið er að brjóta lög og reglur um Ríkisútvarpið ef sent er út frá fundum á Austurvelli nema öðrum sjónarmiðum og aðilum sem meinaður hefur verið aðgangur í þær útsendingar eins og ítrekað hefur gerst undanfarið, meðal annars með útburði af fundum og svo með aðgerðum lögreglu í dag, sé einnig veittur sambærilegur aðgangur að ríkisfjölmiðlinum.
Vekjum athygli á vefsíðunni http://kosning.austurvollur.is þar sem almenningur getur lagt til nöfn ræðumanna í opin kjörkassa og kosið síðan um það með lýðræðsilegum hætti hverjir eru valdir til að flytja erindi og ávörp á fundum. Kjörkassinn er öllum opinn.
Nýjar raddir á Austurvelli myndu þá sækja um sinn aðgang með tillögum í kjörkassann og lúta slíku lýðræðislegu vali þjóðarinnar á sínum talsmönnum úr röddum fólksins. Samkomulag aðila um slík lýðræðisleg vinnubrögð myndi leysa úr ágreiningi á meðal mótmælenda, létta störf lögreglunnar og gera þátttöku ríkisfjölmiðilsins mögulega.
Sent Umboðsmanni Alþingis og afrit til Lögreglustjórinn í Reykjavík, Ríkislögreglustjórinn, Dóms og kirkjuálaráðuneytið, Ríkisútvarpið, Útvarpsréttarnefnd, Menntamálaráðherra, Menntamálanefnd Alþingis, Íslandsdeild þings Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu, OECD (alþjóðaskrifstofa Öryggis- og samvinnustofnar Evrópu), París, Frakklandi, Alþingismenn, birt á vefnum: www.austurvollur.is
Stjórnmál og samfélag | Breytt 18.1.2009 kl. 01:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (41)
17.1.2009 | 17:48
Myndin sem afhjúpar skítleg vinnubrögð og kommúníska þöggun
Minni á orð Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands um "Skítlegt eðli" á Alþingi með þessari mynd frá www.austurvollur.is
Áhugavert væri að vita hvernig Ísland yrði með bakkabræðurna Hörð Torfason leikara, Einar Már Guðmundsson ritstjóra komúníska dagblaðsins Nei og Gunnar Sigurðsson leikstjóra í ráðherrastólum, en þeir lýstu því yfir í Speglinum á Ríkisútvarpinu s.l. fimmtudag að þeir stefna á framboð til alþingis.
Yrði ég þá sendur í gúlagið og endanlega þaggað niður í þessar þjóð?
![]() |
Fjöldi manns á Austurvelli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (31)
17.1.2009 | 13:45
Bráðfyndin hugleiðing um Harðar Torfa "Raddir fólksins"
Magnús Þór bloggaði þetta bráðfyndna myndskeið af YouTube og þjóðfélagsádeilu um Raddir fólksins.
Hvort á ég að gráta eða hlægja yfir æðibunugangi Harðar Torfasona og yfirlýsingu í fréttum þar sem hann segir að mótmæli annarra en hans eigin séu ólögleg! Ólögleg??? Maðurinn sem stendur fyrir því að mótmælendur ryðjast inní stofnanir, varna ráðherrum inngöngu á Alþingi og sem lýsir því yfir á RÚV að hann ætli að trufla fund Alþingis n.k. þriðjudag, segir aðra sem vilja leggja orð í belg lögbrjóta.
Hörður bíður ekki einu sinni eftir því að hafa tekið yfir Alþingi með nýjum kommaflokki sínum, Hörður hefur tekið sér alræðisvaldið strax í dag!
Það hljóta fleiri en ég að sjá hverslag aðför þetta er að tjáningarfrelsinu. Viljum við slíkan sovét-fasisma eins og vinnubrögð Harðar í stað þess skríplega ráðherraræðis sem nú tröllríður hér húsum?
Ég verð einnig að hryggja Hörð Torfason með því að hann fer með rangt mál að ég sé ræðumaður á Austurvelli í dag. Ég bíð enn eftir svarinu frá Herði við bréfi mínu, vonandi fæ ég að taka um hljóðnema "Radda fólksins" á næstunni.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
17.1.2009 | 01:41
Hörður svaraði ekki! Vill úr alræði ráðherravalds í alræði kommúnista
Sorglegt, en Hörður Torfason svaraði ekki bréfinu sem ég sendi honum um tjáningarfrelsi á Austurvelli. Ekkert lýðræði á Austurvelli ef Hörður fær að ráða. Enginn má þar tala nema einráðurinn Hörður samþykki. Einvaldurinn svarar hvorki bréfum né símtölu frá fólki sem er honum ekki þóknanlegt.
Einn ágætur kunningi minn segir Hörð hafa sagt í byrjun desember að hann væri nr. 50 á biðlista frummælenda á Austurvelli og haft yrði samband við hann. Enginn hefur hringt þótt troðið sé upp sama fólkinu fund eftir fund. Í dag þegar þessi ágæti og mælski maður hafði samband skellti Hörður Torfason á hann símanum!
Í Speglinum á Rás1 hjá Ríkisútvarpinu fimmtudagskvöld sagðist Hörður stefna á flokksframboð ásamt Einari Má Guðmundssyni rithöfundi og ritstjóra NEI sem þeir kynna sem kommúnískt dagblað á netinu.
Þarna er líklegast komin skýringin á því að enginn má koma í ræðustól svokallaðra "Radda fólksins" á Austurvelli nema kommúnistar og aðrir sem sverja sovét-fasistum hollustu. Þessvegna eru jólasveinar og aðrir lýðræðissinnar sem sjá í gegnum blekkingarvefinn bornir út af fundum þeirra.
Lýðræðissinnar láta auðvitað ekkert bjóða sér svona rugl til lengdar. Að óprúttnir aðilar nýti sér örbyrgð fólksins í landinu til að blekkja það í klær kommúnista. Það eru ekki "Raddir fólksins" að þagga niður í fólki og hefta tjáningarfrelsið. Við viljum ekki slíka kúgun í stað ráðherraræðis.
11.1.2009 | Opið bréf til Harðar Torfasonar
![]() |
Mótmælin halda áfram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
15.1.2009 | 21:12
Útilokað er að skila útflutningstekjum í kardimomubæ Ponzílands
Hvernig geta útflytjendur tekið mark á vælinu í Geir H. Haarde um að skila útflutningstekjum heim í banka á barmi gjaldþrots? Til banka á kennitöluflakki óreiðumanna og sem búið er að ræna úr og rupla slíkum fjárhæðum að nú riða nýju kennitölurnar til falls.
Hvaða útflytjandi vill taka peninga frá sínum viðskiptavinum og senda niður slíkt fjársvikaræsi? Þess fyrir utan er það nánast útilokað að nokkrir erlendir viðskiptavinir fáist til að senda peninga til skríls sem samlíkt er með Ponzi fjársvikamyllum.
Hvaða stjórnandi erlends fyrirtækis vill senda peninga til spillingarríkis þar sem valdasjúk ríkisstjórn heldur þjóðfélaginu í heljargreipum með ónýtum seðlabanka og gjaldþrota bankastofnunum sem rúnar eru öllu trausti. Hvernig gæti stjórnandi í erlendu atvinnulífi réttlætt slík afglöp fyrir viðskiptavinum og hluthöfum ef peningarnir tapast og hann fær ekki vörur sína eða þjónustu?
Þegar bankahrunið var að gerast varaði ég stjórnarþingmann við því að nákvæmlega þetta myndi gerast yrðu bankarnir ríkisvæddir með þeim formálum sem nú hefur verið gert. Ég fullyrti að Íslenskt fjármálalíf yrði þá í augum heimsins eins og illkynja krabbamein með þeim afleiðingum að við færum aftur á hausinn. Ekkert var hlustað á mín varnarorð.
Ég var svo hræddur um þetta að þegar ég gat ekki fengið nein svör við tilboði mínu þrátt fyrir að hringja daglega í tvær vikur og biðja um umboð til að bjóða hingað til lands þeim erlendu sérfræðingum sem gátu hjálpað að endurreisa bankana af einhverju viti, keypti ég heilsíðu auglýsingu í Fréttablaðinu. Þar bauðst ég opinberlega til að sækja þessa fjármálaspekinga heim. Ekki einu sinni heilsíðu auglýsing virkaði á stjórnarliðið enda virðist rigna inn um nefið á þeim. Nú stefnum við aftur á hausinn nákvæmlega eins og ég spáði fyrir um.
Geir H. Haarde og hans hjörð þurfa að átta sig á því að þeir geta aðeins siglt þjóðarskútunni í strand. Þeir geta aðeins stefnt niðurávið. Þeir hafa klúðrað málum svo rækilega bæði í aðdraganda bankahruns og nú aftur á undanförnum fjórum mánuðum að bloggarar og fjölmiðlar leita að týndum milljarðatugum á meðan bankaræningjarnir ganga hér lausir. Hverslag vitleysisrugl er í gangi?
Hvers vegna sækir ekki Ríkislögreglustjórinn Ólaf Ólafsson og Ólaf Ragnar Grímsson og yfirheyrir þessa menn? Er bankaránið ekki nægjanlega stórt fyrir lögregluna? Liggja strengirnir ekki nægjanlega hátt uppí stjórnkerfið? Er löggi orðinn of feitur og latur til að vinna sína vinnu?
Ekki stóð á að sækja mig um miðja nótt og stinga í svartholið við Hverfisgötu innan 3ja klukkustunda þegar mér dirfðist að mótmæla stuðningi landráðamannanna í Stjórnarráðinu við snarbrjálað og blóðugt Írakstríð morðingjans Bush. Þá kom löggi hlaupandi eins og húsbóndahollur hundur.
Komið hefur fram í fréttum í dag að Óla Ólsen bandið, umfangsmesti bankaræningi landsins ásamt sjálfum forseta kardimomubæjar hjálpuðust við að hala inn þýfið frá Katar. Það sendir enginn heilvita maður peninga langt út í ballarhaf uppá einangraða eyju sem stjórnað er af valdasjúkri klíku og glæpagengi. Er erfitt að skilja það Geir H. Haarde?
Ef hér eiga að komast á eðlilegir viðskiptahættir þarf að byrja á því að moka út úr Alþingishúsinu. Ég skora á stjórnarandstöðuna að ganga út, allir sem einn maður, við setningu þingsins á þriðjudag. Þá munu stjórnvöld ekki eiga annars kosta völ en segja af sér. Annað yrði staðfesting til heimsbyggðarinnar á ráðherraræðinu hér og myndi afhjúpa einræðistilburðina sem lögðu grundvöllin að stærstu fjársvikamyllu heimsins og landið fengi líklegast viðurnefnið Ponzíland.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
15.1.2009 | 16:10
Fékk ritrottan vitrun?
Erum við komin á flug inní bjartari tíma? Hefur peningahrunið orsakað hrun óþverralúsa af gyltunni? Gæti verið að sorpritstjórar og ritrottur fái nú slíkrar vitranir að skítlegt eðli sé á flótta úr fjölmiðlaflórhaug Baugs?
Ég rak upp stór augu þegar ég las þetta í leiðara DV í dag: "Íslenskt samfélag er á barmi siðrofs þar sem allt er að verða leyfilegt í nafni málstaðarins. Sjálfsagt þykir að nafnlausir einstaklingar fjalli með subbulegum hætti um nafnkennt fólk inni á vefsíðum sem gefnar eru út fyrir að vera siðvæddar. Ótal dæmi eru um beinan óhróður þar sem nafnleysingjar láta vaða á súðum og bera nafngreint fólk sökum. Einelti þykir sjálfsagt. Og ákveðnir aðilar eru tilbúnir til þess að hýsa ófögnuðinn og veita honum farveg undir því yfirskyni að nauðsynlegt sé að fá allt fram í dagsljósið. Þetta er dæmi um siðrof sem orðið er að veruleika."
Hvað þýðir þetta? Að Reyni Traustasyni sé það ekki lengur "heiður" að birta um mig upplognar lygasakir og ærumeiðingar í DV eins og hann sagði við mig í símtali nokkru fyrir jól.
Ég reyndar lagði til að athugandi væri fyrir hina myrkvu sál sorpritstjórans á DV að setjast á guðfræðibekk við hlið fyrrum samstarfsmanns á 365, Steingríms Snævarr, og í auðmýkt biðja um fyrirgefningu og aðstoð við að hreinsa út skítlegt eðlið.
Gæti verið að Reynir hafi þegar snúist til betri vegar, eða er hann bara að bulla í leiðara DV eins og venjulega? Ef satt og rétt, Reynir sé orðinn betri og bjartari sál, hversvegna hefur hann ekki fjarlægt lygarnar og óhróðurinn um mig á DV-malefnin.com og beðist afsökunar?
Reynir ætlar nú að gerast talrotta á Útvarpi sögu í slagtogi við Eirík Jónsson aðra þekkta ritrottu af DV. Þeir reyna nú að fá sér geislabauga með þeim Hreinsgerningum að gefa ágóðann til góðgerðarmála. En hvernig virkar þetta? Mér skilst að allir fjölmiðlarnir séu reknir með tapi, sé vonlaus bísness. Fær þá Rauði Krossinn tapið eftir að þeir félagar hafa tekið launin sín úr söfnunarbauknum?
Mér finnst að þeir félagar, strengjabrúðurnar í rottubúrinu, eigi að upplýsa í fyrsta þættinum hver það var sem kippti í spottana á Reyni Traustasyni. Þjóðin krefst þess. Allt annað bull er siðrof!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
14.1.2009 | 14:37