Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
2.2.2009 | 10:56
OSCE bíður eftir boðsbréfi Íslands vegna kosningaeftirlits
Hæstvirtur utanríkisráðherra,
Ég hef í dag rætt við Jens-Hagen Schenbaecher hjá OSCE Office for Democratic Institutions and Human Rights í Warsaw, vegna þeirra leiðu staðreynda að hér er ekki hægt að halda lýðræðislegar kosningar nema gera bragabót á fjölmiðlun og ekki síst ríkisfjölmiðlunum. Lýðræðishreyfingin hefur leitað aðstoðar OSCE og óskað eftir að hingað verði sendir án tafar eftirlitsmenn til að taka á þeirri mismunun í aðgangi að útsendingum Ríkisútvarpsins og RÚV.
Jens segir mér að þar sé beðið eftir boðsbréfi frá Íslandi sem stjórnvöldum beri að senda. Það bréf hafi hinsvegar ekki borist OSCE en slíkt sé venjulega sé sent frá Utanríkisráðuneyti þjóðar.
Þess er KRAFIST að Utanríkisráðherra sendi ofangreint boðsbréf til OSCE í dag. Þar sem búið er að boða kosningar hér með aðeins rúmlega 80 daga fyrirvara þolir þetta mál enga bið.
Lýðræðishreyfingin mun ekki sætta sig við áframhaldandi þöggun ríkisfjölmiðlanna. Leiðrétti nýskipaður ráðherra ekki okkar hlut hvað varðar aðgengi að ríkisfjölmiðlunum, munu samtökin grípa til þeirra aðgerða bæði innanlands og erlendis sem við teljum nauðsynlegar til að verja okkar lýðræðislega rétt til að taka þátt í kosningabaráttunni á jafnréttisgrundvelli.
Ísland mun verða að enn frekara athlægi á alþjóða vettvangi ef það spyrst út að hér sé efnt til kosninga í skugga fjölmiðla sem stjórnað er eins og tíðkast í alræmdustu einræðisríkjum.
Lýðræðishreyfingin krefst að fá í Ríkisútvarpinu og RÚV í útsendingartíma án tafar þær 20-30 klukkustundir sem aðrir hafa fengið hjá ríkisfjölmiðlunum til að kynna þjóðinni boðskap sinn. Hreyfingin Raddir fólksins og Opinn borgarafundur hafa fengið slíkan aðgang að undanförnu á meðan Lýðræðishreyfingin er hundsuð. Þetta þarf að leiðrétta strax! Við höfum áríðandi boðskap til þjóðarinnar sem þarf að koma til skila nú strax í tíma fyrir kosningar.
Fulltrúar Lýðræðishreyfingarinnar eru tilbúnir að mæta til viðræðna við ráðherra og útvarpsstjóra um nánari útfærslu á útsendingum okkar. Jafnvel að leggja til efnið með dagskrárgerðarstraum til RÚV og vinna efnið í eigin hljóð og myndveri. Við getum ekki séð að það ætti að verða vandkvæðum bundið að hliðra til í dagskrá Ríkisútvarpsins og RÚV. Einfalt væri að setja til hliðar skemmtiefni sem annarsstaðar er fáanlegt og hleypa lýðræðinu í loftið.
Samkvæmt lögum ber Ríkisútvarpinu að halda í heiðri lýðræðislegar grundvallarreglur og mannréttindi og frelsi til orðs og skoðana. Ríkisútvarpinu ber að gæta fyllstu óhlutdrægni í frásögn, túlkun og dagskrárgerð og veita víðtæka, áreiðanlega, almenna og hlutlæga fréttaþjónustu um innlend og erlend málefni líðandi stundar og vera vettvangur fyrir mismunandi skoðanir á málum sem efst eru á baugi hverju sinni eða almenning varða. Þetta segja lögin!
Þessum skyldum sínum traðka starfsmenn Ríkisútvarpsins ofaní ræsið. Lýðræðishreyfingin, sem eru skráð stjórnmálasamtök á Íslandi, fær enga umfjöllun um sín stefnumál. Fréttatilkynningar okkar fá ekki umfjöllun og skriflegum erindum til útvarpsstjóra er ekki svarað. Samtökin eru hundsuð! Á sama tíma veitir Ríkisútvarpið og RÚV vinstrisinnuðum vindhönum greiðan aðgang til að gala lýðskrum yfir þjóðina í útvarps og sjónvarpsútsendingum klukkutímum saman.
Það er lýðskrum að boða til borgarafunda og kalla það breiðfylking eða raddir fólksins og segjast gefa öllum tækifæri að tjá sig, en banna síðan flesta aðra frá umræðunni nema vinstri græna eða fólk með kommúnískar hugsjónir. Þetta er lýðskrum úr sovét-fasisma Stalíntímans.
Undirritaður reyndi með friðsamlegum hætti að fá aðgang að ofangreindum fundum sem Ríkisútvarpið og RÚV hafa útvarpað og sjónvarpað, en því var alfarið hafnað að Lýðræðishreyfingin ætti þar fulltrúa og talsmann. Í tvígang hefur undirritaður verið borinn út af fundum þessara samtaka og í þriðja sinn meinað innganga af einkennisklæddum dyravörðum á fund samtakanna í Iðnó. Skipti engu máli þótt fundargestir óskuðu að heyra það sem undirritaður hafði fram að færa, en fundarstjóri hafði kosningu um það á fundinum að engu.
Á meðan útsendingar Ríkisútvarpsins og RÚV hampa vinstri vindhönum í Kastljósi, Silfri Egils og öðrum þáttum ríkisfjölmiðilsins, er Lýðræðishreyfingin sniðgengin. T.d. í dag fengu samtökin Raddir fólksins á aðra klukkustund í beinni útsendingu sem þeir notuðu til að tilkynna með reglulegu millibili eða auglýsa opið hús sinna nýju stjórnmálasamtaka og tónleika sem efnt er til fyrir fjáröflun þeirra en aðgangseyrir rennur óskiptur til þeirra. Þá var flutt frétt á RÚV undir nafninu Barist fyrir endurnýjun lýðræðis og þar var Lýðræðishreyfingin einnig hundsuð!
Það er með ólíkindum að í forsæti fyrir ríkisfjölmiðil þjóðarinnar hafi valist einstaklingur sem engan skilning ber á grundvallarreglum lýðræðis. Hvernig getur Lýðræðishreyfingin kynnt sín baráttumál fyrir þjóðinni eða tekið þátt í alþingiskosningum á jafnréttisgrundvelli við slíka fjölmiðlun sem raun ber vitni? Að samtök okkar séu algerlega sniðgengin á meðan aðrir fá ómældan aðgang til að kynna sín stefnumál og meira segja til að afla peninga í sín framboð með aðstoð fjölmiðla ríkisins. Lýðræðishreyfingin fær heldur enga styrki frá ríkinu til síns framboðs eins og þau stjórnmálasamtök sem sitja á Alþingi. Kalla menn þennan skrípaleik lýðræði?
Sent til: OSCE Office for Democratic Institutions and Human Rights. Dóms og kirkjumálaráðuneytið.Útvarpsréttarnefnd. Menntamálaráðherra. Menntamálanefnd Alþingis. Íslandsdeild þings Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu. Umboðsmaður Alþingis. Blaðamannafélag Íslands. Reporters Without Borders. Alþingismenn.
![]() |
Stjórnarskiptin vekja athygli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.2.2009 | 00:29
TAFARLAUST INNGRIP RÁÐHERRA KRAFIST!
Kalla menn þennan skrípaleik lýðræði?
ÍTREKUN KÆRU TIL ÚTVARPSRÉTTARNEFNDAR OG OSCE
Hæstvirtur menntamálaráðherra,
Til hamingju með afmælisdaginn og ráðherrastólinn.
Í ljósi þess að boðað hefur verið til kosninga eftir um 80 daga krefst þetta erindi aðgerða og inngrips nýskipaðs ráðherra strax. Engan tíma má missa ef kosningar eiga að fara fram hér með lýðræðislegum hætti.
Lýðræðishreyfingin mun ekki sætta sig við áframhaldandi þöggun ríkisfjölmiðlanna. Leiðrétti nýskipaður ráðherra ekki okkar hlut hvað varðar aðgengi að ríkisfjölmiðlunum, munu samtökin grípa til þeirra aðgerða bæði innanlands og erlendis sem við teljum nauðsynlegar til að verja okkar lýðræðislega rétt til að taka þátt í kosningabaráttunni á jafnréttisgrundvelli.
Ísland mun verða að enn frekara athlægi á alþjóða vettvangi ef það spyrst út að hér sé efnt til kosninga í skugga fjölmiðla sem stjórnað er eins og tíðkast í alræmdustu einræðisríkjum.
Lýðræðishreyfingin krefst að fá í Ríkisútvarpinu og RÚV í útsendingartíma án tafar þær 20-30 klukkustundir sem aðrir hafa fengið hjá ríkisfjölmiðlunum til að kynna þjóðinni boðskap sinn.
Hreyfingin Raddir fólksins og Opinn borgarafundur hafa fengið slíkan aðgang að undanförnu á meðan Lýðræðishreyfingin er hundsuð. Þetta þarf að leiðrétta strax! Við höfum áríðandi boðskap til þjóðarinnar sem þarf að koma til skila nú strax í tíma fyrir kosningar.
Fulltrúar Lýðræðishreyfingarinnar eru tilbúnir að mæta til viðræðna við ráðherra og útvarpsstjóra um nánari útfærslu á útsendingum okkar. Jafnvel að leggja til efnið með dagskrárgerðarstraum til RÚV og vinna efnið í eigin hljóð og myndveri.
Við getum ekki séð að það ætti að verða vandkvæðum bundið að hliðra til í dagskrá Ríkisútvarpsins og RÚV. Einfalt væri að setja til hliðar skemmtiefni sem annarsstaðar er fáanlegt og hleypa lýðræðinu í loftið.
Ofangreint er inngangur bréfsins til nýskipaðs ráðherra og síðan kemur fyrra bréf sem er hér: Kalla menn þennan skrípaleik lýðræði?
Nánar um Lýðræðishreyfinguna hér: www.lydveldi.is
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
31.1.2009 | 23:53
Kalla menn þennan skrípaleik lýðræði?
Samkvæmt lögum ber Ríkisútvarpinu að halda í heiðri lýðræðislegar grundvallarreglur og mannréttindi og frelsi til orðs og skoðana.
Ríkisútvarpinu ber að gæta fyllstu óhlutdrægni í frásögn, túlkun og dagskrárgerð og veita víðtæka, áreiðanlega, almenna og hlutlæga fréttaþjónustu um innlend og erlend málefni líðandi stundar og vera vettvangur fyrir mismunandi skoðanir á málum sem efst eru á baugi hverju sinni eða almenning varða. Þetta segja lögin!
Þessum skyldum sínum traðka starfsmenn Ríkisútvarpsins ofaní ræsið. Lýðræðishreyfingin, sem eru skráð stjórnmálasamtök á Íslandi, fær enga umfjöllun um sín stefnumál. Fréttatilkynningar okkar fá ekki umfjöllun og skriflegum erindum til útvarpsstjóra er ekki svarað. Samtökin eru hundsuð!
Á sama tíma veitir Ríkisútvarpið og RÚV vinstrisinnuðum vindhönum greiðan aðgang til að gala lýðskrum yfir þjóðina í útvarps og sjónvarpsútsendingum klukkutímum saman.
Það er lýðskrum að boða til borgarafunda og kalla það breiðfylking eða raddir fólksins og
segjast gefa öllum tækifæri að tjá sig, en banna síðan flesta aðra frá umræðunni nema vinstri græna eða fólk með kommúnískar hugsjónir. Þetta er lýðskrum úr sovét-fasisma Stalíntímans.
Á meðan útsendingar Ríkisútvarpsins og RÚV hampa vinstri vindhönum í Kastljósi, Silfri Egils og öðrum þáttum ríkisfjölmiðilsins, er Lýðræðishreyfingin sniðgengin. T.d. í dag fengu samtökin Raddir fólksins á aðra klukkustund í beinni útsendingu sem þeir notuðu til að tilkynna með reglulegu millibili eða auglýsa opið hús sinna nýju stjórnmálasamtaka og tónleika sem efnt er til fyrir fjáröflun þeirra en aðgangseyrir rennur óskiptur til þeirra. Þá var flutt frétt á RÚV undir nafninu Barist fyrir endurnýjun lýðræðis og þar var Lýðræðishreyfingin einnig hundsuð!
Það er með ólíkindum að í forsæti fyrir ríkisfjölmiðil þjóðarinnar hafi valist einstaklingur sem engan skilning ber á grundvallarreglum lýðræðis. Hvernig getur Lýðræðishreyfingin kynnt sín baráttumál fyrir þjóðinni eða tekið þátt í alþingiskosningum á jafnréttisgrundvelli við slíka fjölmiðlun sem raun ber vitni? Að samtök okkar séu algerlega sniðgengin á meðan aðrir fá ómældan aðgang til að kynna sín stefnumál og meira segja til að afla peninga í sín framboð með aðstoð fjölmiðla ríkisins. Lýðræðishreyfingin fær heldur enga styrki frá ríkinu til síns framboðs eins og þau stjórnmálasamtök sem sitja á Alþingi.
Kalla menn þennan skrípaleik lýðræði?
Myndin hér til hægri sýnir umfjöllum eins dagblaða okkar um tvö forsetaframboð. Stóra spjaldið er um framboð Ólafs Ragnars Grímssonar, litla spjaldið er um mitt framboð yfir sama tímabil. Á sömu dögum skrifaði ritstjóri blaðsins leiðara með ádeilu á rússnesku forsetakosningarnar vegna mismununar fjölmiðla gagnvart frambjóðendum!
Stjórnmál og samfélag | Breytt 1.2.2009 kl. 00:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.1.2009 | 12:51
Frábærar fréttir. Nú er bara að klára málið!
Frábært hvað auglýsendur DV hafa tekið vel tilmælum www.sorprit.com að hætta að styðja mannorðsmorðingjann.
Nú þurfum við bara öll að leggjast á eitt og hreinsa þjóðfélagið af þeirri óþverra blaðamennsku sem haldið er hér úti af sorpritinu DV.
Skorum á Reynir Traustason að stíga uppúr ruslafötunni og gera hreint fyrir sínum dyrum. Upplýsa þjóðina hver það var sem togaða í spottana á honum og stöðvaði frétt um Landsbankastjóra. Þegar þær upplýsingar liggja fyrir afhjúpast spillingargrenið sem umlykur DV og 365 fjölmiðlana.
13.12.2008 | Sorpfréttastofa DV afhjúpuð
![]() |
DV hættir útgáfu á mánudögum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
29.1.2009 | 01:23
Gróflega troðið á lýðræðinu í Kastljósi RÚV
Í Kastljósi RÚV í gær var umræða sem sögð var um þá gerjun sem á sér stað um lýðræðismálin og þær fjölmörgu hreyfingar sem eru að spretta upp í samfélaginu.
Annar viðmælenda segist spá í framboð með stefnumál sem undirritaður, fyrstur Íslendinga, kynnti opinberlega við kosningar, hefur unnið með síðan 1995 og sem fyrir 10 árum leiddi til stofnunar Lýðræðishreyfingarinnar með beint og milliliðalaust lýðræði sem markmið.
Væntanlegt framboð okkar við næstu alþingiskosningar var tilkynnt til RÚV fyrir tveimur mánuðum síðan.
RÚV hefur því miður ekki séð ástæðu til að virða þær lýðræðislegar leikreglur að veita Lýðræðishreyfingunni jafnan aðgang eins og öðrum aðilum að Kastljósi, Silfri Egils eða annarri umræðum um þessi mál í ríkisfjölmiðlunum.
Eins og áður hefur fram komið í bréfum mínum hafa lög og reglugerðir um starfsemi og hlutverk Ríkisútvarpsins hafa ítrekað verið brotnar á kostnað Lýðræðishreyfingarinnar.
Er eðlilegt að fjalla um beint og milliliðalaust lýðræði og útiloka frá þeirri umræðu einu skráðu stjórnmálasamtök landsins sem hafa þetta mál sem aðalmarkmið? Fréttamönnum má vera ljóst að Lýðræðishreyfingin hefur ýmislegt fram að færa í þessari umræðu.
Er eðlilegt að sniðganga Lýðræðishreyfinguna á meðan dregnar eru fram eftirhermur sem eru svo grófar í sinni framsetningu að íslenska skjaldamerkið er notað sem vörumerki á vefsíðu þeirra. Vefsíðu skráða á einstakling sem rétthafa. Vefsíðu kostaða af fagfjárfestum úr atvinnulífinu í einhverskonar fjárfestingarsamkrulli við ríkisfyrirtæki. Vefsíðu þar sem skjaldamerki ríkisins er notað með ólögmætum hætti á óskráð samtök.
Einn aðstandenda Lýðveldisbyltingarinnar er hinsvegar Davíð A. Stefánsson sem einnig er einn aðstandenda Opins borgarafundar, samtaka sem hafa í tvígang borið mig út af fundum sínum og sem í þriðja sinn vörnuðu mér inngöngu eftir að fundurinn kaus mig inná fund í Iðnó.
Sök mín gagnvart þessum samtökunum var að leggja til lýðræðisleg vinnubrögð í stað leiksýninga og lýðskrums. Þetta skýrir hugsanlega eftirfarandi orð á vef þessara samtaka í umræðunni hvað á barnið að heita: Því miður er Ástþór Magnússon búinn að menga og gjaldfella orðið lýðræði. Lýðræðishreyfingin minnir of mikið á flokksnafn Ástþórs. Við viljum alls ekki láta bendla okkur við þann annars ágæta mann.
Ofangreindur Kastljós þáttur er áfellisdómur yfir RÚV og starfsmönnum Ríkisútvarpsins.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
27.1.2009 | 04:43
URGENT NEED FOR ELECTION OBSERVATION IN ICELAND
Your Excellency,
I am sorry to have to trouble your office again requesting OSCE observers to ensure fair and honest elections in Iceland. Elections have been announced for 9th May this year.
In 2004 I requested your observation on presidential elections in Iceland in which I was one of the candidates. I was then informed by your Mr. Mitchell that you were refused access by the ministry of Justice in Reykjavik. Unfortunately this resulted in soviet style presidential elections that year in Iceland due to extensive misuse of the media by the incumbent or his sponsors. Most independent media in Iceland is owned by one company who have widely misused their position to further their own political agenda. The state media is conrolled by the political klan here in Iceland. I have made several complaints about the misuse of the State television and radio service (RUV) in 2004, 2008 and 2009. In the run-up to the 2004 presidential elections Dr. Dietrich Fischer, Academic Director of the European University Center for Peace Studies, wrote a complaint to RUV after an interview, where he introduced our new ideas for the office of the Icelandic president, was completely distorted by cutting out the essence what he said about my candidacy. In his complaint letter to RUV Mr. Fisher said: This form of suppressing a free and open dialogue is reminiscent of the campaign in Yugoslavia in 1992, in which the peace candidate Milan Panic was prevented from presenting his peace platform to the voters, because the media were completely controlled by supporters of sitting President Slobodan Milosevic
The host of the program (Kastljos), the person responsible at RUV for this interview, is now heading Framsoknarflokkurinn in the upcoming elections, a political party that I have publicly opposed for many years due to their extreme misuse of power and fraudulent dealings.
My organization, Lydraedishreyfingin, will participate in the upcoming parliament elections. We are in urgent need of OSCE observers to be sent to Reykjavik WITH EXTREME URGENCY in order to ensure our proper and equal access to the media here. The Icelandic economy and political system has collapsed as a result of fraud over a decade, including severe misuse of state controlled and independent media in the run-up to previous elections. We appeal to you to ensure our proper access to introduce our political agenda to the Icelandic people. Our complaints to government regulators over recent misuse of RUV have not been answered.
At last I draw your attention to the fact that Reporters without borders listed Iceland as No. 1 for free press in the world on their website www.rsf.org. I was so astonished by this that I contacted this organization and was told by the researcher that he got no replies to emails from Iceland and that is why they elected Iceland as the No. 1 free press country in the world! The researcher had not investigated any facts surrounding the ownership and control of our media!
Yours Sincerely,
Lýðræðishreyfingin
Sent til:
Ambassador Janez Lenarcic, OSCE Office for Democratic Institutions and Human Rights ,Aleje Ujazdowskie 19, 00-557 Warsaw, Poland.
Afrit:
Dóms og kirkjumálaráðuneytið, Útvarpsréttarnefnd, Menntamálaráðherra,
Menntamálanefnd Alþingis, Íslandsdeild þings Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu, Umboðsmaður Alþingis, Blaðamannafélag Íslands, Reporters Without Borders, Alþingismenn.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 04:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.1.2009 | 11:44
Stefnuskrá Lýðræðishreyfingarinnar birt á www.lydveldi.is
1. Beint og milliliðalaust lýðræði:
- Allir Íslenskir ríkisborgarar geti sent Alþingi tillögu að nýju lagafrumvarpi. Skal frumvarp tekið til umföllunar ef stutt undirskriftum 1% kjósenda. Alþingismenn og ráðherrar geti einnig átt frumkvæði að nýjum frumvörpum.
- Þingmenn fari með umræðu og nefndarstörf vegna frumvarpa á Alþingi og kynni fyrir þjóðinni m.a. á sérstöku þjóðþings vefsvæði.
- Tilbúin frumörp lögð fyrir þjóðþing til atkvæðagreiðslu t.d. 1.maí og 1.des ár hvert.
- Hraðbankakerfið (sem nú er eign ríkisins) verði nýtt sem kjörklefar fyrir rafrænt þjóðþing.
- Ef nauðsyn krefur geti Alþingi samþykkt bráðabirgðalög sem gilda fram að næsta þjóðþingi.
- Þeir sem ekki óska að greiða atkvæði á Alþingi gætu framselt þingmanni sitt atkvæði.
2. Tillaga að breytingum á Alþingi og ríkisstjórn:
- Þingmönnum fækkað í 31.
- Landið verði eitt kjördæmi.
- Þingmenn verði valdir í persónukosningum.
- Alþingi velur ráðherraefni á faglegum forsendum. Forseti skipar síðan ráðherra og veitir þeim lausn eins og nú er.
- Ráðherrar sitji ekki á Alþingi.
Næstu skref - Framboð Lýðræðishreyfingarinnar:
126 einstaklingsframboð. Beint og milliliðalaust lýðræði er sameiginlegt stefnumál frambjóðenda Lýðræðishreyfingarinnar.
Fái Lýðræðishreyfingin nægan stuðning mun hún leggja fram á Alþingi frumvarp um breytingar á stjórnarskrá til að koma á beinu og milliliðalausu lýðræði. Örfáum greinum í stjórnarskrá þarf að breyta til þessa. Í kjölfarið yrði þing rofið eins fljótt og auðið til að boða á ný til kosninga um hina nýju stjórnarskrá.
Frambjóðendum Lýðræðishreyfingarinnar er frjálst að hafa einnig önnur baráttumál til viðbótar í sínu farteski sem þeir þá kynna fyrir kjósendum á eigin forsendum og án flokkafjötra.
Kjósendur Lýðræðishreyfingarinnar setja tölustafinn 1 fyrir framan nafn þess frambjóðanda sem þeir vilja styðja í fyrsta sætið á listanum.
Lýðræðishreyfingin er opin öllum sem áhuga hafa. Leit er hafin að hæfu fólki í einstaklingsframboð undir vængjum Lýðræðishreyfingarinnar. Hægt er að tilnefna frambjóðendur á vefnum www.lydveldi.is
Nánari upplýsingar á http://lydveldi.is
![]() |
Rafmögnuð stemmning |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 28.1.2009 kl. 00:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
23.1.2009 | 19:35
Ekki raddir fólksins fyrr en lýðræðið er í heiðri haft
Ef nokkuð er þá berjum við bara fastar í vegginn segir Hörður Torfason og segist vera "raddir fólksins".
Flestir Íslendingar vilja ekki mótmæla með ofbeldi eða lýðræðið sé fótum troðið eins og Hörður gerir á Austurvelli. Þar fá engar "raddir" að hljóma nema þær sem eru einvaldinum Herði Torfa, félaganum Einari Már og kommaklíkunni þóknanlegar.
Leikritið á Austurvelli var sett upp í samvinnu við Vinstri Græna sem ætluðu að blekkja þjóðina í næturbyltingu á Alþingi "í nafni fólksins" og taka við ríkinu án lýðræðislegra kosninga. Ég hef upplýsingar um að VG lagði til kröfuspjöld, auglýsingar og aðra styrki.
Sem betur fer höfum við nú flest áttað okkur á blekkingum Harðar á Austurvelli. Flestir Íslendinga vilja hvorki ofbeldisseggi né kommúnista í ríkisstjórn landsins.
"Tjáningarfrelsið" sem Hörður Torfason hefur kynnt okkur á Austurvelli, þar sem hann úthýsir "óæskilegum röddum" er lýsandi um þá þöggun og valdnýðslu sem yrði okkar daglega brauð í sovét-fasísku draumalandi Harða og félaga.
Þótt ég sé á þeirri skoðun að ríkisstjórnin eigi að segja af sér og skipa eigi utanþingsstjórn sérfræðinga er starfi fram að kosningum, þá finnast mér orð Harðar Torfasonar um alvarleg veikindi forystumanns Sjálfstæðisflokksins ekki boðleg og algerlega óviðeigandi. Hann ætti að biðjast afsökunar.
Ég óska Geir H. Haarde og Ingibjörgu Sólrúnu velfarnaðar og vona að þeim takist báðum fljótt og vel að yfirstíga veikindi sín.
![]() |
Hænuskref í rétta átt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
22.1.2009 | 15:37
Segjum NEI við flokksdýrin á Alþingi
Í þessari frétt segist þingmaður Samfylkingar ekki styðja lengur ríkisstjórnina en muni þó fylgja í einu öllu ákvörðun flokksforystunnar. Semsagt hagur flokksins en ekki þjóðarinnar ræður!
Svona mun ruglið halda áfram ef við leyfum áfram pakkaferðir á Alþingi. Flestir þingmenn eru á jötunni eins og jákindur sem engu þora til að ögra ónýtum flokksgildum og spilltum forystugrísum, þeir jarma í kór við flokksforystuna á kostnað þjóðarinnar.
Þráinn Bertelsson skrifar áhugaverðan pistil um 19. aldra lýðræði á 21 öld og segir m.a. þetta: "Fyrirutan hversu fáránlegt og áhættusamt það er að fela einhverjum aðilaforsjá sína næstu fjögur ár og afsala sér um leið rétti til breytingaþá ríkir fákeppni á hinum pólitíska ferðamarkaði, fyrir utankrosstengsl, sameiginleg hagsmunatengsl, ætta- og fjölskyldutengsl ogönnur vensl milli þessara úrkynjuðu og innræktuðu stjórnmálaflokka."
Höfnum nýjum pakkaferðum, út með allan þingheim og utanþingsstjórn STRAX skipaða sérfræðingum amk 50% frá útlöndum til hreina upp og færa lýðræðið aftur til þjóðarinnar.
Höfnum spilltum pakkaferðum alþingismanna
Lýðræðishreyfingin boðar byltingu í Íslenskum stjórnmálum
21.1.2009 | Opnið augun fyrir þessum blekkingarleik...
Þú getur strax í dag tekið þátt í beinu lýðræði með því að tilnefna nýjar raddir á Austurvöll hér: http://raddir.austurvollur.is
![]() |
Mikilla tíðinda að vænta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.1.2009 | 23:16
Opnið augun fyrir þessum blekkingarleik...
Ég vek athygli á orðum Erlu af Eyjunni.is í dag en hún skrifar:
"Í öllum mótmælum hafa Vinstri Grænir stjórnað eins og í dag Katrín Oddsdóttir. Í gærkvöld var Svandís Svavars áberandi og ekki sést betur á gamlársdag á í frettamynd visir.is Sóley Tóma ryðjast inn á borgina.
Álfheiður Inga var við mótmælinn frægu á Hverfisgötu.
Í öllum ræðum hafa Vinstri Grænir verið aðalræðumenn og eina sem þeir heimta eru kosnigar engar tillögur fyrir okkur fólkið.
Það er aumt að nota harmleik fólks til þess eins að fá kanski völd.
Valdagræðgi.
Opnið augun fyrir þessum blekkingarleik Vinstri Grænna suðskins og fjallagrasabandalaginu - afturhaldinu og látið ekki blekkja ykkur í mótmæli á þeirra vegum. Burt með stjórmálaflokka úr mótmælum okkar. Erla 21. janúar, 2009 - 19:29 um Raddir fólksins: Þjóðin rís upp"
Stöndum vörð um virkt lýðræði og tjáningarfrelsi. Höfnum blekkingunni "raddir fólksins" ef slíkt er í raun aðeins örfáar útvaldar raddir einvalds sem undir kommúnískri leiðsögn vill skipta út bláum svínum fyrir rauð svín.
Ný ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingar með stuðningi Framsóknar leysir engin mál. Það yrði áfram sama ruglið, áfram sama flokkræðið og svínslega spillingin.
Krafan er AFSÖGN ALLRA ÞINGMANNA, ALLRA FLOKKA OG NEYÐARSTJÓRN SKIPAÐA SÉRFRÆÐINGUM AMK 50% ÚTLENDINGUM til að hreinsa upp landlæga spillingu sem hér hefur grafið um sig og undirbúa lýðræðislegar kosningar.
Það þarf að setja bráðabirgðalög um kosningarnar til að gæta jafnræðis í aðdraganda þeirra og kosningarnar þarf síðan að halda undir eftirliti Öryggis og samvinnustofnunar Evrópu til að koma í veg fyrir misnotkun fjölmiðla.
Hér þarf að stokka algerlega upp frá grunni. Það eina sem mun virka í okkar litla þjóðfélagi til frambúðar er beint og milliliðalaust lýðræði.
Þú getur strax í dag tekið þátt í beinu lýðræði með því að tilnefna nýjar raddir á Austurvöll hér: http://raddir.austurvollur.is
![]() |
Samþykktu ályktun um stjórnarslit |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)