Haldið áfram þar til utanþingsstjórn er skipuð. Nafn Íslands ónýtt erlendis

Geir HaardeÚtilokað er að ríkisstjórnin og Alþingi sitji áfram.  Ég skora á mótmælendur að standa vaktir um Alþingishúsið eins og þarf næstu daga og vikur með friðsömum og ábyrgum hætti en með staðfasta kröfu um að stjórnarþingmenn OG EINNIG stjórnarandstaða segi af sér í mótmæla- skyni við ruglið sem er í gangi innandyra.

Þingið verður í raun óstarfhæft og úthrópað einræði erlendis gangi stjórnarandstaðan út í mótmælaskyni. 

Ráðherrarnir verða að átta sig á stöðunni og segja sig frá völdum nú STRAX:

1. Trúverðugleikinn er enginn, hvorki á Íslandi né erlendis. Ég er í dag staddur í Hollandi og dagurinn hefur farið í að leita að nýju nafni á fyrirtækið mitt islandus.com. Erlendir viðskiptafélagar okkar segja að allt sem bendlar okkur við Ísland eyðileggi fyrir viðskiptum. Sama saga berst frá breskum samstarfsaðilum, að Ísland sé orðið samnefnari fyrir bankamisferli og fjárglæframenn.

Ólafur og Ólafur hala inn frá Katar2. Fjórir mánuðir eru liðnir og ALLIR FJÁRGLÆFRAMENNIRNIR ganga enn lausir. Hér er í Hollandi er litið á þetta sem fáranlegt grínleikrit. Menn tala um að stjórnvöld hljóti að vera með eitthvað óhreint í pokanum úr því að þau taka ekki á ævintýralegu peningaþvættinu í bönkunum og þjófnaði útrásarvíkinganna á sparifé almennings.  Nýjasta, skýrasta og eitt öfgafyllsta dæmið er Ólafur Ólafsson í Samskip. Hversvegna er þessi maður ekki kominn í gæsluvarðhald?

FinnurOlafur3. Útilokað er fyrir Íslensk útflutningsfyrirtæki að senda peninga til Íslands á meðan þar situr við völd snarbrjáluð ríkisstjórn og fjárglæframenn ganga lausir með löngutangir inní bönkum og stofnunum þjóðfélagsins beint eða í gegnum leppa og stjórnmálaflokkaskrípi.

Það virðast flestir nú farnir að sjá í gegnum lygavefinn nema valdasjúkir og veruleikafyrrtir ráðherrar sem enn sitja sem fastast í brennandi Alþingishúsinu.

Þeir setja ólög á Alþingi sem hóta 2ja ára fangelsi þeim sem ekki vilja stunda fjárdrátt af sínum erlendu viðskiptavinum og senda pengingana þeirra í gjaldþrota bankastofnanir á Íslandi. Hver getur tekið mark á slíkum lögum? Hvaða dómara ætlar að dæma mann fyrir að neita að gerast þátttakandi í fjársvikum Íslensku bankanna?

Ísland á sér ekki viðreisnar von fyrr en allur þingheimur, stjórnarliðar og stjórnarandstaða yfirgefa Alþingishúsið, ríkisstjórnin segir af sér, forsetinn segir af sér, stjórnendur bankanna segja af sér, stjórn seðlabanka og fjármálaeftirlits segja af sér. Skipuð verði neyðarstjórn með amk 50% erlendum sérfræðingum er starfi fram yfir kosningar til að hreinsa upp spillinguna.

LýðveldishreyfinginÍ kjölfarið þarf að setja bráðabirgðalög til að breyta kosningakerfinu og koma á beinu og milliliðalausu lýðræði. 

Slík uppstokkun og valdið til þjóðarinnar sjálfrar er eina leiðin sem getur tryggt að spillingapésarnir geti ekki grafið um sig aftur í stofnunum og Alþingi Íslendinga. Nánar um beint og milliliðalaust lýðræði: www.lydveldi.is


mbl.is Mótmæli halda áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Offari

Skaðsemi þessarar ríkisstjórnar virkar keðjuverkandi á saklaus þegna landsins.

Offari, 21.1.2009 kl. 00:50

2 identicon

bíddu ha, ertu núna með mótmælum sem Raddir fólksins boða til en varst áður á móti. Ég skil ekki.

Svo er ekki mikið við stjórnarandstöðuna að sakast. Sé ekki af hverju hún ætti að segja af sér.

ari (IP-tala skráð) 21.1.2009 kl. 03:23

3 Smámynd: Þór Ludwig Stiefel TORA

Höldum áfram - hömrum járnið.

Ég hvet til frekari aðgerða. ÞETTA MÁ EKKI LOGNAST ÚT AF. 

Hvað segiði um fjöldagöngu eftir Miklubrautinni strax næsta mánudag?

Þór Ludwig Stiefel TORA, 21.1.2009 kl. 11:17

4 Smámynd: Ástþór Magnússon Wium

Ég ætla ekki að eyða tíma í að svara hér fólki sem skrifar svo vanhugsaðar athugasemdir eins og Hörður og Ari hér að ofan.

En almennt ég hef aldrei verið á móti mótmælunum. Ég styð ekki ríkisstjórnina í áframsetu. Þetta kom fram strax í nóvember í auglýsingum sem ég birti í Fréttablaðinu og greinum sem ég sendi frá mér.

Hinsvegar er ég algerlega á móti því að fólki og borgurum landsins sé ekki leyft að tjá sig af skipuleggjendum sem kenna sig við "raddir fólksins" eða "Opinn borgarafund". Ég mun aldrei sætta mig við slík ólýðræðisleg vinnubrögð.

Ástþór Magnússon Wium, 21.1.2009 kl. 12:19

5 Smámynd: Þór Ludwig Stiefel TORA

Ég er sammála þér Ástþór varðandi þessi samtök "Raddir fólksins". Sjálfur mætti ég þar framan af en hætti því er ég sá að ekki voru allir velkomnir að tjá sig.

Minn vettvangur er m.a. í bloggheimum nú og þess vegna skrifaði ég hér inn hjá þér athugasemd sem er til þess ætluð að sameina okkur öll í aðgerðum - óháð því hver við erum, hvaða skoðanir við höfum og hvað við höfum okkur til frægðar unnið.

Þór Ludwig Stiefel TORA, 21.1.2009 kl. 16:41

6 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Ég er sammála um utanþingsstjórn og vil sjálf kosningar sem fyrst. ...einnig er ég sammála því að orðstýr landsmanna er bágur!...en nafn Íslands er svo sannarlega ekki ónýtt!

Eða eins og ég er að segja syni mínum "íslendingar eru góðir, en Ríkisstjórnin er vond"

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 21.1.2009 kl. 18:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband