Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Berið Steingrím J og stjórnarandstöðuna úr Alþingshúsinu

Það vantaði í ræðu Róberts Wade þá tillögu að stjórnarandstaðan hætti að róa á galeiðunni undir svipuhöggum ríkisstjórnar sem Róbert segir muni sigla þjóðarskútunni í strand á næstu vikum.

Stjórnarandstaðan hefur engin völd. Ekkert er hlustað á hana á þinginu. Hún áorkar engu. Engin verðmæti munu tapast yfirgefi stjórnarandstaðan sæti sín á Alþingi. Hinsvegar myndu þannig sparast milljónir króna í launagreiðslur frá þjóðinni til ónýtra vindhana og kommalúðra. 

EinræðisherraYfirgefi stjórnarandstaðan þingið yrði það heimsfrétt. Erfitt fyrir ríkisstjórn að sitja áfram á slíku þingi því þing án stjórnarandstöðu myndi á augabragði afhjúpa séríslenska ráðherraræðið sem einhverskonar einræðistilburði í augum heimsins. Stjórnvöld myndu endanlega missa alla tiltrú og hitna svo undir ráðherrastólum að ekki yrði í þeim vært stundinni lengur.

Einsræðistilburðir og heitir ráðherrastólar Þessi aðgerð myndi einnig afhjúpa hvort stjórnarandstaðan er eitthvað betri. Hvort þeir sem þarna sitja fyrir Vinstri Græna eða aðra flokka eru þar af hugsjón eða sem áskrifendur að þægilegu launaumslagi.

Verði stjórnarandstaðan ekki við tilmælum mótmælenda að yfirgefa samkvæmið í Alþingishúsinu gætu beinar aðgerðir beinst að því að bera Steingrím J. úr Alþingishúsinu. Mótmælendur eru búnir að þaulæfa slíkar aðgerðir á "Lokuðum borgarafundi" og munar ekkert um að bera út annan jólasvein.


Hér er bréfið til útvarpsstjóra

Verið er að brjóta lög og reglur um Ríkisútvarpið nema öðrum sjónarmiðum sé einnig veittur sambærilegur aðgangur


mbl.is Ástþór vill útvarpstíma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verið er að brjóta lög og reglur um Ríkisútvarpið nema öðrum sjónarmiðum sé einnig veittur sambærilegur aðgangur

Ég hef í dag sent eftirfarandi bréf til Páls Magnússonar útvarpsstjóra og afrit til fleiri stofnana (sjá neðst í bréfinu):

ÍTREKUN: Beiðni um útsendingartíma í Ríkisútvarpinu

Í erindum mínum til útvarpsstjóra í byrjun desember rakti ég nauðsyn þess að RÚV standi vörð um lýðræðið og lögboðnar skyldur Ríkisútvarpsins í því sambandi. Ég vakti athygli á því að mér og fleirum hefur verið meinaður aðgangur að mótmælum sem RÚV hefur útvarpað eða sjónvarpað frá Austurvelli svo og hef ég verið borinn út af fundi samtakanna „Opinn borgarafundur“ sem RÚV ráðgerir að sjónvarpa frá á morgun.

Í ljósi þess hvernig staðið hefur verið að „Opnum borgarafundi“ og fundum á Austurvelli er verið er að brjóta lög og reglur um Ríkisútvarpið nema öðrum sjónarmiðum sé einnig veittur sambærilegur aðgangur í útsendingar RÚV. Ég lagði til í fyrra erindi að reynt yrði að ná samkomulagi um endurskipulagningu á ferli við val frummælenda á mótmæla- og borgarafundum til að jafnræðisreglu sé gætt. Hinsvegar virðist ekki mikill vilji til þess ef marka má uppákomuna á „Opnum borgarafundi“ er jólasveinninn var borinn út af fundi samtakanna í Iðnó í viðurvist fjölmiðla. Þetta staðfestir auðvitað um leið það sem áður gerðist á skipulagsfundi sömu samtaka og undirstrikar að þessir fundir eru í raun hluti af leikstýrðum pólitískum blekkingarvef sem RÚV er óheimilt að útvarpa eða sjónvarpa nema öðrum sé veittur sambærilegur aðgangur að Ríkisútvarpinu fyrir sín sjónarmið.

Lýðræðishreyfingin ítrekar hér með ósk sína um aðgang að útsendingartímum RÚV. Beiðnin er byggð á grundvelli gildandi laga að Ríkisútvarpinu ohf beri að halda í heiðri lýðræðislegar grundvallarreglur og mannréttindi og frelsi til orðs og skoðana. Ríkisútvarpinu beri að gæta fyllstu óhlutdrægni í frásögn, túlkun og dagskrárgerð og að veita víðtæka, áreiðanlega, almenna og hlutlæga fréttaþjónustu um innlend og erlend málefni líðandi stundar og vera vettvangur fyrir mismunandi skoðanir á málum sem efst eru á baugi hverju sinni eða almenning varða.

Við teljum að frjálslega hafi verið farið með ofangreindar skyldur hjá Ríkisútvarpinu á undanförnum mánuðum og árum og ekki verið gætt fyllstu óhlutdrægni í frásögn, túlkun og dagskrárgerð. Minnum á fleiri kvartanir til fréttastofu Ríkisútvarpsins, kærur til Útvarpsréttarnefndar svo og til Öryggis og samvinnustofnunar Evrópu, svo og ummæli Dr. Dietrich Fischer eins viðmælanda RÚV í aðdraganda forsetakosninga hér árið 2004 og svar utanríkisráðuneytis til OECD: „The Icelandic Broadcasting Service shall respect fundamental democratic rules, human rights and freedom of expressiona and opinion“. Ofangreind vandamál virðast ekki leyst því aftur var kvartað yfir fréttastofu 4.12.2008.

Lýðræðishreyfingin vill aðstoða Ríkisútvarpið að leysa úr ofangreindu vandamáli með því að standa fyrir þverpólitískum fréttaskýringaþætti. Umræðuþætti sem opin verður öllum sjónarmiðum og þeim sem óska að koma þar á framfæri athugasemdum við fréttir. Lýðræðishreyfingin er tilbúin að leggja til þáttagerðina Ríkisútvarpinu að kostnaðarlausu, annaðhvort með því að leggja til þáttagerðar og tæknifólk til að sjá um útsendinguna frá útvarpshúsinu, eða leggja til straum um dagskrárgerðarlínu frá okkar eigin tæknisetri.

Slíkur fréttaskýringaþáttur þarf að vera samofinn fréttum Ríkisútvarpsins. Slíkt er aðeins hægt ef útsending fréttaskýringanna er aðgengileg á sama stað og á sömu útsendingarás, og er útvarpað strax og lestri frétta er lokið. Ekki er hægt að ná fram þessum markmiðum og gerast þannig útvörður lýðræðis í landinu nema þá annaðhvort að endurvarpa fréttum Ríkisútvarpsins sem hluta af slíkum þætti eða fá inni á úrvarpsrás Ríkisútvarpsins með útsendinguna og fréttaskýringarnar. Þessvegna er þess óskað að Ríkisútvarpið víkji seinni útsendingu á þættinum Poppland til hliðar á Rás2 kl. 12:45 – 14:00 og sendi út í staðin ofangreindan fréttaskýringaþátt enda markmið þáttarins og hvernig að honum verður staðið í samræmi við þau grundvallar markmið er skilgreind er í lögum um Ríkisútvarpið.

Í ljósi þess ástands sem hefur skapast í þjóðfélaginu að undanförnu í kjölfar bankahruns, er brýn þörf að nota Ríkisútvarpið til að slá á þá reiði sem hér er að skapast með því að veita breiðan aðgang og öllum sjónarmiðum sé gert jafnt undir höfði með óhlutdrægum og lýðræðislegum hætti. Slíkt er tilgangur og markmið ofangreinds fréttaskýringaþáttar.

Óskað er svars og fundar um ofangreint mál við útvarpsstjóra um þetta mál innan 7 daga

Virðingarfyllst,
Lýðræðishreyfingin
Undirritað af Ástþór Magnússon – Sími 4962002 – Netfang: thor@lydveldi.is
Afrit send til: Útvarpsréttarnefnd, Menntamálaráðherra, Menntamálanefnd Alþingis, Íslandsdeild þings Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu, OECD, alþjóðaskrifstofa Öryggis- og samvinnustofnar Evrópu París, Alþingismönnum

Sjá einnig: Opið bréf til Harðar Torfasonar

Áhugaverður útvarpsþáttur um Opinn borgarafund og jólasveininn


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Sjálfstæðismenn óttast að verða bornir út af "Lokuðum-borgarafundi"

Auðvitað mæta fulltrúar Sjálfstæðisflokksins ekki á "Lokaðan-borgarafund" Gunnars leikstjóra því þar hefur skapast hefð fyrir því að bera út lýðræðissinna, jólasveina og aðra sem kommum þykja kynlegir kvistir.

Hólmdís Hjartardóttir skrifar á bloggið: "Það hrópaði á mann að sjálfstæðisflokkurinn einn flokka skyldi hunsa þennan góða fund.  Sá flokkur telur sig sennilega ekki eiga neitt vanrætt við skrílinn"

Sjálfstæðisflokkurinn var byggður upp á kjörorðunum "Sameinaðir stöndum vér - sundraðir föllum vér". Með þessi orð Jóns Sigurðssonar forseta að leiðarljósi komst flokkurinn til valda og verið lengur við völd en nokkur annar. 

Kommúnistar í KínaSovét-fasistarnir sem stóðu fyrir fundinum í Háskólabíó í kvöld skilji hinsvegar ekki slíkar dyggðir. Þeir eru flínkir leikstjórar sem blekkja þjóðina með pólitískum leiksýningum í Iðnó, Háskólabíó og diskótekinu Nasa þar sem þeir trylla upp skrílsdansinn um kommúníska drauma Steingríms J. og troða um leið lýðræðinu og tjáningarfrelsinu í ræsið.

Auðvitað geta kjörnir fulltrúar þjóðarinnar ekki tekið alvarlega slíka fundi sem haldnir eru undir vernd fleiri tuga vöðvafjalla eða öryggisvarða sem hafa það eitt hlutverk á fundunum að bera út lýðræðissinna sem þangað vilja koma.

Á meðan aðstandendur Opins borgarafundar og Radda (Harðar Torfasonar) fólksins vinna eftir slíkum sovésk-fasískum uppskriftum við skipulagningu og framkvæmd fundanna sem raun ber vitni, eru þetta og verða marklausar kommasamkomur sem munu á endanum sundra okkur í stað þess að sameina þjóðina um nýtt lýðveldi eins og kommaritið NEI galar um á netinu.

Ég vona að aðstandendur þessara funda standi við eitthvað af því sem þeir hafa sagt í sjónvarpi í stað þess að hafa þjóðina áfram að ginningarfíflum.  Skora á ykkur að lesa þetta: Opið bréf til Harðar Torfasonar

Nokkrar greinar um þetta mál:

10.1.2009 | Áhugaverður útvarpsþáttur um Opinn borgarafund og jólasveininn


mbl.is Fullur salur í Háskólabíó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fær jólasveinninn að tala?

Jólasveinnnn borinn út af Ég skil eiginlega ekki hversvegna þeir kalla þetta ekki "Lokaðan borgarafund" því hann er lokaður sumum skrítnum kvistum í okkar þjóðfélagi og jólasveina bera þeir út af fundum sínum.

Nú er það einu sinni þannig að íslensk þjóð er meira og minna samsett úr slíkum ólíkindatólum.

Ég tek undir orð Harðar Torfasonar í Silfri Egils í gær:  „öll þessi skilyrði þú mátt ekki vera með, þú mátt ekki vera með. Um leið og við byrjum að fara eftir þessu þá getum við bara pakkað og farið heim“

Frelsishetja okkar Íslendinga Jón Sigurðsson sem staðið hefur lengur á Austurvelli en nokkur mótmælandi sá þetta með sömu augum og sagði: "Sameinaðir stöndum vér - sundraðir föllum vér".

Slæmt ef Hörður og félagar froðufella markleysu og blekkja þjóðina í leikhúsum og í fjölmiðlum og hvað þá í silfurslegnum beinum útsendingum RÚV.

Ég held samt í vonina að fá einhverntíman tækifæri til að segja nokkur orð án þess að vera borinn út af fundum bandalagsins sem hugmyndafræðingur þeirra, kommúnistinn Einar Már Guðmundsson rithöfundur, lýsti með þessum orðum á Austurvelli: "Ég sé fyrir mér stórt bandalag sem rúmar okkur öll".

Þessvegna sendi ég Opið bréf til Harðar Torfasonar. Bíð spenntur eftir svari.

Nokkrar greinar um þetta mál:

10.1.2009 | Áhugaverður útvarpsþáttur um Opinn borgarafund og jólasveininn


mbl.is Borgarafundur í Háskólabíói í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Okrari selur sorp á 5,338/kg. En hver er Auli dagsins og hver á Hrós dagsins?

Sorpritstjórinn sem lúffaðiAuli dagsins hlýtur að vera verslunin Rafkaup sem borgaði undir flutning á sorpi dagsins sem neytendum er boðið í Bónus á kr. 5,338 pr.kg!

En nú virðist aðeins einn auli eftir í 65 gramma nánast einblöðungs snepli DV sem selt er með svínslegu okri á 347 krónur eða 5,338 á kílóið - dýrara en fyrsta flokks lambalæri!

Í dag er aðeins einn stór auglýsandi í DV, Rafkaup.  Enda hver vill leggja nafn sitt við svínslegan sora og vanvirða viðskiptavini sína með auglýsingum í skítugri sorptunnu.

Djöflar geta einnig fengið fyrirgefninguSorpritstjórinn Reynir Traustason er enn við sama heygarðshornið í ritstjórnarleiðurum. Í dag ræðst hann á Ingibjörgu Sólrúnu fyrir að moka ekki spillingarflórinn, fyrir að sitja föst í skafli samtryggingar. En er Solla ekki að feta í fótspor sorpritstjóra DV sem neitar að upplýsa hver það var sem togaði í spottana á strengjabrúðu fjölmiðlanna?

Hrós dagsins fær hinsvegar fyrrum fréttastjóri Stöðvar2 sem snúið hefur til betri vegar og lærir nú guðfræði.

Væri ekki athugandi fyrir hina myrkvu sál sorpritstjórans á DV að setjast á guðfræðibekk við hlið fyrrum samstarfsmanns á 365, Steingríms Snævarr, og í auðmýkt biðja um fyrirgefningu og aðstoð við að hreinsa út skítlegt eðlið.

Bendi á áhugaverða síðu um DV-VÁLISTA á: www.sorprit.com


Opið bréf til Harðar Torfasonar

Í þessu samhengi eru mjög viðeigandi slagorð frelsishetjunnar Jóns Sigurðssonar sem staðið hefur lengur en allir mótmælendur á Austurvelli: "Sameinaðir stöndum vér - sundraðir föllum vér". Hér er: Opið bréf til Harðar Torfasonar
mbl.is Hörður: Mótmælin rétt að byrja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Opið bréf til Harðar Torfasonar

Ágæti Hörður

Nú reynir á hvort orð þín eru marktæk eða hvort þú gerðist kommúnískur erindreki í Silfri Egils í dag.

Rifjum upp hvað þú sagðir í Silfrinu:
„Ég fer með míkrafón niður á Austurvöll og segi tjáið ykkur“  --- 
„Það þarf að virkja alla“ ---
„þeir sem eru sífellt að setja girðingar, því fleiri girðingar sem þú setur í kringum þig, því meira ertu að einangra sjálfan þig“  --- 
„öll þessi skilyrði þú mátt ekki vera með, þú mátt ekki vera með. Um leið og við byrjum að fara eftir þessu þá getum við bara pakkað og farið heim“  --- 
„fjölmiðlar meiga sinna þessu betur, það er þöggun gríðarleg þöggun í gangi“


Orð þín Hörður eru ekki í samræmi við vinnubrögðin ykkar á undanförnum vikum:

1.    Þú hefur synjað mér og fleirum um aðgang til að segja nokkur orð á Austurvelli
2.    Þöggun þín hefur gengið það langt að þú neitaðir meira að segja að fara með tvær setningar í lok fundar á Austurvelli og segja frá kaffifundi og opnum ræðupalli lýðræðissinna í desember, en flytur síðan slíkar tilkynningar fyrir aðra sem þér eru þóknanlegir.
3.    Ég hef verið borinn út af fundum Opins borgarafundar í tvígang, og þriðja skiptið meinaður aðgangur af dyravörðum eftir að fundurinn „kaus mig inn“. Mér skilst að þú hafir verið við fundarstjórn á sviðinu þegar þeir meinuðu mér endurkomu í Iðnó.

Í ljósi orða þinna í dag, vona ég að þáttaskil hafi orðið í viðhorfi ykkar til lýðræðis og ítreka ósk mína að fá að ávarpa mótmælendur á Austurvelli á laugardag.

Áður en þú berð fyrir þeirri afsökun að ég sé „of þekktur“ eins og þú gerðir síðast þegar ég ræddi við þig, eða að ég tilheyri einhverjum stjórnmálaflokki, vil ég gera grein fyrir því að ég er í engum starfandi stjórnmálaflokk, né hef ég setið í nokkru opinberu embætti. Þá hef ég aldrei og er ekki núna í neinu framboði til Alþingis. Ég er eins og hver annar Íslendingur með réttlætiskennd. Er með mitt litla fyrirtæki, sem tapaði eins og margir aðrir umtalsverðum fjárhæðum við bankahrunið.

Mig langar einnig að minnast á mótmæli við fundi. Eru þau viðeigandi? Margir samherja þinna telja að svo sé ekki, ef marka má bloggskrif síðustu daga.  Eru mótmælendur eins og "Raddir fólksins" ósammála um áætlanir sem þú kynntir í Silfri Egils um að trufla fund Alþingis, en þar sagðir þú orðrétt:

 „En bíddu við þing verður sett 20 janúar. Ég uppgvötaði það í þagnarmótmælunum um dagin um jólin að ég ein lítil rödd stendur þarna fyrir framan, það var þingfundur inni og ég ætlaði að standa þarna beint fyrir framan og ég var beðinn að færa mig inná völlinn. Hversvegna því það heyrðist svo vel inní húsið. Gott þá höldum við fundinn þegar þeir halda fundinn“

Að lokum Hörður, þú hefur oft sagt að nauðsynlegt sé að allt sé uppá borðinu. Þessvegna bið ég þið um listann yfir þá sem hafa beðið um að tala á Austurvelli en verið synjað, og þá hversvegna þeim var synjað. Eigum við ekki að ganga fram sem gott fordæmi með opin og lýðræðisleg vinnubrögð og hætta feluleiknum?

Með vinsemd og virðingu,
Ástþór Magnússon

Nokkrar greinar um þetta mál:

10.1.2009 | Áhugaverður útvarpsþáttur um Opinn borgarafund og jólasveininn


"Hættan frá Rússlandi" kemur frá Bandaríkjunum

Kjarnorkustríð"Beitir Pútin kröftunum" segir Morgunblaðið á forsíðu í dag. Er raunveruleg hætta á að stjórnvöld í Moskvu beiti á ný hervaldi til að tryggja hagsmuni sína?

Hernaðarlega sé ógnin fyrst og fremst í því að Rússland er annað mesta kjarnorkuveldi heims.

Ég hef ítrekað bent á þessa hættu og að því lengur sem við spilum eftir pípu bandarískra stjórnvalda því meira fjarlægist friðarpípan.

Ófriðarbálið fyrir botni Miðjarðarhafs getur haft fyrir okkur Íslendinga sem og aðrar þjóðir afdrífaríkar afleiðingar í framtíðinni. Ég tel alls ekki útilokað að óábyrg stefna þjóðarleiðtoga í þessum málum og sleikjuhátturinn við bandaríkin, uppskeri það að heimurinn skiptist aftur í tvo póla sem síðan gæti þróast til heimsstyrjaldar.

StríðsglæpamennAnnað vandamál eru hugmyndir bandaríkjanna stjörnustríð og tilheyrandi búnað sem þeir nú keppast við að koma upp nálægt landamærum Rússland.

Þarna er siglt undir fölsku flaggi, ég trúi því sem Rússar segja að aðgerðirnar beinast gegn Rússlandi. Við höfum reynsluna af fyrri lygaþvælu frá Washington m.a. varðandi gereyðingarvopn í Írak.

Líklegast er, eins og ég rakti í grein í Morgunblaðinu fyrir nokkrum árum, að rússar yrðu samherjar arabaþjóðanna, kínverja og fleiri gegn bandaríkjunum og þeirra bandamönnum til að stemma stigu við vaxandi hættu frá bandaríkjunum.

Nauðsynlegt er fyrir okkur Íslendinga að átta okkur á þessari raunverulegu hættu og Virkja Bessastaði til að flytja heimsbyggðinni nýja hugmyndafræði í friðarmálum. Ég hef margsinnis skrifað forseta Íslands erindi og beðið hann að leggja Friði 2000 lið í því máli. Því miður berast engin svör. Forsetinn virðist ætla að þegja þetta mál frammí næstu helför mannkyns.

Nánar um hugmyndafræði Friðar 2000 um að Virkja Bessastaði á: www.forsetakosningar.is


Mosdals fnykur af byltingartilburðum vindhana

Lyktin af byltingunni skrifar kommúníska vefritið NEI. Mótmælaskiltin afhent í herbúðum Vinstri Grænna segir á Eyjunni.

Bræðurnir Marteinn Mosdal og Steingrímur JÞað er bersýnilega komið í ljós að mótmælin á Austurvelli, eins og að þeim er staðið í dag, eru ekkert annað en skrípleg leiksýning kostuð af VG.  Mér er t.d. kunnugt um að VG hafa kostað útvarpsauglýsingar fyrir einstakar aðgerðir.

Þá kom í ljós á úttekt minni á ræðumönnum á Austurvelli að yfir 70% þeirra tengdust VG. Þrátt fyrir gagnrýnina eru skipuleggjendur enn við vinstra heygarðshornið en þetta segir Þorvaldur í umræðum á eyjan.is: 

"Hvað fjölmiðlar hamast við að segja frá þessum Vinstri Grænu samkomum laugardag eftir laugardag.

Googlaði ræðumenn og viti menn Þorvaldur Þorvaldsson er meðlimur í Vinstri Grænum. Googlið hann og hina sem voru þarna þá sjáið þið fyrir hvað þetta fólk stendur.

Orðinn leiður á þessum Vinstri Grænu samkomum þar sem er verið að blekkja almenning og nota til að heimta kosningar.
Það er aumt hjá Vinstri Grænum að nota tækifærið og harmleik fólks til þess að heimta kosningar."

En bót í máli fyrir VG að þessa vikuna slepptu þeir að tefla fram 8 ára stúlkubarni í pontuna eins og síðast við hlið harðra kommúnista eins og Einars Már sem galaði þar kommúnískan áróður yfir börn sem og fullorðna.

Hvar er byltingin?Lyktin af byltingunni er skrifað í kommúníska vefritið NEI sem VG menn standa einnig að og sem auglýsti á dögunum eftir kommúnískum lögfræðingi. NEI segir um "Opinn borgarafund": "Í lok fundar gekk grímuklædd kona uppí pontu og las stutta yfirlýsingu af blaði. Fólk var þá á leiðinni út en staldraði við og hlustaði. Þar sagði hún byltingu vera einu leiðina. Kerfið væri gegnsýrt af spillingu, ekki bara hið íslenska kerfi heldur hinn alþjóðlegi kapítalismi í heild sinni. Undirtektirnar voru eftirtektarverðar. Sífellt fleiri virðast aðhyllast róttækar breytingar á því samfélagi sem er ráðandi í hinum vestræna heimi. Þar sem peningar eru ekkert annað en skuld. Byltingin liggur í loftinu. Ég finn lyktina af henni. Og fundurinn á fimmtudagskvöld var dæmi um það."

Ef mótmælendur eru þverpólitískir þá hljóta þeir einnig að krefjast þess að seinheppinn Steingrímur J. segi af sér þingmennsku. Hvernig er hægt að taka mark á vindhana sem siglir undir fölsku flaggi með moldvörpur sínar, eins og t.d. Einar Már Guðmundsson í röðum mótmælenda sem reyna að trekkja upp byltingu á fölskum forsendum eins og þessum orðum: "Ég sé fyrir mér stórt bandalag sem rúmar okkur öll" sem þeir fylgja síðan eftir með því að bera sjálfan jólasveininn út af "Opnum-borgarafundi" sama bandalags í Iðnó.

Sé krafa dagsins "spillt stjórnvöld burt" hljótum við einnig að vilja "spillta þingmenn burt". Hvernig getur heiðarlegur lýðræðissinni setið á Alþingi fáranleikans með spilltum þaulsetnum stjórnvöldum nema hann sé orðinn fastur í sama feninu og þau. Gegnsýrðri spillingarmýri stjórnmálaflokkanna. 

Þjóðráð væri að stjórnarandstaðan gengi fram fyrir skjöldu og úr Alþingishúsinu við þingsetningu eftir jólafrí. Sýnið orðin í verki. Skiljið þar eftir þá spilltu stjórnarþingmenn sem vilja halda sínum rullum í Kardimomubænum við Austurvöll, grínleikriti stuðningsmanna þjófanna.  

Hafið þið tekið eftir bræðrasvipnum með þeim Martein Mosdal og Steingrími J?

Að lokum hér eru fleiri greinar: 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband