Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Davíð, eini maðurinn með smá vitglóru í hausnum?

Er að koma í ljós að fyrrverandi seðlabankastjóri var eini maðurinn með smá vitglóru í hausnum í aðdraganda hrunsins?  Í frétt á framsóknarvefnum pressan.is er haft uppúr bók Björgvins G. Sigurðssonar eftir Davíð Oddsyni:

Jón Ásgeir fjölmiðlakóngur"Nú hafa útrásarvíkingarnir skuldsett landið þannig að landráðum líkist, sagði Davíð og gaf Ólafi Ragnari Grímssyni vænt olnbogaskot í leiðinni – uppklappaðir af forsetanum og fleiri fínum mönnum, bætti hann við. Skerum á landfestar og skuldirnar við útlönd, sagði hann. Skiljum víkingana og þeirra brask eftir. Þá losnar þjóðin við erlendu skuldirnar og við getum haldið áfram betur sett en nokkru sinni fyrr....Hann lauk máli sínu á því að leggja það til að efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra yrði margfölduð og að nú riði á að hafa hendur í hári landráðamannanna. "

Asnaráðherrarnir í Samfylkingunni virtust hneikslast á þessum orðum Davíðs. En hvar eru landráðamennirnir núna? Undir verndarvæng Alþingis fá þeir afhent gjaldþrota fyrirtæki sín aftur fyrir brot af raunverulegum verðmætum.

Alþingi er ofhlaðið landráðamönnum sem eru að sökkva þjóðarskútunni.

Framboð 7176 til Stjórnlagaþings: www.austurvollur.is/thor


Gjafir til RÚV - Reiðir frambjóðendur í undirkriftarsöfnun

Eplapoki, ein vesæl appelsína og peningaplokk RÚV er meðal þess sem rætt verður á  www.borgarafundur.is í kvöld mánudaginn 15 nóvember kl. 20:00.

Fjörugar umræður fara nú fram á netinu meðal frambjóðenda til Stjórnlagaþings um lélega frammistöðu RÚV og auglýsingatilboð sem flestum frambjóðenda finnst smekklaust peningaplokk. Hneikslaðir frambjóðendur hafa sett á stað undirskriftarsöfnun og ætla að afhenda útvarpsstjóra yfirlýsingu þriðjudag.

Fleiri hundruð frambjóðendur eru nú að kynnast dæmalausum vinnubrögðum RÚV í fyrsta sinn. Ég hef hinsvegar kynnst þessu áður. Vakti m.a. athygli á vandamálinu þegar ég mætti með fullan eplapoka og eina appelsínu í beina útsendingu eftir síðustu alþingiskosningar.

Ávaxtaveislan í sjónvarpssal sýndi með myndrænum hætti mismunun RÚV gagnvart tveimur nýjum framboðum. Borgarahreyfingin fékk stuðning Egils Helgasonar og annarra starfsmanna ríkisfjölmiðlanna, Lýðræðishreyfingin var útilokuð frá Silfri Egils, sniðgengin og afskræmd af hálfu starfsmanna Ríkisútvarpsins. Hávaðasöm mótmæli og heimsókn til Lögreglustjórans í Reykjavík þurfti t.d. til að fá vefslóð Lýðræðishreyfingarinnar inná kosningavef RÚV.

http://www.youtube.com/watch?v=ORwkC8kqGLM&feature=player_embedded

Kosningar til Stjórnlagaþings eru fyrsta tilraun hér á landi til persónukjörs. Yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar vill taka upp beinna lýðræði og persónukjör. Það er því sorglegt að horfa uppá stjórnendur RÚV gera í buxurnar í þessum sögulegu kosningum.

En hér er hvernig þú kemst í Silfur Egils. Beint inní miðjan þáttinn en þar er auglýsingahólf:

http://www.youtube.com/watch?v=_Tb3qlebTB8

Hér er hægt að tilkynna þátttöku í borgarafundur.is
http://www.facebook.com/event.php?eid=161621590543430


Stjórnmál á steinaldarstigi

Ætli afkomendur okkar eigi ekki eftir að horfa til baka á Ísland í dag og furða sig á því hvernig þjóðin gat kosið yfir sig aftur og aftur stjórnmálamenn á steinaldarstigi?

FinnurOlafurHvernig við létum steinaldarmenn eins og Finn Ingólfsson ryksuga upp peninga úr hirslum almennings til að mylja undir félagana í spilltasta greni landsins, Framsókn og S-vindl hópnum.

Ég las drottningarviðtal við grátandi Finn í Fréttatímanum. Samkvæmt því viðtali virðist hann bara hafa týnt peningana af trjánum í garðinum hjá sér og segist lítið eiga í Frumherja, fyrirtækinu sem ég hef lagt til að verði eitt þeirra sem við þjóðnýtum til að endurheimta stolna þjóðargullið.

Þannig að ég hringdi í Frumherja og ræddi þar við tvo starfsmenn. Þeir vissu lítið um eignarhaldið á fyrirtækinu sem þeir starfa hjá, höfðu aldrei hitt Finn svo þeir muni en fullyrtu að ekkert gruggugt væri undir þeim. Enginn gat Fundið mér símanúmerið Finns þannig að ég Fann ekki Finn.

Þannig að ég sendi tveimur stjórnendum Frumherja þetta bréf og bíð nú eftir svari:

Tilefnið er viðtalið við Finn Ingólfsson í Fréttatímanum í dag. Í framhaldi af samtali okkar um eignarhaldið á Frumherja bið ég um eftirfarandi upplýsingar vegna blaðagreinar sem ég er að skrifa:

1. Hverjir eru eigendur Frumherja ehf. Ef það er eignarhaldsfélag, hverjir eiga það eignarhaldsfélag?
2. Hvað lögðu núverandi eigendur mikla fjármuni í Frumherja ehf og hver er uppruni þeirra fjármuna sem núverandi eigendur notuðu til að yfirtaka Frumherja ehf?
3. Starfar einhver eigendanna við Frumherja ehf, ef ekki hvað/hvar starfa þeir?
4. Eru eigendur Frumherja ehf jafnframt í öðrum viðskiptum? Hver eru þau viðskipti?
5. Hvernig tengjast eigendur Frumherja ehf Framsóknarflokknum, VÍS og Gift?
6. Hvað er Frumherji Invest ehf?
7. Hversvegna hefur ársreikningum ekki verið skilað fyrir Frumherja ehf og Frumherja Invest ehf?

Með kveðju
Ástþór Magnússon

Tími til kominn að varpa spillingunni á dyr? Komast af steinaldarstiginu?
Kynntu þér framboð 7176 til Stjórnlagaþings: www.austurvollur.is/thor


mbl.is Ættflokkur á steinaldarstigi
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.

Fuglahvísl AMX: Ástþór ræðst á Egil helga

Smáfuglarnir fá reglulega sendingar Ástþórs Magnússonar til fjölmiðla. Ástþór er umdeildur maður og hefur oft gengið hart fram. Hann er engu að síður sá maður sem hvað oftast hefur látið reyna á rétt einstaklingsins gagnvart hinum ýmsu stofnunum samfélagsins. Þannig hefur hann farið í framboð til hinna ýmsu embætta og þurft að sitja undir því að embættismenn segi framboð hans móðgun við lýðræðið. Hann hefur því marga fjöruna sopið. Nú bætist enn ein við því í nýjast bréfi Ástþórs segir:

Frambjóðendum til stjórnlagaþings er nú boðið að kaupa sér athygli umhverfis Silfur Egils. Egill handvelur þó frambjóðendur og gerir hátt undir höfði.

Fékk sendan netpóst frá Ríkisútvarpinu með fyrirsögninni„Ætlar þú á Stjórnlagaþing?“ og þar sagt að þeir frambjóðendur sem er alvara að komast inn verði að kaupa auglýsingar.

Frambjóðendum sem ekki vilja borga RÚV beinharða peninga er hafnað af ríkisfjölmiðlunum.

Sérstök athygli er vakin á því að frambjóðendur geti keypt sig inn í Silfur Egils en Egill þessi hefur legið undir ámæli fyrir að mæla með einstökum frambjóðendum til Stjórnlagaþings. Nú getum við hin sem erum Agli ekki þóknanleg keypt okkur aðgang að meðmælum RÚV.

Nú hafa smáfuglarnir ekki séð upprunanlega bréfið frá RÚV. Hverju sem því líður er punktur Ástþórs réttur. Hvernig stendur á því að spjallstjóri hins opinbera mælir sérstaklega með ákveðnum frambjóðendum en svo er öðrum sagt að borga til að fá viðlíka athygli?

Hafi Ástþór á réttu að standa má teljast líklegt að fram sé komin grófasta ósvífni Egils Helgasonar til þessa - að fjalla sérstaklega um vini sína og kunningja sem eru í framboði en benda svo öllum hinum verðskránna. Ástþór nefnir einnig fleiri dæmi:

Minnist þess fyrir síðustu Alþingiskosningar þegar RÚV hafnaði algerlega að Lýðræðishreyfingin fengi nokkur aðgang að Silfri Egils á meðan þeir ítrekað hömpuðu öðru nýju alþingisframboði. Eftir kosningar sagðist Egill hafa kosið þann flokk inná þing.

Aftur hittir Ástþór á réttan punkt. Er hundstaumur sá er Páll Magnússon sagði í viðtali að væri í það lengsta hjá Agli Helgasyni enn að lengjast? Eða svaraði Páll eins og hundaeigendur almennt sem alltaf þykjast hafa hund sinn í bandi þó allir horfi á hundinn leika lausum hala þvert á allar reglur á hverjum sunnudegi?

ATH: Ofangreindur pistill birtist á vefnum AMX. Neðangreint video var sent til RÚV:


Svar til Þjóðkirkjunnar: Þjóðin velji sitt fjall

Tel mig kristinnar trúar þótt ég sé ekki ávallt sammála stofnunum kirkjunnar eða einstökum starfsmönnum hennar.

Margt gott hefur komið frá Íslensku þjóðkirkjunni, annað mjög miður. Önnur trúfélög geta einnig hjálpað okkur að þróa sálina. Ég t.d. sæki stundum kirkju í Óháða söfnuðinum.

Fyrir mér er Guð eins og fjall, mismunandi form og útlit eftir því hvaðan þú horfir á það.

Þótt ég sé í framboði til Stjórnlagaþings tel ég mig engan rétt hafa til þess að kveða upp einhvern Salomons dóm um Þjóðkirkjuna eða stuðning ríkis, þjóðar og einstaklinga við hana.

Ég er í framboði til Stjórnlagaþings því ég vil færa valdið til fólksins í landinu. Ég vil koma hér á beinu og milliliðalausu lýðræði þar sem réttur einstaklingsins er virtur sem hluti af ákvarðanaferli stjórnsýslunnar.

Það hlýtur því að liggja í hlutarins eðli fái ég stuðning þjóðarinnar til Stjórnlagaþings, að þjóðaratkvæðagreiðsla skeri úr um þetta mál eins og mörg önnur.

Meira um framboð 7176: www.austurvollur.is/thor


RÚV umfjöllun til sölu - Sjá video með 40 milljónum á borðið!

Mér 7176 og öðrum frambjóðendum til Stjórnlagaþings barst tilboð frá RÚV í dag.  Hér getið þið séð svar mitt ásamt auglýsingu í Silfur Egils og 40 milljónir í tvöþúsundköllum tilbúið í slaginn:

Sæll Gunnar Ingi Hansson auglýsingadeild RÚV
Vísa í tilboð þitt hér að neðan. Reyndi mikið að komast í Silfur Egils fyrir síðustu alþingiskosningar, þannig að frábært tilboð hjá þér að bjóða mér að vera í kringum þáttinn!
Já takk ég tek þessu tilboði ykkar hjá RÚV.
Hjálagt er auglýsing sem ég óska að birtist á undan Silfri Egils og í auglýsingahlé þáttarins.

Ágæti frambjóðandi,
 
Nú styttist í kosningar og eru sumir frambjóðendur strax byrjaðir að kynna sér möguleika í auglýsingum.
Við á RÚV höfum fengið fyrirspurnir varðandi auglýsingaverð og ákváðum við að senda á alla frambjóðendur hvað við bjóðum.
 
Við höfum ákveðin afsláttakjör sem gengur jafnt yfir alla frambjóðendur. Þetta er svo kallaðu kosninga afsláttur.
Þessi 25% kosninga afsláttur gengur til allra frambjóðenda Stjórnlagaþings og gengur sá afsláttur bæði í útvarp og sjónvarp.
 
Við bjóðum uppá ansi sterkar auglýsinga leiðir – í kringum umræðu þætti, fréttir og annað efni sem virkir kjósendur horfa og hlusta á.
Allir frambjóðendur ganga að sama borði hér á RÚV.
 
Sem dæmi er skjáauglýsing í kringum Silfur Egils að kosta 11.940,- (án vsk)
Svo eru samlesnar auglýsingar í útvarpi einnig mjög sterkar – þær birtingar eru í kringum frétta tíma útvarpsins.
 
Fyrir þá frambjóðendur sem er alvara með að komast inn, þá munu auglýsingar án efa spila stórt hlutverk í vali í þessum kosningum.
Það eru margir frambjóðendur og hver og einn má kjósa um 25 einstaklinga – það er pláss fyrir nokkra á hverjum kjörseðli og því um að gera að vera ofarlega í huga kjósandans.
 
Ef ég get hjálpað ykkur að setja upp auglýsingaplan endilega verið í sambandi.
 
Virðingarfyllst,
Ríkisútvarpið AuglýsingadeildGunnar Ingi HanssonBeinn sími: 515-3263
Sími : 515-3263Fax : 515-3255   GSM : 822-2434 Netfang: gih@ruv.iswww.ruv.is


mbl.is 35 klukkustundum hlaðið á Youtube á mínútu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

RÚV býður mér að kaupa aðgang að Silfri Egils.

Fékk sendan netpóst frá Ríkisútvarpinu með fyrirsögninni "Ætlar þú á Stjórnlagaþing?" og þar sagt að þeir frambjóðendur sem er alvara að komast inn verði að kaupa auglýsingar.

Frambjóðendum sem ekki vilja borga RÚV beinharða peninga er hafnað af ríkisfjölmiðlunum.

Sérstök athygli er vakin á því að frambjóðendur geti keypt sig inn í Silfur Egils en Egill þessi hefur legið undir ámæli fyrir að mæla með einstökum frambjóðendum til Stjórnlagaþings. Nú getum við hin sem erum Agli ekki þóknanleg keypt okkur aðgang að meðmælum RÚV.

silfuregilsgunnarMinnist þess fyrir síðustu Alþingiskosningar þegar RÚV hafnaði algerlega að Lýðræðishreyfingin fengi nokkur aðgang að Silfri Egils á meðan þeir ítrekað hömpuðu öðru nýju alþingisframboði. Eftir kosningar sagðist Egill hafa kosið þann flokk inná þing. Hinar góðu hugmyndir Lýðræðishreyfingarinnar um uppstokkun stjórnsýslunnar með beinu lýðræði fengu ekki hljómgrunn hjá RÚV sem virðist sífellt færast lengra frá þjóðarsálinni.

Meira að segja sorpritið DV stendur sig betur í umfjöllun og aðgengi fyrir frambjóðendur að kynna sig á nýju vefsvæði um Stjórnlagaþing en RÚV sem rekur pólitíska áróðursvél Egils Helgasonar fyrir almannafé.

Framboð 7176 til Stjórnlagaþings á www.austurvollur.is/thor


Pólitískur pistlahöfundur vill ókeypis birtingar og ríkisstyrk

"Aftur til hræðsluþjóðfélagsins" öskrar pólitískur pistlahöfundur yfir því að RÚV hafi ákveðið að hætta að borga henni laun af almannafé.

Hversvegna á RÚV að velja einn pólitískan pistlahöfund úr hópi fleiri hundruð bloggara, upphefja þá málpípu framyfir aðrar í morgunútvarpi ríkisfjölmiðils og fóðra með ótöldum hundraðþúsundköllum af almannafé?

Ríkisfjölmiðill á að vera hlutlaus fjölmiðill. Þar eiga allir eiga greiðan aðgang með sínar skoðanir. Miklu nær væri að allir bloggarar sem þess óskuðu gætu flutt pistla á RÚV í þeirri röð sem þeir berast rétt eins og aðsendar greinar til annarra fjölmiðla.

Umræddur bloggari fer mikinn á Eyjunni um málið, segist vera gersamlega ópólitísk um leið og hún vísar í "hræðsluþjóðfélag Davíðs" og segir suma miðla vera með "eiturtungur".

Ég vil óska RÚV til hamingju með uppsögn pólitíska bloggarans og vona að fleiri slíkar uppsagnir fylgi í kjölfarið. Þá skapast kannski grundvöllur í dagskrá RÚV til að taka á móti pistlum frá öðrum bloggurum og undirrituðum sem verða að sjálfsögðu hljóðritaðir og sendir RÚV án endurgjalds.

Framboð 7176 til Stjórnlagaþings á www.austurvollur.is/thor


Hversvegna svona sukk með peninga?

Mér er óskiljanlegt hversvegna samningar við álver og aðra stór rafnotendur sem þessar virkjanir eru byggðar fyrir eru ekki með þeim hætti að þeir aðilar greiði sjálfir kostnað við virkjun. Einfalt, taka bara greiðslur einhver ár frammí tímann fyrir rafmagnið. 
mbl.is Icesave truflar fjármögnun Búðarhálsvirkjunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Feit stjórnsýsla - Hefur ráðherra tapað glórunni?

Hvernig virkar niðurskurður í heilbrigðisgeiranum? Fá allir sem segja þarf upp vegna niðurskurðar biðlaun í 16 mánuði eins og aðstoðarskólastjóri á landsbyggðinni?

Hversvegna er ríkisreksturinn ekki rekinn á sambærilegum forsendum og einkarekstur? Hversvegna eru feitir starfslokasamningar enn uppá borðum? Höfum við ekkert lært af hruninu?

Við horfum uppá vaxandi fátækt og matarbiðraðir. Á sama tíma er opinberum bitlingum dreift þvers og kruss um þjóðfélagið.

Þingmaður fær aukalaun og nú á tvöföldum launum fyrir að hafa í fyrra lífi skrifað kvikmyndahandrit.

Varnarmalastofnun_KEF_samn2Sendiráðsfólk sem fær laun og sitt uppihald erlendis greitt úr vasa fátækra Íslendinga gat ekki útskýrt fyrir mér í gær hvernig það eyðir tíma sínum. Svarið var að helst sé það í "menningu" og "menningarútflutningi".

Hvað er menningarútflutningur? Á það heima inní sendiráði? Eru ekki til haghvæmari leiðir?

Utanríkisráðherra eyðir milljörðum í stríðsleiki með NATO undir einhverju sem hann kallar Varnarmálastofnun. Hefur þessi bráð vel gefni maður tapað glórunni?

Bullið sem er í gangi er með ólíkindum. Fyrirtæki sem rekin eru með þessum hætti eru löngu komin á hausinn sbr bankarnir. 

Við þurfum uppstokkun stjórnsýslu og alþingis. Nánar á: www.austurvollur.is/thor


mbl.is Fær biðlaun í 16 mánuði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband