Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
10.11.2010 | 12:20
Auglýsingabrella?
Er þetti ekki bara auglýsingabrella starfsmanna RÚV til að bókin um dýralækninn verði metsölubókin í ár?
Í aðdraganda síðustu alþingiskosninga fór einn starfsmaður RÚV um landið í kosningaleiðangur (með símann stilltan í gegnum skiptiborð RÚV) í kjölfar þess að RÚV hampaði flokk hans í reglubundnum beinum útsendingum á RÚV og ríkisútvarpinu, í fréttatímum, Kastljósi og Silfri Egils. Umræddur Egill upplýsi síðan eftir kosningar að flokkinn kaus hann enda hans gæludýr.
Lýsandi dæmi um forskrúfaðan fjölmiðil í höndunum á pólitískum starfsmönnum sem misnota aðstöðu sína til að hafa áhrif á kosningar. Einn prófessor í friðarmálum sem hingað kom í Kastljósviðtal um forsetaembættið líkti RÚV við ritskoðaða fjölmiðla í gömlu einræðisríki.
Það þarf ekki að hreinsa restina af pólitísku skúrkunum úr lúsugu hári RÚV?
Farmboð 7176 til Stjórnlagaþings. www.austurvollur.is/thor
Bókaskrif leiddu til uppsagnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.11.2010 | 11:54
Frambjóðandi 7176 - Beint lýðræði með skilvirkari stjórnsýslu
Alltof mikil fita er í stjórnsýslunni. Um leið og við komum á beinu lýðræði, fækkun þingmanna og rafrænu kosningakerfi getum við komið á ódýrari og skilvirkari stjórnsýslu.
Þetta og fleiri góðar hugmyndir vill frambjóðandi 7176 með inná Stjórnlagaþing. Nánar á: www.austurvollur.is/thor
Tveir búnir að kjósa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.11.2010 | 11:46
Hversvegna tvö skíðasvæði?
Skíðaráð mótmælir hugmyndum um lokun skíðasvæða en rökstyður ekki hversvegna við þurfum tvö skíðasvæði á höfuðborgarsvæðinu.
Á Skuggaborg.is var lagt til að loka Bláfjöllum og nýta betur skíðasvæðið Skálafelli. http://skuggaborg.is/priorities/625-framleida-snjo-i-skalafelli-leggja-nidur-blafjoll
Þegar við erum að horfa uppá lokun sjúkradeilda í sparnaðarskyni og stækkandi matarbiðraðir hljótum við að þurfa að skoða skíðadaga sem kosta tugi milljóna á dag með yfirveguðum hætti.
Við getum einnig skorið niður í fjárlögum um fleiri milljarða, m.a. í utanríkisþjónustunni. Einnig má stokka upp stjórnsýsluna, gera hana skilvirkari og ódýrari í rekstri. Sjá hugmyndir á www.austurvollur.is/thor
Mótmæla hugmyndum um lokun skíðasvæða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.11.2010 | 16:44
Stálu Landsbankamenn kjötinu? Þeir svara ekki!
Eru þetta alltsaman ótíndir glæpamenn í nýja og gamla Landsbankanum?
Starfsmenn Landsbankans sviku peninga út úr mínu fyrirtæki árið 2008 undir því yfirskyni að selja okkur kjöt.
Ég hef reynt að spyrjast fyrir um það í bankanum hvar kjötið sé niðurkomið en þeir svara mér ekki.
Hér eru afrit af skeytum sem þeir svara ekki:
from Thor Magnusson <thor@islandus.com> to asmundur.stefansson@landsbankinn.is date Fri, Apr 23, 2010 at 6:11 PM subject Hvar er kjötið?
Heill og sæll Ásmundur,
From: Thor Magnusson <thor@islandus.com>
Date: 2010/2/18
Subject: Hvar er kjötið?
To: hilmartk@landsbanki.is
Cc: Hannes.J.Hafstein@landsbankinn.is
Við áttum samskipti á síðasta ári um kjöt sem Marteinn Kristjánsson
hjá Einabankaþjónustu Landsbankans reyndi að selja mér. Peningarnir
voru teknir af reikningi Álftaborga ehf. Ég var búinn að segja þér að
ég skrifaði aldrei undir samninginn sem kom, enda var textinn í þeim
samningi flókinn og ég gat ekki séð samræmi við símtalið frá Martein
þar sem hann bauð "kjöt".
Nú óska að fá upplýsingar um:
1. Ætlið þið að endurgreiða peningana sem voru teknir af reikningi
Álftaborga ehf vegna þessa máls?
2. Hvar er kjötið niðurkomið? Ekki hefur það gufað upp með peningunum?
Einhversstaðar hlýtur sjálft kjötið að vera niðurkomið?
Hverjir báru ábyrgð á þessum viðskiptum? Komi ekki endurgreiðsla á
þessu þarf að kæra þessi fjársvik til lögreglunnar og krefjast þess að
þetta mál verði rannsakað og þá sérstaklega hvað hefur orðið um bæði
peningana og kjötið. Í því sambandi vantar mig nöfn þeirra starfsmanna
sem tóku þátt í þessum viðskiptum, ég hef nafn Marteins Kristjánssonar
en vantar nöfnin á hans yfirmönnum, stjórn bankans og bankaráðs frá
þessum tíma. Getur þú vinsamlegast sent mér það um hæl ef þú ekki
endurgreiðir fjárhæðina.
Kveðja
Ástþór Magnússon
Raunvirði eigna Landsbanka eykst | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.11.2010 | 15:58
Hvar er sérstakur saksóknari?
Dagar, mánuðir ár líða og glæpaklíkan spilar með þýfið. Fjölmiðlafyrirtæki seld og keypt, fasteignir keyptar og seldar, gjaldþrota skipafélagi bjargað, bílaskoðunarfyrirtæki malar gull.
Hversvegna er enginn glæponinn í fangelsi? Hversvegna eru ekki fyrirtæki sem keypt voru eða fjármögnuð með stolnu fé þjóðnýtt?
Finnur og glæpagengið eru að sleppa með skrekkinn og peningana á meðan matarbiðraðir stækka.
Ég vil setja nýjar leikreglur samfélagsins á Stjórnlagaþingi. Sjá nánar www.austurvollur.is/thor
Fyrirtaka í skaðabótamáli Glitnis | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.11.2010 | 15:48
Framboð 7176 fyrir skilvirkari og ódýrari stjórnsýslu með beinu lýðræði
Við getum stjórnað landinu með mun skilvirkari og ódýrari hætti en nú er. Fækkun þingmanna og uppstokkun stjórnsýslunnar eru meðal þess sem frambjóðandi 7176 vill leggja til á Stjórnlagaþingi.
Kynntu þér framboðið á www.austurvollur.is/thor
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna stjórnlagaþings | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.11.2010 | 15:29
Upplýsingalög hindra uppýsingar um kostnað við þjóðfundinn
Hringdi á skrifstofu Þjóðfundar 2010 og bað um lista hvert þessar 91,7 milljón króna fóru.
Starfsmaður bar við að upplýsingalög líklegast hindruðu slíka upplýsingagjöf, en ætlaði samt að kanna hjá yfirmönnum sínum hvort ég gæti fengið að vita þetta.
Hvernig geta upplýsingalög komið í veg fyrir að upplýst sé hvernig almannfé er varið?
Hér hefur verið eytt í einn fund, í einn dag, upphæð sem dugir til að útrýma matarbiðröðum í heilt ár.
Nú er ég ekki að gera lítið úr árangri eða skipulagi þjóðfundarins þótt ég vilji sjá svart á hvítu hvernig menn eyða nærri hundrað milljónum í einn slíkan fund.
Framboð 7176 til Stjórnlagaþings. Skerum burt fituna. Minnkum kostnað við stjórnsýsluna. Nánar á www.austurvollur.is/thor
Þjóðfundurinn kostaði 91,7 milljónir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.11.2010 | 10:12
Stjórnarskráin verndi borgarana frá níðskrifum sorprita
Fyrrum ritstjóri sorprits vill vernd Stjórnarskrár til að halda úti níðskrifum. Til að bera út lyga- og gróusögur að vild. Til að halda áfram að birta á forsíðu krassandi fyrirsagnir um Ástþór Magnússon. Síðastliðinn áratug hefur ritstjórinn og sorprit hans borið fimmtíu lygasögur út um manninn m.a. kallað hann þjóf og sagt hann hafa sent átta vopnaða hrotta á leigendur. 24 október s.l. birti sopritið grein undir fyrirsögninni: "Jólasveinn í framboði".
Lögfræðingur hefur kallað ritstjórann og félaga "Síbrotamenn á sviði ærumeiðinga" eftir að þeir fengu sjö dóma fyrir hegningarlagabrot á tæplega níu mánaða tímabili. Sorpritið hefur einnig stundað kennitöluflakk og var um árabil haldið úti með bókhaldsblekkingum af gjaldþrota fyrirtækjapýramída til að koma útgefandum undan ábyrgð á rekstrinum. Ótækt er að þeir sem hafa fjárhagslegan ávinning af mannorðsmorðum með rógi og lygaþvælu einelti gegn einstökum persónum komist undan réttvísinni með slíkri svikamyllu.
Kíktu inná Austurvöll - Framboð 7176: www.austurvollur.is/thor
8.11.2010 | 19:25
Hversvegna ekki skorið niður hér?
Mér er óskiljanlegt að bráðgáfaðir menn eins hinn mæti utanríkisráðherra ausi peningum í þarflítil sendiráð og stríðsleikjavél.
Ræddi í dag við starfsmann sendiráðs. Gat litlu svarað hvernig þeir nota tímann sinn. Skildist væri helst tengt menningu og menningarútflutningi.
Búinn að senda Össur og félögum í Utanríkisráðuneytinu fyrirspurn um hvernig sendiráðin nota peningana okkar. Eins um Varnarmálastofnun. Skil ekki hversvegna þetta er ekki skorið niður.
Framboð 7176 til Stjórnlagaþings: www.austurvollur.is/thor
634 gætu misst störf sín | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.11.2010 | 19:08
Pay or go home - Borgið eða farið heim
Bandaríska sendiráðið veldur veseni á Íslandi. Kallandi á lögguna að reka í burtu vinsamlega friðarsinna af Laufásvegi.
Borgið okkur fyrir að valda slíku veseni eða lokið sendiráðinu. Við getum átt samskipti yfir netið og síma ef við þurfum eitthvað að tala við ykkur eða þið við okkur.
Legg til að við sendum bandaríska sendiráðinu reikning uppá 90 milljónir króna. Það er sú upphæð sem okkur vantar til að útrýma matarbiðröðum næsta árið.
Kíkið á síðuna: www.austurvollur.is/thor
Eftirlit við Laufásveg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)