Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Geðhvarfasjúkir nafnleysingjar undir hatti DV

malefnin

Undanfarin ár, á einum sóðalegasta vef landsmanna, malefnin.com, hefur nafnlausum moldvörpum leyfst að skrifa hverskyns óhróður um einstaklinga sem gerst hafa þátttakendur í opinberri þjóðmálaumræðu hérlendis. Moldvörpuvefurinn malefnin.com hefur verið notaður af leyniskyttum sem í skjóli nafnleyndar reyna að hafa áhrif á umræðuna með undirróðri og skítkasti.

Um mig er að finna þarna soraflóruna sem finnst í Íslenskri tungu og gott betur. Tugi eða hundruð uppnefna og tilvísana um meint andlegt ástand, staðlausan hugarburð úr fársjúkum málverjum.

Nú er þessi vefur kominn undir hatt DV. Merki sorpblaðsins DV trjónir lotningarfullt yfir boðskap og rugluðum játningum málverjanna.  Þegar ég birti hér á blogginu, og á vefnum malefnin.com, grein um starfshætti sorpritstjórans Reynis Traustasonar varð þarna uppi fótur og fit og greinin fjarlægð. 

Mín biðu svo þessi skilaboð þegar ég skráði mig inná vefinn frá einum málverjanna, Óradís sem titluð er þarna sem "Málefnafíkill":

1/1Til umhugsunar ( From: Óradís )
Sæll vertu Ástþór.
Mig langaði að ræða ákveðið mál við þig og vona að þú takir það ekki illa upp. 
Hefur verið minnst á við þig að þú þurfir að leita aðstoðar vegna geðhvarfasýki ? 
Nú þekki ég dálítið til svoleiðis veikinda og hef á tilfinningunni að þú sért að glíma við manískt ástand núna. Ég veit ekki hvort ég hitti á þig á réttu augnabliki til að þú takir orð mín ekki illa upp heldur skoðir hvort eitthvað svoleiðis getur verið í gangi. 
Ég vona það þó og vona að þú leitir þér aðstoðar vegna þess að það er algerlega hægt að fá aðstoð.
Með vinsemd og von um að þú lítir ekki á þetta sem árás á þig heldur vináttuvott.
Óradís
Óradís is a member of the Notendur group and has 5796 posts. 
Sent on: 14 Dec 2008 - 11:50

Ég get frætt Óradís á því að í aðdraganda forsetakosninga 2004 mætti ég á Geðdeild Landsspítalans eftir að mér fannst þetta geðsjúklingahjal í nafnleysingjunum á malefnin.com keyra úr hófi fram og bað um vottorð um geðheilbrigði mitt. Ótækt væri ef geðsjúkur maður færi fram gegn forseta Íslands. Sagðist myndi hlúta niðurstöðunni og draga framboð mitt strax til baka ef læknar kæmust að sömu niðurstöðu og umræddir rugludallar á malefnin.com. Hitti þarna lækni og nokkra læknanema sem voru þar í starfskynningu. En ég var gerður afturreka þaðan, veit ekki hvort þeim fannst ég of brjálaður eða of allsgáður til að taka mig í rannsókn.

Annars er það örugglega ágætt viðfangsefni fyrir sagnfræðinga að velta þessu máli fyrir sér.  Hvernig ég og hugsanlega aðrir sem reynt hefur verið að skjóta í kaf með Gróu á Leiti hafa fengið yfir sig flóruna af viðnefnum og sjúkdómsgreiningum eins og t.d. ég fékk í fjölmiðlum Baugs eftir að ég gaf kost á mér gegn ÓRG forsetanum sem situr fyrir Baug á Bessastöðum. Nú situr hann þar fjórða kjörtímabilið í boði Baugs sem kostuðu framboð hans og lögðu til starfsmenn í undirskriftarsöfnun forsetans. Fjölmiðlarnir voru einnig notaðir óspart og þá helst gegn mér, og ég fékk frá þeim ýmis merkileg viðurnefni eins og "þorpsfífl" og svo fyrr á þessu ári kom sú stríðsfrétt við bumbuslátt á Stöð2 að ef ég byði mig fram nú væri það "nauðgun á lýðræðinu".

Sverrir Stormsker fann einhvern tug nafna á mig við örstutta leit á netinu. Áhugavert að hlusta á þetta á Útvarpi Sögu. Hlustaðu á þáttinn hér.

Þá væri athugandi fyrir suma málverjana að kynna sér það sem ég hef fram að færa áður en þeir kasta fleiri steinum:

www.forsetakosningar.is

www.lydveldi.is

 

P.S. Nú hef ég verið settur í bann á vefnum malefnin.com. Fyrst var lokað á mig eftir að ég skrifaði um ritstjóra DV í gær (Sjá hér: http://lydveldi.blog.is/blog/lydveldi/entry/743271/ ) og ítrekað eftir að ég skrifaði ofangreinda grein. Hún var fjarlægð og ég bannaður frá vefnum í 7 daga! Steinkastarar í glerhýsi DV reynast eftir alltsaman agnarlitlar skráplausar sálir. 

 


Úr öskunni í eld kommúnista

klukkan300p

Vonandi bara að þjóðin vakni. Í trylltum dansi sínum um gullkálfinn undanfarinn áratug var þessi þjóð blind og heyrnarlaus. Þeir sem bentu á að ekki væri allt með felldu voru gjarnan rakkaðir niður með margvíslegum uppnefnum. Ég fékk flóruna af viðnefnum hengt á mína persónu, m.a. kallaður "þorpsfífl" í fjölmiðlum Baugs þegar ég reyndi að vekja þjóðina af sínum Þyrnirósarsvefni.

Þannig var það einnig í aðdraganda forsetakosninganna 1996 þegar ég sagði íslensku þjóðfélagi haldið í heljagreipum einhverra huldumanna.  Ég vildi komast í skrifstofuherbergið í Stjórnarráðinu (þá var skrifstofa forseta Íslands þar staðsett) til að hreinsa til og reka út spillinguna. Þarna væri verið að fremja mesta arðrán Íslandssögunnar og ef ekki spyrnt við yrði þjóðin gjaldþrota á fáeinum árum. Þjóðin svaf og lét nægja að afgreiða mig með uppnefnunum sem moldvörpurnar voru iðnar að spinna úr undirheimum Íslenskra fjölmiðla.

Því miður hefur spá mín nú ræst enda þurfti nú ekki annað en vera svona sæmilega allsgáður og vilja koma að stjórnmálum að heiðarleika til að sjá þjófana að verki, hvað sem gráðugir og gírugir spillingarpésarnir í Framsókn og þeirra hirð annarsstaðar í þjóðfélaginu reyndu að halda í Nýju fötin keisarans á kostnað þjóðarinnar.

En það yrði að fara úr öskunni í eldinn að koma hér upp kommúnísku þjóðfélagi. Þeirra moldvörpur eins og Einar Már Guðmundsson eru ekkert skárri en þær fyrri og þær hafa nú hreiðrað um sig í röðum mótmælenda. Þeir standa einnig að útgáfu vefritsins Nei sem þeir kalla: "Rammt og hressandi kommúnískt dagblað". Þannig að stefna þeirra liggur fyrir þeim sem vilja sjá og heyra.

Eftir að ég vakti athygli á vinstri slagsíðu á Austurvelli og hvernig sumir ræðumenn voru útilokaðir þar á meðan aðrir eins og Einar voru malandi sinn undirróður á nær hverjum fundi, svara þeir nú með þögninni! Frekar en að leyfa öðrum sem vilja taka til máls fær enginn að taka til máls. Svona er þetta haft hjá kommúnistum. Þeir yrðu fljótir að taka af okkur tjáningarfrelsið kæmust þeir hér til valda.

timinn500p

 

 


mbl.is Vekjaraklukka fyrir stjórnvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sorpfréttastofa DV afhjúpuð

Reynir Traustason ritstjóri DV sagði í viðtali á Bylgjunni í gær 12.12.08 blaðið ekkert til þess unnið að hafa ekki trúverðugleika. Er ekki í lagi með manninn?


Sorpritið DV hefur með sinni dæmalausu lygaþvælum og uppspuna árum saman stundað mannorðsmorð með upploginni þvælu enda hafa dómar þar sem ummæli eru dæmd dauð og ómerk verið felldir nánast á færibandi gegn DV í Héraðdsdómi Reykjavíkur að undanförnu. Hyskið á DV með Jónas Kristjánsson læriföður sinn í farabroddi gekk meira segja svo langt að eitt fórnarlamba DV framdi sjálfsmorð. Þá missti þjóðin að sjálfsögðu gersamlega trú á þessum sorpblaðamönnum og Jónas hrökklaðist frá blaðinu í kjölfarið og skrifar nú skítinn á vefsíðu sína sem fáir nenna að lesa.

Við hlustun á viðtalið við DV ritstjórann sprakk ég úr samblandi af reiði og hlátri að hlusta á fáranlegan hvíttþvottinn á Bylgjunni. Á hvaða bylgjulengd er þessi ritstjóri? Hvar býr hann, á tunglinu? Er Reynir Traustason gersamlega búinn að tapa vitglórunni? Hvernig dettur honum í hug að fara með þá staðlausu stafi að DV hafi ekkert unnið til að glata trúverðugleika sínum?

Sorpblaðamenn DV hafa árum saman spunnið eigin lygasögur og tekið fagnandi hvaða endemis lygaþvælu sem er eftir hvaða rugludöllum sem er. Yfirleitt hefur nægt að birta lygasögur á vefsíðu eða bara hringja í númer DV, opið allan sólarhringinn fyrir allsgáða sem og blindfulla vitleysinga, og þar var þeim leyft að lepja inná símsvara hvaða lygaþvælu sem rugludöllunum datt í hug til að koma frá sínum sjúkum huga upplognum sökum á náungann sem sorpritið DV birti síðan sem dyggur þjónn slúðurþvælunnar án þess einu sinni að hafa fyrir því að kanna sannleiksgildið.   

Starfsemi DV hefur ekkert breyst. Þetta er sama sorpritið og áður. Það eru sömu "rónarnir" eins og Reynir Traustason kallaði sjálfan sig og samstarfsmenn sína í símtali við mig. Ég skora á þig að hlusta á þetta samtal frá 26.11.08 sem sýnir og sannar með ótvíræðum hætti að ekkert hefur breyst á sorpfréttastofunni DV.  Hlusta hér

Aðrar greinar um DV málið:

Lærisveinn Hreins Loftssonar

DV hvetur til ofbeldis gegn alþingismönnum

Kjaftasögurnar breiðast út með leifturhraða

Hringur þrengist um ritsóðana

Rógburður DV-malefnin heldur áfram. Kæra 3 til lögreglunnar

"Þorpsfíflið" Gunnar Smári Egilsson

DV = Shallow Throat?

Nafnlausir "harðjaxlar"!

DV hleypur í felur

Mótmælendur: Lokið DV og krefjist sannleikans!

Lögreglukæra og beiðni um álit frá Blaðamannafélagi Íslands

Sannleikann á borðið!

Afhjúpun hér: Bessastaðadraugurinn fundinn!

Sendum sorpritstjórann á Litla Hraun

DV sorpið - Hér annað samtal og lögreglukæra

Geðhvarfasjúkir nafnleysingjar undir hatti DV

 

Leppur forsetahjónanna?

Með ólíkindum að ekki sé fjallað um þá alvarlegu misnotkun á fjölmiðlum sem viðgengist hefur fyrir forsetaembættið. Skýringin felst hugsanlega í því að forsetahjónin, eða forsetafrúin hefur um nokkurt skeið verið leynihluthafi í fyrirtækjum Baugs veldisins en aðaleigandi þeirra á nær alla "frjálsa" fjölmiðla landsins.

Blaðamenn þora ekki að kafa ofaní þessa ormagryfju jafnvel þótt þeir vinni á öðrum fjölmiðlum, því ef þeir skyldu nú missa þá vinnu yrðu þeir að ganga á vit hirðarinnar í atvinnuleit.

Í ljósi þrotlausra ferðalaga forsetans með útrásarvíkingum undanfarin ár, beinum og óbeinum stuðningi hans við Baugsveldið sem hann hefur varið með kjafti og klóm eins og þegar hann misnotaði neitunarvald embættisins í fjölmiðlamálinu og í ljósi þess hverjir voru í forsvari fyrir forsetaframboð hans, undirskriftarsöfnun og endurkjör væri ekki úr vegi að velta fyrir sér hvort eitthvað fleira tengi forsetaembættið við Baugsveldið.

Gæti verið að forsetafrúin sé leynihluthafi í Baugsveldinu. Er þar komin skýringin á því að Dorrit sótti tískusýningu í dótturfélagi Baugs (Mosaik) í einkaþotu Baugs? Getur verið að dóttir forsetans Guðrún Tinna Ólafsdóttir sé leppur fyrir þennan leynihluthafa Baugs? Þessi unga kona, dóttir Ólafs Ragnars sat í þriggja manna stjórn ásamt Jóhannesi Jónssyni og Jóni Ásgeiri í stjórn Haga hf samkvæmt hluthafaskrá 31.7.2008

Í þessu sambandi er ekki óviðeigandi að rifja upp hvað gerðist um síðustu áramót:

Sorglegt var að horfa uppá í ásbyrjun 2008 hvernig 
forseti Íslands og stuðningsmenn hans misnotuðu 
fjölmiðlaveldi sitt til að tryggja forsetanum endurkjör 
í fjórða kjörtímabilið án kosninga. Hér er úrdráttur úr 
bréfi mínu 24 janúar 2008 til dómsmálaráðuneytisins þar 
sem atburðarrásinni var lýst: 

Heilbrigt lýðræði getur ekki þrifist nema með 
reglubundnum kosningum á jafnréttisgrundvelli. 
Aðdragandi kosninga er mikilvægur og dýrmætur tími fyrir 
þjóð og valdhafa að skiptast á skoðunum í opnum og 
frjálsum umræðum. Fjórða valdið fjölmiðlarnir gegna þar 
mikilvægu hlutverki. Þeir sem ráða fjölmiðlum 
þjóðarinnar þurfa að axla þá ábyrgð að misnota ekki 
valdið til að hygla einum fram yfir aðra eins og því 
miður gerðist með svo afgerandi hætti í Íslensku 
forsetakosningunum árið 2004 að Dr. Dietrich Fisher 
líkir þessu í fyrirlestrum sínum við það sem gerðist 
undir einræði Slobodan Milosevic í Júgóslavíu. 

Eins og gerðist árin 2000 og 2004, er í 3ja sinn árið 
2008 hafinn öfgafullur áróður gegn kosningum í 
fjölmiðlum stuðningsmanna sitjandi forseta Ólafs Ragnars 
Grímssonar: 

01.01.08 – Forsetinn Ó.R.G. tilkynnir að hann sækist 
eftir endurkjöri eða sjálfkjöri. 

02.01.08 – Tímaritinu Mannlíf með forsíðu tileinkaðri 
Ólafi Ragnari Grímssyni dreift og stillt upp við alla 
kassa í nær öllum verslunum landsins, matvöruverslunum, 
söluturnum og benzínstöðvum svo ásýnd forsetans blasi 
við þjóðinni í fleiri vikur. 

03.01.08 – Stöð2 “Ástþór aftur í framboð” og þar fullyrt 
að ég ætli í forsetaframboð án þess að ég hafi rætt 
slíkt framboð við nokkurn mann síðastliðin ár.    

04.01.08 – Stöð2 aðalfrétt kvöldins “Misnotar lýðræðið” 
og á skjánum oddviti yfirkjörstjórnar Reykjavíkur Norður 
með þær fullyrðingar að ég hafi beitt blekkingum við 
prentun meðmælendalista í forsetakosningum árið 2004. Á 
visir.is bætt enn um betur og sagt “nauðgun á 
lýðræðinu”. Fréttin er í raun áfellisdómur yfir 
kjörstjórnum og dómsmálaráðuneytinu sem hafa þá 
vísvitandi samþykkt ógilda meðmælendalista. 

05.01.08 – Stöð2 fyrsta frétt “Mótframboð myndi kosta 
170 milljónir” með myndum af mér á kjörstað um leið og 
hamrað er á stórýktum kostnaði við forsetakosningar. 
Ítrekaðar fullyrðingar oddvita yfirkjörstjórnar að 
mótframboð sé misnotkun á lýðræðinu, lög séu úrelt og 
við núverandi aðstæður eigi í raun enginn erindi í 
framboð gegn forsetanum í okkar litla lýðræði með þá 
1500-3000 meðmælendur sem núverandi lög kveða á um. 

Áhugavert að Stöð2 sá ekki ástæðu að upplýsa skýra frá 
kæru gegn ummælum oddvitans eftir hafa misnotað 
fréttatíma sína gegn mér með svo grófum hætti sem raun 
ber vitni að því að virðist í þeim tilgangi að hræða 
gegn kosningum og mótframboðum gegn sínum manni sem nú 
ráðgerir áhyggjulaust sjálfkjör í fjórða kjörtímabilið. 

Atburðarrásin hefur átt sér nokkurn aðdraganda. Lúmskt 
bros stjórnmálafræðingsins sem skilur betur en allir 
hvernig má spila á lýðræðið og illa upplýstan almúga 
blasir nú við mér í hvert sinn sem keypt er í matinn eða 
bensín á bílinn. Frábært flug forsetans, en ég get ekki 
neitað því hvað þetta minnir á ferð mína til Baghdad um 
árið og glansmyndir þess forseta sem einnig taldi 
kosningar óþarfar.

 


mbl.is Ísland í dag samkvæmt Economist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lygamörður borgarafundar afhjúpaður. Þjóðin blekkt. Hljóðupptökur hér.

Ungur háskólanemi, Kristín Ýr Gunnarsdóttir, hefur látið hafa sig í það að koma fram í fréttum Stöðvar2 fullum hálsi með ósannindi. Kristín Ýr hefur lagst svo lágt að gerast lygamörður frammi fyrir þjóðinni. Kristín reyndi með ósannsögli að réttlæta þann fáheyrða atburð þegar mér, Ástþóri Magnússyni var varpað á dyr af þremur fílefldum karlmönnum af fundi samtaka sem hafa að undanförnu staðið fyrir því sem kallast Opinn borgarafundur.

Samtökin auglýsa sig sem ópólitísk og opin öllum sem áhuga hafa. Nú er hinsvegar komið í ljós að Opinn Borgarafundur er leikstýrð uppákoma sem á ekkert skylt við lýðræðislega umræðu. Áhugavert er að hlusta á þennan pistil frá Útvarpi Sögu þar sem vitni lýsir atburðinum sem gerðist hjá Opnum borgarfundi þegar þeir vörpuðu lýðræðinu á dyr.

Hvað sem fólki finnst um einstakar skoðanir, þá þurfum við að standa vörð um tjáningarfrelsið. Það er ekki gert með því að varpa á dyr því sem einstaka aðilum finnst óþægileg umræða. Þegar slík vinnubrögð eru tekin upp þá er verið að kasta lýðræðinu á dyr.

Þegar sú staðreynd blasir við að yfir 70% frummælenda á mótmælafundum og yfir 50% á borgarafundum tengjast einum stjórnmálaflokki, er nauðsynlegt að vekja athygli á slíku. Réttmætar ábendingar eins og þær sem ég kom með um pólitíska slagsíðu, og hvað væri hægt að gera til að gæta jafnræðis, veita almenningi greiðari aðgang að borgarafundum og gera ferlið lýðræðislegra, þurfa skipuleggjendur sem fara undir merkjunum "Raddir fólksins" eða "Breiðfylking" að hafa þroska til að taka á með yfirvegun og hafa viljann til að lagfæra það sem betur má fara. Annars er verið að blekkja þjóðina.

Ég fékk góða slummu af fúkyrðum yfir mig frá Gunnar leikstjóra áður en þeir hentu mér út á götu af fundinum. Það var hans svar við réttmætum athugasemdum mínum. Ég er svo sem ekkert óvanur þessu, þeir sem vilja rifja upp þá ótrúlegu flóru fúknefna sem ég fékk í kjölfar þess að benda á spillinguna hjá stjórnvöldum sem myndi á endanum koma okkur á hausinn gætu hlustað á þennan þátt Sverris Stormsker á Útvarpi Sögu

Um vinnubrögð RÚV sem samkvæmt könnun er sagt sá fjölmiðill sem nýtur mest trausts meðal þjóðarinnar, er áhugavert aðheyra þetta samtal mitt við fréttamann þar. Þeir höfðu engan áhuga á sannleikanum í málinu. Þeim virðist standa nákvæmlega á sama þótt þeir útvarpi og sjónvarpi leikstýrðum uppákomum þar sem tjáningarfrelsinu er hent fyrir róða.

Að lokum hér er góð grein um þetta mál af eyjunni.is

Hér er upphaflega bloggið um þetta mál.

Nauðsynlegt er að við stöndum vörð um tjáningarfrelsið. Föllum ekki í þá gryfju eins og hefur áður gerst meðal þjóða í Evrópu þegar yfir þær hafa dunið miklar kreppur og erfiðleikar, að láta slíkt tímabundið ástand slæva dómgreind okkar með þeim hætti að öfgaöfl geti hreiðrað um sig og lítisvirt lýðræðið og frelsi okkar.
 

Borinn út af borgarafundi. Þjóðin blekkt með leikstýringu.

Þrír fílefldir karlmenn hentu Ástþór Magnússyni á dyr og út á götu úr gamla skrifstofuhúsnæði Byggingarfulltrúans í Reykjavík í gær miðvikudaginn 2 desember við upphaf fundar um skipulag Opins Borgarafundar í Háskólabíó.

Strax og Ástþór kom inn um dyrnar í Borgartúni 3, var honum mætt af Gunnari Sigurðssyni leikstjóra með orðunum „Ástþór viltu fara út og finna þér einhvern annan vettvang“. Aðspurður hvort ekki væri rétt að ræða það á fundinum svaraði Gunnar að þess væri engin þörf. Gunnar sagðist vera með húsnæðið á leigu prívat og persónulega, ekki þetta fólk sem þarna væri mætt.

Eiríkur Stefánsson fyrrum verkalýðsforingi og pistilhöfundur á Útvarpi Sögu stórhneykslaðist á eineltinu og sagði í miklum reiðilestri yfir fundarmönnum að samtökin væru á engan hátt sjálfum sér samkvæm. Hér væri verið að krefjast þess að stjórnvöld hefðu allt uppá borðinu, samtökin fengju áheyrnarfulltrúa í nefndir og á ríkisstjórnarfundi, en samtökin sjálf störfuðu á leynifundum og rækju á dyr þá sem hefðu áhuga á þátttöku í starfinu eða sitja fundi sem áheyrnarfulltrúar.

Ástþór óskaði að sitja fundinn sem áheyrnarfulltrúi og þegar því var synjað bað hann um skriflega brottvísun en því var einnig synjað. Stuttu síðar kom aðvífandi þrír menn sem tóku undir handleggi Ástþórs og báru hann þannig út á götu.

Þetta er nokkuð á skjön við yfirlýst markmið á vefsíðunni borgarafundur.org en þar segir „Opinn borgarafundur er breiðfylking fólks sem á það sameiginlegt að vera umhugað um lýðræðislegt stjórnarfar á Íslandi. Félagsskapurinn er ekki flokkspólítískur og er opinn öllum sem áhuga hafa.” Þarna er siglt undir fölsku flaggi því þessum samtökunum er stjórnað af fámennri klíku og eru alls ekki opin öllum.

Í fjölmiðlum hefur verið að koma fram fólk sem kvartar yfir því að komast ekki að sem frummælendur á mótmælafundum. Í kjölfarið velti Ástþór því upp á bloggsíðunni lydveldi.blog.is hvort verið væri að misnota vettvang mótmælenda og nauðsyn þess að innleiða lýðræðislegri leiðir við val á ræðumönnum og spyrjendum. Þar segir m.a.:

“Í Háskólabíó varð ég vitni að því að vörubílstjóra var meinað að bera upp spurningu. Fólk í kringum þennan mann tjáði mér að einhversskonar fyrirmæli hefðu verið gefin út að hleypa honum ekki í loftið. Þar sem ég hafði skráð mig fljótlega eftir fyrsta fundinn á póstlista hjá borgarfundur.org, hef ég fengið sendan póst og hvatningar að kynna fundina. Einnig fundarboð á skipulagsfund.

Ég mætti á slíkan fund tveimur dögum eftir stóra fundinn í Háskólabíó. Þar var borin upp sú tillaga (tek það fram að þessi tillagan var ekki frá mér né tengist mér á nokkurn hátt) að skipta út fundarstjórum með reglulegu millibili. Ég hlustaði á þetta og lagði lítið til málanna annað en ef ætti að skipta út fundarstjóranum væri ekki úr vegi að kona yrði valin næst.

Tillaga og umræður um breytingar á fundarstjórn var kveðin í kútinn eftir að hinn ágæti leikstjóri borgarafundanna sagðist ekki myndi mæta á næsta fund ef þetta ætti að þróast í einhver formleg fundarsköp.

Ekki veit ég hvort það tengist þessari umræðu en ég var snarlega tekinn af póstlista borgarafundarins og fékk ekki sent næsta fundarboð. Frétti frá öðrum að sá fundur var haldinn 1. desember.

Ég er ekki alveg að átta mig á því hvað er í gangi við þessi mótmæli og borgarafundi. Hversvegna ekki er staðið að þessu með óhlutdrægum og lýðræðislegum hætti. Ég hef tekið eftir því að á meðan sumum frummælenda er hafnað af skipuleggjendum, hafa aðrir margsinnis flutt ávörp. Svo ég gerði smá könnun á þeim frummælendum sem hafa komið fram til að kanna hvort einhverjar pólitískar ástæður kynnu að liggja hér að baki.

Könnun mín virðist því miður leiða í ljós að verið sé að misnota vettvang mótmælenda. Síðastliðinn mánuð hafa 70,6% frummælenda á Austurvelli og Arnarhóli tengst Vinstri Grænum. 11,8% tengast öðrum stjórnmálahreyfingum en hjá 17,6% finn ég ekki augljósar tengingar við stjórnmálaflokka. Svipað mynstur er á borgarafundunum í Iðnó og Háskólabíó, þar er meirihlutinn eða 53% sem tengjast Vinstri Grænum.”

Opin borgarfundur var góð hugmynd en því miður virðast annarleg sjónarmið ráða för sem draga þetta annars verðuga verkefni í ræsið. Ljóst er að grandvaralausir fundargestir eru blekktir með leikstýringu.

Í efnahagshruni og kreppu eins og nú er komin upp á Íslandi getur myndast hætta á að öfgaöfl nái undirtökum. Hitler komst þannig til valda í Þýzkalandi á sínum tíma. Nú komið í ljós að stjórnarhættir forráðamanna Opins Borgarafundar eiga meira skylt með aðferðafræði fasista en lýðræði.


mbl.is Forseti ASÍ á borgarafundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flokkafjötrar hindra lýðræðislega umræðu. Flokksforystan stöðvar frummælanda.

Formanni Fjölskylduhjálparinnar var af flokksforystu Frjálslynda flokksins meinað að mæta á málþing þar sem hún var auglýst sem frummælandi.

Þegar heilsíðuauglýsing Lýðræðishreyfingarinnar birtist í Fréttablaðinu s.l. laugardag og að Ásgerður Jóna Flosadóttir stjórnmálafræðingur og formaður Fjölskylduhjálpar Íslands myndi opna umræður um beint og milliliðalaust lýðræði í Hressingarskálanum síðar um daginn, varð uppi fótur og fit innan veggja Frjálslynda flokksins og henni bannað að flytja ávarpið af flokksforystunni og tveimur þingmönnum Frjálslynda flokksins.

Eiríkur Stefánsson verkalýðsforingi sem mætti til að tilkynna um þetta tveimur mínútum fyrir fundinn, segir flokkseigendafélög ráðskast með málfrelsið í öllum stjórnmálaflokkum landsins.

Yfir 70% frummælenda á mótmælafundum undanfarnar vikur á Austurvelli og Arnarhóli tengjast Vinstri Grænum samkvæmt könnun Lýðræðishreyfingarinnar. Sjá nánar á www.lydveldi.is

Þessi mál verða rædd í Miðjunni, útvarpsþætti Sverris Stormsker á Útvarpi Sögu kl. 16 á morgun miðvikudaginn 3. desember.


Stórskaðar Ísland erlendis

Þrásetan er að stórskaða ímynd Íslands á erlendum vettvangi. Stjórnvöld standa nú berrössuð og valdnýðslan sem hér hefur viðgengist undanfarna áratugi afhjúpuð.

Ríkisstjórn og stjórn Seðlabanka Íslands eiga að sjá sóma sinn í að víkja áður en þeir skaða okkur meira. Á nokkrum dögum væri hægt að skipa utanþingsstjórn sérfræðinga til að taka við "björgunarstarfinu" fram yfir kosningar og þar til ný starfhæf ríkisstjórn er mynduð.

Ekki aðeins er ríkisstjórnin að stórskaða þjóðina með mistökum á mistök ofan í efnahagsmálum eins ég hef rakið í annari grein hér, nauðgun stjórnvalda á lýðræðinu er einnig að skipa okkur á bekk vanþróaðra ríkja. Hér þarf að virða heilbrigðar lýðræðisreglur og boða til kosninga á næsta ári.


mbl.is Sagt frá mótmælum Íslendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hætta getur skapast ef RÚV hverfur af auglýsingamarkaði.

Eins og eignarhaldið er á fjölmiðlum hér veitir ekki af aðgangi augýsenda að RÚV. Nú vill Hreinn Loftsson kaupa Morgunblaðið en háværar raddir eru uppi um að Hreinn sé leppur Baugs og Jón Ásgeirs. Þeir eiga nú þegar stærstu einkareknu útvarps- og sjónvarpsstöðvar landsins.

Nauðsynlegt er að setja reglur um rekstur fjölmiðlanna til að gæta þess að umræðan sé opin og lýðræðisleg. Einnig getur verið vítavert í þessu ástandi að RÚV hverfi af auglýsingamarkaði.

Væri ekki hægt að hugsa sér að auglýsingatímar RÚV yrðu opnaðir fleirum til að selja í þær mínútur og þeim auglýsingatekjunum sem þannig yrði aflað yrði dreift til stuðnings nýjum sprota fjölmiðlum? T.d. fjölmiðlum sem hafa minna en einhverja vissa markaðshlutdeild og sem ekki tengjast eignarhaldi annarra fjölmiðla?

Mætti einnig opna aðgang fyrir auglýsinga- eða kynningarefni frá félagasamtökum á jafnréttisgrundvelli? PBA eða "Public Broadcast Announcement" er ekki óþekkt fyrirbæri erlendis. Þannig mætti stuðla að því að mismunandi sjónarmið í lýðræðisþjóðfélaginu komist til skila.


mbl.is Fái ekki flýtimeðferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

RÚV standi vörð um lýðræðið

RÚV standi vörð um lýðræðið

Bréf til Páls Magnússonar útvarpsstjóra, 2. desember 2008:

Lesa PDF skjalið - Innheldur einnig skýringamyndir

Undanfarnar vikur hef ég fylgst með mótmælum á Austurvelli og Arnarhóli, og Borgarafundum í Iðnó og Háskólabíó.

Ég tók eftir því s.l. laugardag að fundarstjóri á Austurvelli kallaði eftir beinni útsendingu RÚV frá næstu mótmælum svo þjóðin gæti öll fylgst með, því þetta væru "raddir fólksins". Tveimur dögum áður var grein birt í DV undir fyrirsögninni: "Mótmælendur í hár saman" og þar fjallað um miðstýringu eins eða þriggja einstaklinga á vali ræðumanna. Viðmælendur blaðsins voru ósáttir við að fá ekki aðgang að ræðupallinum.

Ég sannreyndi þetta sjálfur með því að hringja og óska þess að rödd mín fengi að ávarpa mótmælendur en því var synjað eins og hjá viðmælendum DV. Fyrst á þeim forsendum að ég hafi verið virkur þátttakandi í landspólitíkinni. Ég benti á þá staðreynd að ég hafi ekki í áratugi verið flokksbundinn, aldrei setið á þingi eða gegnt öðru opinberu embætti. Þá var því svarað til að ég væri of þekkt persóna til að ávarpa mótmælendur.

S.l. laugardag mætti ég á Austurvöll og bað fundarstjóra að lesa3 setningar til að vekja athygli á að fólk væri velkomið að loknum mótmælunum á Austurvelli á kaffifund í Hressingarskálanum þar sem í boði væri opinn ræðupallur og frjálsar umræður. Því var synjað með þeim orðum að fjöldi slíkra beiðna hefðu borist og þeim væri öllum synjað. Nú væri kominn samstarfshópur um mótmælaaðgerðirnar á Austurvelli og fundarstjóri yrði að lúta þeirra vilja. Þeir, sem ég ekki veit hverjir eru, ráði því hvað fer í loftið.

Fullveldisdaginn 1. desember gekk ég á Arnarhól og á móti mér tók kraftmikil áróðusræðu ungs manns gegn inngöngu í Efnahagsbandalag Evrópu. Eitthvað virðist ég í einfeldni minni hafa misskilið mótmælin. Mér hafði skilist að um þverpólitísk mótmæli væri að ræða með sameiginlegri kröfu um afsögn ríkisstjórnar, við tæki utanþingsstjórn skipuð sérfræðingum í björgunarstarfið, uppstokkun í Seðlabankanum og kosningar. Mér hafði einhvernvegin skilist að sjálfskipaðir fulltrúar þjóðarinnar á Arnarhóli væru að krefjast þess að þjóðin fengi að kjósa og þannig velja sín baráttumál. Rétt er að taka það fram að ég hef ekki myndað mér skoðun með eða á móti inngöngu í Efnahagsbandalagið, en vil gjarnan fá umræðuna í gang og yfirvegaða ákvörðun þjóðarinnar um framhaldið.

Ég kynntist einnig Borgarafundinum. Í Háskólabíó varð ég vitni að því að vörubílstjóra var meinað að bera upp spurningu. Fólk í kringum þennan mann tjáði mér að einhversskonar fyrirmæli hefðu verið gefin út að hleypa honum ekki í loftið. Þar sem ég hafði skráð mig fljótlega eftir fyrsta fundinn á póstlista hjá borgarfundur.org, hef ég fengið sendan póst og hvatningar að kynna fundina. Einnig fundarboð á skipulagsfund. Ég mætti á slíkan fund tveimur dögum eftir stóra fundinn í Háskólabíó. Þar var borin upp sú tillaga (tek það fram að þessi tillagan var ekki frá mér né tengist mér á nokkurn hátt) að skipta út fundarstjórum með reglulegu millibili. Ég hlustaði á þetta og lagði lítið til málanna annað en ef ætti að skipta út fundarstjóranum væri ekki úr vegi að kona yrði valin næst. Tillaga og umræður um breytingar á fundarstjórn var kveðin í kútinn eftir að hinn ágæti leikstjóri borgarafundanna sagðist ekki myndi mæta á næsta fund ef þetta ætti að þróast í einhver formleg fundarsköp. Ekki veit ég hvort það tengist þessari umræðu en ég var snarlega tekinn af póstlista borgarafundarins og fékk ekki sent næsta fundarboð. Frétti frá öðrum að sá fundur var haldinn 1. desember.

Ég er ekki alveg að átta mig á því hvað er í gangi við þessi mótmæli og borgarafundi. Hversvegna ekki er staðið að þessu með óhlutdrægum og lýðræðislegum hætti. Ég hef tekið eftir því að á meðan sumum frummælenda er hafnað af skipuleggjendum, hafa aðrir margsinnis flutt ávörp. Svo ég gerði smá könnun á þeim frummælendum sem hafa komið fram til að kanna hvort einhverjar pólitískar ástæður kynnu að liggja hér að baki.

Könnun mín virðist því miður leiða í ljóst að verið sé að misnota vettvang mótmælenda. Síðastliðinn mánuð hafa 70,6% frummælenda á Austurvelli og Arnarhóli tengst Vinstri Grænum. 11,8% tengast öðrum stjórnmálahreyfingum en hjá 17,6% finn ég ekki augljósar tengingar við stjórnmálaflokka. Svipað mynstur er á borgarafundunum í Iðnó og Háskólabíó, þar er meirihlutinn eða 53% sem tengjast Vinstri Grænum. Með þessu bréfi fylgja nánari upplýsingar um þetta.

Um leið og ég vil þakka RÚV fyrir að hafa veitt landsmönnum tækifæri til að fylgjast með mótmælunum, tel ég nauðsynlegt að staldrað sé við og RÚV standi vörð um opna og lýðræðislega umræðu. Slíkt mætti gera með samkomulagi aðila um endurskipulagningu á því hvernig staðið er að vali á frummælendum á mótmælafundum og borgarafundum og jafnræðisreglu sé gætt. Nauðsynlegt að RÚV veiti öllum þeim félagasamtökum sem sem hafa eitthvað fram að færa í umræðuna, jafnan aðgang að útsendingatíma í ríkisfjölmiðlunum. Við hjá Lýðræðishreyfingunni gætum t.d. hugsað okkur að vera með vikulegan og þverpólitískan umræðuþátt í sjónvarpi þar sem m.a. yrði fjallað um þá möguleika að þróa beint og milliliðalaust lýðræði á Íslandi. Við erum tilbúin að kosta gerð slíks þáttar á eigin forsendum og biðjum RÚV ekki um annað en útsendingartímann. Virðingarfyllst,

Lýðræðishreyfingin

Ástþór Magnússon

____________________________________________

Lýðræðishreyfingin - www.lydveldi.is - Sími 4962004

 


mbl.is Endurvakin sjálfstæðisbarátta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband