Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
17.12.2008 | 19:03
Lögreglukæra og beiðni um álit frá Blaðamannafélagi Íslands
Undirritaður hefur kært til Lögreglustjórans í Reykjavík yfir 60 ærumeiðingar, upplognar sakir og ofbeldishótanir gegn undirrituðum sem birst hafa á DV vefnum malefnin.com.
Á umræddum vef eru 36,200 innslög um persónu undirritaðs, fleiri þúsund þeirra innihalda ærumeiðingar er varða við almenn hegningarlög. Um skipulagt einelti virðist að ræða sem birt er þarna opinberlega undir nafnleynd. Fram kemur á malefnin.com að sumir notendur þar eru með allt að 100 ritnöfn og er því hugsanlegt að örfáir einstaklingar standi að þeim þúsundum níðskrifa sem þarna hafa birst um undirritaðann.
Vefurinn malefnin.com er merktur dagblaðinu DV. Undirritaður hefur spurst fyrir um hver haldi út þessum vef og fengið þær upplýsingar m.a. frá ráðherra í ríkisstjórn Íslands að DV standi að vefnum.
Í þessu sambandi er óskað álits blaðamannafélags Íslands á eftirfarandi:
1. Er það eðlilegt að fjölmiðill eins og DV haldi úti vef þar sem ærumeiðandi ummælum, upplognum sökum og ofbeldishótunum er dreift undir dulnefni?
2. Samræmist það lögum og reglum að skrifaðar séu greinar og birt opinberlega undir dulnefni á vefsvæði sem upplýsir hvorki um höfunda né ábyrgðarmenn.
3. Hvað finnst B.Í. um þetta sjónarmið þeirra sem stjórna malefnin.com: Mikið hefur verið rætt og ritað um nafnleysi stjórnenda hér á þessu spjallsvæði og sitt sýnst hverjum. Hér eru langflestir undir dulnefni, ekki endilega af því að þeir hafi eitthvað að fela heldur er fólk berskjaldaðri gagnvart klikkuðu fólki á internetinu sem gæti tekið upp á því að færa samskiptin yfir í raunheima. Slíkt er ekkert grin enda mörg dæmi um afar "óvinsamlegt" fólk hér, fólk sem vílar ekki fyrir sér ofbeldi eða ofsóknir án þess að ég nefni nein nöfn. Hinn venjulegi notandi hér sér ekki helminginn af því sem hér er gert
4. Hvað finnst B.Í. um að þessum vef sé haldið úti áfram með 36,200 innslög sem innihalda fleiri þúsund ærumeiðingar um einstaka persónu?
5. Mun B.Í. beita sér fyrir því að vefnum malefnin.com verði lokað. Ef ekki þá hversvegna?
Undirritaður vill árétta að hann er fylgandi opinni og gagnrýnni þjóðfélagsumræðu sem sett er fram með málefnalegum og ábyrgum hætti.
Hinsvegar er fjölmiðilinn DV malefnin.com lýsandi dæmi um það þegar tjáningarfrelsið hefur snúist upp í andhverfu sína vegna misnotkunar. Hér er hugsanlega um örfáa einstaklinga að ræða sem misnota kerfið m.a. með þvi að stofna fjölda notendanefna og leggja síðan einstaklinga og málefni í einelti til að skekkja umræðuna. Þetta hefur verið greinilegt á malefnin.com t.d. í aðdraganda forsetakosninga.
Þessvegna er það nauðsynlegt til að tryggja opið og lýðræðislegt þjóðfélag hér að vefnum malefnin.com verði umsvifalaust lokað. Ekkert er að því að opna malefnin.com síðan aftur eftir að lagfærðir hafa verið þeir ágallar sem hér hefur verið rakið óski notendur malefnin.com að taka þátt í þjóðfélagsumræðunni með greinum og innslögum undir eigin nafni og sem birt er með ábyrgum hætti í samræmi við lög og reglur.
Kæra til Lögreglunnar. Beiðni um rannsókn á því hverjir bera ábyrgð á ærumeiðingum og ofbeldishótunum á malefnin.com.
KRAFIST AÐ VEFNUM VERÐI LOKAÐ
Í gær afhenti undirritaður ritara Lögreglustjórans í Reykjavík kæru vegna ólögmætar starfsemi vefsins malefnin.com og kærð 34 ærumeiðandi ummæli og upplognar sakir.
Undirritaður hafði einnig í gær samband við Guðmund Inga Hjartarson framkvæmdastjóra fyrirtækisins Netheimur ehf, Sóltúni 26, 105 Reykjavík, og krafðist þess að hann lokaði vefnum. Guðmundur sagðist ekkert hafa með þennan vef að gera þótt hann væri hýstur hjá hans fyrirtæki. Hann benti á Ásthildi Cesil Þórðardóttur, garðyrkjukonu á Ísafirði sem stjórnanda vefsins.
Á vefnum malefnin.com eru ekki gefnir upp neinir ábyrgðarmenn og þar sagt við viljum vernda fjölskyldur okkar og okkur sjálf fyrir Málefnalífinu alveg eins og þið hin.
Á innslagi sem birt var í gær á malefnin.com (Fskj. 2.1.) og öðru innslagi sem Ásthildur birti á bloggsíðunni lydveldi.blog.is í morgun (Fskj.1.1.) má ætla að eigandi vefsins sé Guðmundur Ingi Hjartarsson sem ekki vildi gangast við þessu er undirritaður ræddi við hann. Vefurinn malefnin.com er hinsvegar merktur bak og fyrir með vörumerki DV (Fskj. 23) og talað um það m.a. af ráðherra í ríkisstjórn Íslands, að vefurinn sé í eigu DV.
Þar sem eigendur, ábyrgðarmenn og höfundar vefsins malefnin.com virðast ætla að halda áfram þeim leik að fela sig á bakvið leppa og nafnleysingja, er nauðsynlegt að lögreglan rannsaki þetta mál án tafar. Einnig er þess krafist að vefnum malefnin.com verði umsvifalaust lokað enda eru þarna á ferðinni alvarleg lögbrot.
Innslög um á malefnin.com um persónu undirritaðs eru 36,200 talsins! Þúsundir þeirra innihalda ærumeiðandi, móðgandi og upplogin ummæli um undirritaðann. Skrif þessi varða við almenn hegningarlög nr. 19/1940. Sjá XXV. Kafla Ærumeiðingar og brot gegn friðhelgi einkalífs, greinar: 234, 235, 236, 237.
Ítrekuð er kæra 34 ummæla sem lögreglunni var sent með símbréfi 15.12.2008 og sem afhent var í frumriti ritara Lögreglustjórnas í Reykjavík í gær.
Í dag, 17.12.2008 eru til viðbótar eftirfarandi 31 ummæli og ofbeldishótanir kært:
Fskj. 3.1 : Málið snýst um hvort fólk vill leggja nafn sitt við meðmæli með þessu
vitfirringi.
Fskj. 4.1 : Já hann er eins og hvert annað hræ sem liggur í haganum, svona líkt og af
pestarrollu sem hefur drepist.
Fskj. 4.2 : ræfill
Fskj. 5.1 : vitleysingurinn
Fskj. 5.2 : ekkert annað en athlægi í augum íslendinga
Fskj. 6.1 : snarklikkaður
Fskj. 6.2 : innilega heimskur
Fskj. 6.3 : Sér nú hvert fíflið
Fskj. 6.4 : Athlægi þjóðar fyrir fávitaháttinn
Fskj. 7.1 : þú hefur marg sýnt og sannað að þér er ekki treystandi á nokkurn hátt
Fskj. 7.2 : ansi oft hefur þú sannað að þú ert gjörsamlega óhæfur til að sinna opinberum
embættum
Fskj. 7.3 : alger rugludallur
Fskj. 8.1 : Í innslagi settar fram órökstuddar dylgjur um óheiðarleika við happdrætti
Fskj. 9.1 : Í innslagi settar fram enn frekari dylgjur sem eiga ekki við rök að styðjast um
lögbrot eða óheiðarleika við happdrætti
Fskj. 10.1: Ástþór er þjófur. Punktur.
Fskj. 10.2: Hann tekur og stelur því sem er hendi næst.
Fskj. 11.1: hann er ekki heill á geði
Fskj. 12.1: fíbl eins og Ástþór ... sá maður mundi nauðga neitunarvaldinu
Fskj. 13.1: Innslag tilvísun í Lýðræðishreyfinguna. Kjörorðið er: Tómatsósa fyrir alla!
Fskj. 14.1: Maðurinn er siðlaus framapotari sem svífst einskis
Fskj. 14.2: Dylgjur um óheiðarleika/lögbrot við happdrætti: Hann sagði að bíllinn hafi
týnst en síðan fluttu fjölmiðlar ekki meira af því máli sem ég best man.
Fskj. 15.1: Lemur allt og alla
Fskj. 15.2: Fólk hvatt til ofbeldis gegn Ástþóri: Ég held að fólk sem á egg sem komin
eru fram yfir síðasta neyzludag ætti að huga að senda Ástþóri kveðju
Fskj. 16.1: Skrípi
Fskj. 17.1: Fólk hvatt til ofbeldis gegn Ástþóri: Ástþór Magnússon er athyglissjúkur
loddari sem gæti gjöreyðilagt ímynd mæðrastyrksnefndar með því einu að troða sér í
forsvar fyrir hana. Það skipti engu máli hverskyns félags eða skipulagsstarfsemi ég væri
með, ef Ástþór ræki inn trýið fengi hann stól í andlitið.
Fskj. 18.1: Þjófurinn sjálfur
Fskj. 18.2: Róni og ræfill ertu í mínum huga. Þjófur líka
Fskj. 18.3: Þú stelur hverju sem þér dettur í hug
Fskj. 18.4: auðvitað ert þú pirraður, búinn að svíkja og stela...sem sagt þjófur
Fskj. 19.1: Hvatt til ofbeldis gegn Ástþóri: Þetta gerir bara ekkert til ef það er Ástþór
Magnússon sem á í hlut. Ef hann væri afklæddur og hellt yfir hann tjöru og fiðri og hann
síðan teymdur á hálsbandi um götur bæjarins, myndi það bara gleðja margann manninn
og þar á meðal Mikka-Ref
Fskj. 20.1: áras á persónu og heiðri Ástþórs? Hvaða heiður hefur þessi maður að verja?
Fskj. 20.2: Það er út í hött að hvaða kleppari sem er geti neytt þjóðina út í kosningar
Fskj. 21.1: Það vita allir að Ástþór er rugludallur
Eins og áður er rakið starfar vefurinn malefnin.com starfar undir algerri nafnleynd og skýringar stjórnenda (Fskj. 23) eru eftirfarandi:
Mikið hefur verið rætt og ritað um nafnleysi stjórnenda hér á þessu spjallsvæði og sitt sýnst hverjum. Hér eru langflestir undir dulnefni, ekki endilega af því að þeir hafi eitthvað að fela heldur er fólk berskjaldaðri gagnvart klikkuðu fólki á internetinu sem gæti tekið upp á því að færa samskiptin yfir í raunheima. Slíkt er ekkert grín enda mörg dæmi um afar "óvinsamlegt" fólk hér, fólk sem vílar ekki fyrir sér ofbeldi eða ofsóknir án þess að ég nefni nein nöfn. Hinn venjulegi notandi hér sér ekki
helminginn af því sem hér er gert.
Í kæru þessari eru gefin fleiri dæmi um hvatningar til ofbeldis gegn undirrituðum birt á vefnum malefnin.com. Þessar ofbeldis hvatningar eru birtar þar opinberlega en undir dulnefni. Ef marka má orð stjórnenda vefsins er raunveruleg hætta á því að fólkið sem þarna skrifar undir dulnefni beiti fyrir sér ofbeldi.
Það kemur fram í innslagi á malefnin.com (Fskj. 22) að sumir notendur eru með allt að 100 notendanöfn. Því er ekki útilokað að hið margra ára einelti og ofbeldishvatningarnar gegn undirrituðum sé birt þarna af sama aðilanum.
Kæra þessi á að ná til allra þeirra, sem með ólögmætum hætti halda úti þessari vefsíðu og skrifa á henni undir dulnefni ærumeiðandi ummæli svo og þeir sem hýsa þessa síðu og eiga þannig hlutdeild í þessum ólögmæta og refsiverða verknaði.
Fylgiskjöl með fyrri kæru dagsett 15.12.08 innhalda upplýsingar um skráningu vefsins.
Sýslumaðurinn á Ísafirði: Beiðni um rannsókn
Undirritaður hefur kært til Lögreglustjórans í Reykjavík yfir 60 ærumeiðingar, upplognar sakir og ofbeldishótanir gegn undirrituðum sem birst hafa á vefnum malefnin.com.
Á umræddum vef eru 36,200 innslög um persónu undirritaðs, fleiri þúsund þeirra innihalda ærumeiðingar er varða við almenn hegningarlög. Um skipulagt einelti virðist að ræða sem birt er þarna opinberlega undir nafnleynd. Fram kemur á malefnin.com að sumir notendur þar eru með allt að 100 ritnöfn og er því hugsanlegt að örfáir einstaklingar standi að þeim þúsundum níðskrifa sem þarna hafa birst um undirritaðann.
Á bloggsíðunni http://lydveldi.is birtist í gær yfirlýsing skrifað undir nafninu Ásthildur Cesil Þórðardótir en hún er sögð vera garðyrkjustjóri á Ísafirði. Þarna segir m.a.: Nú er það svo, að ég ber ábyrgð á Málefnunum.com, með mér eru svo 7 aðrir stjórnendur
Hinsvegar er nafn Ásthildar Cecil Þórðardóttur hvergi að finna á vefnum malefnin.com eða í opinberum skrám um aðstandendur vefsins. Sjá nánar um þetta á meðfylgjandi kærum sem undirritaður hefur sent til Lögreglustjórans í Reykjavík.
Þess er farið á leit við Sýslumanninn á Ísafirði að hann hafi uppá og yfirheyri Ásthildi Cesil Þórðardóttur sé það rétt að hún sé búsett á Ísafirði, og fái frá henni staðfestingu á því að það sé hún sem beri ábyrgð á öllu efni vefsins malefnin.com. Þetta eru nauðsynlegar upplýsingar vegna undirbúnings málsóknar og skaðabótakröfu.
Nýleg samskipti Ástþórs Magnússon og Reynis Traustasonar:
Hljóðupptaka - Skítlegt eðli sorpritstjórans afhjúpað. Hér er greinin um upptökuna
![]() |
Sinnum okkar skyldum við lesendur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
17.12.2008 | 10:00
Sannleikann á borðið!
Þetta er nú meiri kattarþvotturinn. Þjóðin býður þess að Reynir Traustason geri hreint fyrir sínum dyrum og skýri frá því hver það var sem þrýsti á hann. Á meðan Reynir neitar að skýra frá sannleikanum í þessu máli er hann að hafa þjóðina að fíflum.
Manninum virðist ómögulegt að skilja hver skylda ábyrgra blaðamanna er. Trúverðugleikinn snýst ekkert um þennan greinarstúf um litla eða "stórasta" manninn í Landsbankanum. Þetta snýst um það að Reynir Traustason hefur lagst flatur í ræsi sorpritsins með lygum og undirferli.
Þetta samtal mitt er enn frekari vitninsburður um skítlegt eðlið (úr orðasafni forseta Íslands) sem DV og sorpritstjórinn hafa að leiðarljósi í umfjöllun sinni um menn og málefni. Þar segir hann það "heiður" að bera út um mig rógburð og lygar.
Aðstandendur DV hafa svo rækilega rekið líkkistunaglana í trúverðugleika blaðsins að þeir ættu að sjá sóma sinn í að hætta útgáfu þessarar afturgöngu læriföðursins Jónasar Kristjánssonar sem hrökklaðist þaðan eftir að einstaklingur framdi sjálfsmorð í kjölfar fréttar í blaðinu. Atburðurinn gekk gersamlega fram af þjóðinni.
Þeir sem hafa orðið fyrir ómaklegu aðkasti DV og aðstandendur þeirra ættu að mæta á ritstjórnarskrifstofu DV og reka sína líkkistunagla í framhurðina. Sýna þannig með táknrænum hætti að nóg sé komið. Ég þyrfti meira en 40 nagla fyrir allan þann óhróður og upplognu sakir sem þeir hafa birt um mína persónu á undanförnum árum. Ég gæti dvalið lengur en Kristur í eyðimörkinni við dyr DV ef ég ræki þar inn einn nagla á dag.
Hljóðupptaka - Skítlegt eðli sorpritstjórans afhjúpað
Hér er greinin um málið
![]() |
Aldrei aftur mun óttinn stýra fréttaflutningi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.12.2008 | 16:15
Afhjúpun hér: Bessastaðadraugurinn fundinn!
Ég átti samtal í dag við forstjóra Netheima sem hýsa vefinn malefnin.com. Hann tjáði mér að stjórnandi vefsins sé Ásthildur Cesil Þórðardóttir garðyrkjustjóri á Ísafirði.
Að vefnum sé stjórnað frá fæðingarbæ Ólafs Ragnars Grímssonar varpar hugsanlega ljósi á hvað hefur verið í gangi þarna. Bessastaðadraugurinn fundinn!
Á malefnin.com er að finna 36,200 tilvitnanir í mína persónu. Þúsundir þeirra hafa verið birtar til að koma á fót tilhæfulausum söguburði í þeim tilgangi að grafa undan forsetaframboði mínu.
Mörg hundruð sinnum er fullyrt á malefnin.com að ég sé haldinn geðveiki, maníu, brjálæði og ég sé sýkópatískur, fjárglæframaður, svindlari og slíkur ofbeldisseggur að eftir mig liggji konur marðar og bláar með glóðuraugu. Ég fæ öll uppnefni undir sólinni þarna m.a. að ég sé þorpsfífl.
Þetta er nokkuð athyglisvert í ljósi þess að árið 2000 þegar rætt var um hugsanlegt forsetaframboð mitt, upphófst mikill grátsöngur frá Ísafirði og sagt að ég myndi hafa af nemendum grunnskólans skólaferðalag því slíkur yrði kostnaður sveitarfélagsins við lögbundnar kosningar.
Sami leikurinn endurtók sig aftur árið 2004 og enn aftur í ársbyrjun 2008 þegar Stöð2 og aðrir fjölmiðlar í eigu stuðningsmanna Ólafs Ragnars Grímssonar hófu skipulagða herferð til að kynna endurkjör forsetans og rakka mig niður í leiðinni. Samhliða umfjöllun um stórýktan kostnað við kosningar fullyrtu þeir að það væri "nauðgun á lýðræðinu" ef ég byði mig fram gegn forsetanum.
Það er jákvæð þróun að moldvörpurnar, sem hafa undanfarinn áratug traðkað hér á lýðræðislegri umræðu og eðlilegu tjáningarfrelsi, séu nú dregnar úr ræsum sínum. Að afhjúpuð sé spillingin sem umleikið hefur kjör Ólafs Ragnars Grímssonar í embætti forseta Íslands. Ólafur situr nú fjórða kjörtímabilið á Bessastöðum eftir að hafa flotið þangað málefnalaus og undirgefinn auðvaldinu í undirróðsbátum moldvörpuvefs nafnleysingjanna og fjölmiðla Baugsveldisins.
Lýðræðið hefur beðið hnekki hvernig þessir aðilar hafa úr launsátri skotið niður málefnalega umræðu og góðar tillögur annarra um þetta mikilvæga embætti þjóðarinnar.
Gróa á Leiti á ekki rétt á sér í lýðræðislegri þjóðmálaumræðu. Þessvegna þarf að loka því holræsi sem rógberarnir fela sig í, vefnum malefnin.com. Það er eðlileg krafa að þeir sem vilja tjá sig í þjóðmálaumræðunni geri slíkt undir fullu nafni og með ábyrgum hætti.
![]() |
Stjórna í gegnum fjölmiðla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.12.2008 | 01:03
Hér er önnur hljóðupptaka af samtali við sorpritstjórann
Hljóðupptaka - Skítlegt eðli sorpritstjórans afhjúpað
Hér er greinin um málið
![]() |
Stóðum andspænis þessum hroðalegu örlögum" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
15.12.2008 | 23:07
Sendum sorpritstjórann á Litla Hraun
DV hefur verið rekið með svo skítlegu eðli að þeir eiga ekkert betra skilið en vist á Litla Hrauni amk í þau 2 ár sem hegningarlögin mæla fyrir um. Best væri ef dómstólar margfalda t.d. atriðin sem ég hef kært út af í dag og taka þennan skaðræðissegg úr umferð í 20-40 ár. Algengt er t.d. í USA að gefa margfalda dóma fyrir morð, DV er með óteljandi mannorðsmorð á samviskunni.
Til viðbótar kærunni í dag liggur á skrifborðinu hjá mér stefna á DV sem aldrei fór í héraðsdóm að mér sýnist vegna þess að lögmaðurinn þorði ekki á móti eigendunum.
Reynir getur úr sínu klefa á Hrauninu ritstýrt einhverja tugthúsriti með takmarkaða dreifingu innan fangelsins. Sorpritstjórinn og DV hyskið stendur í vegi fyrir eðlilegri og lýðræðislegri umræðu í landinu með afskræmingum sínum á mönnum og málefnum. Frambjóðendur sem eru ekki í vasa Baugs fá ekki að koma málefnum sínum á framfæri og eru rakkaðir niður á meðan Baugsmenn eins og ÓRG er lofsunginn og fær ómældan aðgang að fjölmiðlum þeirra. Þeir gerðu t.d. Íslensku forsetakosningarnar að ólýðræðislegum skrípaleik með þessu hátterni.
Lesið um kæruna hér
Hlustið hér á símtal mitt við Reynir Traustason sem afhjúpar skítlegt eðli ritstjórans. Orðtakið "skítlegt eðli" er úr orðabók forseta Íslands Ólafs Ragnars Grímssonar.
![]() |
Íhugar málsókn gegn Kastljósi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
15.12.2008 | 21:52
DV sorpið - Hér annað samtal og lögreglukæra
Ég hef sent kæru til Lögreglunnar í Reykjavík vegna vefsins malefnin.com sem virðist rekinn af DV í þeim tilgangi að dreifa óhróðri um fólk undir dulnefnum. Þegar ég byrjaði að svara fyrir mig þarna fyrir nokkrum dögum var aðgangi mínum til þess lokað fyrirvaralaust.
Ég hef þessvegna krafist þess að lögreglan loki þessum vef DV, rannsókn fari fram á því hverjir standa að skrifunum og þeir dregnir til ábyrgðar í samræmi við almenn hegningarlög.
Kæra til Lögreglunnar VEGNA MEIÐYRÐA Á malefnin.com OG KRAFA UM AÐ VEFNUM VERÐI LOKAÐ.
Undirritaður kærir hér með til Lögreglunnar í Reykjavík ólögmætan vef, malefnin.com þar sem er að finna hundruð innslaga með ærumeiðandi, móðgandi og upplognum ummælum um undirritaðann. Skrif þessi varða við almenn hegningarlög nr. 19/1940. Sjá XXV. Kafla Ærumeiðingar og brot gegn friðhelgi einkalífs, greinar: 234, 235, 236, 237.
Eftirfarandi ummæli eru kærð:
Fskj. 1.1: Féfletti fólk
Fskj. 1.2.: Brjálæðir menn megna mikið
Fskj. 2.1.: Maðurinn er greinilega mjög þjáður af geðhvarfasýki
Fskj. 2.2.: Geðveikisglampann í augunum á honum
Fskj. 2.3.: Það er svona týpískt fyrir maníusjúklinga
Fskj. 3.1.: Ástþór er ekki heill, ég held það sé löngu orðið ljóst
Fskj. 4.1.: Er ekki heill á geðsmunum
Fskj. 5.1.: Ástþór er fjárglæframaður og svindlari
Fskj. 6.1.: Blessaður maðurinn á náttúrlega heima á einhverri stofnun
Fskj. 6.2.: T.d. Geðdeild HáskólaBorgarLandspítalansjúkrahús
Fskj. 7.1.: Var oft á tíðum blá og marin, með góðaraugu og hvaðeina eftir hann
Fskj. 7.2.: Geðveill aumingi eða hættulegur skissi?
Fskj. 7.3.: Sem barði hana og henti niður stiga
Fskj. 7.4.: Hann hefur haft fé út úr mörgum fyrirtækum hér á landi
Fskj. 7.5.: Menn geta hent gaman af þessum geðbilaða manni, en hann er þó hættulegur
Fskj. 8.1.: Ástþór sé kexruglaður á köflum
Fskj. 9.1.: Ástþór hélt að leiðin að forsetastóli væru peningar
Fskj. 9.2.: Allt fas Ástþórs er fas ófriðarmanns
Fskj. 10.1: Ástþór er svo ýktur og yfirgengilega lýginn
Fskj. 10.2: Linnulausar blekkingar hans og lýgi
Fskj. 10.3: Framgangur Ástþórs hefur frá upphafi verið ófriðleg lýgi
Fskj. 11.1: Haldið ólöglegt happdrætti og fleira
Fskj. 12.1: Notar þetta framboð hér til þess að láta safna fyrir sig fé erlendis
Fskj. 13.1: Láta sauðdrukkið fólk skrifa á listana hjá sér
Fskj. 14.1: Hverskonar skítaræsisrotta Ástþór Magnússon er
Fskj. 14.2: Lygarnar og geðveikisruglið úr þessum saurmola
Fskj. 15.1: Ástþór flúði land á sínum tíma
Fskj. 15.2: Óforskammaður hagsmunapotari
Fskj. 15.3: Hann er þá ekki heiðarlegur maður
Fskj. 16.1: Plata Johan Galtung sem honum tókst fyrir nokkrum árum
Fskj. 16.2: Sýkkópatar geta verið mjög trúverðugir í framkomu
Fskj. 17.1: Þorpsfíflið okkar
Fskj. 17.2: Þorpsfíflið á nefnilega uppá pallborðið hjá ótrúlega mörgum
Fskj. 18.1: Ástþór er vitlaus
Slíkur fjöldi annarra níðskrifa er birt á malefnin.com um undirritaðann það myndi fylla fleiri hundruð blaðsíður að taka allt með í þessa kæru sem þegar er orðin yfir 20 síður.
Vefurinn, Malefnin.com, virðist rekið af einstaklingum hér á landi. Samkvæmt skráningu vefsins (sjá Fskj. 19) er forráðamaðurinn Kristinsson Stefan og heimilisfangið sem gefið upp er pósthólf í bandaríkjunum, P.O.Box 447, Herndon, VA 20172-0447. Orðrómur er hinsvegar uppi um að útgáfufélag DV hafi nýlegi yfir tekið vefinn sem hefur að ndanförnu verið merktur á öllum síðum með vörumerki DV (sjá Fskj. 20).
Hin ærumeiðandi ummæli eru sett fram undir nafnleynd. Einnig er nafnleynd á þeim sem stjórna vefnum malefnin.com (Sjá Fskj. 20) og það skýrt með eftirfarandi: við viljum vernda fjölskyldur okkar og okkur sjálf fyrir Málefnalífinu alveg eins og þið hin.
Vefurinn malefnin.com starfar undir algerri nafnleynd eins og áður er rakið. Engir ábyrgðamenn eru gefnir og ekkert Íslenskt heimilisfang. Þannig er útilokaður sá möguleiki að höfða mál fyrir dómstólum á aðstandendur vefsins fyrir ærumeiðingar nema þá að undangenginni lögreglurannsókn um hverjir eigi hér hlut að máli. Upplýsingarnar sem liggja fyrir er að vefurinn malefnin.com er birtur á Íslenskri tungu og hýstur hérlendis hjá netþjónustunni XNET.IS (Sjá whois Fskj. 19) sem er hjá Netheimur ehf, Sóltúni 26, 105 Reykjavík. Lögreglu er því í lófa lagið að fara þangað og loka vefnum.
Kæra þessi á að ná til allra þeirra, sem með ólögmætum hætti halda úti þessari vefsíðu og skrifa á henni undir dulnefni ærumeiðandi ummæli svo og þeir sem hýsa þessa síðu og eiga þannig hlutdeild í þessum ólögmæta og refsiverða verknaði.
Hér er kæran með fylgiskjölum
Hér er samtal sem afhjúpar sorpritstjórann Reynir Traustason
![]() |
Upptaka af útskýringum ritstjóra DV |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
15.12.2008 | 18:23
Ritskoðaður rógberi Baugs. Hlusta hér
![]() |
Blaðamenn DV búa ekki við ritskoðun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
15.12.2008 | 18:17
DV rógberar afhjúpaðir. Hlustið hér
![]() |
Segja blaðamann í herferð gegn DV |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.12.2008 | 18:10
Sorpritstjórinn afhjúpaður - Hljóðupptaka hér
![]() |
Reynir: Fréttin bætti engu við |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.12.2008 | 17:26
Skítlegt eðli afhjúpað. Hljóðupptaka hér
Það hefur ekkert breyst á DV. Þetta er sorprit með "skítlegt eðli" svo ég noti nú orðabók "háttvirts" forseta lýðveldisins sem hefur ásamt stuðningsmönnum sínum, eigendum Baugs, notað DV málpípuna og aðra 365 miðla til að upphefja sjálfan sig og með rógburði að grafa undan mótframbjóðendum eins og ég hef ítrekað mátt þola. Skora á ykkur að hlusta á þetta samtal við sorpritstjórann Reynir Traustason.
Sjá fleiri greinar: Sorpfréttastofa DV afhjúpuð og Geðhvarfasjúkir nafnleysingjar undir hatti DV hér á bloggsíðu minni. Einnig er þetta góð grein um þetta mál.
![]() |
Frétt DV stöðvuð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)