Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

DV hvetur til ofbeldis gegn alþingismönnum

dvofbeldi_755331.gifSorpritið DV fer mikinn á vefsíðum sínum dv.is og malefnin.com og hvetur nú til ofbeldis gegn alþingismönnum.

Eins og fíklar sem sífellt sækja í sterkari efni, nægir sorpritstjórum DV ekki lengur mannorðsmorðin og það að spinna lygavefi sína á síðum blaðsins, nú eru þeir byrjaðir að hvetja þjóðina til ofbeldis að hætti Bin Laden. 

Sjáið myndina hér til hliðar sem sýnir hluta af vef DV, undir myndinni af DV blaðforsíðunni er undirstrikuð fyrirsögn: "Strákar kastið skóm í stjórnmálamenn"

Hve lengi á þetta skítseyði Íslenskrar fjölmiðlunar DV, að vaða hér uppi með ærumeiðingar, upplognar sakir og ofbeldishótanir?

Ég er búinn að senda 3 kærur til lögreglunnar s.l. viku vegna slíkra brota DV á öllu velsæmi svo ekki sé minnst á fleiri greinar almennra hegningarlaga sem þeir hafa ítrekað þverbrotið.

Kynnið ykkur kærurnar hér: Kæra 1, Kæra 2, Kæra 3

Og hér má heyra símtal sem lýsir innræti sorpristjóra sem segir það "heiður" að birta upplognar sakir og ærumeiðingar á fólk.

Önnur áhugaverð fyrirsögn er þarna á DV vefnum: "Hverjir brutu lög og fara í fangelsi?".  Það sem vantar í þessa umfjöllun eru nöfn sorpritstjóranna á DV sem væru betur geymdir undir eftirliti Margrétar Frímannsdóttur á Litla Hrauni sem gæti kannski haft eftirlit með ritstjórn þeirra á súrmjólkuppskriftum fyrir meðfanga sína.


Kjaftasögurnar breiðast út með leifturhraða

Það hringdi í mig blaðamaður frá visir.is og í kjölfarið birtist grein undir fyrirsögninni: "Ástþór játar hvorki né neitar ábyrgð á hótunum".

Takið eftir hvað þetta er skemmtilega orðuð fyrirsögn hjá blaðamanni Baugs veldisins sem einnig eiga fjölda annarra fjölmiðla þar á meðal Fréttablaðið, Stöð2, Bylgjuna, DV (nú nýlega leppað fyrir Jón Ásgeir af Hreini Loftssyni) og svo ræsisrottu Íslenskra fjölmiðla DV-malefnin.com sem er samtvinnað í tölvukóda síðunnar vefnum DV.is. Hér má lesa ofangreinda umfjöllun visir.is.


Viðhorf forseta stolnar fjaðrir?

Í Morgunblaðinu gerir Guðjón Friðriksson grein fyrir "lofræðu" sinni um forseta íslands í nýútkominni bók. Þar segir Guðjón: "ég var fyrst og fremst að leita eftir viðhorfum forsetans sjálfs til embættis hans og embættisgjörða. ...Ef ég hefði ætlað að skrifa öðruvísi bók hefði ég hvorki fengið samvinnu og viðtöl við forsetann né heldur aðgang að skjölum hans". 

Samkvæmt grein Guðjóns eins og ég skil hann, þá er það forsetinn sjálfur Ólafur Ragnar Grímsson sem barði sér á brjóst og sagðist hafa "tekið að brjósti sér kjörorð mitt í forsetakosningum og „Virkjað Bessastaði“." 

Ég lýsi eftir afsökunarbeiðni frá þessum mönnum, sem hafa með innistæðulausum lofsöng og rugli í "Bók um forseta" nauðgað mínum kjörorðum og baráttumálum með grófum hætti. Sjá grein úr Fréttablaðinu 21.12.08.


Spilltasta greini landsins

Fréttin um að Ólafur Ólafsson hafi leynt eignarhaldi til að komast yfir hlut í Icelandic Group, er í ætt við annað úr þessu spilltasta greni landsins, Framsóknarflokknum. Ólafur Ólafsson sem sölsaði undir sig Skipadeild SÍS / Samskip hefur verið með krumlurnar á kafi í sultukrukku þessa flokkskrípis.

Þaðan dróg hann eins og kanínu úr hatti Finn Ingólfsson og Búnaðarbankann sem félagarnir komust yfir með sjónhverfingum þökk framsóknarmennskunni.

Auðvitað á armur laganna að sækja þessa menn strax, frysta eigur þeirra og láta þá sæta ábyrgð gagnvart þjóðinni. Vanti fangelsi undir skrílinn sem hefur vaðið hér uppi með svikum og prettum síðastliðinn áratug mætti umbreyta gömlum héraðsskóla í hvítflibbafangelsi.


mbl.is Leyndi eignarhaldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Varaforsetaefni fundið

Ég veit reyndar um fleiri forseta og ráðamenn sem þyrftu að víkja og sem eru í engum tengslum við veruleikann eins og bandaríkjamenn segja um Mugabe. Íslendingar eru manna duglegastir að kjósa yfir sig lýðskrumara í æðstu embætti í "lýðræðislegum" kosningum.

Þannig var þetta t.d. árið 2004 þegar fram fóru Íslenskar forsetakosningar að sovéskri fyrirmynd sem stýrt var af fjölmiðlum í eigu stuðningsmanna forsetans. Sjá meira um það hér. Væri ekki í ætt við annað að bjóða Mugabe varaforsetastöðu hér og geyma þannig tvo spillingarpésa í sama búrinu.


mbl.is Mugabe verði að víkja
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.

Jónína Ben og Framsóknarflokkurinn

Það er áhugaverð hugmynd hjá Jónínu Ben að ganga í Framsóknarflokkinn ogsækjast þar eftir að komast í forystusveit til að breyta þessu spilltastagreini landsins eins og ég hef löngum kallað þetta flokksskrípi.

Égreyndi þetta fyrir nokkrum árum sjálfur, en þegar forkólfar Framsóknarflokksins fréttu af því aðég væri kominn með rúmlega 2000 manns sem ætluðu að ganga með mér íflokkinn til að vinna Finn Ingólfsson í varaformannsskjöri, þá lokuðuþeir fyrirvaralaust fyrir nýskráningar og við komumst hvergi.

Aðrir,m.a. framsóknarkonur á Útvarpi Sögu, hafa talað opinberlega um reynslusína af atkvæðum sem "gleymdust" í skókössum í mikilvægum "kosningum"innan Framsóknarflokksins.

Einn kunningi minn segirFramsóknarmenn með "rottueðli" (eftir honum haft orðrétt), og að ekki séhægt að breyta slíku eðli, rottur sæki ávallt í ræsið og þannig hafiþað verið í þúsundir ára. Umræddur kunningi minn óttast aðflokkseigendafélagi Framsóknar takist að spilla góðum áformum Jónínu Ben ástuttum tíma og hún verði fljótlega orðin samhljómaframsóknarpillingunni.

Ég vona svo sannarlega að ofangreindurvinur minn hafi rangt fyrir sér, og að Jónína Ben geti rekið spillingaröflin ádyr hjá Framsóknarflokknum. En hvernig ætlar hún að koma þeim úrflokknum? Henda þeim út á götu af fundum Framsóknar eins og mér varvarpað á dyr hjá Opnum borgarafundi?

ATH: Ég birti þetta fyrst sem athugasemd við þessa grein á bloggi Jónínu Ben.


Bók um forseta prýdd stolnum fjöðrum?

Grein mín í Fréttablaðinu 21.12.08:

Í nýútkominni bók um forseta er sagt að forsetinn hafi tekið að brjósti sér kjörorð mitt í forsetakosningum  og  „Virkjað Bessastaði“.  

Ég geri hér alvarlega athugasemd enda hefur Ólafur Ragnar Grímsson gersamlegast brugðist friðarsinnum sem vildu sjá forseta Íslands sem boðbera friðar á alþjóða vettvangi og Ísland sem mistöð friðar og lýðræðisþróunar. Forsetinn dróg mig og aðra á asnaeyrunum í fjölda ára og hafði að engu áskoranir um að Virkja Bessastaði.

Forsetinn hefur svikið kosningaloforðin gefin í beinum sjónvarpsumræðum í aðdraganda forsetakjörs 1996 um að beita sér í friðarmálum. Þegar ég hef gengið á fund forsetans um þessi mál hefur hann farið undan í flæmingi og í besta falli svarað með kurteislegu froðusnakki. Bréfum mínum og áskorunum Friðar 2000 um að leggja friðarmálum lið hefur ekki verið svarað. Þá neitaði forsetinn að leggja okkur lið að koma hér á fót alþjóðlegum friðarháskóla þar sem m.a. yrði þróað beint lýðræði, þrátt fyrir víðtækan erlendan stuðning við hugmyndina m.a. úr búðum Sameinuðu þjóðanna.  Í skjalasafni forsetaembættisins ættu einnig að finnast aðvaranir okkar frá 2001 gegn því að Íslendingar styðji stríðsáætlanir Bush bandaríkjaforseta.  Forsetinn þagði þunnu hljóði meðan tugþúsundir voru drepnir og limlestir með stuðningi Íslensku þjóðarinnar. Þá minni ég á að fyrsta embættisverk Ólafs Ragnars Grímssonar var að sæma hershöfðingjann á Keflavíkurflugvelli fálkaorðunni.  Fráleitt er að halda því fram að forsetinn hafi tekið að brjósti sér mín kjörorð. Ég óska opinberrar afsökunar frá höfundi bókarinnar Guðjóni Friðrikssyni á slíkri nauðgun á mínum baráttumálum.

Rúmum 12 árum eftir forsetakjörið erum við enn á byrjunarreit. Herstöðin á Keflavíkurflugvelli sem gæti orðið miðstöð alþjóðlegrar friðargæslu er að mestu ónýtt. Óheillakrákan sem náði forsetaembættinu með blekkingum og situr nú fjórða kjörtímabilið á Bessastöðum hefur eytt dýrmætum tíma í stuðning við fjárglæframenn sem stunduðu áhlaup á rótgróin Íslensk fyrirtæki, þar á meðal óskabarn þjóðarinnar, til að strippa út öllu verðmætu í eina stærstu Ponsí svikamillu heims. Þrátt fyrir að aðferðir slíkra fjármálaskúrka séu ekki nýjar af nálinni, lagði hámenntaður stjórnmálafræðingurinn embætti forseta Íslands að veði. Þjóðin situr eftir með sárt ennið og sviðna jörð.

Úr því að ég er að tjá mig um þessa bók er rétt að vekja athygli á því að í hana vantar gersamlega kaflana um moldvörpustarfsemi forsetans og hans stuðningsmanna. Mín fyrstu kynni af þeim óheiðarleika var í aðdraganda forsetakosninganna 1996, þegar ÓRG í eigin persónu rakkaði mig niður við útlendinga. Þar sem þarna á meðal voru aðilar sem við báðir þekktum bárust mér fregnir af þessu. Þá kom til mín fólk sem var að heyra þann róburð frá starfsmönnum á framboðsskrifstofu ÓRG við Hverfisgötu, að ég hefði hagnast á vopnasmygli. Við seinni forsetakjör létu moldvörpur forsetans sitt ekki eftir liggja. Kosningabaráttan 2004 hófst með grátsöng frá Ísafirði um að grunnskólabörn yrðu af skólaferðalagi ef ég færi í framboð vegna þess gífurlega kostnaðar sem myndi leggjast á sveitarfélagið ef lýðurinn fengi að mæta í skólana þar að kjósa. Upphaf ársins 2008 sló þó öll fyrri met þegar fjölmiðlar í eigu stuðningsmanna forsetans voru nýttir dag eftir dag til að hylla forsetann og grafa undan hugsanlegum mótframboðum. Síðan kórónað með því að draga oddvita yfirkjörstjórnar Reykjavíkur Norður á skjáinn til að telja þjóðinni trú um það að það væri nauðgun á lýðræðinu ef mótframboð bærist gegn forsetanum.


mbl.is Ólafur Ragnar fer fram á launalækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hringur þrengist um ritsóðana

"Litli ritsóðinn tekinn" í grein Agnesar Bragadóttur í sunnudagsblaði Morgunblaðsins eru orð í tíma töluð.  DV-mennskan er krabbamein í Íslensku þjóðlífi sem þarf að uppræta.

Fjölmiðill sem byggir afkomu sína á því að rústa lífi fólks með óendalegum lygum, dylgjum, skítkasti og óhróðri á ekkert skylt við tjáningarfrelsi og engan rétt á sér.

Þessar moldvörpur fjölmiðlunnar reyndu að færa út kvíarnar m.a. með því að byggja yfir Gróu á Leiti með merkinu DV í haus rottuvefsins malefnin.com þar sem illa lyktandi ritslorinn vellur um skítug fjölmiðlaræsi sem er Íslensku þjóðfélagi til skammar. Eftir að ég kærði til lögreglunnar 66 ærumeiðingar og ofbeldishótanir á þessum vef hljóp DV í felur og tók merki sitt af malefnin.com.

DV blekkir ekki mig með því einu að fela DV merkið á malefnin.com. Þessi kódi og fjöldi annara tilvitnana til DV er ennþá inná malefnin.com síðunni sem sannar með ótvíræðum hætti að DV er aðstandendi rottuvefsins og að þeir taka rottuskrifin með í vefmælingum á DV vefnum: <!-- Virk vefmaeling byrjar. Vefur: http://www.dv.is -->, hér er annað sýnishorn af malefnin.com: src="http://dv-is.teljari.is/potency/potency.php?o=15859;i=1;p og hér annað þar sem búið er að setja # fyrir framan til að fela DV merkið: #dvHeader #section-list li.malefnin 

Annars er það nokkuð skondið hvernig er verið að taka DV með eigin meðölum bæði af Agnesi og öðrum. Vefurinn www.sorprit.com sem hefur skorað á DV auglýsendur að hætta að auglýsa í blaðinu er einnig nafnlaus vefur eins og DV-malefnin.com.  Vonandi taka auglýsendur þeirri áskorun vel að hætta að auglýsa í sorpinu. Ég innleiddi þessa markaðsreglu fyrir löngu síðan. Þegar sölumaður DV hringdi til mín að selja mér auglýsingu og skildi ekkert í þvi að hvaða gylliboð sem hann bauð mér var svarið ávallt nei, sagði ég honum á endanum: "Þú getur gleymt því að geta nokkurntíman selt okkar fyrirtæki auglýsingu í DV því sá starfsmaður sem myndi kaupa auglýsingu í DV, yrði samstundist sagt upp störfum". Við fengum ekki fleiri auglýsingatilboð frá DV og ég sakna þeirra ekki.


Burt með fituna, lokum sendiráðum Íslands

Við Íslendingar erum aðeins þrjú hundruð þúsund og höfum ekki efni á geðbiluðum ríkisrekstri eins og hann hefur verið aukin á undanförnu árum með sendiráðum, bitlingum og rugli hvers konar um að við séum alveg enstök og rík. Erum við rík í dag? (Hjálmar Jónsson í Morgunblaðinu)

Ég er sammála að við getum skorið mikið niður. Verulegan hluta minnar starfsævi hef ég búið erlendis. Á s.l. 35 árum hef ég lítið samneyti haft við Íslenskt sendiráð eða þá sem þar starfa. Þó má ekki gleyma þegar ég ásamt fleiri námsmönnum í London vorum að gera okkur glaðan dag og við það tækifæri sóttum góðar veigar í sendiherrabústaðinn í London. Dóttir sendiherrans var þá með í hópnum og bæði fús og viljug að opna hirslurnar að fínu veigunum kostaðar af Íslenskum skattborgurum sem runnu í ómældu magni ljúft niður hálsa fátækra námsmanna.

Á tímabili teygði atvinnurekstur minn sig um mörg lönd Evrópu. Íslensk sendiráð komu hvergi nærri okkar markaðssetningu sem náði frá Bretlandi til austustu og syðstu horna Evrópu. Einhverntíman reyndi ég að hafa samband við Íslenskt sendiráð í þessu sambandi, en þeir áttu hvorki fólk né kunnáttu til að aðstoða í því sambandi.

Ég hef í raun aldrei skilið hvað Íslensku sendiráðin gera og hvernig þessi hópur fólks sem þar er eyðir dögunum, svo lítið hef ég orðið var við störf þeirra á erlendri grund. Þegar dóttir mína vantaði vegabréf með örstuttum fyrirvara og ég leitaði þá til sendiráða Íslands í Danmörku og í Þýskalandi, var mér bent á að hafa samband beint heim til Reykjavíkur því sendiráðin gætu ekki slíkra galdra. Vegabréfið fékkst afgreitt samdæmurs hér heima, sent með áhafnarmeðlim á næsta flugi seinnipartinn og komið í hendur dóttur minnar erlendis næsta dag. 

Eins og þróunin er orðin á samskiptum milli landa í dag, sýnist mér engin þörf á sendiráðum á erlendri grund. Við getum átt samtöl, sent skjöl og myndir í rauntíma um allan heim. Með einfaldri lagasetningu eða regluverki frá Utanríkisráðuneytinu, væri hægt að koma á fót neyðarpóstleið fyrir nauðsynlegustu ferðagögn eins og vegabréf og greiðslukort. Slíkur póstur gæti farið á milli starfsstöðva flugfélaganna en þau eru með samstarfsaðila í þeim löndum sem flogið er til héðan.

Seljum eignir sendiráðanna og köllum starfsfólk þeirra heim. Hér er að finna næg verkefni fyrir hæft fólk í þeirri uppstokkun sem þarf að verða á ríkisstjórn, alþingi og helstu stofnunum.

En ég kalla eftir umræðu um þetta mál frá Jóni Baldvin Hannibalssyni og öðrum sem hafa starfað innan utanríkisþjónustunnar. Þeir þekkja innviðina betur en svona farfuglar eins og ég sem hafa bara horft á þetta utanfrá þótt hafi einu sinni á ævinni fengist að gægjast í vínskáp sendiherra.

 


Rógburður DV-malefnin heldur áfram. Kæra 3 til lögreglunnar

Þrátt fyrir að aðstandendur og höfundar vefsins DV-malefnin.com hafi vitneskju um að tvær kærur hafi verið sendar til lögreglunnar síðustu daga vegna 66 ærumeiðinga og ofbeldishótana gegn mér á vefnum þeirra, halda þeir áfram!

Nú bera þeir á mig þær upplognu sakir að ég hafi ekið undir áhrifum áfengis. Þetta á heldur ekki við nokkur rök að styðjast. Að skrifa slíkan þvætting hvortsem er á vefinn eða í sorpritinu DV er að sjálfsögðu brot á almennum hegningarlögum. Hér má lesa kæru Nr.3 til lögreglunnar í PDF skjali.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband