Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Gandhi sveltir svínið

Á bloggi Evu Hauksdóttur rignir yfir hana ádeilum vegna mótmælanna "Sveltum svínið" gegn Baugsveldinu á Þorláksmessu.

Ef hægt væri að mótmæla í kyrrþey, þá er ég viss um að Eva myndi gera það. En sannleikurinn er því miður sá að mótmæli virka ekki nema þau valdi óþægindum fyrir einhverja. Þannig var það líka með mótmæli Gandhi sem sumir hafa vísað til hér. Honum var meira að segja stungið í fangelsi í fleiri ár fyrir að leiða mótmælin gegn salt skattinum sem Bretar settu á Indland.

Ef við viljum uppræta spillinguna þá er það eins og að uppræta illgresi úr garðinum okkar. Það skilur eftir sár í stuttan tíma en síðan getur nýtt og betra vaxið úr breyttum jarðvegi. Það voru einnig ómæld sár eftir mótmæli Gandhi, umferð var trufluð, fjöldi mótmælenda slasaðist og meira en 100,000 handteknir. Mér finnst fólk alltof fljótt að gleyma hvað gekk á þarna og bara sjá þetta í einhverju "englaryki" eins og Gandhi hafi náð fram breytingum og réttlæti með hugleiðslu einni saman.

Ég hef engan séð mæla fyrir því að brjóta rúður i Bónus á Þorláksmessu. Varhugavert er að taka einsdæmi um rúðubrot sem gerðist einhverntíman hjá einhverjum í hita leiksins, og yfirfæra það yfir á allar mótælaaðgerðir þessa hóps. Mér finnst slíkur málflutningur frekar lýsa innistæðulausum útrásarvíkingum en almenningi í landinu. 

Mótmælin "Sveltum svínið" sýnist mér ágæt hugmynd. Eins og þetta er kynnt er um að ræða friðsöm og hógvær mótmæli.  Þeir sem eru að agnúast út í þetta ættu að velta því fyrir sér að fólk gæti í raun gengið mun lengra því sumum finnst þessir aðilar hafa stolið af þjóðinni og gert marga að öreigum með útsmognum blekkingarvef. Á þá fólk hugsanlega rétt á að "skuldajafna"? Ef þjóðin á slíkan rétt gegn Bónus, getur fólk þá sótt sínar jólavörur í Bónus og í stað þess að borga enn meira til þessara manna, einfaldlega skilið eftir kvittun fyrir skuldajöfnun?

En gleymið ekki Baugsmiðlinum DV. Sá slúðurberi á ekki heima í söluhillum Bónus. Sorpritið á heima í ruslinu. Ég mun klappa fyrir hverjum þeim sem aðstoðar við að hreinsa þennan óþverra úr hillum verslana.


mbl.is „Dapurleg jólagjöf“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Þorpsfíflið" Gunnar Smári Egilsson

Gunnar Smári Egilsson fer mikinn í viðtali við Morgunblaðið í dag, og veltir því upp hvernig persóna Íslenska þjóðin sé, tragísk persóna eða trúður? Gangster eða saklaust fórnarlamb?

Gunnar segist vera að gera "heimildarmynd" um ástandið ásamt slúðurberanum sjálfum Mikael Torfasyni. Þetta er nú meiri bræðingurinn. Og þeir segjast ætla að sýna þessa "heimild" í útlöndum?

Í leiðara Fréttablaðsins kallaði Gunnar Smári mig "þorpsfífl" í kjölfar þess að ég benti á þann nakta sannleika, með beinum yfirlýsingum svo og táknrænum mótmælum, að "efnahagsundrið" sem Gunnar Smári var sokkin í á bólakaf, svo og framganga fjölmiðla í því sambandi og misnotkun stjórnvalda á dómskerfinu væri í ætt við "Nýju fötin keisarans" og verið að hafa alla þjóðina að fíflum.

Hinn höfundur "heimildarmyndarinnar" er ritstjórinn sem "ritstýrði" þeirri ótrúlega frumlegu lygasögu inn á forsíðu DV sorpritsins, að ég hefði sent "Átta vopnaða hrotta á leigendur". Hamagangurinn var svo mikill að koma lygasögunni í loftið að þeir höfðu ekki einu sinni fyrir því að slá á stutt símtal til kanna sannleiksgildið áður en DV forsíðunni var dreift í allar verslanir Bónus í uppstækkaðri mynd, og auglýst í hinum 365 miðlunum, sjónvarpi, útvarpi og Fréttablaðinu!

Nú ætla þessar blaðurskjóðar að kynna sögu Íslands erlendis á hvíta tjaldinu. Minntist einhver á trúverðugleika?


Klúðrið er algert

Strax við bankahrunið hafði ég samband við stjórnarþingmann bað hann um að útvega okkur umboð frá ríkisstjórninni til að fara saman erlendis og sækja heim helstu fjármálafrömuði heims, m.a. þá George Soros og Warren Buffet. Ég vildi fá þessa aðila sem ráðgjafa ríkisstjórnarinnar og til að aðstoða við endurskipulagningu bankanna. ÉG VARAÐI ÞINGMANNINN MJÖG STERKLEGA VIÐ ÞVÍ AÐ RÍKISVÆÐA BANKANA ÁN ERLENDRAR ÞÁTTTÖKU. ÉG SAGÐI HONUM AÐ EF ÞAÐ YRÐI GERT MYNDI SLÍKT HAFA ALVARLEGAR OG ÓFYRIRSJÁANLEGAR AFLEIÐINGAR FYRIR ÞJÓÐINA.

Enginn áhugi reyndist hjá ríkisstjórninni að nota mín sambönd erlendis til hjálpar. Þeir sögðust geta gert þetta sjálfir hjálparlaust! Síðan ríkisvæddu bankana án erlendrar þátttöku þvert á hin góðu ráð og steyptu þannig þjóðinni í miklu dýpri bankakrísu. Nú situr þjóðin uppi með handónýta ríkisbanka, sem njóta engrar viðskiptavildar erlendis og sem eru tæknilega gjaldþrota eins og þeir fyrri.

Geir Haarde á að biðjast lausnar fyrir sig og sína ríkisstjórn án tafar. Hann á að biðja forseta Íslands að skipa utanþingsstjórn sérfræðinga til að leiða "björgunarleiðangurinn" fram yfir kosningar.


mbl.is Röng forgangsröðun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Athyglisvert

Athyglisvert sem kemur fram hjá Birni Bjarnasyni:
"Hluti af samkeppni er að koma keppinaut á óvart með auglýsingu. Eigi keppinauturinn hins vegar auglýsingamiðilinn veit hann, hvað er auglýst, áður en það birtist almenningi og getur svarað keppinauti sínum samtímis, til dæmis með því að lækka verð meira í auglýsingu í sama tölublaði dagblaðs, eða jafnvel fyrir útgáfu blaðsins. Sjónarmið af þessu tagi hafa verið kynnt þingmönnum og til að bregðast við því, að ekki sé unnt að nýta aðstöðu af þessu tagi er óhjákvæmilegt að huga að eignarhaldi - stærsti smásöluaðili landsins hafi til dæmis ekki undirtök í fjölmiðlum."

Fjölmiðlalög þarf að setja strax. Einnig að rannsaka öll gögn þeirra fyrirtækja sem eiga fjölmiðlana í dag. Uppá borðið með fundargerðir og annað. Setjið neyðarlög til að fá allt lagt á borðið. Skipið rannsóknarnefnd sem kallar á stjórnendur fjölmiðla til viðtals og krefjist upplýsinga frá ritstjóra DV um hver hafði í hótunum við hann. Hver það var sem hótaði að stöðva prentun blaðsins. Nauðsynlegt er að kafa rækilega ofaní þessi mál áður en fjölmiðlalög eru sett svo menn geti smíðað lagarammann af einhverju viti.


mbl.is Björn: Baugsmiðlar og auglýsingamarkaðurinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar stoppar þessi spilling?

Fréttin segir að starfsmenn KPMG hafi verið ákærðir vegna misferlis þann 27 maí, mánuðum áður en KPMG er skipað af stjórnvöldum til að endurskoða misferlið sem ljóst er að þeir voru á bólakafi í sjálfir. Þetta er eitt það fáranlegasta sem ég hef heyrt.

Á maður að trúa því að hvorki Fjármálaeftirlitið né ráðherrar, enginn af 63 þingmönnum né starfsmenn þeirra stofnana sem hjá þessu aðilum vinna hafi ekkert vitað um slíkt mál í uppsiglingu? Og enginn þeirra kannað um tengsl KPMG við helstu útrásarvíkinga sem þó einnig voru opinber í gögnum hjá ársreikningaskrá Ríkisskattstjóra.

Hverslags blindir kettlingar eru að störfum hér?


mbl.is Ágirntust þeir FS13 ehf.?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

DV = Shallow Throat?

DV sem þóttist vera "Deep Throat" Íslands hefur nú verið staðið að margendurteknum lygum. Ekki aðeins í prentútgáfu DV, einnig á DV-malefnin.com og nú síðast í sjálfumglöðum ritstjórapistlum.

Feðgarnir Reynir Traustason og Jón Trausti eiga nafnbótina "Shallow Throat" fyrir lygaþvæluna sem þeir hafa borið á torg, séstaklega fyrir þá ótrúlegu ósvífni gagnvart þjóðinni að skýra ekki satt og rétt frá hver það var sem hótaði að stöðva prentun blaðsins.  Með því að hylma yfir spillinguna í fjölmiðlunum eru þeir að hafa landsmenn að enn meiri fíflum.

Hér er áhugaverður linkur af eyjunni.is: Sniðganga fyrirtæki sem auglýsa í DV


mbl.is „Deep Throat" látinn
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.

Nafnlausir "harðjaxlar"!

Óradís, einn nafnleysinginn á malefnin.com skrifar: "Ástþór er bara greinilega viðkvæmari en gengur og gerist meðal okkar harðjaxlanna hér á vefnum... Þegar maður hins vegar reiðist getur maður samt auðvitað blindast og í þessu máli hefur okkar ágæti Ástþór t.d. greinilega orðið staurblindur af reiði og misst skapstillinguna... Ég mæli með því að við hlífum Ástþóri við þrasi"

Eru harðjaxlar farnir að fela sig bakvið grímur og nafnleysi? Er það nýja Ísland? Ég get fullvisað Óradís um að ég sit hér í rólegheitum og afslöppun í ágætu jólafríi og við fulla sjón, þótt ég ætli ekki að sitja áfram undir rógburði, upplognum sökum og ofbeldishótunum slúðurberanna á DV malefnin.com.

Áhugavert verkefni sagnfræðinga framtíðarinnar, að skoða hvernig Gróa á Leiti fór á taugum á innan við 3 dögum eftir að ég kærði til lögreglunnar. DV hljóp í felur og tók merkið sitt af vefnum fyrr í dag. Eftir standa lepparnir undir dulnefni. Ég lofa ykkur ágætu landsmenn að svæla þá einnig úr grenum sínum með ágætri aðstoð sýslumannsins á Ísafirði og lögreglunnar í Reykjavík.

Hver veit nema að ég og frúin geti farið í góða heimreisu næsta sumar á kostnað nafnleysingjanna. Voru ekki nýlega dæmdar 800þúsund krónur á eina ærumeiðingu á bloggsíðu? Þessar 66 ærumeiðingar sem ég kærði í vikunni ættu því að hala inn rúmar 50 milljónir frá malefnin.com. Ég bíð spenntur með skaðabótastefnuna eftir upplýsingunum um hvar moldvörpurnar er að finna.


DV hleypur í felur

Nú eftir hádegið hvarf DV merkið af nafnleysingja slúðurberanum DV malefnin.com. 

36,200 ummæli hafa birst um mig á þessum vef þar á meðal þúsundir ærumeiðinga, upplognar sakir og ofbeldishótanir. Í vikunni hef ég sent 2 kærur til lögreglunnar (sjá fyrri greinar hér) og bað Blaðamannafélag Íslands um álit á vinnubrögðum þessarar útgáfu sem staðið er að undir leynilegu dulnefni.

Meira segja stjórnendur vefsins starfa undir dulnefni til að "vernda sig og sínar fjölskyldur frá heimi málefnin.com" eins og þeir skýra frá sjálfir á vefnum. Þeim stendur hinsvegar nákvæmlega á sama hvort fórnarlömb þeirra eru nafngreind að fullu, þeim finnst ekkert að því að því að gefa út veiðileyfi á mig og mína fjölskyldu með óhróðri og ofbeldishvatningum.

DV í felur


Mótmælendur: Lokið DV og krefjist sannleikans!

dv400pÉg skora á mótmælendur að mæta við dyr ritstjórn DV og krefjast sannleikans. Hver þrýsti á ritstjórann vegna Landsbankamálsins? Efni greinarinnar skiptir engu máli. Hver hótaði að stöðva prentun blaðsins er það sem skiptir máli hér og það sem mun afhjúpa spillinguna í fjölmiðlunum.

Ritstjórar sorpritsins Reynir Traustason og sonur hans Jón Trausti fara mikinn í yfirlýsingum. Í dag í leiðara undir fyrirsögninni "Að drepa DV" sem er einn kátlegi hvíttþvotturinn frá þeim feðgum. Þeir þyrftu að mála svo margar umferðir yfir slorann sem vellur undan þessu að þeim tekst það aldrei.  DV er dautt sem fjölmiðill. Að ganga endanlega frá DV er þjóðþrifaverk.

Tökum ritstjórann á orðinu og rekum síðustu líkkistunaglana í sorpritshurðina. Krefjumst þess að hætt verði útgáfu þessarar afturgöngu læriföðursins Jónasar Kristjánssonar sem hrökklaðist þaðan eftir að einstaklingur framdi sjálfsmorð í kjölfar fréttar í blaðinu. Atburðurinn gekk gersamlega fram af þjóðinni.

Skorum á auglýsendur að hætta að auglýsa í DV. Skorum á neytendur að sniðganga vörur og þjónustu sem auglýst er í DV. Skorum á verslunareigendur að henda sorpritinu í öskutunnurnar þar sem það á réttilega heima.

Þeir sem hafa orðið fyrir ómaklegu aðkasti DV og aðstandendur þeirra ættu að mæta á ritstjórnarskrifstofu DV og reka sína líkkistunagla í framhurðina. Sýna þannig með táknrænum hætti að nóg sé komið. Ég þyrfti meira en 40 nagla fyrir allan þann óhróður og upplognu sakir sem þeir hafa birt um mína persónu á undanförnum árum. Ég gæti dvalið lengur en Kristur í eyðimörkinni við dyr DV ef ég ræki þar inn einn nagla á dag.


mbl.is Mótmæli halda áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÚtvarpSaga - Viðtal 18.12.08

Ég var gestur Arnþrúðar Karlsdóttur á Útvarpi Sögu. Við ræddum DV vefinn malefnin.com, kæru mína til lögreglunnar svo og handtöku mína og gæsluvarðhald um árið vegna mótmæla gegn stríðsstefnu ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar.  Hlusta hér

 

Nýleg samskipti Ástþórs Magnússon og ritstjóra DV Reynis Traustasonar:

Hljóðupptaka - Skítlegt eðli sorpritstjórans afhjúpað. Hér er greinin um upptökuna

Grein Ástþórs: Sannleikann á borðið

 

Kærur til lögreglunnar vegna DV vefsins malefnin.com:

Kæra 1 til lögreglu   -   Kæra 2 og beiðni um álit frá Blaðamannafélagi Íslands

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband