Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Stöndum vörð um réttindi barnsins

Ég er gersamlega hneykslaður á því ráðabruggi að stilla 8 ára stúlkubarni við hlið harðra kommúnista á ræðupall fram fyrir þúsund manns. Þetta er brot á réttindum barnsins. Sjá nánar: Kommúnískum áróðri troðið í 8 ára barn
mbl.is Mótmælt á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kommúnískum áróðri troðið í 8 ára barn

Leikur að kommúnisma"Raddir fólksins" eru gersamlega að ganga fram af mér, þótt ég af öllu hjarta styðji friðsamleg mótmæli gegn ríkisvaldi sem er að troða lýðræðinu í ræsið með þaulsetu ráðherra langt yfir þeirra vitjunartíma.

Í því ástandi sem er að skapast hér í kjölfar þess að bankar og hagkerfi er hrunið, er nauðsynlegt að ráðamenn axli ábyrgð, leiti til forseta að skipa utanþingsstjórn í "björgunarleiðangurinn" og boðað sé til nýrra kosninga. Þetta er fullkomlega eðlileg krafa og þeim sem þykir vænt um landið sitt eiga með friðsömum mótmælum að krefjast þess að þetta sé gert.

Barn hermaðurHisvegar set ég spurningarmerki við ábyrgðarleysi þeirra foreldra sem stilla óþroskuðu barni sínu á kommúnískan ræðupall framan við þúsundir manns.  Í raun finnst mér það verkefni fyrir Barnavernd að kanna fjölskylduaðstæður barnsins og hvort ástæða sé til inngripa í uppeldið.

Við hlið barnsins er kynntur einn harðasti kommúnisti Íslands, Einar Már Guðmundsson sem er m.a. einn aðstandenda Dagblaðsins Nei sem aðstandendur kynna á netinu sem "kommúnískt dagblað".  Einar hefur unnið sem moldvarpa kommúnista í mótmælum hér, bæði hvað varðar fundina á Austurvelli og Opinn Borgarafund. Kemur þar bæði að skipulagi og ítrekað sem ræðumaður.

BarnhermaðurÖðrum sem gætu haft önnur sjónarmið fram að færa er gjarnan úthýst. Þannig var mér t.d. varpað á dyr með ofbeldi af þremur fílefldum karlmönnum af einum skipulagsfundinum eftir að Einar Már og félagar héldu atkvæðagreiðslu að sovéskri fyrirmynd um að mér skyldi vísað út fyrir þær sakir að hafa deilt á vinnubrögðin.  Ádeilan sem ég hafði sett fram var að yfir 70% af ræðumönnum á Austurvelli tengdust flokknum Vinstri Grænir á meðan fólki úr öðrum flokkum var meinað að tala á mótmælafundum.

Ég hafði trú á Vinstri Grænu þar til ég varð vitni að vinnubrögðum þeirra og hvernig þeir fótum troða lýðræðið á fundum sínum. Nú hef ég áttað mig á því að þessir aðilar stefna á að koma upp kommúnísku ríki á Íslandi að fyrirmynd Sovétríkjanna og Kína.


mbl.is Mótmælaróður hertur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forsetahjón, Ólafur Ragnar og Dorrit, hversvegna svarið þið ekki?

Palestinian children killed by Israel"Við getum ekki leyft málum að þróast í þessa átt án þess að gera allt sem í okkar valdi stendur til að beina orkunni í Mið Austurlöndum til
friðar og velsældar í stað styrjaldar og upplausnar. Með höfðun til
uppruna yðar í Ísrael og núverandi þjóðfélagsstöðu á Íslandi, teljum við
hjá Friði 2000 að þér séuð í lykilstöðu til að koma á viðræðum við Ísrael
og bera fram hugmyndafræði Friðar 2000 til lausnar á vandamálunum.

Friður 2000 býður fram aðstoð við verkefnið, m.a. þróun og framsetningu
hugmyndafræðinnar. Við biðjum yður að nota þá sérstöku aðstöðu sem
þér hafið á Bessastöðum til að virkja embættið og Forseta Íslands til að
reyna að afstýra stærsta menningarslysi mannkynssögunnar."

Þetta var niðurlag bréfs míns til Bessastaða sent fyrir rúmum 6 mánuðum. Fjölda annarra hef ég sent í gegnum árin. Þar sem aldrei var svarað, skrifaði ég nú síðast til forsetafrú okkar Íslendinga eftir að hún lýsti því yfir að á opinberum vettvangi að hún vilji hjálpa Íslendingum og Íslenskum samtökum.

En það breytti engu. Steinköld hjörtun á Bessastöðum jafn lokuð og áður. Engum bréfa Friðar 2000 hefur nokkurntíman verið svarað.

Ég lýsi eftir aðgerðum frá Bessastöðum, hið minnsta svari við bréfi mínu:

Dorrit, ætlar þú að sitja aðgerðarlaus á meðan landsmenn þínir myrða þetta fólk?

Af hverju gerir okkar þjóðhöfðingi ekkert?

Sorglegt og við í trylltum darraðadansi á gröf þeirra

Steinköld forsetafrú

Forsetahjónin á næsta flug til Ísrael


mbl.is Landherinn bíður skipana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þau eiga bæði að víkja

The Bank JobÞau áttu auðvitað bæði að víkja strax. Þorgerður sýndi þjóðinni lítisvirðingu með því að sitja áfram sem ráðherra á meðan ríkisstjórnin makkaði með bankana. Svona uppákomur myndu ekki líðast í neinu venjulegu lýðræðisríki. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir á að segja af sér STRAX!

Tek sérstaklega fram að þetta er ekkert persónulegt gagnvart þeim hjónum, vil þeim alls hins besta. Þau gætu komið fram á sjónarsviðið síðar eftir að hafa axlað sína ábyrgð og eftir uppgjörið við þjóðina. 

Snýst um vinnubrögð hjá lýðræðisþjóð. Ráðherrann var of tengd fjármálamisferlinu til að sitja áfram.  Ríkisstjórnin á auðvitað öll að segja af sér, fá forsetann til að skipa utanþingsstjórn í "björgunarleiðangurinn" og boða til kosninga. 

Ráðherrar ríkisstjórnarinnar grafa sig sífellt dýpra í spillinguna með þaulsetunni.


mbl.is Kristján hættir hjá Kaupþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ritskoðun á MBL blogginu

RitskoðunRitskoðarara Moggans vinna langt fram á kvöld að ritskoða bloggið. Eins og húsbóndahollir hundar stýra þeir umræðunni í hagsmunagæslu fyrir helstu svín landsins og vonbiðla hluthafjár í Árvakri.

Í hvert sinn sem ég minnist orði á Hrein Loftsson í grein sem tengd er við einhverja frétt, er tengingin rofin. Tenging er einnig rofin ef ég minnist á sorpritið DV or nafnlausu ritrotturnar á DV-malefnin.com. Sama á við ef ég bendi á þessa vefsíðu: www.sorprit.com

Einn athugull bloggari, Sigurður Ingi, vakti athygli mína á Fréttarotturþví að ein greinin sem ég tengdi við væri horfin af Morgunblaðs vefnum en þar var fjallaði um að uppsögn fyrrum forstjóra Tal væri óréttmæt. Sigurður spyr: "Hver hefur vald til að láta fréttir hverfa sporlaust??". Ég áframsendi spurninguna til mbl bloggritstjórnarinnar, þeir svöruðu öðru en slepptu þessu atriði. 

Þeir fjarlægðu mig einnig úr umræðuhópnum forsíðu MBL bloggsins án þess einu sinni að láta mig vita. Feluleikurinn tókst þeim ekki betur en svo að rúmar 10,000 greinar voru lesnar á bloggsíðu minni síðustu viku og var bloggið mitt ellefta (áður fjórða) vinsælasta á vef Morgunblaðsins dagana sem Moggaklíkan reyndi að fela það frá lesendum. Kvartaði, vona að þeir reyni þetta ekki aftur.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ég hef lent í dapurlegri meðferð Morgunblaðsins. Á sama tíma og Morgunblaðið kastaði steinum úr glerhöll sinni á stjórnvöld í Rússlandi með hörumfjollunMBLkosningar2004ðum ádeilum á aðdraganda forsetakosninga þar í landi, sem þeir sögðu nauðgun á lýðræðinu, var mér meinaður allur aðgangur að blaðinu til að kynna mín stefnumál í Íslenskum forsetakosningum.

En Mogginn lét ekki þar við sitja, dagana fyrir kosningar brutu þeir meira segja stjórnarskrána með því að halda úti áróðri að fólk skilaði auðu í kosningunum frekar en að kjósa þá sem í framboði voru.  

Á meðfylgjandi mynd má sjá dæmi um skrumskælingu lýðræðis á Íslandi í Morgunblaðinu. Til hægri á myndinni er spjald með úrklippum með umfjöllun Morgunblaðsins um störf og framboð forseta Íslands. Á sama tíma birtist um 10x10cm stúfur um mitt framboð. Þeir birtu ekki einu sinni fréttatilkynningu framboðsins heldur agnarlitla tilvitnun um framboðið sem aðstandendum Morgunblaðsins var þóknanlegt.

Boðskapur forsetaframboðs míns komst að sjálfsögðu engan vegin til skila. Niðurstaðan í lýðveldinu Íslandi, þar sem "frjálsir og óháðir fjölmiðlar" deildu á fjölmiðlamisnotkun í Rússlandi, var síðan sú að forseti var kjörinn á Íslandi í kosningum að sovéskri fyrirmynd. 


Lýðskrumari Fréttablaðsins afhjúpaður. Slóttug ritrotta í svínastíu auðhrings.

Ég skrifaði grein hér fyrr í dag með niðurlaginu: "Þið berjið ekki niður réttlætið hvorki með lögreglukylfum né skrumi ráðamanna í ritskoðuðum fjölmiðlum."

Stuttu síðar var komin eftirfarandi athugasemd:  "Hættu þessu kjaftæði Ástþór. Þú átt aldrei eftir að vera kosinn forseti lýðskrumarinn þinn. Slepptu þessu bara." Höskuldur (IP-tala skráð) 2.1.2009 kl. 18:06.

Ég kannaði aðeins hver leynist á bakvið ritrottuna "Höskuldur" og viti menn hér er á ferðinni starfsmaður Fréttablaðsins:

2. jan. 2009 18:06 | Höfundur er ekki skráður á blog.is
imaktor@gmail.com | IP-tala: 194.144.119.66 

IP :194.144.119.66     Neighborhood
Host :66.frettabladid.is    OK
Country :Iceland  

 

Þessi Baugsauðhringur sem rekur menn fyrir það eitt að gæta hagsmuna viðskiptavina sinna þegar það er fjárplógastarfsemi þeirra ekki þóknanlegt, hefur einnig blygðunarlaust misnotað fjölmiðlana á undanförnum árum með þeim árangri að gera lýðræðislega umræðu hér að hreinum skrípaleik.

Fréttarottur Enginn fjölmiðlanna er laus við hagsmunapot eigenda. Seljum ekki þjóðarsálina hæstbjóðanda.

Leyfum gömlu ritrottunum að drukkna í sínum ræsum. Höfnum því að ríkisbankar haldi í þeim lífi. Annað og betra tekur við í upplýsingasamfélaginu fari þessir þreyttu fjölmiðlajálkar í þrot.

Úr grein minni: Áramót í landi tækifæranna

Hér önnur: Skrumskæling lýðræðis og þöggun

Hér önnur sem lýsir misnotkun fjölmiðla: Leppur forsetahjónanna?

Hér linkur á vef um ritrottur sem áhugavert er að skoða: www.sorprit.com


mbl.is Segir forstjórann hafa haft umboð stjórnar
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.

Ofbeldi að þróast með aðstoð lögreglu

LögregluofbeldiHæglega má skrifa ábyrgð af uppákomunni á Hótel Borg á gamlársdag á Lögreglustjórann í Reykjavík. Hann hvorki bregst við kærum vegna vefsvæða sem hýsa nafnlausar ritrottur er hvetja til ofbeldis gegn stjórnmálamönnum, né virðist þjálfa sitt fólk í yfirveguðum viðbrögðum við mótmælum.

Skúrkum innan lögreglu og svínslegum vildarvinum lögreglustjórans virðist leyfast hvað sem er eins og þegar ég var handtekinn hér um árið og hótað 16 ára fangelsi ef ég myndi ekki draga andóf mitt við brjáluðum hugmyndum stjórnarherrana um að senda Íslenskar flugvélar með vopn og hermenn til Írak.

Fjölmiðlasvín"Enn hafi ekki þurft að beita kylfum" - Skömm þér Árni Þór aðstoðaryfirlögregluþjónn. Með því að bera á torg svona hótanir máttu eiga von á friðsömustu mönnum eins og mér í raðir mótmælenda.  Þið berjið ekki niður réttlætið hvorki með lögreglukylfum né skrumi ráðamanna í ritskoðuðum fjölmiðlum.


mbl.is Mótmælendum ógnað á gamlársdag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fylliraftar reyna að hræða mótmælendur

Drukkið svínEkki er mark takandi á skrílslátum fyllirafta sem um miðja nótt finna sér ástæðu að brjóta rúður hjá þeim sem hvetja til friðsamlegra mótmæla gegn ofríki ráðamanna sem sitja sem fastast eftir þjóðargjaldþrot langt yfir sinn vitjunartíma. 

Ég vona að friðsamir mótmælendur láti ekki slíka rugludalla sem þarna brutu rúðu í miðbænum hafa áhrif á sig. Halltu áfram Eva ótrauð á þinni braut því á endanum sigrar réttlætið. 

Uppskrift að friðsömum mótmælum


mbl.is Ráðist gegn Nornabúðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flest sendiráðin óþörf

Ég hef búið stóran hluta starfsævi minnar erlendis. Tek undir að skera má niður í utanríkisþjónustunni með lokun sendiráða. Skrifaði nýlega grein um þetta hér: Burt með fituna, lokum sendiráðum Íslands.


mbl.is Styrmir: Vill skera niður í utanríkisþjónustunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Uppskrift að friðsömum mótmælum

Nýju fötin keisaransStærsti hluti þjóðarinnar sættir sig ekki við ástandið sem skapast hefur í kjölfar bankahrunsins og flestir verða fyrir búsifjum. Fólkið vill sjá valdhafa axla sína ábyrgð sem auðvitað gerist ekki nema með bæði alþingis- og forsetakosningum. Allt annað er og verður froðusnakk sem ekki mettar þjóðina.

Þaulseta stjórnarherrana eftir að hafa gert í buxurnar er sem olía á ófriðarbál sem á sér varla fordæmi á Íslandi. Stífbónaðar nýársræður slökkva ekki eldana. Þegar þúsundir atvinnuleysingja bætast í þann hóp sem geta ekki séð fjölskyldum sínum farborða, er hætt við að fjölskyldan leysist upp á mörgum bæjum, og hundruð ef ekki þúsundir vonleysingja ráfi götur Reykjavíkur með herta sultaról. Fólk í slíku ástandi getur hæglega orðið auðveld bráð klappstýrum ofbeldismótmæla.

Mótmælendur ögra lögregluÍslendingar er seinteknir til mótmæla. Íslendingar hafa jafnan úthrópað jafnvel friðsömustu mótmælendur hérlendis sem þorpsfífl og vitleysinga. Ég fékk þann skammt óþveginn eftir að nota óhefðbundnar aðferðir í Héraðsdómi Reykjavíkur þegar reynt var að koma mér í 16 ára fangelsi fyrir þær sakir að mótmæla stuðningi Íslands við innrás Bush í Írak.

Naktir mótmælendurEn mótmæli byggjast ávallt á óhefðbundnum aðferðum. Þau þurfa að valda einverri truflun til að skila árangri. Hið minnsta sjóntruflun og stinga í stúf við umhverfið. Mótmæli snúast um að ná athygli fjölmiðla nægjanlega oft og lengi til að umfjöllun skapist um málefnið. Fjölmiðlar, sérstaklega ritskoðaðir fjölmiðlar eins og við höfum átt að venjast á Íslandi, hleypa ekki í loftið þeim sem ekki eru eigendum þóknanlegir nema búin sé til frétt dagsins.

Ég notaði jólasveinabúning til myndrænna mótmæla í Héraðsdómi 19.12.2002 þegar koma átti mér í 16 ára fangelsi fyrir andóf gegn stríðsbröltinu í Írak. Ákæran var tekin fyrir í vikunni fyrir jól, ári eftir að utanríkisráðuneytið stöðvaði með lögregluvaldi á Keflavíkurflugvelli flugvél sem komin var í flugtaksstöðu og átti að færa frá Friði 2000 jólagjafir, lyf og matvæli til stríðshrjáðra barna í Írak. Sakirnar á mig voru fjarstæðukenndur tilbúningur, brot á tjáningarfrelsi og réttarfarsreglum. Tilgangur minn með að mæta í búningi jólasveinsins og setja málsgögn sem ég fékk afhent af dómaranum í jólasveinapoka, var að sýna lítisvirðingu þeim stjórnvöldum og dómara sem létu hafa sig í að misnota dómskerfið. Segja á myndrænan hátt að ég tæki hvorki mark á froðuruglinu þeirra fyrir réttinum né fjarstæðukenndri ákærunni. 

Málið gegn mér í Héraðsdómi var aftur tekið fyrir 15.04.2003. Þetta bar nákvæmlega uppá þann dag sem loftárásir hófust á Írak.  Fjögur þúsund manns, óbreyttir borgarar börn og gamalmenni hlutu blóðugan dauðdaga þennan dag í Írak með flugskeytum sem þau fengu send að himnum ofan með stuðningi Íslendinga. Mér ofbauð svo, að á síðustu stundu áður en ég mætti í réttinn, skipti ég í hvíta skyrtu og ataði hana tómatsósu. Þannig mætti ég fyrir dómarann og ákæruvaldið. Þannig sýndi ég þeim mína lítisvirðingu á stuðningi Íslendinga við morðóðan Bush bandaríkjaforseta. Ég yfirgaf síðan réttinn með því að skella á eftir mér hurðinni og sagðist ekki mæta aftur í þann skrípaleik sem þarna færi fram. Ég stóð við þau orð og mætti aldrei aftur í réttarhaldið.

FjölmiðlasvínEins og ég hef mátt reyna, í þeim óvenjulega skrípaleik ritskoðaðra fjölmiðla og snobbaðra fréttamanna sem hér hefur viðgengist, getur tekið tíma að fá boðskapinn í gegn. Hann kemst sjaldnast óbrenglaður til skila.

Hinsvegar finnst engin lausn í mótmælum byggðum á ofbeldi. Það er bál sem erfitt yrði að slökkva og Ísland má alls ekki þróast í þá átt. Við getum horft til Ísrael þar sem nútíma hryðjuverk hófust. Þótt ofbeldisfull mótmæli og hryðjuverk hafi þar komið einhverjum til valda á síðustu öld, fékk sú nýja þjóð um leið ofbeldið í vöggugjöf. Hvar sem ofbeldi hefur verið notað í andófi, hefur það leitt til meira ofbeldis. Sama myndi gerast hér. Ef knúinn yrði fram árangur með ofbeldi, mun það leiða af sér enn meira ofbeldi. Ofbeldisaldan gæti varað tugi eða hundruð ára og eitrað öll samskipti okkar og lífsmynstur. Við viljum ekki slíkt þjóðfélag.

Hversvegna mæta mótmælendur ekki með skyrið eða tómatsósubrúsana í mótmælin frekar en með hnífa og múrsteina? Mun áhrifameira fyrir myndavélarnar og slasar engan þótt hann fái gusuna yfir sig. Mesta lagi kostar gott bað og fatahreinsun.

Gandhi og saltiðBorgaraleg óhlýðni er önnur útfærsla mótmæla. Það að gera ekki eitthvað sem "kerfið" ætlast til getur verið áhrifaríkt. Einnig að gera eitthvað sem er "bannað" en með friðsömum hætti.

Frægasti mótmælandinn, Gandhi, í saltgöngunni frægu, truflaði bæði umferð og þjóðlíf og hóf að vinna salt í trássi við lög sem bönnuðu almenningi slíkt. Ekki ólíkt kvótamáli Íslendinga.

Hér á Íslandi mætti útfæra þetta með þvi að mótmælendur fengju lánaða báta, eða bara tækju ónotaða báta tímabundnu eignarnámi, og færu að fiska án kvóta. Leyfðu síðan lögreglu að handtaka sig við löndum sem hluta af friðsömum mótmælum


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband