Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
2.1.2009 | 00:54
Skrumskæling lýðræðis og þöggun
Myndin sem hér fylgir greininni sýnir í hnotskurn misnotkun fjölmiðla.
Í forsetakosningunum 2004 reyndi ég að vekja athygli á þeirri hugmynd að á Keflavíkurflugvelli risi miðstöð friðargæslu Sameinuðu Þjóðanna með stórnstöð, þjálfunarbúðum og alþjóðlegum friðarháskóla ásamt þróunarmiðstöð lýðræðis, en ég spáði því (sem þá var ekki almennt vitað) að herinn færi fljótlega.
Ég hafði aflað stuðnings við hugmyndirnar á erlendum vettvangi, m.a. komu hingað til lands til að kynna þetta þjóðinni Johan Galtung höfundur handbóka S.Þ. í friðarsamningum. Einnig Dietrich Fischer prófessor í friðarmálum.
Þrátt fyrir hér ætti að kjósa um forseta og málið tengdist því beint, meinuðu fjölmiðlar bæði mér og erlendu fræðimönnunum um tækifæri að kynna málefnið fyrir þjóðinni. Annar hinna virtu erlendu fræðimanna varð svo hneykslaður að hann samlíkti þöggun fjölmiðla hér við aðdraganda forsetakosninga undir einræðisherra í Júgóslavíu.
Myndin hér til hægri sýnir glöggt hvað var í gangi. Myndin er tekin stuttu fyrir forsetakosningarnar 2004. Til vinstri á myndinni eru úrklippur af umfjöllun um málefni og framboð Ólafs Ragnars Grímssonar í Morgunblaðinu. Til hægri held ég á greinarstúf um mitt framboð. Þeir birtu ekki einu sinni fréttatilkynningu mína, þeir klipptu hana ofaní það sem blaðamanni fannst henta sér.
RÚV klippti allt um hugmyndir okkar með forsetaembættið úr Kastljósviðtali við Dietrich. Fræðimönnunum var algerlega úthýst af Fréttablaðinu, DV, Stöð2 og Bylgjunni. 365 fjölmiðlarnir fjölluðu lítið um mitt framboð og hugmyndafræðina um að Virkja Bessastaði nema DV með síendurtekið ómálefnalegt skítkast og upplognar sakir á mína persónu, framboðsfélag mitt og fjáröflun.
Hið góða málefni um hvernig við gætum byggt hér upp nýjan atvinnuveg með friðarmálum komst að sjálfsögðu enganvegin til skila. Þjóðin fékk aldrei tækifæri til að mynda sér skoðun og úrslit kosninga urðu í samræmi við það - forsetakosningar að sovéskri fyrirmynd.
![]() |
Keflavíkurflugvöllur ohf. tekur til starfa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.1.2009 | 00:04
DV flúði en skildi eftir fingaför
Aðgerðir mínar gegn sorpritinu DV sýna loks árangur.
Nokkru fyrir jól tóku menn eftir því að DV merkið var horfið af malefnin.com þar sem DV heldur úti vef fyrir nafnlausar ritrottur sem hafa að undanförnu hvatt til ofbeldis m.a. gegn stjórnmálamönnum.
Á gamlársdag var svo búið að fjarlægja innlestur á fyrirsögnum úr rottuvefnum inná dv.is. En fingraför DV sjást enn hjá ritrottunum á malefnin.com eins og t.d.:
#dvHeader #section-list li.malefnin - Takið eftir # merkinu framan við línuna, það felur DV merkið á vefnum en situr þar tilbúið að birtast aftur þegar hryðjaverkastjórn DV þóknast.
Bendi lesendum einnig á fróðlega síðu um DV: sorprit.com
![]() |
Handtekinn vegna hnífaárásar í 10-11 |
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana. |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.1.2009 | 20:43
Þróun ofbeldis í skjóli aðgerðaleysis lögreglu Ísland gæti þróast í miðstöð hryðjuverka
Kæra send Ríkissaksóknara 1. janúar 2009:
Fyrir jólin sendi undirritaður fjórar kærur til Lögreglustjórans í Reykjavík og Sýslumannsins á Ísafirði vegna ærumeiðandi ummæla og ofbeldishvatninga sem birtust á vefnum dv.is og vefnum malefnin.com en báðum vefsíðum er haldið úti af DV.
Á þessum vef hafa birst beinar ofbeldishvatningar gegn undirrituðum og fólk m.a. hvatt til að henda stólum í undirritaðan mæti hann á fundi til þátttöku í þjóðfélagsumræðu. Þá er fólk hvatt til ofbeldis gegn stjórnmálamönnum almennt með því að henda í þá skóm, og má skilja að hér sé átt við alþingismenn og ráðherra valdstjórnarinnar.
Undirritaður vakti athygli lögreglu á því í fjórðu kærunni þann 23. desember s.l., hvaða afleiðingar slíkar ofbeldishótanir geta haft í þjóðfélagi sem á í vök að verjast með þúsundir fórnarlamba vegna nýlegs bankahruns. M.a. var þetta sagt í kærunni:
Að kasta skóm hefur verið stundað í Mið Austurlöndum þegar menn vilja sýna fyrirlitningu á einhverri persónu. Þaðan styttist fljótt leiðin í harðari ofbeldisverk. Ef lögregla leyfir með sinnuleysi slíkum háttum að grafa um sig á Íslandi mun þjóðfélag okkar fljótlega þróast í stjórnlausa og ofbeldisfulla upplausn. Ekkert okkar vill sjá hér blóðug stríð eins og við gjarnan horfum á í sjónvarpi frá Mið Austurlöndum. Slíkir bardagar manna á meðal eru þróun sem getur hæglega byrjað með fyrsta skókastinu.
Bent var á í kærunni að lögreglu bæri skylda að bregðast skjótt við og loka umræddum vefsvæðum. Það var hinsvegar ekki gert og ofbeldishvatningum leyft að grassera yfir hátíðarnar. Hópur ungs fólks tók þetta á orðinu og útfærði ofbeldið á gamlársdag m.a. með því að kasta múrstein í lögreglumann sem lá slasaður eftir.
Undirritaður hefur áhyggjur af því ef nafnlausar ritrottur fá óheftan aðgang að hvetja okkar friðsömu þjóð til ofbeldisverka. Hætt er við að mörg alþjóðleg hryðjuverkasamtök yrðu fljót að sjá tækifæri hér í slíkri þróun og Íslandi yrði fljótlega heimili hryðjuverka. Hér gætu risið netþjónabú hryðjuverkasamtaka að fyrirmynd DV-malefnin.com.
Undirritaður skrifar ábyrgð af uppákomunni á Hótel Borg á gamlársdag á aðgerðaleysi Lögreglustjórans í Reykjavík. Embættið á að senda ofbeldismönnum skýr skilaboð með því að loka hryðjuverkavefnum og biðja þjóðina afsökunar á aðgerðaleysi sínu.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem framganga Lögreglustjórans í Reykjavík er með endemum. Þannig var það einnig þegar stjórnarskrá var brotin á undirrituðum fyrir ári síðan er fyrrverandi formaður yfirkjörstjórnar Reykjavík Norður kom fram á skjá Stöðvar2 og sagði undirritaðann nauðga lýðræðinu ef hann gerðist þátttakandi í framboði gegn sitjandi forseta. Lögreglustjórinn í Reykjavík sat á kæru undirritaðs í marga mánuði og svaraði svo til að ekkert ólöglegt væri við þessa yfirlýsingu en neitaði að útskýra fyrir undirrituðum hvernig sú niðurstaða hefði fengist hjá embættinu.
![]() |
96 rúður brotnar í skólanum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.1.2009 | 16:36
Fálkaorðan veitt fálkum


![]() |
Ellefu sæmdir heiðursmerkjum fálkaorðunnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.1.2009 | 15:08
Hanastél og svívirt þjóð
Það vantar botninn í áramótaávarp forseta Íslands, eða skrumvarp Ólafs Ragnars Grímssonar til vanvirtar þjóðar sinnar eins og nær er að kalla þessa endemis ræðu hans á nýársdag árið 2009.
Eftir að hafa sjálfur traðkað á lýðræðinu við forsetakjör að sovéskri fyrirmynd með aðstoð stuðningsmanna sinna og misnotkun fjölmiðla, galar fagurkerinn nú eins og hanastél af hæsta fílabeinsturninum um að leiða sína svívirtu þjóð til lýðræðislegrar uppreisnar.
Forsetaómyndin fer rétt með að almenningur krefst reikningsskila eftir nýjum siðferðisgrunni sem byggir á gagnsæi og ábyrgð, trausti, heiðarleika og trúnaði. En því miður, slíkar dyggðir er ekki að finna í þeirri svínastíu sem hefur í dag hreiðrað um sig á Bessastöðum.
Þjóðin vill ekki leiðtoga sem liggja eins og blindir grísir á spena gyltunnar. Þjóðarátak til sóknar eins grísinn á Bessastöðum kallar það, getur aldrei með Ólaf Ragnar Grímsson og demantsdrotninguna í forsæti orðið annað en endurtekning á skríplegri uppfærslu Hart í bak.
Óheiðarleiki Ólafs Ragnars afhjúpaðist þjóðinni í hans fyrsta embættisverki forseta. Matthías Jóhannessen fjallaði um þetta í dagbók sinni 28. ágúst 1996: Vaknaði í morgun við það að ég var að yrkja lítið erindi fyrir munn ÓRGs sem margir nefna Óla grís í mín eyru og skiptir þá ekki máli hvort hann er orðinn forseti eða ekki. Íslendingar taka ekkert tillit til þess sín á milli, en liggja svo flatir fyrir sínum herra opinberlega. Ólafur veitti flotaforingja Bandaríkjanna fálkaorðuna um daginn og það þótti mörgum ótrúleg kaldhæðni guðanna. En vísan er svona:
Oss tókst að lokum að líta til stórra verka
sem létu bezt kempum eins og Agli sterka,
að hengja fálkaorðu á aðmírálinn
og útkljá þannig deilur um varnarmálin.
Dómgreindarleysið í forsetastól Íslendinga er með slíkum eindæmum að frá Bessastöðum var stórasta fjársvikamylla mannkynssögunnar boðuð af litlasta forseta heims eins og heilagt Guðspjall um nýjan og betri kapitalisma.
Hafa ber í huga að þeir sem verma nú þjóðarheimilið á Bessastöðum er háskólagenginn stjórnmálafræðingur, áður fjármálaráðherra landsins, ásamt demantsdrottningu sinni sem er einn stærsti fjárfestir og skartgripasali heims. Dóttir forsetans vermir síðan einn af þremur stjórnarstólum Baugsfyrirtækisins Hagar sem er stærsta smásölufyrirtæki Íslendinga.
Skrum forsetans verður enn annarlega, og stuðningurinn við stærstu Ponzi fjársvikamyllu sögunnar enn óhugnarlegri, í ljósi þess að forsetinn og hans fólk má heita sérfræðingar í viðskiptum.
Það hlýtur að vera heimsmet að forseti sem hefur lítisvirt þjóð sína með þessum hætti, sitji áfram í embætti eins og ekkert hafi í skorist. Fordæmi fyrir slíku finnast varla nema hjá Mugabe lýðræðisböðlinum í Zimbabwe.
Það vantar botninn í ræðu forsetans, sem hefði að sjálfsögðu átt að vera afsögn og einlæg afsökunarbeiðni. Forsetinn fór eins og köttur um heitan graut hvernig hann gekk of langt en bað engan afsökunar á því að hafa svívirt þjóð sína. Útilokað er að Íslendingar verði teknir alvarlega á alþjóðavettvangi með svo spillta atvinnupólitíkusa í æðstu embættum eins og raun ber vitni.
Sjá einnig:
Forsetinn Ponzi Íslendingur ársins
Leppur forsetahjónanna?
Dorrit, ætlar þú að sitja aðgerðarlaus á meðan landsmenn þínir myrða þetta fólk?
Bók um forseta prýdd stolnum fjöðrum?
![]() |
Þjóðarátak nýrrar sóknar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
31.12.2008 | 14:29
Hvar er Egill Helga með hársprey brúsann?
Þegar Silfur Egils nýddist á lýðræðislegum rétti lítils stjórnmálaflokks hér um árið og úthýsti formanni Húmanistaflokksins í aðdraganda alþingiskosninga, mætti ég ásamt fleirum í Fjölmiðlavaktinni og krafðist að litli stjórnmálamaðurinn fengi sæti í útsendingunni ásamt öðrum flokksforkólfum.
Þá var ég hrakinn í burt af makeup kerlingum Egils Helga sem úðuðu mér út með hársprey brúsa. Vonandi hefur Egill þroskast síðan þetta gerðist og vonum að Baugsmiðlarnir fá einnig vitrun á nýju ári.
Til að forðast misskilning er ég ekki meðlimur í Húmanistaflokknum, kom að málinu vegna þeirrar mismunar og nauðgunar á lýðræðinu sem átti sér stað.
![]() |
Hafa ruðst inn á Hótel Borg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
31.12.2008 | 12:08
Svínslegur auðhringur, stjórn Teymis í nærmynd
Þeir standa sína pligt í svínastíunni félagarnir í stjórn Teymis. Klárir með sínar Hreinsgerningar um áramót.
Hvernig datt forstjóra Tal sú vitleysa í hug að leita betri samninga fyrir viðskiptavini. Svínafóður auðhringsins er fullkomlega nógu gott í þetta pakk
Hermann Jónasson fær falleinkun hjá Grísaskólanum við Höfðabakka. Hinsvegar skálum við fyrir góðri ritstýringu á Baugsmiðlunum visir.is og DV að þegja um brottvikningu forstjórans enda svínslega léleg og ómerkileg frétt.
![]() |
Sagt upp og samningi rift |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.12.2008 | 05:49
Áramót í landi tækifæranna
Þegar byggja skal nýtt þarf það gamla að víkja. Mikil tækifæri bíða okkar Íslendinga á nýju ári.
Ef við sameinumst um að hreinsa í burt og reka út þá illu anda og spilltu öfl sem tóku sér bólfestu í stjórnsýslu þjóðarinnar, getur á Islandi risið öflugt fyrirmyndarþjóðfélag á næstu árum.
Við þurfum úrelta flokkakerfið burt. Allir flokkarnir með tölu byggja á rotnum merg. Hvortsem er hægri, vinstri eða miðjuflokkar.
Flokkakerfið í heild sinni eru fornaldardýr sem við eigum að skipta út fyrir hugmyndafræði sem hentar betur í nútíma samfélagi.Látum ekki glepjast af gullinu og grænu skógunum sem stjórnarandstöðuflokkar sýna okkur í hillingum.
Stjórnarandstaðan byggðir einnig á úrsérgegnum gildum. Þingmenn okkar eru í dag allir í sama forapyttnum, í sömu mýrinni sem sem við yrðum fljót að sökkva ofaní aftur ef við látum glepjast af falskri ásýnd atvinnupólitíkusa.
Við þurfum víðtæka uppstokkun í stjórnálunum. Nýtt fólk, nýja hugmyndafræði. Við þurfum að færa stjórnmálin nær fólkinu. Sameina þann feiknakraft sem er að myndast með upplýsingasamfélaginu og samskiptamáta okkar á netinu.
Við erum rétt að byrja að sjá hvað málefnalegar bloggsíður fá atorkað. Nálgumst þetta nýja afl upplýsingasamfélagsins af ábyrgð og sameinum beinu og milliliðalausu lýðræði. Árangurinn mun ekki láta á sér standa.
Eitt af undirstöðum fyrir lýðræðinu eru frjálsir og opnir fjölmiðlar. Gömlu fjölmiðarnir t.d. Morgunblaðið, Fréttablaðið, DV, Stöð2, Bylgjan, Útvarp Saga og RÚV eiga það allir sameiginlegt að hafa verið ritstýrt eða verið ritskoðaðir þegar peningavaldinu hentaði.
Íslensku fjölmiðarnir voru allir þátttakendur í að gera forsetakosningar árið 2004 að marklausum skrípaleik. Að sovéskri kosningu sem var okkar þjóð til skammar og sem erlendir fræðimenn samlíkja kosningum í alræmdum einræðisríkjum.
Enginn fjölmiðlanna er laus við hagsmunapot eigenda. Seljum ekki þjóðarsálina hæstbjóðanda.
Leyfum gömlu ritrottunum að drukkna í sínum ræsum. Höfnum því að ríkisbankar haldi í þeim lífi. Annað og betra tekur við í upplýsingasamfélaginu fari þessir þreyttu fjölmiðlajálkar í þrot.
Ég skora á fornaldardýrin í stjórnmálum að víkja af velli og gefa þjóðinni tækifæri til uppbyggingar í takt við tíma og rúm. Burt með ríkisstjórnina, forsetann og æðstu stjórnendur seðlabanka, bankanna, fjármálaeftirlits og annarra stofnana sem við þurfum að umbreyta og stokka upp.
Hleypum nýju fólki að kjötkötlunum svo við fáum annað og betra í eldhúsdagsumræðurnar en ryðgaða og svikna naglasúpu á nýju ári.
Lýsi eftir kröftugu fólki til samstarf við Lýðræðishreyfinguna. Byggjum upp þverpólitískan vettvang og færum þjóðinni beint og milliliðalaust lýðræðið. Nánari upplýsingar á www.lydveldi.is
Hugur minn leitar einnig til stríðshrjáðra um þessi áramót. Ég vil forseta Íslands annaðhvort á næsta flug til Ísrael ásamt sinni eiginkonu sem fædd og uppalin er í Ísrael, til að bera þar fram nýja hugmyndafræði Friðar 2000, eða hann víki fyrir nýjum forseta sem tilbúinn er að Virkja Bessastaði.
Hér á landi rísi miðstöð friðargæslu Sameinuðu þjóðanna og á Keflavíkurflugvelli stjórnstöð alþjóðlegrar friðargæslu, friðarháskóli og þjálfunarbúðir friðargæsluliða ásamt alþjóðlegri þróunarstofnun fyrir beint og milliliðalaust lýðræði. Ég er tilbúinn að vinna að þessu verkefni ásamt fjölda erlendra sérfræðinga þjóðinni og heimsbyggðinni allri til heilla. Sjá nánar á www.forsetakosningar.is
Gleðilegt ár!
![]() |
Ýmislegt breytist um áramót |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.12.2008 | 17:47
Mótmæli við rangt hús
Þið eruð að mótmæla við rangt hús elskurnar mínar. Þið eigið að ganga á fund forseta Íslands og fá hann til að "Virkja Bessastaði" í þessu máli. Árum áður kynnti ég þessar hugmyndir í Stjórnarráðshúsinu fyrir Vigdísi Finnbogadóttur en hún sagðist ekki treysta sér til að koma neitt að þessari "púðurtunni" í Mið-Austurlöndum. Nú er púðurtunnan að springa í andlit okkar því enginn lyfti litlafingri til aðstoðar.
Nú er kominn nýr forseti. En hann hefur eytt dýrmætum tíma frá okkur í fjármálamisferli. Tími kominn að forseti Íslands nýti embættið til betri hluta en sem strengjabrúða fjárglæframanna í þeirra víking á nágrannaþjóðir. Nú er kominn tími á friðarútrás Íslendinga, að við gefum heimsbyggðini eitthvað vitrænt til baka.
Sitjandi forseti er í þeirri einstöku aðstöðu að vera giftur konu sem fædd er og uppalin í Jerúsalem. Dorrit er sömu þjóðar og morðingjarnir í Ísrael. Þau hjónin eiga að sjá sóma sinn í að skipuleggja ferð þangað og tala fyrir friði. Bera þar fram nýja og betri hugmyndafræði. Fyrr á árinu bað ég forsetafrúna um slíka aðstoð en hún svaraði ekki bréfi mínu.
Skora á ykkur mótmælendur að mæta við Bessastaði með kröfuna um aðgerðir í Ísrael. Hlustið ekki á Svein Rúnar Hauksson formann Ísland-Palestínu félagsins sem hefur litið á samherja sinn úr Keflavíkurgöngunni Ólaf Ragnar sem heilagan búpening sem ekki megi ónáða með friðarmálin. Hunsið þetta rugl sem Sveinn hefur haldið fram við mig í gegnum árin.
Farið með friðarmálin á Bessastaði því þar má finna lykilinn að friði í heiminum ef Íslendingar eru samkvæmir sjálfum sér og vinna af heilindum í þessu máli.
5 systur drepnar í Gaza í dag:
![]() |
Hundruð á Lækjartorgi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.12.2008 | 16:19
Forsetinn Ponzi Íslendingur ársins
Eftir mikla djúpköfun með leitarvélinni WayBackMachine fann ég gamla útgáfu af vefnum forseti.is og frétt um að tímaritið Mannlíf hafi valið forsetann, Ólaf Ragnar Grímsson, Íslending ársins 2007. Ótrúlegt hvernig búið er að sópa undir dreglana útrásarupplýsingum á vef forsetans og efnið ekki aðgengilegt nema djúpköfurum veraldarvefsins.
Ólafur segir þarna hróðugur frá því er tímarit í eigu stuðningsmanna hans valdi hann Íslending ársins 2007. Í grein Mannlífs segir forsetinn að gagnrýni á störf sín byggða á misskilningi og það sé nákvæmlega ekkert athugavert við það að hann aðstoði banka og aðrar fjármálastofnanir í sókn þeirra á erlenda markaði og haft er eftir forsetanum orðrétt:
Útrásarstarfsemin á okkar tímum er sjávarútvegur hinnar nýju aldar. Bankarnir eru farnir að skila meira tekjum í þjóðarbúið en sjávarútvegurinn. Þess vegna er þetta liðsinni til styrktar almennri velmegun í landinu. Ég hef verið þeirrar skoðunar að forsetinn eigi ekki að sitja aðgerðalaus á Bessastöðum, heldur eigi hann að taka þátt í því að skapa þjóðinni betri kjör og traustari efnahag.
Þetta er nokkuð merkileg yfirlýsing í ljósi þess að bankarnir hér stunduðu keðjubréfaviðskipti með þekktri erlendri fjársvikatækni sem gengur undir nafninu "Ponzi scheme". Í öðrum löndum en á Íslandi eru slíkir útrásarvíkingar og þeirra stuðningsmenn yfirleitt sóttir af lögreglu og fá að gista fangageymslur, enda byggist slíkt fjármálasvindl á því að stela frá Pétri til að borga Páli. Láta svikamylluna ganga svo lengi sem hún heldur vegna tiltrúar auðtrúa almennings og mjólka allt sem hægt er úr keðjunni áður en hún springur, sem að sjálfsögðu gerist alltaf á endanum.
Nánast er útilokað að hámenntaður háskólaprófessor eins og Ólafur Ragnar hafi ekki vitað um tilvist Ponzi fjársvika. Þetta sem hér gerðist undir Útrásarforsetanum er alls ekkert einsdæmi og á aðferðin sem notuð var rætur að rekja til fjársvikakeðju Charles Ponzi í byrjun síðustu aldar.
Annars kemur mér svosem ekkert á óvart að glaumgosinn á Bessastöðum hafi veitt stuðning sinn við ólögmæt keðjubréfaviðskipti bankanna, því umstangið í kringum forsetaframboð Ólafs Ragnars Grímssonar hafa verið með slíkum eindæmum, brotið á öllu velsæmi með misnotkun fjölmiðla og grundvallarreglur lýðræðis hafðar að engu. Enda lýsti heimsþekktur prófessor í friðarmálum, Dietrich Fischer Íslensku forsetakosningum árið 2004 við það sem gerðist undir undir enræðisherranum Slobodan Milosovic í Júgúslavíu, en Fischer fór héðan frá landinu stórhneykslaður á framgöngu fjölmiðla.
Við þurfum ekki að fara lengra aftur en til janúar 2008 til að sjá moldvörpuvinnubrögð forseta Íslands og hans stuðningsmanna þegar þeir hömpuðu Ólafi Ragnari í fjölmiðlum sínum sem Íslendingi ársins 2007:
Sorglegt var að horfa uppá í ásbyrjun 2008 hvernig
forseti Íslands og stuðningsmenn hans misnotuðu
fjölmiðlaveldi sitt til að tryggja forsetanum endurkjör
í fjórða kjörtímabilið án kosninga. Hér er úrdráttur úr
bréfi mínu 24 janúar 2008 til dómsmálaráðuneytisins þar
sem atburðarrásinni var lýst:
Heilbrigt lýðræði getur ekki þrifist nema með
reglubundnum kosningum á jafnréttisgrundvelli.
Aðdragandi kosninga er mikilvægur og dýrmætur tími fyrir
þjóð og valdhafa að skiptast á skoðunum í opnum og
frjálsum umræðum. Fjórða valdið fjölmiðlarnir gegna þar
mikilvægu hlutverki. Þeir sem ráða fjölmiðlum
þjóðarinnar þurfa að axla þá ábyrgð að misnota ekki
valdið til að hygla einum fram yfir aðra eins og því
miður gerðist með svo afgerandi hætti í Íslensku
forsetakosningunum árið 2004 að Dr. Dietrich Fisher
líkir þessu í fyrirlestrum sínum við það sem gerðist
undir einræði Slobodan Milosevic í Júgóslavíu.
2008 hafinn öfgafullur áróður gegn kosningum í
fjölmiðlum stuðningsmanna sitjandi forseta Ólafs Ragnars
Grímssonar:
01.01.08 Forsetinn Ó.R.G. tilkynnir að hann sækist
eftir endurkjöri eða sjálfkjöri.
02.01.08 Tímaritinu Mannlíf með forsíðu tileinkaðri
Ólafi Ragnari Grímssyni dreift og stillt upp við alla
kassa í nær öllum verslunum landsins, matvöruverslunum,
söluturnum og benzínstöðvum svo ásýnd forsetans blasi
við þjóðinni í fleiri vikur.
03.01.08 Stöð2 Ástþór aftur í framboð og þar fullyrt
að ég ætli í forsetaframboð án þess að ég hafi rætt
slíkt framboð við nokkurn mann síðastliðin ár.
04.01.08 Stöð2 aðalfrétt kvöldins Misnotar lýðræðið
og á skjánum oddviti yfirkjörstjórnar Reykjavíkur Norður
með þær fullyrðingar að ég hafi beitt blekkingum við
prentun meðmælendalista í forsetakosningum árið 2004. Á
visir.is bætt enn um betur og sagt nauðgun á
lýðræðinu. Fréttin er í raun áfellisdómur yfir
kjörstjórnum og dómsmálaráðuneytinu sem hafa þá
vísvitandi samþykkt ógilda meðmælendalista.
05.01.08 Stöð2 fyrsta frétt Mótframboð myndi kosta
170 milljónir með myndum af mér á kjörstað um leið og
hamrað er á stórýktum kostnaði við forsetakosningar.
Ítrekaðar fullyrðingar oddvita yfirkjörstjórnar að
mótframboð sé misnotkun á lýðræðinu, lög séu úrelt og
við núverandi aðstæður eigi í raun enginn erindi í
framboð gegn forsetanum í okkar litla lýðræði með þá
1500-3000 meðmælendur sem núverandi lög kveða á um.
Áhugavert að Stöð2 sá ekki ástæðu að upplýsa skýra frá
kæru gegn ummælum oddvitans eftir hafa misnotað
fréttatíma sína gegn mér með svo grófum hætti sem raun
ber vitni að því að virðist í þeim tilgangi að hræða
gegn kosningum og mótframboðum gegn sínum manni sem nú
ráðgerir áhyggjulaust sjálfkjör í fjórða kjörtímabilið.
Atburðarrásin hefur átt sér nokkurn aðdraganda. Lúmskt
bros stjórnmálafræðingsins sem skilur betur en allir
hvernig má spila á lýðræðið og illa upplýstan almúga
blasir nú við mér í hvert sinn sem keypt er í matinn eða
bensín á bílinn. Frábært flug forsetans, en ég get ekki
neitað því hvað þetta minnir á ferð mína til Baghdad um
árið og glansmyndir þess forseta sem einnig taldi
kosningar óþarfar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)