Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
11.1.2009 | 03:31
Þegar rignir upp í nefið er erfitt að skilja þjóð sína
Lára Hanna Einarsdóttir þýðandi og leiðsögumaður og ofurbloggari skilur ekkert í því að þjóðin sem hún sér ekki fyrir snobbstillingum í hálsi skuli ekki mæta með henni á Austurvöll í vikuleg mótmæli.
Vika er síðan Einar Már Guðmundsson rithöfundur galaði yfir Austurvöll: "Ég sé fyrir mér stórt bandalag sem rúmar okkur öll" en því var fylgt eftir með því að bera sjálfan jólasveininn út af "Opnum-borgarafundi" þessa bandalags í Iðnó.
Ég hef velt því fyrir mér hvar ég og mitt atkvæði á heima. Erfitt að vera í bandalagi með Láru Hönnu, Einari Már, Herði Torfa og félögum því nú er í tvígang búið að bera mig út af fundum þeirra, og í þriðja sinn var mér úthýst þegar svartklæddir dyraverðir vörnuðu mér endurkomu í Iðnó eftir að ég var "kosinn inn" af fundinum. Sú kosning var einnig gerð að skríplegri leiksýningu og fundargestir niðurlægðir af brögðóttum klækjum og öryggisvörðum kommúnistanna.
Hvar eruð þið...? spyr Lára Hanna á blogginu. Því er fljótsvarað fyrir mig, úti í kuldanum þangað sem þið báruð mig af fundum. Fæ ekki einu sinni tjáningarfrelsi eða að svara fyrir mig á þínu bloggi Lára Hanna!
Aðragandinn var að ég benti á þá vinstri slagsíðu á mótmælum og borgarafundum og þá staðreynd að yfir 70% ræðumanna tilheyrðu VG. Lagði til að tekin yrðu upp lýðræðislegri vinnubrögð. Þetta varð til þess að ég var borinn út af skipulagsfundi hjá samtökunum og mátti heldur ekki sitja sem áheyrnarfulltrúi!
Ekki mátti heldur nota þeirra eigin aðferðir og mótmæla sovét-fasískum vinnubrögðunum. Það kom bersýnilega í ljós þegar jólasveinninn var borinn út úr leiksýningu þeirra í Iðnó að mótmælendur vilja engin mótmæli!
Rignir þannig upp í nefið á skipuleggjendum að ekki er hægt að finna pláss í hjarta eða á Austurvelli fyrir fólk eins og mig? Fólki sem ekki tengist útrásarvíkingum, stjórnmálaflokkum eða kommúnískum fasistum. Þessum venjulegu lýðræðissinnum sem þeir henda út af fundum bandalagsins?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 03:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
10.1.2009 | 20:37
Össur Skarphéðinsson ræðir lýðræðið við Ástþór Magnússon
Össur Skarphéðinsson ræddi við mig um beint lýðræði, fjölmiðla og fleira á INNTV.
Hér er linkur til að horfa á þáttinn.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
10.1.2009 | 18:29
Ástþór varð þungamiðja umfjöllunarinnar í fréttum.
Kommúníska vefritið NEI skrifaði fyrirsögnina sem ég nota á þessa grein í umfjöllun sinni um fund mótmælenda í Iðnó fimmtudagskvöld.
Vonandi gat ég kennt þeim eitthvað gagnlegt með uppákomunni, eins og t.d. að það þarf ekki að kasta eggjum, málningu eða múrsteinum í lögreglumenn til að ná athygli fjölmiðlanna á mótmælum. Tilætluðum, kröftugri og betri árangri er náð án líkamlegs ofbeldis og skemmdarverka.
Til að "stela senunni" og búa til "frétt dagsins" þarf frumlega hugmynd við mótmælin svo viðstaddir missi andlitið og standi í þögn með gapandi kjaftinn eins og gerðist þegar ég gekk inn á gólf í Iðnó með gylltan staf mömmu minnar sálugu, bankaði í gólfið og spurði "Fær jólasveinninn að tala hér".
Ég arkaði inná gólf fundarins eftir að þeir sem þarna voru samankomnir og stóðu fyrir uppákomunni höfðu ítrekað í fleiri vikur sameinast um að útiloka mig frá lýðræðislegri umræðu og leikritum sínum sem þeir hafa troðið upp með í Háskólabíó og á Austurvelli að fyrirmynd sovét-fasista í stað lýðræðis.
Ég ætla að gera orð Harðar Torfasonar í umfjöllun NEI af fundinum í Iðnó að mínum: Hörður Torfason var fyrsti ræðumaður kvöldsins. Hann sagðist mótmæla þegar troðið væri á réttindum sínum og annarra. Ég hef leyfi til þess sem betur fer. Ég lifi í þannig landi.
10.1.2009 | Staksteinar Morgunblaðsins um mótmælendur
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
10.1.2009 | 18:09
Staksteinar Morgunblaðsins um mótmælendur

9.1.2009 | Mótmælendur gasa andófið og ryðja brautina fyrir fasískar löggur
![]() |
Fjórtándi fundurinn á Austurvelli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
10.1.2009 | 17:48
Var frú Dorrit og forsetanum boðið?
Hefði áhuga á að vita hvort frú Dorrit og forsetanum var boðið á fundinn í Iðnó um fjöldamorðin og stríðsglæpina í Gaza, eða hvort formaður félagsins Ísland-Palestína sé enn þeirrar skoðunar að forsetinn sé stikkfrí í þessu máli?
Ítreka þessa grein og spurningu: Hvað þarf að myrða marga áður en formaður félagsins Ísland-Palestína bankar blygðunarlaust á allar dyr?
![]() |
Fullur salur ræðir Gaza |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
10.1.2009 | 01:53
Áhugaverður útvarpsþáttur um Opinn borgarafund og jólasveininn
Hér er linkur á viðtal þar sem ýmislegt áhugavert kemur fram varðandi Opinn borgarafund og aðkoma jólasveinsins. Þátturinn heitir Harmageddon á X977. Viðtalið byrjar fimmtán mínútur inní þáttinn, hægt að spóla áfram þangað.
Kommúnistar báru jólasveininn út af Opnum borgarafundi
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
9.1.2009 | 17:39
Kommúnistar vilja ekki talsamband eða viðræður
Hversvegna notið ekki heilabúið ykkar frekar en skrílskrumlurnar. Ef einhverjum raunverulegum árangri á að ná til friðar í Ísrael og Palestínu þarf auðvitað að ræða málin. Stjórnmálaamband er talsamband. Ekki slítið þið símalínum ykkar til ná árangri. Betra væri að hætta vörukaupum, það sveltir. Friðarviðræður núna: Hvað þarf að myrða marga áður en formaður félagsins Ísland-Palestína bankar blygðunarlaust á allar dyr?
Viðræður við alla hlutaðeigandi er leiðin til friðar: Kommúnistar báru jólasveininn út af Opnum borgarafundi - Gunnar Sigurðsson leikstjóri Opins borgarafundar þorir ekki gegn mér í útvarpsviðtali
![]() |
Málningu slett á ráðuneyti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
9.1.2009 | 17:28
Ritskoðuð fréttamennska
Hér er eitt smádæmið um þá ritskoðun sem viðgengst í fjölmiðlum sem gefa sig út sem óhlutdræga. Stuðningsfólki plantað sem "fréttamönnum" og fjallað um skríplegt leikrit haldið undir vernd á þriðja tug öryggisvarða. Vantaði ekki þetta í fréttina: Kommúnistar báru jólasveininn út af Opnum borgarafundi
![]() |
Stoltir glæpamenn og fjölskyldualbúm lögreglunnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.1.2009 | 12:58
Gunnar Sigurðsson leikstjóri Opins borgarafundar þorir ekki gegn mér í útvarpsviðtali
Gungan og fasistinn Gunnar Sigurðsson leikstjóri Opins borgarafundar þorir ekki að mæta mér í útvarpsviðtali í þættinum Harmageddon á X977 kl. 15:15 í dag.
Gunnar leikstjóri hefur áður tjáð mér að ekki þurfi að ræða málin, það gerði hann stuttu áður en hann fór inní bakherbergi ásamt Einari Már Guðmundssyni rithöfundi til að leggja á ráðin um kosningu að sovéskri fyrirmynd um að bera mig út af Opnum borgarafundi á síðasta ári, leyfa mér ekki einu sinna að sitja sem áheyrnarfulltrúa.
Gunnar þurfti heldur ekkert að ræða málin í gær þegar hann hélt Opin borgarafund undir verndarvæng á þriðja tug öryggisvarða, enda með einni handbendingu af leiksviði Iðnó var jólasveinninn borinn út af fundinum.
9.1.2009 | 12:24 Mótmælendur gasa andófið og ryðja brautina fyrir fasískar löggur
8.1.2009 | 21:43 Kommúnistar báru jólasveininn út af Opnum borgarafundi
4.12.2008 | 00:21 Borinn út af borgarafundi. Þjóðin blekkt með leikstýringu.
3.1.2009 | 12:29 Kommúnískum áróðri troðið í 8 ára barn
3.1.2009 | 19:37 Hvar stöðvar barnaþulan Dimmblá?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
9.1.2009 | 12:24
Mótmælendur gasa andófið og ryðja brautina fyrir fasískar löggur
Merkilegt að lesa viðbrögð svokallaðra "mótmælenda" við andófi gegn fasísk-sovéskum vinnubrögðum þeirra.
Litli minnihlutahópurinn bloggar nú þúsundir athugasemda við því að skegg-klæddur jólasveinn gekk inná gólf á fund grímuklæddra ræðumanna með gylltan staf í hendi og bað um orðið. Bloggararnir eru oft nafnlausir og nota sumir hverjir fjölda notendanafna til að stækka hópinn.
Jólasveinninn getur víst ekki kallað sig "anarkista" því hann aðhyllist virkt lýðræði í opnu og skipulögðu þjóðfélagi þar sem tjáningarfrelsið er í heiðri haft.
Annað má segja um Heiðu B. Heiðars bloggara sem á anarkista fundinum vildi að lögreglan samþykkti að tilnefna frekar samningamenn til að ræða við mótmælendur frekar en að gasa fólkið af mikilli áfergju.
Tillaga Heiðu væri kannski marktækari hefði hún sjálf slík sjónarmið að leiðarljósi. Sannleikurinn er hinsvegar sá að Heiða rakkar niður lýðræðið á bloggsíðu sinni "Athyglisbrestur jólasveinn" en lokar síðan blogginu á þann sem hún gasar og meinar honum að svara fyrir sig.
Mótmælendur reyna nú að ryðja brautina fyrir and-lýðræði og kommúnisma á Íslandi.
Feti lögreglan í fótspor þeirra munu kínverskar-netlöggur byrja að loka á óþægilega og gagnrýna umræðu gegn stjórnvöldum á bloggsíðum um leið og lýðræðissinnar verða bornir burt af samkomum og lokaðir inná gúlaginu.
8.1.2009 | 21:43 Kommúnistar báru jólasveininn út af Opnum borgarafundi
4.12.2008 | 00:21 Borinn út af borgarafundi. Þjóðin blekkt með leikstýringu.
3.1.2009 | 12:29 Kommúnískum áróðri troðið í 8 ára barn
3.1.2009 | 19:37 Hvar stöðvar barnaþulan Dimmblá?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)