Pissað upp í vindinn

Saklaust fólk drepið í Gaza

Mér er óskiljanlegt hversvegna félagar í Ísland-Palestína eyða tímanum fyrir framan sendiráð þar sem enginn er heima á meðan fólkinu er slátrað miskunarlaust í Palestínu.

Bush á leið út og ekkert að hlusta. Obama á leið inn og heldur ekki að hlusta.  Að standa við sendiráð þeirra á smáeyju í miðju Atlantshafi er svo sannarlega að pissa upp í vindinn.

Sami skíturinn, annað rassgat!Ekkert mun af viti koma frá kananum í þessu máli. Það er búið að brenna flaggið þeirra, sendiráð þeirra víða um heim og þeim stendur augljóslega á skítsama.

Ég skora á Svein Rúnar Hauksson formann Ísland-Palestína félagsins að ganga með mér á fund forseta Íslands og forsetafrú Dorrit sem fædd og uppalin er í Jerúsalem, og KREFJAST að þau sinni þessu máli fyrir hönd þjóðarinnar. 

Tækju forsetahjónin sig saman í andlitinu og í samstarfi við Frið 2000 og Ísland-Palestína félagið mynduðu samstarfshóp til að mæta í Ísrael og Palestínu að boða nýja hugmyndafræði, væri kannski von til að hlustað yrði á okkur Íslendinga.

Sjá nánar hér:

Hvað þarf að myrða marga áður en formaður félagsins Ísland-Palestína bankar blygðunarlaust á allar dyr?

Ógeðslegt! Hvar ert þú Ólafur Ragnar Grímsson og þín Ísraelska frú? Svarið mér!


mbl.is Mótmæli boðuð við sendiráð Bandaríkjanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ástþór Magnússon Wium

Eyddi athugasemd frá:

8. jan. 2009 02:33 | Höfundur er skráður á blog.is
joda.blog.is

þar sem höfundur er með læst blogg. 

Opni hann blogg sitt og láti mig vita verður athugasemdin birt.

Ástþór Magnússon Wium, 8.1.2009 kl. 03:04

2 Smámynd: Jónas Jónasson

hehe..

Jónas Jónasson, 8.1.2009 kl. 13:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband