Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Óvinsæll útvarpsstjóri neitar að feta í fótspor víkinganna!

Páll Magnússon og bíllinnPáll Magnússon útvarpssstjóri ekur um á Audi Q7 lúxuskerru uppá 15 milljónir króna og neitaði að taka við ódýrari bíl frá Lýðræðishreyfingunni www.lydveldi.is sem RÚV hefur sniðgengið í umfjöllun sinni í aðdraganda alþingiskosninga.

Jón Ásgeir sýnir nú gott fordæmi og var snöggur til að selja leikföngin sín þegar harðnaði í dalnum, en hin hrokafulli embættismaður Páll Magnússon heldur sem fastast í sinn víkingavagn þótt þjóðin sem hann vinnur fyrir þurfi í auknum mæli að herða sultarólarnar.

Vinnubrögðin á RÚV eru ámælisverð. Fréttastjóri skellir á símanum þegar athygli er vakin á því að verið sé að sniðganga Lýðræðishreyfinguna í umfjöllun. Egill Helgason finnst ekki samkvæmt upplýsingum af skiptiborði RÚV og númer sem finnast fyrir þann mann meðal fólks virðast flest aftengd. Ég lýsi eftir nýju símanúmeri Egils Helgasonar ef einhver er með það í fórum sínum.

Ríkisútvarpið virðist hafa breyst í fílabeinsturn undir stjórn veruleikafirrtra embættismanna sem blindaðir eru af fjórflokkaspillingunni.

Tugir manns hafa skrifað undir uppsagnarbréf sem Lýðræðishreyfingin mun afhenda Páli Magnússyni á morgun, færri komust á blaðið en vildu! 

Fylgist með á nýjum fréttavef: www.frettavakt.is


mbl.is Jón Ásgeir selur snekkju og flugvél
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fréttastjóri Ríkisútvarpsins skellti á símanum!

Fjölmiðlasvín Ég hringdi í dag í fréttastofu Ríkisútvarpsins/RÚV til að kvarta yfir því að þeir sniðgengu Lýðræðishreyfinguna í umfjöllun sinni um prófkjör stjórnmálahreyfinga í gærkveldi.

Ég benti manninu á að prófkjör færi nú fram á vefnum www.austurvollur.is eins og fram kom í fréttatilkynningu sem send var Ríkisútvarpinu í gærdag. Ekki var einu orði minnst á þetta í umjöllun ríkisfjölmiðilsins sem nefndi einungis á nafn prófkjör fjórflokkanna.

Ég tjáði fréttastjóranum að ef þeir myndu ekki gæta fyllsta hlutleysis skýra frá starfsemi Lýðræðishreyfingarinnar eins og annarra, myndu öll samtöl við Ríkisútvarpið verða tekin upp og birt á vefnum www.frettavakt.is og á nýrri útvarpssrás FM100.5 sem fer í loftið eftir helgi til að afhjúpa fyrir þjóðinni hvað er í gangi þarna.

Þetta kallaði fréttastjóri Ríkisútvarpsins "dónaskap" og skellti á símanum!

Morgunblaðið hefur einnig sniðgengið Lýðræðishreyfinguna í sínum fréttum í dag. Athygli fréttastjóra hefur verið vakin á þessu og hann beðinn að leiðrétta frétt sína á mbl.is. Við munum fylgjast með því hvort það verður gert.

Þeir sem styðja þá valdnýðslu sem er í gangi í þessu landi undir stjórn fjórflokkanna geta að sjálfsögðu kosið þá aftur á þing, en eiga þá að hætta að kvarta og kveina undan ástandinu hér. Aðrir sem vilja gera einhverjar alvöru breytingar á stjórnarháttum í landinu ættu að fara á vefinn www.austurvollur.is og skrá sig þar í framboð eða tilnefna aðra sem þeir treysta til að taka á málum af alvöru.


mbl.is Líflegasta prófkjörshelgin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útvarpsstjóri í felum

FjölmiðlasvínPáll Magnússon útvarpsstjóri Ríkisútvarpsins RÚV hljóp í felur þegar við mættum frá Lýðræðishreyfingunni til að ræða við hann í Efstaleitinu.

Áður en við komum á staðinn var staðfest að Páll væri á staðnum en þegar við mættum var hann horfinn og allir stjórnendur Ríkisútvarpsins með honum. Enginn yfirmaður fannst í allri byggingunni!

Afnotagjöld frá nær 1200 heimilum þarf til að greiða laun útvarpsstjóra og fyrir lúxusjeppann sem hann er með frá þjóðinni. Þrátt fyrir ofurlaun klúðrar hann þannig málum að Ríkisútvarpið er með allt niðrum sig fjárhagslega og orðið til slíkrar skammar hvað varðar lýðræðislega umfjöllun í aðdraganda kosninga að á leið hingað eru kosningaeftirlitsmenn frá Öryggis og Samvinnustofnun Evrópu.

Ég ræddi við yfirmann Kastljós RÚV undir kvöld. Ég gerði honum grein fyrir því að ég muni hringja í hann og aðra starfsmenn Ríkisútvarpsins úr símum með upptökutækjum á næstu dögum og setja samtölin á frettavakt.is og útvarpa þeim á FM100.5 fái Lýðræðishreyfingin ekki strax að kynna sína stefnuskrá í Ríkisútvarpinu/RÚV eins og önnur framboð. Hann lofar bót og betrun og segist ræða við mig á mánudag um aðgengi að Kastljósinu.

Í fréttatilkynningu sem Lýðræðishreyfingin sendi Ríkisútvarpinu/RÚV í dag kom fram að prófkjör fer nú fram á vefnum www.austurvollur.is.  En í fréttum þessa fjölmiðils var rætt um ýmis prófkjör og eins og venjan er hjá þeim var ekki minnst einu orði á prófkjör Lýðræðishreyfingarinnar.

Við munum því kæra aftur til Öryggis og Samvinnustofnunar Evrópu. Það væri óskandi að hægt væri að beita sér að málefnalegri kosningabaráttu frekar en standa í svona stríð við Sovéska fjölmiðla á Íslandi. Stefnuskrá Lýðræðishreyfingarinnar er að finna á vefnum www.lydveldi.is

Frétt um ferðina í Efstaleiti á vef visir.is


Fréttatilkynning - Útvarpsstjóra RÚV færð ný bifreið kl. 14 í dag

Í tilefni þess að boðað hefur verið til alþingiskosninga í dag, mun Lýðræðishreyfingin færa Páli Magnússyni útvarpsstjóra RÚV nýja bifreið kl. 14 í dag við útvarpshúsið í Efstaleiti.

Lýðræðishreyfingin hefur verið útilokuð frá allri umræðu í ríkisfjölmiðlunum nú í aðdraganda kosninga og hefur ekki fengið að kynna framboð sitt í komandi alþingiskosningum, hvorki í Kastljós, Silfri Egils né öðrm þáttum ríkisfjölmiðlanna.

Lýðræðishreyfingin vill koma á beinu og milliliðalausu lýðræði með uppstokkun á vinnubrögðum Alþingis, m.a. með því að þjóðin fái tækifæri að kjósa um einstök mál í gegnum hraðbankana sem nú eru flestir komnir í eigu þjóðarinnar.

Nánari upplýsingar verða veittar við útvarpshúsið Efstaleiti kl. 14 í dag.

Vefur Lýðræðishreyfingarinnar er www.lydveldi.is og prófkjör fer fram á www.austurvollur.is


14 ára friðarbarátta

Friður 2000Friður 2000 er 14 ára í dag. Þann 4 mars 1995 var Friður 2000 stofnað í Háskólabíó. Á annað þúsund einstaklingar og félagasamtök stóðu að stofnun félagsins. Þrátt fyrir margvíslegt mótlæti gegn samtökunum sem hafa boðað nýja hugmyndafræði í friðarmálum, sem því miður hafa enn ekki átt upp á pallborðið hjá "stjórnmálaskörungum" þessa lands, þá hefur ýmsu verið áorkað:

1995 – Flogið með hjálpargögn og jólapakka með kveðjum frá Íslenskum börnum fórnarlamba Chernobyl og stríðhrjáðra barna í Sarajevo. Hugmyndin verður öðrum hvatning og bílalestir með hjálpargögn og slíka jólapakka berast næstu árin til Chernobyl og á stríðshrjáð svæði með bílalestum frá ýmsum stöðum.

1996 – Bókinni "Virkjum Bessastaði” dreift á öll heimili landsins. Skorað á frambjóðendur að taka upp friðarmálin. Þegar enginn þeirra bregst við áskoruninni lýsir Ástþór sjálfur yfir framboði og notar síðan beinar sjónvarpsútsendingar til að fá Ólaf Ragnar Grímsson til að gefa kjósendum loforð um að beita embættinu í friðarmálum verði hann kjörinn. Forsetinn sveik kosningaloforðið í 12 ár. Í aðdraganda kosninga tók Ástþór við Gandhi mannúðarverðlaunum og afhenti Clinton bandaríkjaforseta eintak af Virkjum Bessastaði.

1997 – Ástþór skorar á heimsbyggðina frá Baghdad að mótmæla fyrirhugaðri árás á Írak. Ástþóri tókst að koma skilaboðunum í gegnum CNN, ABC, CBS og nær alla heimspressuna í 5 daga samfleitt og margsinnis sem aðalfrétt og forsíðufrétt í erlendum stórblöðum! 1998 er Ástþór sæmdur Heilögum Krossi Grísku Réttrúnaðarkirkunnar að útnefningu UNESCO eftir að Clinton hætti við innrásina í kjölfar mikilla mótmæla.

2002 – Ráðamenn vilja að Icelandair flytji vopn og hermenn fyrir Bush í Írakstríð. Ástþór sendir út viðvörun um hættulegt óðagot sem geti dregið Íslensk flugfélög inní hryðjuverkastríð. Þá fangelsaður en sýknaður af Hæstarétti. Hætt við að nota Icelandair flugvélar til vopnaflutninga.

2006 – Vilhjálmur Vilhjálmsson borgarstjóri stofnar Friðarstofnun Reykjavíkur. (Ástþór kynnti slíka hugmynd fyrir borgarstjóra árið 1995)

2007 – Árni Sigfússon bæjarstjóri Reykjanesbæjar undirritar samning um stofnun alþjóðlegs háskóla á Keflavíkurflugvelli er starfi að friðarmálum, kenni alþjóða- og öryggismál. (Ástþór kynnti hugmyndir að friðarháskóla á Íslandi árið 1997 eftir að fá stuðning við hugmyndina hjá fjölda fræðimanna erlendis, síðan í forsetaframboði 2004 og 2006 sendi bæjarstjóranum tillögu að slíkri starfsemi á Keflavíkurflugvelli).

2007 - Yogo Ono kom frá New York með friðarsúlu til Viðey (Ástþór kynnti Ísland sem land friðar á fjölda fyrirlestra í New York, Tokyo og víðar m.a. hjá Sameinuðu Þjóðunum í New York og í hjá friðarháskóla S.Þ. Costa Rica yfir 9 ára tímabil 1995-2004).

2008 – Stjórnvöld samþykkja beiðni Palestínumanna um friðarfund á Íslandi og Forseti Íslands handsalar samkomulagið á Bessastöðum. Ástþór kynnti þessar hugmyndir í Palestínu og Ísrael árið 2001 og aftur fyrir nánum samstarfsmönnum Yasser Arafat árið 2004.

Nánar á www.forsetakosningar.is - www.peace2000.org - www.althing.org


ÖSE svarar neyðarkalli - Kosingaeftirlitsmenn koma til Íslands í næstu viku

ÖSE svarar neyðarkalli thumbnailÖryggis og samvinnustofnunun Evrópu sendir í næstu viku fulltrúa til Íslands. Gerald Mitchell yfirmaður kosningaeftirlits ÖSE mun ræða við Ástþór Magnússon og fleiri.

Ástþór kærði forsetakosningarnar árið 2004 til ÖSE vegna grófrar misnotkunar fjölmiðla og hefur nú beðið ÖSE að senda hingað menn hið snarasta vegna komandi alþingiskosninga þar sem misnotkun fjölmiðla virðist ætla að endurtaka sig.

Ástþór hefur sent fjölda kvartana til RÚV að undanförnu vegna mismununar og brota á lýðræðislegum reglum. Kærur hafa jafnframt verið sendar Útvarpsréttarnefnd, menntamálaráðherra og fleirum. Engin svör hafa borist fyrr en nú að ÖSE sendir hingað erlenda eftirlitsmenn til að kanna málið.

Útilokað er að hér fari fram lýðræðislegar kosningar og uppbygging heilbrigðs og lýðræðislegs þjóðfélags nema með uppstokkun og viðhorfsbreytingum á fjölmiðlunum.

Íslensku forsetakosningarnar árið 2004 voru gerðar að skrípaleik með sovéskum vinnubrögðum íslenskra fjölmiðla. Ólafur Ragnar Grímsson var þannig kjörinn með rússneskri kosningu.

Guð hjálpi íslensku þjóðinni gerist þetta nú aftur í komandi alþingiskosningum og spillingaröflin nái þannig að grafa um sig aftur.

Í næstu viku hefjast útsendingar Lýðvarpsins sem mun fylgjast með fréttum fjölmiðlanna og hverju fréttamenn stinga undir stól. Þjóðin mun taka þátt í útsendingunni með gagnvirkum og nýstárlegum hætti á FM 100,5 og vefnum lydvarpid.is.

Sjá nánar um þetta mál hér á bloggsíðunni m.a. þessa grein:
Kalla menn þennan skrípaleik lýðræði?

Rétt er að geta þess að þessi grein var send sem fréttatilkynning til fjölmiðla á háegi í dag, en þeir hafa ekki fjallað um málið - amk finn ég engar fréttir. Þetta er ekkert einsdæmi um þöggunina!


Þráinn Bertelsson boðinn velkominn í Lýðræðishreyfinguna

Það tók ekki Þráinn Bertelsson nema örskamman tíma að afhjúpa lýðskrumið í Framsóknarflokknum:
 
Strengjabrúður á Alþingi"Þauð tíðindi hafa borist mér til eyrna að aldrei hafi komið til greina í alvöru að stjórn Kjördæmissambands Reykjavíkur í samvinnu við formann Framsóknarflokksins sýndi flokksfélögum það traust að mæla með prófkjöri meðal allra flokksmanna í Reykjavík til að setja saman framboðslista í komandi kosningum. Ég aðhyllist ekki pólitík reykfylltra bakherbergja og dreg hér með framboð mitt til baka. Úrsögn úr flokknum fylgir."
 
Enginn stjórnmálaflokkanna gengur heill til skógar. Þeir byggjast allir sem einn á úreltum hugsjónum um valdaklíkur. Því fyrr sem þjóðin áttar sig á þessu því fyrr vinnum við okkur úr drullupyttnum sem þetta fólk hefur komið okkur í.
 
Þráinn Bertelsson er boðinn velkominn til Lýðræðishreyfingarinnar. Þar fær lýðræðið að njóta sín: 
 

Þitt atkvæði á þing!

Kjóstu þína eigin persónu á þing! 

Flestir láta ekki pabba gamla ráða vali á maka. Slíkt er jafn úrelt fyrirbæri og fulltrúalýðræðið. Hvers vegna eiga aðrir að fara með þitt atkvæði á Alþingi þegar komin er tækni fyrir milliliðalaust lýðræði.   

Beint og milliliðalaust lýðræði

Fáist til þess nægur stuðningur breytum við stjórnarskránni og færum þér kosningarétt á Alþingi. Óskir þú að greiða atkvæði um einstök mál á Alþingi er næsti hraðbanki þinn kjörklefi!

Einstaklingsframboð í stað úrelt flokkakerfis

Við súpum nú seyðið af spilltum flokkadráttum og ráðherraræði. Lýðræðishreyfingin mun aðstoða 126 einstaklingsframboð og moka út spillingunni með beinu og milliliðalausu lýðræði.

Stefnuskrá Lýðræðishreyfingarinnar

Hér getur þú tilfnefnd frambjóðendur eða skráð ósk um framboð á lista Lýðræðishreyfingarinnar: 
Tilnefndu frambjóðendur


Hér má lesa meira um spillinguna í Framsóknarflokknum:
// Opnið augun fyrir þessum blekkingarleik...
Birt 21.1.09 23:16  
// Bankaræningjann Ólaf Ólafsson í gæsluvarðhald og eignafrystingu STRAX!!!
Birt 20.1.09 0:22  
   
// Framsóknarfundurinn: Lýðræðissinnar eru vitleysingar - Taka ekki tilsögn
Birt 8.1.09 19:35
// Burt með skrílinn
Birt 7.1.09 18:38
// Ekkert breytist í spilltasta greni landsins
Birt 6.1.09 23:53  
// Var flokkeigendafélagið á staðnum?
Birt 6.1.09 22:22  
// Getum við fengið nöfnin?
Birt 29.12.08 19:36  
// Bréfið til Geir sem Mogginn neitaði að birta
Birt 29.12.08 16:56  
// Spilltasta greini landsins
Birt 22.12.08 1:18  
// Jónína Ben og Framsóknarflokkurinn
Birt 21.12.08 17:00  
// Úr öskunni í eld kommúnista
Birt 13.12.08 18:43  
// Spilltasta greni landsins
 

Skilur forsetinn ekki ólögmæti viðskiptanna?

Nýju fötin keisaransMeð ólíkindum er að Ólafur Ragnar skilji ekki að útrás bankanna byggðist upp á ólögmætum pýramídaviðskiptum eða Ponzi svikamyllu. Forsetinn gerir sig og Íslensku þjóðina að athlægi í fjármálaheiminum með þessum orðum:

As we polish off dinner at the presidential residence, Grímsson blames Iceland’s catastrophe primarily on forces far beyond the bankers’ control, among them the global economic downturn and the “surprise” actions of the British government. “Had [Gordon Brown] not decided to utilize the terrorist legislation against Kaupthing, the difficulty of the Icelandic case would not have been so dramatic,” Grímsson insists. Only incidentally does he acknowledge that Iceland’s bankers may have been “overambitious.”  Viðtalið í heild

Ólafur og Ólafur hala inn frá KatarÞað er varla að ég trúi því að maðurinn sjái það ekki enn að um svikamyllu fjárglæframanna var að ræða sem byggðist meðal annars á blekkingarleik gagnvart almennum sparifjáreigendum og sjónverfingum með gervifjárfesta sem forsetinn tók sjálfur þátt í á erlendum vettvangi.

Annaðhvort er forseti Íslands einn sá mesti asni sem komist hefur í embætti þjóðhöfðingja, eða argasti skúrkur sem ekki þorir að gangast við hlutunum eins og þeir eru.  Það hlýtur að koma að því að forsetinn átti sig á því að þjóðin og fjármálaheimurinn kaupa ekki lengur ævintýrið um nýju fötin keisarans.


mbl.is Dorrit segist lengi hafa varað við fjármálahruni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðstoðaði forsetafjölskyldan við undanskot eigna?

Samkvæmt frétt Morgunblaðsins fæst aðeins 7,2% uppí skuldir Baugs við Íslensku bankana, en stærstu eignirnar á íslandi voru fluttar á aðrar kennitölur s.l. vor þegar dóttir forseta Íslands gerðist einn þriggja stjórnarmanna.

Dóttir forseta Íslands sat í 3ja manna stjórn Haga hf með feðgunum Jóni Ásgeiri og Jóhannesi í Bónus samkvæmt  hluthafaskrá 31.7.2008.

Drottning svínannaVið hljótum að spyrja hvort forsetafrúin hafi verið leynihluthafi í Baugsveldinu og hvort þar sé komin skýringin á því að Dorrit sótti tískusýningu í dótturfélagi Baugs (Mosaik) í einkaþotu Baugs?

Getur verið að dóttir forsetans Guðrún Tinna Ólafsdóttir hafi farið í stjórnina sem leppur fyrir leynihluthafa Baugs?

Við hljótum einnig að spyrja okkur hvað hefur orðið um nær þúsund milljarða sem fréttir herma að Baugsveldið skuldi Íslensku bönknum, og þá í því sambandi hvernig var staðið að þeim viðskiptum að flytja eignirnar á Íslandi, stærstu verslunarfyrirtæki landsins, á aðrar kennitölur?

Það hlýtur að liggja í hlutarins eðli, og ætti að reyna að ná samkomulagi við Baugsfeðgana um að þjóðnýta þessi fyrirtæki uppí skuldirnar.

Forsetafjölskyldan þarf einnig að gera hreint fyrir sínum dyrum í þessu máli.


mbl.is Jón Ásgeir og Gunnar áfram í stjórnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kosningasvindl í íslensku alræði - Ekki búið að ákveða kosningar!

Dictator parliamentSamkvæmt upplýsingum Harðar H Bjarnasonar sendiherra í utanríkisþjónustunni sem sér um að tilkynna kosningar til eftirlitsaðila, getur hann ekki tilkynnt ÖSE Öryggis og samvinnustofnun Evrópu um væntanlegar kosningar á Íslandi þar sem ekki er búið að ákveða þær!

Hörður segir að Alþingi þurfi að ákveða og senda honum hvort halda eigi kosningar áður en hann getur tilkynnt þær til eftirlitsstofnunar ÖSE (OSCE) sem þá síðan geti sett sig niður við að ákveða hvort sendir verði hingað eftirlitsmenn. Hörður virðist ganga um notarlegar stofur utanríkisráðuneytisins í einhverri sendiherravímu með sitt feita launaumslag frá ríkiskassanum í rassvasanum og segist ekki vita til þess að hingað hafi verið sendir fulltrúar í kosningaeftirlit. 

FjölmiðlasvínKOSNINGAEFTIRLIT Í RÍKISÚTVARPIÐ STRAX! Kosningabaráttan er hafin á RÚV og í Ríkisútvarpinu. Þangað þarf að senda eftirlitsmenn ÖSE án tafar.  Við þurfum ekki endurtekningu á sovésku forsetakosningunum sem fram fóru hér árið 2004.

Við eigum að hætta að henda steinum úr glerhúsum á aðrar þjóðir eins og Rússa fyrir þeirra misbresti í lýðræðislegum kosningum vegna mismununar í fjölmiðlun í aðdraganda kosninga, því málið er enn ýktara og verra í svínslegu alræði Páls Magnússonar á RÚV. Í boði vinstri grísanna á RÚV er Íslenskt kosningasvindl nú hafið!

2.2.2009   TAFARLAUST INNGRIP RÁÐHERRA KRAFIST! Kalla menn þennan skrípaleik lýðræði? ÍTREKUN KÆRU TIL ÚTVARPSRÉTTARNEFNDAR OG OSCE


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband