Óvinsæll útvarpsstjóri neitar að feta í fótspor víkinganna!

Páll Magnússon og bíllinnPáll Magnússon útvarpssstjóri ekur um á Audi Q7 lúxuskerru uppá 15 milljónir króna og neitaði að taka við ódýrari bíl frá Lýðræðishreyfingunni www.lydveldi.is sem RÚV hefur sniðgengið í umfjöllun sinni í aðdraganda alþingiskosninga.

Jón Ásgeir sýnir nú gott fordæmi og var snöggur til að selja leikföngin sín þegar harðnaði í dalnum, en hin hrokafulli embættismaður Páll Magnússon heldur sem fastast í sinn víkingavagn þótt þjóðin sem hann vinnur fyrir þurfi í auknum mæli að herða sultarólarnar.

Vinnubrögðin á RÚV eru ámælisverð. Fréttastjóri skellir á símanum þegar athygli er vakin á því að verið sé að sniðganga Lýðræðishreyfinguna í umfjöllun. Egill Helgason finnst ekki samkvæmt upplýsingum af skiptiborði RÚV og númer sem finnast fyrir þann mann meðal fólks virðast flest aftengd. Ég lýsi eftir nýju símanúmeri Egils Helgasonar ef einhver er með það í fórum sínum.

Ríkisútvarpið virðist hafa breyst í fílabeinsturn undir stjórn veruleikafirrtra embættismanna sem blindaðir eru af fjórflokkaspillingunni.

Tugir manns hafa skrifað undir uppsagnarbréf sem Lýðræðishreyfingin mun afhenda Páli Magnússyni á morgun, færri komust á blaðið en vildu! 

Fylgist með á nýjum fréttavef: www.frettavakt.is


mbl.is Jón Ásgeir selur snekkju og flugvél
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

"Tugir manns hafa skrifað undir uppsagnarbréf sem Lýðræðishreyfingin mun afhenda Páli Magnússyni á morgun, færri komust á blaðið en vildu!"

Tugir manns segiru! Vá! Og færri komust á blaðið en vildu?? Hversu smátt var blaðið eiginlega? Á stærð við Post-it miða?

Þessir embættismenn sem þú nefnir eru ekki þeir einu sem eru veruleikafirrtir...

Kristín (IP-tala skráð) 15.3.2009 kl. 10:25

2 Smámynd: Anna Dóra Gunnarsdóttir

Ég segi nú eins og Krístín; var ekki hægt að fá stærra blað ??

Anna Dóra Gunnarsdóttir, 15.3.2009 kl. 12:50

3 identicon

Þú ert asni Ástþór.

Þórður (IP-tala skráð) 15.3.2009 kl. 13:52

4 Smámynd: Vilborg Eggertsdóttir

- Það er náttúrulega alveg út af korti að þjóðin sé að kosta þennan bíl - algörlega ÚTRUNNIÐ FYRIRBÆRI!!!!!

Takk fyrir þetta Ástþór

Vilborg Eggertsdóttir, 16.3.2009 kl. 15:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband