Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Fagmennsku ábótavant hjá RÚV

Email sent til Páls Magnússonar útvarpsstjóra:

Um leið og ég þakka þér Páll að veita Lýðræðishreyfingunni nokkrar mínútur til að kynna framboðið í Kastljósi kvöldsins, get ég ekki orða bundist um hvað fagmennsku er ábótavant í þessari umfjöllun.

1. Fréttastofan fjallaði um skoðanakönnun og ræddi um hana við formenn stjórnmálaflokka á Alþingi en enga aðra. Þessir sömu flokkar hafa fengið nær ómælda umfjöllun hjá ykkur meðan Lýðræðishreyfingarinnar hefur engan aðgang fengið að ríkisfjölmiðlunum, enda kom framboð okkar ekki einu sinni fram í könnun ykkar. Hvað er að marka svona kannanir? Hversvegna eruð þið að fjalla um svo óábyrga könnun sem "frétt"? Hversvegna bíðið þið ekki með slíka umfjöllun þar til þið hafið fjallað um öll framboðin svo þjóðin viti hvað er í boði í komandi kosningum? Hversvegna neitaði fréttastofan mér um að koma á framfæri ummælum Lýðræðishreyfingarinnar um þessa könnun? - símtal hér

2. Þú lofað á fundi okkar fyrr í vikunni að Lýðræðishreyfingin fengi "sama pakka" og hin "nýju" framboðin í umfjöllun kvöldsins. En það vantaði umtalsvert í þennan pakka kvöldsins. Það vantaði algerlega fréttina um framboðið í fréttir kvöldsins. Þannig að við sátum ekki við sama borð og aðrir. Hversvegna?

cameraman3. Framleiðsla viðtalsins í Kastljósi hlýtur að vera hverjum fagmanni sem sér þetta þyrnir í augum. Lýsingu er ábótavant, White Balance myndavélar virðist úti á túni, notuð er gleiðlinsa á portret sem engum fagmanni myndi detta til hugar. Hverslags vinnubrögð eru þetta? Þau eru allavegana RÚV til skammar og ættu ekki sjást á ykkar skjá. Hvaða vandamál er að taka með sér lampa í myndatöku og stilla vélina í samræmi við viðfangsefnið? Er þetta gert viljandi eða kunna menn ekki til verka? Þegar ég sá tilburðina óskaði ég eftir því að koma í stúdíó ykkar í viðtal en því var synjað.

Mér sýnist þú þurfir heldur betur að láta hendur standa fram úr ermum áður en eftirlitsmenn ÖSE koma til landsins svo ríkisfjölmiðlarnir verði nú ekki þjóðinni til skammar með ólýðræðislegum og ófaglegum vinnubrögðum.

Hvað með Silfur Egils? Fáum við frá Lýðræðishreyfingunni að koma í þann þátt á sunnudag og ræða okkar framboð og hugmyndafræði? Þar hafa ítrekað síðastliðna mánuði verið aðilar sem standa að öðru "nýju" framboði. Hinsvegar svarar Egill ekki skeytum sem ég hef sent með beiðni um aðgang til að kynna okkar stefnuskrá. Stúlkurnar á skiptiborði RÚV hafa ekki getað fundið Egil í húsinu þegar ég hef hringt og vilja ekki gefa upp gsm símann hans.

Með kveðju

Lýðræðishreyfingin - www.lydveldi.is

Ástþór Magnússon 

Prófkjör á austurvollur.is 


Minnir á mína handtöku á Íslandi

Þöggun fjölmiðlaÓneitanlega minnir þessi frétt um handtöku hagfræðings í Lettlandi á handtöku mína á Íslandi þegar ég gaf út yfirlýsingar sem voru forsætis- og utanríkisráðherra Íslands ekki þóknanlegar.

Lögreglan var mætt eftir 4 klukkustundir og ég sat fleiri daga í gæsluvarðhaldi eða þar til Hæstiréttur dæmdi gæsluvarðhaldið ólögmætt.

Darraðadansinn gegn mér hófst í raun þegar ég kom fram í forsetaframboði árið 1996 og lýsti því yfir að ég vildi komast í skrifstofu forseta í stjórnarráðshúsinu (sem þá var þar til húsa) til að moka út spillingu. Því slík væri spillingin hér að Ísland yrði gjaldþrota innan nokkurra ára ef ekki yrði gripið í taumana. 

Þá lýsti ég verðbréfamörkuðum sem spilavítum sem myndu hrynja með geigvænlegum afleiðingum fyrir almenning.

Ég upskar hersingu af greinaskrifum og óhróðri gegn mér, m.a. frá virðulegum bankastjórum fyrir að benda á "nýju fötin keisarans" og sagður snarbrjálaður að tala svona. Ég meira segja uppskar nafnbótina "þorpsfífl" í leiðara Fréttablaðsins.

En er þetta ekki allt komið fram?

Meira um þetta og stefnumál Lýðræðishreyfingarinnar í Kastljósviðtali kvöldsins.


mbl.is Handtekinn fyrir samlíkingu við Ísland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áhugavert símtal við fréttastofu RÚV

stalin_votingRíkisfjölmiðlarnir eru duglegir að sniðganga suma og hampa öðrum. Hér er áhugavert símtal við fréttastofu RÚV um þessa skoðanakönnun.

Auðvitað "mælist" Lýðræðishreyfingin alls ekki í könnuninni því Ríkisfjölmiðlarnir, Kastljós, Silfur Egils og frettastofa RÚV og Ríkisútvarpsins hafa synjað allri umfjöllun um okkar framboð og stefnumál fram að deginum í dag. Hlusta hér

Í dag fáum við að mér skilst "7 mínútur" í Kastljósinu. Það er klippt til af starfsmönnum RÚV, ekki var orðið við þeirri beiðni að hafa viðtalið óklippt.

Nánari upplýsingar um Lýðræðishreyfinguna: www.lydveldi.is

Prófkjör á austurvollur.is


mbl.is Ný könnun: Stjórnarflokkarnir fengju meirihluta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grefur auglýsingasjónvarpið Skjár1 undan lýðræðinu?

Nokkur umræða hefur verið um auglýsingamarkað ljósvakamiðla. Skjár1 sagðist vera almennt sjónvarp er höfði til allra landsmanna og efndu til undirskriftarsöfnunar til að fá RÚV út af auglýsingamarkaði.

Sölvi Skjár1Það kom því mjög á óvart þegar ég í dag ræddi við Sölva Tryggvason og aðstoðarkonu hans um hversvegna Lýðræðishreyfingin var sniðgengin í umræðuþætti þeirra um síðustu helgi, en þar var rætt við helstu stjórnmálaöfl landsins og tveimur nýjum stjórnmálahreyfingum gefin tækifæri að kynna sín stefnumál.

Sölvi svaraði því til að Skjár1 væri auglýsingasjónvarp og þessvegna bæru þeir engar skyldur í þessu sambandi, þeim væri frjálst að taka til umfjöllunar hvert það stjórnmálaafl sem þeim þóknast án tillits til annarra. 

Þetta er auðvitað algerlega á skjön við útvarpslögin, sem einnig gildir fyrir sjónvarp, en þar segir:  "skulu í öllu starfi sínu halda í heiðri lýðræðislegar grundvallarreglur. Þeim ber að virða tjáningarfrelsi og stuðla að því að fram komi í dagskrá rök fyrir mismunandi skoðunum í umdeildum málum."

Þegar ég benti Sölva á þessa grein útvarpslaga hafði hann á orði að við kæmust ekkert í þátt hjá sér með slíkri frekju, hann réði því hvaða menn og málefni yrði fjallað um.

Eiga fjölmiðlar sem þessir rétt á sér í lýðræðisþjóðfélagi eða er slík geðþótta umfjöllun einstakra fjölmiðlamanna til þess fallin að blekkja þjóðarsálina og grafa undan lýðræðinu í aðdraganda kosninga?

Sjá nánar um Lýðræðishreyfinguna á www.lydveldi.is

Tilnefna frambjóðendur á www.austurvollur.is


Mun þjóðin kjósa um einstök mál í hraðbönkum?

HraðbankiReykjavík síðdegis á Bylgjunni fjallaði um hugmyndir Lýðræðishreyfingarinnar um beint lýðræði með notkun hraðbanka.  Bylgjan - Hlusta hér

Einnig var fjallað um stefnumál Lýðræðishreyfingarinnar á útvarpi Sögu.  ÚtvarpSaga - Hlusta hér

Sjá nánar um Lýðræðishreyfinguna á www.lydveldi.is

Tilnefna frambjóðendur á www.austurvollur.is


Vonandi þýðir að umfjöllun fæst um málefnin án leiksýninga

Útvarpsstóra sagt uppFrábærar fréttir fyrir okkur sem viljum byggja nýtt Ísland með alvöru lýðræði.

Kærur mínar til ÖSE síðan 2004, 2008 og 2009 hafa nú borið árangur.

Vonandi táknar þetta endalok þess tímabils sem þurfti að setja ýmis fáranleg leikrit á svið fyrir fjölmiðla til að fá þar inni. Vonandi getum við nú fengið án slíkra hundakúnsta eðlilega og óhlutdræga umfjöllun um nýja hugmyndafræði í stjórnmálum.

Fjölmiðlar hafa þegar tekið við sér. Lýðræðishreyfingunni, sem áður var meinaður aðgangur að RÚV, hefur nú loks verið lofað tíma í Fréttum RÚV og Kastljósi á morgun fimmtudag til að kynna stefnuskrá sína í komandi alþingiskosningum:

1. Beint og milliliðalaust lýðræði:

  • Allir Íslenskir ríkisborgarar geti sent Alþingi tillögu að nýju lagafrumvarpi sem skal tekið til umföllunar ef stutt undirskriftum 1% kjósenda. Alþingismenn og ráðherrar geti einnig átt frumkvæði að nýjum frumvörpum.
  • Þingmenn fari með umræðu og nefndarstörf vegna frumvarpa á Alþingi og kynni fyrir þjóðinni m.a. á rafrænu þjóðþingi og vefsvæði.
  • Tilbúin frumörp lögð fyrir þjóðþing Alþingis til atkvæðagreiðslu t.d. 1.maí og 1.des ár hvert.
  • Hraðbankakerfið (sem nú er eign ríkisins) verði nýtt sem kjörklefar fyrir rafrænt þjóðþing. 
  • Ef nauðsyn krefur geti Alþingi samþykkt bráðabirgðalög sem gilda fram að næsta þjóðþingi.
  • Þingmenn fara með atkvæði þeirra sem ekki óska að neyta atkvæðisréttar á þjóðþingi Alþingis.

2. Tillaga að breytingum á Alþingi og ríkisstjórn:

  • Þingmönnum fækkað í 31.
  • Landið verði eitt kjördæmi.
  • Þingmenn verði valdir í persónukosningum.
  • Alþingi velur ráðherraefni á faglegum forsendum. Forseti, sem þjóðkjörinn umboðsmmaður lýðsins og eftirlitsaðili fyrir virku lýðræði, skipar síðan ráðherra og veitir þeim lausn eins og nú er.
  • Ráðherrar sitji ekki á Alþingi.
  • Ráðning dómara og æðstu embættismanna verði staðfest af þjóðþingi Alþingis.

Nánari upplýsingar um Lýðræðishreyfinguna er að finna á www.lydveldi.is

Tilfefndu frambjóðendur á vefnum: www.austurvollur.is


mbl.is ÖSE fylgist með kosningunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vanhæfir fjölmiðlamenn á ríkisjötunni

Útvarpsstóra sagt uppFjölmiðlar sem standa sig ekki deyja drottni sínum.

Við þurfum einnig að hreinsa út hjá Ríkisútvarpinu.

Vanhæfni fréttamanna og stjórnenda RÚV stefnir lýðræðislegum kosningum í voða.

Spjátrungarnir sem hafa hreiðrað um sig í fílabeinsturni Ríkisútvarpsins fjarlægjast stöðugt meira grasrót samfélagsins og hafa  lýðræðisreglur sem settar eru um starfsemina að engu.

Páll Magnússon tekur við uppsagnarbréfi frá Lýðræðishreyfingunni í yfirstærð sem tugir manns undirrituðu, en RÚV hefur gróflega brotið lýðræðislega jafnaðarreglu gegn samtökunum í aðdraganda alþingiskosninga.

Lýðræðishreyfingin hefur ekki fengið að kynna framboð sitt og stefnumál í RÚV eins og aðrir frambjóðendur.

Þessvegna viljum við Pál og allt hans vanhæfa hyski burt úr ríkisfjölmiðlunum.

Kynnið ykkur Lýðvarpið, nýtt útvarp þjóðarinnar á www.frettavakt.is

Nánari upplýsingar um Lýðræðishreyfinguna er að finna á www.lydveldi.is


mbl.is Enn eitt dagblaðið hættir prentútgáfu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lýðræðishreyfingin skilar undirskriftarlistum og staðfestir framboð við Dómsmálaráðuneytið

Lýðræðishreyfingin hefur í dag skilað inn undirskriftarlistum til Dómsmálaráðuneytisins og staðfest framboð í komandi alþingiskosningum.

Stefnuskrá Lýðræðishreyfingarinnar er:

1. Beint og milliliðalaust lýðræði:

  • Allir Íslenskir ríkisborgarar geti sent Alþingi tillögu að nýju lagafrumvarpi sem skal tekið til umföllunar ef stutt undirskriftum 1% kjósenda. Alþingismenn og ráðherrar geti einnig átt frumkvæði að nýjum frumvörpum.
  • Þingmenn fari með umræðu og nefndarstörf vegna frumvarpa á Alþingi og kynni fyrir þjóðinni m.a. á rafrænu þjóðþingi og vefsvæði.
  • Tilbúin frumörp lögð fyrir þjóðþing Alþingis til atkvæðagreiðslu t.d. 1.maí og 1.des ár hvert.
  • Hraðbankakerfið (sem nú er eign ríkisins) verði nýtt sem kjörklefar fyrir rafrænt þjóðþing. 
  • Ef nauðsyn krefur geti Alþingi samþykkt bráðabirgðalög sem gilda fram að næsta þjóðþingi.
  • Þingmenn fara með atkvæði þeirra sem ekki óska að neyta atkvæðisréttar á þjóðþingi Alþingis.

2. Tillaga að breytingum á Alþingi og ríkisstjórn:

  • Þingmönnum fækkað í 31.
  • Landið verði eitt kjördæmi.
  • Þingmenn verði valdir í persónukosningum.
  • Alþingi velur ráðherraefni á faglegum forsendum. Forseti, sem þjóðkjörinn umboðsmmaður lýðsins og eftirlitsaðili fyrir virku lýðræði, skipar síðan ráðherra og veitir þeim lausn eins og nú er.
  • Ráðherrar sitji ekki á Alþingi.
  • Ráðning dómara og æðstu embættismanna verði staðfest af þjóðþingi Alþingis.

Nánari upplýsingar um Lýðræðishreyfinguna er að finna á www.lydveldi.is


Morgunblaðið vill sovéskar kosningar - Fá ekki að kynna "hraðbankalýðræði"

Fréttastjóri mbl.is neitar að birta frétt frá Lýðræðishreyfingunn frá í morgun og segir það "einkamál" RÚV að Lýðræðishreyfingin fái ekki aðgang að ríkisfjölmiðlunum til að kynna stefnuskrá sína fyrir kjósendum.

Áhugavert er að skoða umfjöllum Morgunblaðsins og mbl.is um stjórnmálahreyfingar landsins. Ný framboð eru þar nánast útilokuð úr umfjöllun og fá litla sem enga möguleika að kynna sín stefnumál eins og sjá má á fjölda frétta birt í mars mánuði:

umfjollunMBLkosningar2004Vinstri Grænir: 43

Sjálfstæðisflokkurinn: 26

Samfylkingin: 24

Framsóknarflokkurinn: 21

Borgarahreyfingin: 5

L-Listinn: 5

Lýðræðishreyfingin: 1

Áhugavert er að skoða þetta í samanburði við umfjöllun í aðdraganda forsetakosninga árið 2004, en þá var nánast engin umfjöllun um önnur framboð en forseta Íslands eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Litla spjaldið er umfjöllun um mitt framboð, stóra spjalið er umfjöllun Morgunblaðsins um Ólaf Ragnar Grímsson sem síðan var kosinn með "Rússneskri kosningu".

 

Vilja kynna persónukjör og hraðbankalýðræði í Kastljósi

Hraðbanki Lýðræðishreyfingin krefst að fá án tafar aðgengi að Kastljósi Ríkisútvarpsins til að kynna nýja hugmyndafræði um notkun hraðbanka í beinu og milliliðalausu lýðræði.

Stjórnendur RÚV hafa útilokað Lýðræðishreyfinguna frá ríkisfjölmiðlunum og virðast ætla að þröngva gömlum og úreltum stjórnmálum uppá þjóðina.

Tugir manns hafa nú skrifað undir risastórt uppsagnarbréf til Páls Magnússonar útvarpsstjóra sem verður afhent með mótmælaaðgerð í útvarpshúsinu við Efstaleiti kl. 14 mánudaginn 16 mars.

Þess er krafist að Lýðræðishreyfingin fá tafarlausan aðgang að RÚV til að kynna stefnumál sín í komandi kosningum sem eru:

 

1. Beint og milliliðalaust lýðræði:

  • Allir Íslenskir ríkisborgarar geti sent Alþingi tillögu að nýju lagafrumvarpi sem skal tekið til umföllunar ef stutt undirskriftum 1% kjósenda. Alþingismenn og ráðherrar geti einnig átt frumkvæði að nýjum frumvörpum.
  • Þingmenn fari með umræðu og nefndarstörf vegna frumvarpa á Alþingi og kynni fyrir þjóðinni m.a. á rafrænu þjóðþingi og vefsvæði.
  • Tilbúin frumörp lögð fyrir þjóðþing Alþingis til atkvæðagreiðslu t.d. 1.maí og 1.des ár hvert.
  • Hraðbankakerfið (sem nú er eign ríkisins) verði nýtt sem kjörklefar fyrir rafrænt þjóðþing. 
  • Ef nauðsyn krefur geti Alþingi samþykkt bráðabirgðalög sem gilda fram að næsta þjóðþingi.
  • Þingmenn fara með atkvæði þeirra sem ekki óska að neyta atkvæðisréttar á þjóðþingi Alþingis.

 

2. Tillaga að breytingum á Alþingi og ríkisstjórn:

  • Þingmönnum fækkað í 31.
  • Landið verði eitt kjördæmi.
  • Þingmenn verði valdir í persónukosningum.
  • Alþingi velur ráðherraefni á faglegum forsendum. Forseti, sem þjóðkjörinn umboðsmmaður lýðsins og eftirlitsaðili fyrir virku lýðræði, skipar síðan ráðherra og veitir þeim lausn eins og nú er.
  • Ráðherrar sitji ekki á Alþingi.
  • Ráðning dómara og æðstu embættismanna verði staðfest af þjóðþingi Alþingis.

 

Nánari upplýsingar um Lýðræðishreyfinguna er að finna á www.lydveldi.is

 

Uppsagnarbréfið til Páls Magnússonar sem verður afhent í stórformati við útvarpshúsið Efstaleiti kl. 14 mánudaginn 16 mars:

Uppsagnarbréf til útvarpsstjóra Uppsagnarbréf

Hr. Páll Magnússon

Þér er hér með sagt upp störfum þar sem þú hefur fótum troðið skyldur þína sem útvarpsstjóri ríkisútvarpsins sem er að gæta jafnræðisreglu og halda í heiðri lýðræðislegar grundvallarreglur.

Þú hefur virt að vettugi fjölda erinda sem Lýðræðishreyfingin hefur sent til þín og eftirlitsstofnana með óskir um úrbætur. Engin svör hafa borist frá þér þrátt fyrir að málið hafi nú ítrekað verið kært til Öryggis og Samvinnustofnunar Evrópu. Ljóst er að þú ert með öllu óhæfur til að annast rekstur ríkisfjölmiðils okkar Íslendinga. Áframhaldandi rekstur Ríkisútvarpsins undir þinni stjórn er líklegt til að þessi áður virðulega stofnun þjóðarinnar verði að athlægi á alþjóðavettvangi. Nú þegar, í kjölfar margumtalaðs Kastljósviðtals við erlendan fræðimann í friðarmálum, er Íslenska ríkisútvarpinu er líkt við fjölmiðla í enræðisríkjum á ráðstefnum og í fyrirlestrum um slík mál.

Lýðræðishreyfingin er tilbúin að skipa nýjan og hæfari útvarpsstjóra og koma Ríkisútvarpinu á réttan kjöl, bæði hvað varðar að koma á lýðræðislegum vinnubrögðum svo og að rétta af fjárhag stofnunarinnar sem virðist í rúst eftir þig. Skorað er á þig Páll að verða við þeim tilmælum að láta af störfum áður en þú veldur þjóðinni meiri skaða en þegar er orðið undir þinni stjórn. Íslenska þjóðin á Ríkisútvarpið og fréttaefnið sem þar er framleitt og sent út. Skýr lög og reglur hafa verið sett um slíkt efni til að gæta lýðræðislegs réttar allra landsmanna. Útilokað er að sætta sig við að misvitrir einstaklingar í stjórnarstöðum Ríkisútvarpsins fótum troði þennan rétt okkar.

Nýr fjölmiðill þjóðarinnar, Lýðvarpið á FM100.5 og frettavakt.is mun senda út fréttir Ríkisútvarpsins ásamt þeim viðbótum sem Lýðvarpinu  og hlustendum finnst vanta í þær fréttir hverju sinni. Þannig munum við leitast við að gæta þess að þjóðin fái fái óhlutdræga frásögn og fréttaflutning og þjóðarsálinni sé ekki miðstýrt af annarlegu sjónarmiðum klíkunnar sem ræður Ríkisútavarpinu undir þinni stjórn. Því miður hefur fréttastofa Ríkisútvarpsins svo gersamlega brugðist hlutverki sínu undir þinni stjórn að hingað til lands eru nú væntanlegir eftirlitsmenn ÖSE til að fylgjast með aðdraganda komandi alþingiskosninga, ekki síst til að fylgjast með aðgengi framboða að ríkisfjölmiðlunum.  

Ítrekuð er sú krafa að Lýðræðishreyfingin fái að kynna stefnumál sín í Ríkisútvarpinu/RÚV án tafar!

Virðingarfyllst,
Lýðræðishreyfingin
(Undirskrifað af fleiri tugum manns)


Vilja kynna persónukjör og hraðbankalýðræði í Kastljósi

HraðbankiLýðræðishreyfingin krefst að fá án tafar aðgengi að Kastljósi Ríkisútvarpsins til að kynna nýja hugmyndafræði um notkun hraðbanka í beinu og milliliðalausu lýðræði.

Stjórnendur RÚV hafa útilokað Lýðræðishreyfinguna frá ríkisfjölmiðlunum og virðast ætla að þröngva gömlum og úreltum stjórnmálum uppá þjóðina.

Tugir manns hafa nú skrifað undir risastórt uppsagnarbréf til Páls Magnússonar útvarpsstjóra sem verður afhent með mótmælaaðgerð í útvarpshúsinu við Efstaleiti kl. 14 mánudaginn 16 mars.

Þess er krafist að Lýðræðishreyfingin fá tafarlausan aðgang að RÚV til að kynna stefnumál sín í komandi kosningum sem eru:

 

1. Beint og milliliðalaust lýðræði:

  • Allir Íslenskir ríkisborgarar geti sent Alþingi tillögu að nýju lagafrumvarpi sem skal tekið til umföllunar ef stutt undirskriftum 1% kjósenda. Alþingismenn og ráðherrar geti einnig átt frumkvæði að nýjum frumvörpum.
  • Þingmenn fari með umræðu og nefndarstörf vegna frumvarpa á Alþingi og kynni fyrir þjóðinni m.a. á rafrænu þjóðþingi og vefsvæði.
  • Tilbúin frumörp lögð fyrir þjóðþing Alþingis til atkvæðagreiðslu t.d. 1.maí og 1.des ár hvert.
  • Hraðbankakerfið (sem nú er eign ríkisins) verði nýtt sem kjörklefar fyrir rafrænt þjóðþing. 
  • Ef nauðsyn krefur geti Alþingi samþykkt bráðabirgðalög sem gilda fram að næsta þjóðþingi.
  • Þingmenn fara með atkvæði þeirra sem ekki óska að neyta atkvæðisréttar á þjóðþingi Alþingis.

 

2. Tillaga að breytingum á Alþingi og ríkisstjórn:

  • Þingmönnum fækkað í 31.
  • Landið verði eitt kjördæmi.
  • Þingmenn verði valdir í persónukosningum.
  • Alþingi velur ráðherraefni á faglegum forsendum. Forseti, sem þjóðkjörinn umboðsmmaður lýðsins og eftirlitsaðili fyrir virku lýðræði, skipar síðan ráðherra og veitir þeim lausn eins og nú er.
  • Ráðherrar sitji ekki á Alþingi.
  • Ráðning dómara og æðstu embættismanna verði staðfest af þjóðþingi Alþingis.

 

Nánari upplýsingar um Lýðræðishreyfinguna er að finna á www.lydveldi.is

 

Uppsagnarbréfið til Páls Magnússonar sem verður afhent í stórformati við útvarpshúsið Efstaleiti kl. 14 mánudaginn 16 mars:

Uppsagnarbréf til útvarpsstjóraUppsagnarbréf

Hr. Páll Magnússon

Þér er hér með sagt upp störfum þar sem þú hefur fótum troðið skyldur þína sem útvarpsstjóri ríkisútvarpsins sem er að gæta jafnræðisreglu og halda í heiðri lýðræðislegar grundvallarreglur.

Þú hefur virt að vettugi fjölda erinda sem Lýðræðishreyfingin hefur sent til þín og eftirlitsstofnana með óskir um úrbætur. Engin svör hafa borist frá þér þrátt fyrir að málið hafi nú ítrekað verið kært til Öryggis og Samvinnustofnunar Evrópu. Ljóst er að þú ert með öllu óhæfur til að annast rekstur ríkisfjölmiðils okkar Íslendinga. Áframhaldandi rekstur Ríkisútvarpsins undir þinni stjórn er líklegt til að þessi áður virðulega stofnun þjóðarinnar verði að athlægi á alþjóðavettvangi. Nú þegar, í kjölfar margumtalaðs Kastljósviðtals við erlendan fræðimann í friðarmálum, er Íslenska ríkisútvarpinu er líkt við fjölmiðla í enræðisríkjum á ráðstefnum og í fyrirlestrum um slík mál.

Lýðræðishreyfingin er tilbúin að skipa nýjan og hæfari útvarpsstjóra og koma Ríkisútvarpinu á réttan kjöl, bæði hvað varðar að koma á lýðræðislegum vinnubrögðum svo og að rétta af fjárhag stofnunarinnar sem virðist í rúst eftir þig. Skorað er á þig Páll að verða við þeim tilmælum að láta af störfum áður en þú veldur þjóðinni meiri skaða en þegar er orðið undir þinni stjórn. Íslenska þjóðin á Ríkisútvarpið og fréttaefnið sem þar er framleitt og sent út. Skýr lög og reglur hafa verið sett um slíkt efni til að gæta lýðræðislegs réttar allra landsmanna. Útilokað er að sætta sig við að misvitrir einstaklingar í stjórnarstöðum Ríkisútvarpsins fótum troði þennan rétt okkar.

Nýr fjölmiðill þjóðarinnar, Lýðvarpið á FM100.5 og frettavakt.is mun senda út fréttir Ríkisútvarpsins ásamt þeim viðbótum sem Lýðvarpinu  og hlustendum finnst vanta í þær fréttir hverju sinni. Þannig munum við leitast við að gæta þess að þjóðin fái fái óhlutdræga frásögn og fréttaflutning og þjóðarsálinni sé ekki miðstýrt af annarlegu sjónarmiðum klíkunnar sem ræður Ríkisútavarpinu undir þinni stjórn. Því miður hefur fréttastofa Ríkisútvarpsins svo gersamlega brugðist hlutverki sínu undir þinni stjórn að hingað til lands eru nú væntanlegir eftirlitsmenn ÖSE til að fylgjast með aðdraganda komandi alþingiskosninga, ekki síst til að fylgjast með aðgengi framboða að ríkisfjölmiðlunum.  

Ítrekuð er sú krafa að Lýðræðishreyfingin fái að kynna stefnumál sín í Ríkisútvarpinu/RÚV án tafar!

Virðingarfyllst,
Lýðræðishreyfingin
(Undirskrifað af fleiri tugum manns)


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband