Færsluflokkur: Bloggar

RÚV afsökunarbeiðni til Lýðræðishreyfingarinnar

Útvarpsstóra sagt upp

Gott hjá RÚV að biðjast afsökunar á subbulegri frétt stofnunarinnar um fasteignakaup.  Ekki er síður ástæða að biðja undirritaðann, Lýðræðishreyfinguna og Íslensku þjóðina afsökunar á sóðaskapnum í framgöngu ríkisfjölmiðlanna í aðdraganda síðustu alþingiskosninga.

RÚV hafði bein áhrif á úrslit lýðræðislegra kosninga með svipuðum hætti og tíðkast í alræmdum kommúnista og enræðisríkjum. RÚV var misnotað í þágu einstakra framboða m.a. framboðs undir forystu starfsmanns RÚV. Framganga RÚV mánuðina og vikurnar fyrir kosningar átti lítið skylt við frjálsa og óháða fjölmiðlun. Lýðræðið var fótum troðið af stjórnendum RÚV.

Hvar í lýðræðisríki þurfa löggilt framboð að leita til lögreglunnar til að fá inni í "kosningaumfjöllun" ríkisfjölmiðla? Hversvegna þurfti að framleiða hávaða með sírenu og gjallarhorni við fréttastofu RÚV til að fá vefsíðutengil Lýðræðishreyfingarinnar á kosningasíður RÚV?

HerbertHversvegna var Lýðræðishreyfingunnni algerlega úthýst úr Silfri Egils? Þáttarstjórnandinn upplýsti nokkru eftir kosningar um stuðning sinn við Borgarahreyfinguna sem bauð fram til Alþingis undir forystu starfsmanns RÚV. Starfsmanns sem varð uppvís að því að ganga erinda framboðsins um landið á launum frá RÚV og sem tók á móti símtölum um skiptiborð RÚV í farsíma á kosningaferð um Akureyri!

Það þarf að hreinsa út yfirstjórn RÚV. Við þurfum hæfari og heiðarlegri útvarpsstjóra. Fjölmiðlar þjóðarinnar eiga að vera óhlutdrægir í starfsháttum og umfjöllun. RÚV getur ekki starfað áfram sem pólitískt hóruhús.

Ástþór Magnússon


mbl.is Bað þingmenn og sendiherra afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Erindi til Steingríms J Sigfússonar: Ég vil semja uppá nýtt um Icesave fyrir hönd Íslenska ríkisins

Hæstvirtur fjármálaráðherra Steingrímur J. Sigfússon
Fjármálaráðuneytið, Arnarhvoli við Lindargötu, Reykjavík.

7. janúar 2010

Ágæti Steingrímur,

Nú er lag að hringja til mín og nýta krafta mína í þágu uppbyggingar á
Íslandi eins og þú ræddir um í kosningasjónvarpi RÚV s.l. vor. Ég
ítreka boð mitt um að aðstoða ykkur og býðst nú til að leita nýrra
samninga um Icesave skuldbindingarnar við Bresk og Hollensk
stjórnvöld.

Ég tel alla möguleika á að ná betri samningum um Icesave, ekki síst um
vaxtabyrðina sem er í raun út af kortinu hvað varðar almenn lánakjör í
Evrópu. Engan tíma má missa, við þurfum að hefja þessa vinnu án tafar
til að glata ekki því einstaka tækifæri sem nú hefur opnast til nýrra
samninga.

Nauðsynlegt er að nýtt fólk komi að þessum samningum fyrir hönd
Íslensku þjóðarinnar til að ná raunhæfum árangri. Ég treysti mér til
að leiða það ferli.

Síminn minn er (númer fjarlægt úr bloggfærslu)

Virðingarfyllst,
Ástþór Magnússon

Asnar!

HerbertÍslenska þjóðin hlýtur að eiga heimsmet í asnaskap. Rekið Pál Magnússon og ráðið mig í staðin uppá prósentur. Ég tek engin föst laun, kem með eigin bíl, og get lifað góðu lífi á prósentum af rekstri RÚV um leið og ég sendi út sömu eða betri dagskrá. Asnarnir á RÚV kunna ekki að reka þetta batterí! Enda á hverju er von þegar starfsmönnum RÚV leyfist að vera á launum hjá stofnuninni í kosningaferðalagi Norður í landi. Minni á það þegar mér var gefið samband við formann Borgarahreyfingarinnar í gegnum skiptiborð RÚV og launadeildin sagði mér að hann væri í vinnunni á launum hjá ríkisfjölmiðlinum. En sjálfur sagðist forkólfur Borgarahreyfingarinnar vera í kosningaferðalagi fyrir norðan! Hvenær fáið þið þessi asnaþjóð nóg af þessu rugli?

Á launum hjá RÚV í framboðsferð

By admin
fyrir Lydvarpid.is

Birt: March 26, 2009

Á launum hjá RÚV í framboðsferð thumbnail

Formaður Borgarahreyfingarinnar Herbert Sveinbjörnsson er á ferð um landið í kosningabaráttu fyrir Borgarahreyfinguna á launum frá Ríkisútvarpinu.

 

Á launum hjá RÚV í framboðsferð thumbnailFram kom í fréttum í gær að annar forsprakki samtakanna Gunnar Sigurðsson leikstjóri búsettur í Reykjavík leiðir lista Borgarahreyfingarinnar í því kjördæmi sem hefur mest vægi atkvæði á landsvísu.

 

Íslenska þjóðin hefur verið blekkt með aðstoð Ríkisútvarpsins og RÚV sem hafa útvarpað og sjónvarpað fundum þeirra félaga á meðan öðrum er meinaður aðgangur að ríkisjölmiðlunum.

 

Strax á fyrsta fundi Ástþórs Magnússonar með Gunnari Sigurðssyni leikstjóra í lok nóvember 2008 mátti ráða að Gunnar og Herbert stefndu á alþingisframboð.

 

Ekki ólíklegt að það hafi verið ástæðan fyrir því að þeir félagar létu bera Ástþór út af fundi samtakanna í Borgartúni eftir að hann lagði til lýðræðislegar leikreglur, og aftur úr leikhúsinu Iðnó, en Lýðræðishreyfingin hafði þá þegar tilkynnt um væntanlegt framboð til alþingiskosninga.

 

Herbert skellti símanum á Ástþór þegar hringt var í hann um skiptiborð RÚV og honum sagt að þar væri búið að staðfesta að starfsmenn RÚV héldu að hann væri í vinnunni enda á fullum launum.

 

Hlusta á umfjöllun og símtöl hér

Símtalið hér


mbl.is Sölukostnaður RÚV nemur hundruð milljónum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Furðuleg vinnubrögð blaðamannasamtaka

Útvarpsstóra sagt uppVinnubrögð blaðamannasamtaka hafa löngum verið furðuleg og yfirlýsingar þeirra um Íslenska fjölmiðla virðist heimatilbúinn soðningur frá Íslandi sem dansar eftir dyttóttum elítunnar.

Undanfarin ár höfum við fengið yfirlýsingar alþjóðlegra blaðamannasamtaka sem skipuðu Ísland í alþjóðlegt "FYRSTA SÆTI" yfir frjálsa og óháða fjölmiðla. Mér ofbauð svo þessi vitleysa að ég hringdi í þessi samtök og fékk þá það svar frá þeim sem vann skýrsluna, að hann hefði engin svör fengið frá Íslandi við spurningalista sínum svo hann setti bara Ísland í fyrsta sætið!

Á meðan ritstjórar Íslenskra fjölmiðla hafa skrifað leiðara með ádeilum á Rússneskt lýðræði vegna misnotkunar fjölmiðla, hafaumfjollunMBLkosningar2004 á Íslandi farið fram fram forsetakosningar og alþingiskosningar þar sem fjölmiðlar landsins, meira að segja ríkisfjölmiðlar þjóðarinnar hafa verið stórkostlega misnotaðir í aðdraganda kosninga með enn grófari hætti en í Rússlandi. Lýðræðið fótum troðið og duglausum elítum beinlínis troðið þannig inná Bessastaði og Alþingi þar sem þeir/þau halda áfram að traðka á þjóðinni. En þjóðin er svo blinduð af ruglinu úr þessum fjölmiðlum að hún er eins og misnotuð eiginkona og sér ekki vandamálið.

Yfirlýsing norrænna blaðamannasamtaka tekur Morgunblaðið sérstaklega fyrir í yfirlýsingu sinni í dag. En þeir þurfa að skoða víðar. Það er nánast ekki til frjáls og óháður fjölmiðill á Íslandi. Þetta er allt sami drulluköku soðningurinn hvortsem það heitir RÚV, Stöð2, Skrár1, Fréttablaðið, DV eða Morgunblaðið. Allt hefur þetta legið flatt eins og hóra undir mismunandi elítuöngum þessa spillta lands. 

Meðfylgjandi mynd sýnir umfjöllun um frambjóðendur í Íslenskum forsetakosningum. Stóra spjaldið er umfjöllun um sitjandi forseta sem margsinnis var troðið uppá þjóðina með aðstoð fjölmiðla í eigu stuðningsmanna. Litla spjaldið sýnir annan frambjóðenda sem fékk á sama tíma nánast enga málefnalega umfjöllun en var tekinn í gegnum "hakkavélar" DV og annarra fjölmiðla sem elítunni þóknaðist að nota í neikvæðum fréttaflutningi til að draga úr trúverðuleika þess framboðs. Þjóðin féll fyrir blekkingunni og strengjabrúðan á Bessastöðum lagðist flöt eins og töfrateppi undir útrásarvíkinga í uppbyggingu þeirra á alþjóðlegri fjársvikastarfsemi.  


mbl.is Áhyggjur af fjölmiðlum hérlendis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sveltandi þjóð í fangelsi með forgangshraða

mother_and_child_starving_bw1231087217Grátlegt að horfa uppá Íslenskt réttlæti. Smákrimmar, jafnvel sveltandi húsmæður sendar í fangelsi með forgangshraða um dómskerfið fyrir stela kjöthleif úr verslun útrásarvíkinga á meðan milljarðaþjófagengið Finnur&Ólafur úr Framsóknarflokknum, Bakkabræður og tuttugu aðrir hvítflibbar valsa um með þýfið úr bönkunum og flytja eignir úr lögsögunni þvers og kruss um heimsbyggðina á leifturhraða.

Í fréttum dagsins segir einnig frá sjóræningjum í Sómalíu hafa nú stofnað kauphöll um sína glæpastarfsemi. Allir geti fjárfest í sjóránunum og ekki sé þverfótað í bænum þeirra fyrir lúxusjeppum sem teppi alla umferð. Þeir hafa kannski sótt fyrirmyndina hjá Íslensku kauphöllinni þar sem ein stórfelldasta fjársvikastarfsemi heims var stunduð með velþóknun hins spillta Alþingis.

Hvenær ætlar Íslensk þjóð að kasta af sér flokksfjötrunum og kjósa sér nýja leiðtoga?

timinn500p


mbl.is Í fangelsi fyrir að stela nautalundum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Margrét, ekki meir, ekki meir!

margretsosaMargrét Sverrisdóttir ætlar víst að bjóða sig fram í þriðja sinn, þrátt fyrir hraksmánarlega útkomu í fyrri skiptin.  Er ekki hægt að stöðva þessa vitleysu?  Ég hef talið mig lýðræðissinna, en þetta er ekkert grín.  Kosningar eru fokdýrar og skattborgararnir borga brúsann, þeir sömu og hafa þegar hafnað Margréti tvisvar (innskot: eða jafnvel þrisvar fjórum sinnum)!  En Margrét hefur víst gert út á það heima og erlendis að vera ,,frambjóðandi" (sbr. Al Gore), af því að erlendis eru menn í þeirri stöðu yfirleitt málsmetandi.

Ofangreind færsla er endurrit af eigin bloggfærslu Margrétar Sverrisdóttur, með breytingu á nafni frambjóðanda. Upphaflegu færslu Margrétar má lesa hér:
http://margretsverris.blog.is/blog/margretsverris/entry/405818/

Heitir þetta ekki að kasta steinum úr glerhýsi?


mbl.is Margrét Sverris íhugar framboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig thjodarhagur.is tengist Svindlhóp Finns og Ólafs

FinnurOlafurÝmislegt bendir til þess að S-hópur Finns Ingólfssonar og Ólafs Ólafssonar ætli nú að sölsa undir sig Haga, stærstu verslunarkeðju landsins með leppa blekkingum.

Vefsíðan www.thjodarhagur.is er skráð á fjolnet.is sem er í eigu Kaupfélags Skagfirðinga bakvið það félagt er Svindl hópur Ólafs og Finns:  S-hópurinn - Skyld félög (S-hópurinn: Eignarhaldsfélagið Andvaka gt., Eignarhaldsfélagið Samvinnutryggingar, Fiskiðjan Skagfirðingur hf., Kaupfélag Skagfirðinga svf., Ker hf., Samvinnulífeyrissjóðurinn. ). Það ætti síðan ekki að koma mönnum á óvart að kaupfélagsstjórinn er Þórólfur Gíslason sem áður var stjórnarformaður Gift sem S-hópurinn notaði til að hafa 30 milljarða af tugþúsundum tryggingartaka Samvinnutrygginga.

Ólafur og Ólafur hala inn frá KatarSvindl hópur Finns og Ólafs sölsaði undir sig Búnaðarbankann með blekkingum á sínum tíma. Ólafur Ólafsson er líklegast Íslandsmeistari í notkun leppa og sjónhverfingum viðskiptalífsins, og er m.a. nú undir lögreglurannsókn vegna sýndarviðskipta með hlutabréf Kaupthings.

Leikritið sem nú virðist komið í gang er frekar einfalt. Sett er upp vefsíðan www.thjodarhagur.is til að fá almenning til að skrá sig sem örhluthafa. Sett er fram tilboð í nafni örhluthafanna til að kaupa Haga. Kaupthing sem nú ræður Högum gengur að tilboðinu á þeim forsendum að þjóðin sé að kaupa fyrirtækið. Í Framsóknarmennskunni "gleymist" að skýra frá raunverulegum bakhjarl tilboðsins. 99% leppana fá GIFT glýjuna í augun í boði gamla Svindl hópsins meðan strengjabrúður þjófagengisins lauma þýfinu úr gamla Kaupthing aftur í umferð og Bónusmjólka þjóðina.


LiljaKatrin@DV.is í 2ja ára fangelsi - Kæra "Skjalafals"

Spilltir lögmenn

Ræsisdruslan Lilja Katrín Gunnarsdóttir svokallaður "blaðamaður" á DV sorprit.com spúir nú yfir þjóðina enn og aftur einni lygaþvælunni. Full ástæða til að kæra drulluna til Lögreglustjórans í Reykjavík:

14. nóvember 2009.

Lögreglustjórinn í Reykjavík
Hverfisgötu 105
Símbréf 4441015

Efni: Kæra – „Skjalafals“

DV hefur haldið því fram að undirritaður hafi falsað nöfn á framboðslista við síðustu Alþingiskosningar. Í dag er slík grein birt af DV og sögð ein mest lesna grein á vef blaðsins. Þar eru þau ósannindi borin fram fyrir þjóðina að undirritaður hafi falsað nafn Garðars Björgvinssonar á framboðslista við síðustu Alþingiskosningar. Og slegið er enn og betur í með þeim fullyrðingum að undirritaður skuldi Garðari laun Kr. 450,000 vegna meðmælendasöfnunar við umrætt framboð.

Undirritaður hefur aldrei skrifað nöfn annarra en sjálfs síns á framboðslista. Um er að ræða gersamlega tilhæfulausar og ærumeiðandi aðdróttanir. Þess er óskað að Lögreglustjórinn í Reykjavík rannsaki meinta skjalafölsun, t.d. með því að kalla til rithandarsérfræðing, og þeir sem eru að bera ofangreindan rógburð fram fyrir þjóðina sæti refsingu samkvæmt almennum hegningarlögum.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem DV birtir slíkan tilhæfulausan rógburð gegn undirrituðum í blaðinu. DV hefur á undanförnum árum lagt undirritaðan í einelti með sérlega grófum hætti og í tvígang á þessu ári hefur DV sakað undirritaðann um skjalafals. Vísað er til kæru til Lögreglustjórans í Reykjavík frá 23. apríl 2009 og þess óskað að bæði þessi mál verði rannsökuð af lögreglunni.

Ofangreindar greinar DV voru skrifaðar af Lilju Katrínu Gunnarsdóttur. Lilja var upplýst um að áburðurinn á ekki við rök að styðjast áður en greinin var birt. Þar sem um mjög alvarlega og ærumeiðandi aðdróttun er að ræða sem Lilja hefur borið út til þjóðarinnar gegn betri vitund í grein sem á lítið skylt við heiðarlega blaðamennsku, er þess krafist að Lilja Katrín Gunnarsdóttir sæti tveggja ára fangelsi eins og gert er ráð fyrir í almennum hegningarlögum fyrir slíkt brot.

Þess er einnig krafist að ritstjórar DV séu dregnir til ábyrgðar fyrir þátttöku sína í athæfinu, svo og að Sigrún Ármanns Reynisdóttir og Garðar Björgvinsson verði látin sæta ábyrgð.

Virðingarfyllst,
 Ástþór Magnússon

p.s. Meðfylgjandi mynd er af tveimur hvítflibba glæpamönnum sem hafa hagnast á birtingu óþverrra um undirritaðann í DV.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Ritskoðun DV - Fjarlægðu athugasemd - Lágkúrulegasta skolpræsi Íslands

DV hefur fjarlægt athugasemd mína um greinina "Skolp Davíðs" af vef sínum.
Ræsisrotturnar á DV eru ekki einu sinni menn til að viðurkenna eigin
mistök og láta lesendur sína sjá hverslags rugl þeir bera á torg eins
og "stórfréttin" um stefnu gegn mér byggða á upplognum kröfum og sem
hent var úr sölum Héraðsdóms Reykjavíkur í gær. Sjá nánar hér að neðan

Lágkúrulegasta skolpræsi Íslands

Sorpritstjórinn sem lúffaði Sorpritið DV hefur löngum stundað að leggja einstaka menn í einelti. Nú er það sjálfur Forseti Íslands ásamt ritstjóra Morgunblaðsins sem fá að kenna á skolpinu sem vellur uppúr skítapakkinu á DV.

Eftir að útrásarsukkið á Bessastöðum afhjúpaðist fyrir þjóðinni, er forsetinn líklegast ekki lengur sérstaklega viljug strengjabrúða útrásarvíkinga og vill sem minnst af vandamálum þeirra vita. Áhugavert að horfa uppá hvernig þá um leið er gripið til mannorðs morða á sorasíðum DV gegn forsetanum, en DV ræsið hafa Baugs menn notað árum saman til að stinga menn í bakið.

Soralýðurinn á DV er einnig með ritstjóra Morgunblaðsins í sigtinu. Þeim svíður að tilburðir þeirra til að sölsað undir sig Morgunblaðið og breyta því í sorprit urðu að engu. Sorinn úr helkenni DV sem virðist stýrt af geðsjúkum ritstjóra, veltur því upp í ómældu magni yfir landsmenn sem nær daglega spúir óþverra sínum gegn nýskipuðum ritstjóra Morgunblaðsins.

Skítapakkið sem vinnur á sorpritinu DV hefur stundað einelti gegn mér árum saman. Síðasta uppákoma þeirra var "stórfrétt" sem slegin var upp á baksíðu og vef DV fyrr í þessari viku, um stefnu á mig frá hálfbrjáluðum vopnasala sem gerir sig einnig út sem rafeindavirkja.

Nú hélt DV heldur betur að þeir hefðu nú skúbbað en þeir hafa verið iðnir og fljótir til að bera út allt það versta slúður sem þeir þykjast geta dregið uppúr göturæsum borgarinnar frá hinum ýmsu einstaklingum í annarlegu ástandi, m.a. upplognar kröfur sem eiga sér enga stoð.

Í gær föstudag, var stefnu byssuglaða rafeindavirkjans hent úr sölum Héraðsdóms Reykjavíkur enda skulda ég þessum manni eða hans fyrirtæki nákvæmlega ekki neitt!


Lágkúrulegasta skolpræsi Íslands

Sorpritstjórinn sem lúffaðiSorpritið DV hefur löngum stundað að leggja einstaka menn í einelti. Nú er það sjálfur Forseti Íslands ásamt ritstjóra Morgunblaðsins sem fá að kenna á skolpinu sem vellur uppúr skítapakkinu á DV.

Eftir að útrásarsukkið á Bessastöðum afhjúpaðist fyrir þjóðinni, er forsetinn líklegast ekki lengur sérstaklega viljug strengjabrúða útrásarvíkinga og vill sem minnst af vandamálum þeirra vita. Áhugavert að horfa uppá hvernig þá um leið er gripið til mannorðs morða á sorasíðum DV gegn forsetanum, en DV ræsið hafa Baugs menn notað árum saman til að stinga menn í bakið.

Soralýðurinn á DV er einnig með ritstjóra Morgunblaðsins í sigtinu. Þeim svíður að tilburðir þeirra til að sölsað undir sig Morgunblaðið og breyta því í sorprit urðu að engu. Sorinn úr helkenni DV sem virðist stýrt af geðsjúkum ritstjóra, veltur því upp í ómældu magni yfir landsmenn sem nær daglega spúir óþverra sínum gegn nýskipuðum ritstjóra Morgunblaðsins.

Skítapakkið sem vinnur á sorpritinu DV hefur stundað einelti gegn mér árum saman. Síðasta uppákoma þeirra var "stórfrétt" sem slegin var upp á baksíðu og vef DV fyrr í þessari viku, um stefnu á mig frá hálfbrjáluðum vopnasala sem gerir sig einnig út sem rafeindavirkja.

Nú hélt DV heldur betur að þeir hefðu nú skúbbað en þeir hafa verið iðnir og fljótir til að bera út allt það versta slúður sem þeir þykjast geta dregið uppúr göturæsum borgarinnar frá hinum ýmsu einstaklingum í annarlegu ástandi, m.a. upplognar kröfur sem eiga sér enga stoð.

Í gær föstudag, var stefnu byssuglaða rafeindavirkjans hent úr sölum Héraðsdóms Reykjavíkur enda skulda ég þessum manni eða hans fyrirtæki nákvæmlega ekki neitt!


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband