Sveltandi þjóð í fangelsi með forgangshraða

mother_and_child_starving_bw1231087217Grátlegt að horfa uppá Íslenskt réttlæti. Smákrimmar, jafnvel sveltandi húsmæður sendar í fangelsi með forgangshraða um dómskerfið fyrir stela kjöthleif úr verslun útrásarvíkinga á meðan milljarðaþjófagengið Finnur&Ólafur úr Framsóknarflokknum, Bakkabræður og tuttugu aðrir hvítflibbar valsa um með þýfið úr bönkunum og flytja eignir úr lögsögunni þvers og kruss um heimsbyggðina á leifturhraða.

Í fréttum dagsins segir einnig frá sjóræningjum í Sómalíu hafa nú stofnað kauphöll um sína glæpastarfsemi. Allir geti fjárfest í sjóránunum og ekki sé þverfótað í bænum þeirra fyrir lúxusjeppum sem teppi alla umferð. Þeir hafa kannski sótt fyrirmyndina hjá Íslensku kauphöllinni þar sem ein stórfelldasta fjársvikastarfsemi heims var stunduð með velþóknun hins spillta Alþingis.

Hvenær ætlar Íslensk þjóð að kasta af sér flokksfjötrunum og kjósa sér nýja leiðtoga?

timinn500p


mbl.is Í fangelsi fyrir að stela nautalundum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

þetta er auðvitað klikkun og sýnir hvað valdastéttirnar hérna eru geðbilaðar, þetta fólk á að fá skammir og síðan matarmiða eða fjárstuðning til að kaupa sér í matinn en ekki fangelsi!!!!!

Ragnar Örn Eiríksson (IP-tala skráð) 1.12.2009 kl. 21:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband