Færsluflokkur: Dægurmál
5.3.2009 | 02:55
14 ára friðarbarátta
Friður 2000 er 14 ára í dag. Þann 4 mars 1995 var Friður 2000 stofnað í Háskólabíó. Á annað þúsund einstaklingar og félagasamtök stóðu að stofnun félagsins. Þrátt fyrir margvíslegt mótlæti gegn samtökunum sem hafa boðað nýja hugmyndafræði í friðarmálum, sem því miður hafa enn ekki átt upp á pallborðið hjá "stjórnmálaskörungum" þessa lands, þá hefur ýmsu verið áorkað:
1995 Flogið með hjálpargögn og jólapakka með kveðjum frá Íslenskum börnum fórnarlamba Chernobyl og stríðhrjáðra barna í Sarajevo. Hugmyndin verður öðrum hvatning og bílalestir með hjálpargögn og slíka jólapakka berast næstu árin til Chernobyl og á stríðshrjáð svæði með bílalestum frá ýmsum stöðum.
1996 Bókinni "Virkjum Bessastaði dreift á öll heimili landsins. Skorað á frambjóðendur að taka upp friðarmálin. Þegar enginn þeirra bregst við áskoruninni lýsir Ástþór sjálfur yfir framboði og notar síðan beinar sjónvarpsútsendingar til að fá Ólaf Ragnar Grímsson til að gefa kjósendum loforð um að beita embættinu í friðarmálum verði hann kjörinn. Forsetinn sveik kosningaloforðið í 12 ár. Í aðdraganda kosninga tók Ástþór við Gandhi mannúðarverðlaunum og afhenti Clinton bandaríkjaforseta eintak af Virkjum Bessastaði.
1997 Ástþór skorar á heimsbyggðina frá Baghdad að mótmæla fyrirhugaðri árás á Írak. Ástþóri tókst að koma skilaboðunum í gegnum CNN, ABC, CBS og nær alla heimspressuna í 5 daga samfleitt og margsinnis sem aðalfrétt og forsíðufrétt í erlendum stórblöðum! 1998 er Ástþór sæmdur Heilögum Krossi Grísku Réttrúnaðarkirkunnar að útnefningu UNESCO eftir að Clinton hætti við innrásina í kjölfar mikilla mótmæla.
2002 Ráðamenn vilja að Icelandair flytji vopn og hermenn fyrir Bush í Írakstríð. Ástþór sendir út viðvörun um hættulegt óðagot sem geti dregið Íslensk flugfélög inní hryðjuverkastríð. Þá fangelsaður en sýknaður af Hæstarétti. Hætt við að nota Icelandair flugvélar til vopnaflutninga.
2006 Vilhjálmur Vilhjálmsson borgarstjóri stofnar Friðarstofnun Reykjavíkur. (Ástþór kynnti slíka hugmynd fyrir borgarstjóra árið 1995)
2007 Árni Sigfússon bæjarstjóri Reykjanesbæjar undirritar samning um stofnun alþjóðlegs háskóla á Keflavíkurflugvelli er starfi að friðarmálum, kenni alþjóða- og öryggismál. (Ástþór kynnti hugmyndir að friðarháskóla á Íslandi árið 1997 eftir að fá stuðning við hugmyndina hjá fjölda fræðimanna erlendis, síðan í forsetaframboði 2004 og 2006 sendi bæjarstjóranum tillögu að slíkri starfsemi á Keflavíkurflugvelli).
2007 - Yogo Ono kom frá New York með friðarsúlu til Viðey (Ástþór kynnti Ísland sem land friðar á fjölda fyrirlestra í New York, Tokyo og víðar m.a. hjá Sameinuðu Þjóðunum í New York og í hjá friðarháskóla S.Þ. Costa Rica yfir 9 ára tímabil 1995-2004).
2008 Stjórnvöld samþykkja beiðni Palestínumanna um friðarfund á Íslandi og Forseti Íslands handsalar samkomulagið á Bessastöðum. Ástþór kynnti þessar hugmyndir í Palestínu og Ísrael árið 2001 og aftur fyrir nánum samstarfsmönnum Yasser Arafat árið 2004.
Nánar á www.forsetakosningar.is - www.peace2000.org - www.althing.org
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 03:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
18.2.2009 | 22:13
Þráinn Bertelsson boðinn velkominn í Lýðræðishreyfinguna
Þitt atkvæði á þing!
Kjóstu þína eigin persónu á þing!
Flestir láta ekki pabba gamla ráða vali á maka. Slíkt er jafn úrelt fyrirbæri og fulltrúalýðræðið. Hvers vegna eiga aðrir að fara með þitt atkvæði á Alþingi þegar komin er tækni fyrir milliliðalaust lýðræði.
Beint og milliliðalaust lýðræði
Fáist til þess nægur stuðningur breytum við stjórnarskránni og færum þér kosningarétt á Alþingi. Óskir þú að greiða atkvæði um einstök mál á Alþingi er næsti hraðbanki þinn kjörklefi!
Einstaklingsframboð í stað úrelt flokkakerfis
Við súpum nú seyðið af spilltum flokkadráttum og ráðherraræði. Lýðræðishreyfingin mun aðstoða 126 einstaklingsframboð og moka út spillingunni með beinu og milliliðalausu lýðræði.
Stefnuskrá Lýðræðishreyfingarinnar
Hér getur þú tilfnefnd frambjóðendur eða skráð ósk um framboð á lista Lýðræðishreyfingarinnar:
Tilnefndu frambjóðendur
Hér má lesa meira um spillinguna í Framsóknarflokknum:
// Opnið augun fyrir þessum blekkingarleik... | Birt 21.1.09 23:16 | |
// Bankaræningjann Ólaf Ólafsson í gæsluvarðhald og eignafrystingu STRAX!!! | Birt 20.1.09 0:22 | |
| ||
// Framsóknarfundurinn: Lýðræðissinnar eru vitleysingar - Taka ekki tilsögn | Birt 8.1.09 19:35 | |
// Burt með skrílinn | Birt 7.1.09 18:38 | |
// Ekkert breytist í spilltasta greni landsins | Birt 6.1.09 23:53 | |
// Var flokkeigendafélagið á staðnum? | Birt 6.1.09 22:22 | |
// Getum við fengið nöfnin? | Birt 29.12.08 19:36 | |
// Bréfið til Geir sem Mogginn neitaði að birta | Birt 29.12.08 16:56 | |
// Spilltasta greini landsins | Birt 22.12.08 1:18 | |
// Jónína Ben og Framsóknarflokkurinn | Birt 21.12.08 17:00 | |
// Úr öskunni í eld kommúnista | Birt 13.12.08 18:43 | |
// Spilltasta greni landsins |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.1.2009 | 13:45
Bráðfyndin hugleiðing um Harðar Torfa "Raddir fólksins"
Magnús Þór bloggaði þetta bráðfyndna myndskeið af YouTube og þjóðfélagsádeilu um Raddir fólksins.
Hvort á ég að gráta eða hlægja yfir æðibunugangi Harðar Torfasona og yfirlýsingu í fréttum þar sem hann segir að mótmæli annarra en hans eigin séu ólögleg! Ólögleg??? Maðurinn sem stendur fyrir því að mótmælendur ryðjast inní stofnanir, varna ráðherrum inngöngu á Alþingi og sem lýsir því yfir á RÚV að hann ætli að trufla fund Alþingis n.k. þriðjudag, segir aðra sem vilja leggja orð í belg lögbrjóta.
Hörður bíður ekki einu sinni eftir því að hafa tekið yfir Alþingi með nýjum kommaflokki sínum, Hörður hefur tekið sér alræðisvaldið strax í dag!
Það hljóta fleiri en ég að sjá hverslag aðför þetta er að tjáningarfrelsinu. Viljum við slíkan sovét-fasisma eins og vinnubrögð Harðar í stað þess skríplega ráðherraræðis sem nú tröllríður hér húsum?
Ég verð einnig að hryggja Hörð Torfason með því að hann fer með rangt mál að ég sé ræðumaður á Austurvelli í dag. Ég bíð enn eftir svarinu frá Herði við bréfi mínu, vonandi fæ ég að taka um hljóðnema "Radda fólksins" á næstunni.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
17.1.2009 | 01:41
Hörður svaraði ekki! Vill úr alræði ráðherravalds í alræði kommúnista
Sorglegt, en Hörður Torfason svaraði ekki bréfinu sem ég sendi honum um tjáningarfrelsi á Austurvelli. Ekkert lýðræði á Austurvelli ef Hörður fær að ráða. Enginn má þar tala nema einráðurinn Hörður samþykki. Einvaldurinn svarar hvorki bréfum né símtölu frá fólki sem er honum ekki þóknanlegt.
Einn ágætur kunningi minn segir Hörð hafa sagt í byrjun desember að hann væri nr. 50 á biðlista frummælenda á Austurvelli og haft yrði samband við hann. Enginn hefur hringt þótt troðið sé upp sama fólkinu fund eftir fund. Í dag þegar þessi ágæti og mælski maður hafði samband skellti Hörður Torfason á hann símanum!
Í Speglinum á Rás1 hjá Ríkisútvarpinu fimmtudagskvöld sagðist Hörður stefna á flokksframboð ásamt Einari Má Guðmundssyni rithöfundi og ritstjóra NEI sem þeir kynna sem kommúnískt dagblað á netinu.
Þarna er líklegast komin skýringin á því að enginn má koma í ræðustól svokallaðra "Radda fólksins" á Austurvelli nema kommúnistar og aðrir sem sverja sovét-fasistum hollustu. Þessvegna eru jólasveinar og aðrir lýðræðissinnar sem sjá í gegnum blekkingarvefinn bornir út af fundum þeirra.
Lýðræðissinnar láta auðvitað ekkert bjóða sér svona rugl til lengdar. Að óprúttnir aðilar nýti sér örbyrgð fólksins í landinu til að blekkja það í klær kommúnista. Það eru ekki "Raddir fólksins" að þagga niður í fólki og hefta tjáningarfrelsið. Við viljum ekki slíka kúgun í stað ráðherraræðis.
11.1.2009 | Opið bréf til Harðar Torfasonar
Mótmælin halda áfram | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
15.1.2009 | 16:10
Fékk ritrottan vitrun?
Erum við komin á flug inní bjartari tíma? Hefur peningahrunið orsakað hrun óþverralúsa af gyltunni? Gæti verið að sorpritstjórar og ritrottur fái nú slíkrar vitranir að skítlegt eðli sé á flótta úr fjölmiðlaflórhaug Baugs?
Ég rak upp stór augu þegar ég las þetta í leiðara DV í dag: "Íslenskt samfélag er á barmi siðrofs þar sem allt er að verða leyfilegt í nafni málstaðarins. Sjálfsagt þykir að nafnlausir einstaklingar fjalli með subbulegum hætti um nafnkennt fólk inni á vefsíðum sem gefnar eru út fyrir að vera siðvæddar. Ótal dæmi eru um beinan óhróður þar sem nafnleysingjar láta vaða á súðum og bera nafngreint fólk sökum. Einelti þykir sjálfsagt. Og ákveðnir aðilar eru tilbúnir til þess að hýsa ófögnuðinn og veita honum farveg undir því yfirskyni að nauðsynlegt sé að fá allt fram í dagsljósið. Þetta er dæmi um siðrof sem orðið er að veruleika."
Hvað þýðir þetta? Að Reyni Traustasyni sé það ekki lengur "heiður" að birta um mig upplognar lygasakir og ærumeiðingar í DV eins og hann sagði við mig í símtali nokkru fyrir jól.
Ég reyndar lagði til að athugandi væri fyrir hina myrkvu sál sorpritstjórans á DV að setjast á guðfræðibekk við hlið fyrrum samstarfsmanns á 365, Steingríms Snævarr, og í auðmýkt biðja um fyrirgefningu og aðstoð við að hreinsa út skítlegt eðlið.
Gæti verið að Reynir hafi þegar snúist til betri vegar, eða er hann bara að bulla í leiðara DV eins og venjulega? Ef satt og rétt, Reynir sé orðinn betri og bjartari sál, hversvegna hefur hann ekki fjarlægt lygarnar og óhróðurinn um mig á DV-malefnin.com og beðist afsökunar?
Reynir ætlar nú að gerast talrotta á Útvarpi sögu í slagtogi við Eirík Jónsson aðra þekkta ritrottu af DV. Þeir reyna nú að fá sér geislabauga með þeim Hreinsgerningum að gefa ágóðann til góðgerðarmála. En hvernig virkar þetta? Mér skilst að allir fjölmiðlarnir séu reknir með tapi, sé vonlaus bísness. Fær þá Rauði Krossinn tapið eftir að þeir félagar hafa tekið launin sín úr söfnunarbauknum?
Mér finnst að þeir félagar, strengjabrúðurnar í rottubúrinu, eigi að upplýsa í fyrsta þættinum hver það var sem kippti í spottana á Reyni Traustasyni. Þjóðin krefst þess. Allt annað bull er siðrof!
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
14.1.2009 | 14:37
Útvarp Saga kl. 16 í dag. Sverrir Stormsker með áhugaverðan þátt um mótmælendur og fleira
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.1.2009 | 22:36
Berið Steingrím J og stjórnarandstöðuna úr Alþingshúsinu
Það vantaði í ræðu Róberts Wade þá tillögu að stjórnarandstaðan hætti að róa á galeiðunni undir svipuhöggum ríkisstjórnar sem Róbert segir muni sigla þjóðarskútunni í strand á næstu vikum.
Stjórnarandstaðan hefur engin völd. Ekkert er hlustað á hana á þinginu. Hún áorkar engu. Engin verðmæti munu tapast yfirgefi stjórnarandstaðan sæti sín á Alþingi. Hinsvegar myndu þannig sparast milljónir króna í launagreiðslur frá þjóðinni til ónýtra vindhana og kommalúðra.
Yfirgefi stjórnarandstaðan þingið yrði það heimsfrétt. Erfitt fyrir ríkisstjórn að sitja áfram á slíku þingi því þing án stjórnarandstöðu myndi á augabragði afhjúpa séríslenska ráðherraræðið sem einhverskonar einræðistilburði í augum heimsins. Stjórnvöld myndu endanlega missa alla tiltrú og hitna svo undir ráðherrastólum að ekki yrði í þeim vært stundinni lengur.
Þessi aðgerð myndi einnig afhjúpa hvort stjórnarandstaðan er eitthvað betri. Hvort þeir sem þarna sitja fyrir Vinstri Græna eða aðra flokka eru þar af hugsjón eða sem áskrifendur að þægilegu launaumslagi.
Verði stjórnarandstaðan ekki við tilmælum mótmælenda að yfirgefa samkvæmið í Alþingishúsinu gætu beinar aðgerðir beinst að því að bera Steingrím J. úr Alþingishúsinu. Mótmælendur eru búnir að þaulæfa slíkar aðgerðir á "Lokuðum borgarafundi" og munar ekkert um að bera út annan jólasvein.
4.1.2009 | Höfnum spilltum pakkaferðum alþingismanna
8.1.2009 | Kommúnistar báru jólasveininn út af Opnum borgarafundi
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
13.1.2009 | 14:39
Verið er að brjóta lög og reglur um Ríkisútvarpið nema öðrum sjónarmiðum sé einnig veittur sambærilegur aðgangur
Ég hef í dag sent eftirfarandi bréf til Páls Magnússonar útvarpsstjóra og afrit til fleiri stofnana (sjá neðst í bréfinu):
ÍTREKUN: Beiðni um útsendingartíma í Ríkisútvarpinu
Í erindum mínum til útvarpsstjóra í byrjun desember rakti ég nauðsyn þess að RÚV standi vörð um lýðræðið og lögboðnar skyldur Ríkisútvarpsins í því sambandi. Ég vakti athygli á því að mér og fleirum hefur verið meinaður aðgangur að mótmælum sem RÚV hefur útvarpað eða sjónvarpað frá Austurvelli svo og hef ég verið borinn út af fundi samtakanna Opinn borgarafundur sem RÚV ráðgerir að sjónvarpa frá á morgun.
Í ljósi þess hvernig staðið hefur verið að Opnum borgarafundi og fundum á Austurvelli er verið er að brjóta lög og reglur um Ríkisútvarpið nema öðrum sjónarmiðum sé einnig veittur sambærilegur aðgangur í útsendingar RÚV. Ég lagði til í fyrra erindi að reynt yrði að ná samkomulagi um endurskipulagningu á ferli við val frummælenda á mótmæla- og borgarafundum til að jafnræðisreglu sé gætt. Hinsvegar virðist ekki mikill vilji til þess ef marka má uppákomuna á Opnum borgarafundi er jólasveinninn var borinn út af fundi samtakanna í Iðnó í viðurvist fjölmiðla. Þetta staðfestir auðvitað um leið það sem áður gerðist á skipulagsfundi sömu samtaka og undirstrikar að þessir fundir eru í raun hluti af leikstýrðum pólitískum blekkingarvef sem RÚV er óheimilt að útvarpa eða sjónvarpa nema öðrum sé veittur sambærilegur aðgangur að Ríkisútvarpinu fyrir sín sjónarmið.
Lýðræðishreyfingin ítrekar hér með ósk sína um aðgang að útsendingartímum RÚV. Beiðnin er byggð á grundvelli gildandi laga að Ríkisútvarpinu ohf beri að halda í heiðri lýðræðislegar grundvallarreglur og mannréttindi og frelsi til orðs og skoðana. Ríkisútvarpinu beri að gæta fyllstu óhlutdrægni í frásögn, túlkun og dagskrárgerð og að veita víðtæka, áreiðanlega, almenna og hlutlæga fréttaþjónustu um innlend og erlend málefni líðandi stundar og vera vettvangur fyrir mismunandi skoðanir á málum sem efst eru á baugi hverju sinni eða almenning varða.
Við teljum að frjálslega hafi verið farið með ofangreindar skyldur hjá Ríkisútvarpinu á undanförnum mánuðum og árum og ekki verið gætt fyllstu óhlutdrægni í frásögn, túlkun og dagskrárgerð. Minnum á fleiri kvartanir til fréttastofu Ríkisútvarpsins, kærur til Útvarpsréttarnefndar svo og til Öryggis og samvinnustofnunar Evrópu, svo og ummæli Dr. Dietrich Fischer eins viðmælanda RÚV í aðdraganda forsetakosninga hér árið 2004 og svar utanríkisráðuneytis til OECD: The Icelandic Broadcasting Service shall respect fundamental democratic rules, human rights and freedom of expressiona and opinion. Ofangreind vandamál virðast ekki leyst því aftur var kvartað yfir fréttastofu 4.12.2008.
Lýðræðishreyfingin vill aðstoða Ríkisútvarpið að leysa úr ofangreindu vandamáli með því að standa fyrir þverpólitískum fréttaskýringaþætti. Umræðuþætti sem opin verður öllum sjónarmiðum og þeim sem óska að koma þar á framfæri athugasemdum við fréttir. Lýðræðishreyfingin er tilbúin að leggja til þáttagerðina Ríkisútvarpinu að kostnaðarlausu, annaðhvort með því að leggja til þáttagerðar og tæknifólk til að sjá um útsendinguna frá útvarpshúsinu, eða leggja til straum um dagskrárgerðarlínu frá okkar eigin tæknisetri.
Slíkur fréttaskýringaþáttur þarf að vera samofinn fréttum Ríkisútvarpsins. Slíkt er aðeins hægt ef útsending fréttaskýringanna er aðgengileg á sama stað og á sömu útsendingarás, og er útvarpað strax og lestri frétta er lokið. Ekki er hægt að ná fram þessum markmiðum og gerast þannig útvörður lýðræðis í landinu nema þá annaðhvort að endurvarpa fréttum Ríkisútvarpsins sem hluta af slíkum þætti eða fá inni á úrvarpsrás Ríkisútvarpsins með útsendinguna og fréttaskýringarnar. Þessvegna er þess óskað að Ríkisútvarpið víkji seinni útsendingu á þættinum Poppland til hliðar á Rás2 kl. 12:45 14:00 og sendi út í staðin ofangreindan fréttaskýringaþátt enda markmið þáttarins og hvernig að honum verður staðið í samræmi við þau grundvallar markmið er skilgreind er í lögum um Ríkisútvarpið.
Í ljósi þess ástands sem hefur skapast í þjóðfélaginu að undanförnu í kjölfar bankahruns, er brýn þörf að nota Ríkisútvarpið til að slá á þá reiði sem hér er að skapast með því að veita breiðan aðgang og öllum sjónarmiðum sé gert jafnt undir höfði með óhlutdrægum og lýðræðislegum hætti. Slíkt er tilgangur og markmið ofangreinds fréttaskýringaþáttar.
Óskað er svars og fundar um ofangreint mál við útvarpsstjóra um þetta mál innan 7 daga
Virðingarfyllst,
Lýðræðishreyfingin
Undirritað af Ástþór Magnússon Sími 4962002 Netfang: thor@lydveldi.is
Afrit send til: Útvarpsréttarnefnd, Menntamálaráðherra, Menntamálanefnd Alþingis, Íslandsdeild þings Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu, OECD, alþjóðaskrifstofa Öryggis- og samvinnustofnar Evrópu París, Alþingismönnum
Sjá einnig: Opið bréf til Harðar Torfasonar
Áhugaverður útvarpsþáttur um Opinn borgarafund og jólasveininn
4.12.2008 | Borinn út af borgarafundi. Þjóðin blekkt með leikstýringu.
3.1.2009 | Kommúnískum áróðri troðið í 8 ára barn
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)