Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
30.12.2008 | 12:50
Forseti segist ekki fela myndir, en hvar má finna útrás forsetans?
Gef lítið fyrir yfirlýsingu embættis forseta Íslands að þeir hafi ekki falið útrásina. Sný ekki aftur með það að myndir af forsetanum með útrásarvíkingum og útrásarræðurnar hefur verið VEL FALIÐ á vefnum forseti.is!
Nokkrum bloggurum hefur tekist að finna með djúpleitartækinu "Google" myndir af afhendingu Útflutningsverðlauna 2008. En vægast sagt er linkurinn á þær myndir vel hulinn á síðu forstans.
Ég lýsi eftir fleiri myndum af forsetanum og starfsemi embættisins með útrásarvíkingum. Einnig af Dorrit, hvar er t.d. myndina af henni í dansinum með Jón Ásgeiri sem birtist í einhverjum fjölmiðlinum á dögunum. Ég get með engu móti fundið þessar myndir á vef forsetans. Ég hef reynt"Google" en finn þetta ekki. Mér finnst ég eigi ekki að þurfa að fara í sérstaka köfunarleiðangra með djúpleitartækinu til að finna myndir og ræður við þá atburði sem forseti Íslands hefur hvað mest eytt tíma sínum í undanfarin ár.
Hvar er útrásrarræðusafn forsetans? Ég get ómögulega fundið þetta heldur og hef þó eytt töluverðum tíma á forseti.is. Þessar ræður er ekki hægt að finna saman með öðrum þeim ræðum sem forsetinn birtir á vef sínum. Hversvegna er þetta og hvar má lesa þessar ræður?
Skora á ykkur lesendur góðir að aðstoða við þessa leit að myndum af útrás forsetans og ræðunum hans. Setjum þetta á einhvern góðan stað hér á netinu svo þetta verði aðgengilegt í framtíðinni.
30.12.2008 | 05:27
Forseti Íslands felur slóðina
Á vefnum forseti.is er nú nánast útilokað, nema með einhverri djúpleitartækni, að finna myndir af atburðum tengdum útrásarvíkingum eða ræður forsetans við þau tilefni. Efnið virðist annaðhvort hafa verið fjarlægt eða linkar á það faldir.
Smellið á myndina til vinstri sem sýnir: http://forseti.is/Forsida/Myndasafn/Atburdir en þar finnast ekki lengur linkar á t.d. myndir frá afhendingu Útflutningsverðlauna forseta Íslands til Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. Þess í stað er fólki sýnd mynd af forsetanum með fólki í hjólastólum og engir linkar á aðra atburði, eins og útrásina, sem þó var meira áberandi í starfi forsetans.
Myndirnir af Jón Ágeiri og forsetanum geta aðeins þeir augum litið sem vita nákvæmlega hvar eigi að kafa undir yfirborðið: http://forseti.is/Forsida/Myndasafn/Atburdir/Utflutningsverdlaun2008/ - Linkar á síðuna hafa verið fjarlægðir og myndirnar faldar öðrum en þeim sem kunna djúpleit á vefnum.
Ljóst er að vef forseta Íslands hefur verið breytt að undanförnu með svipuðum hætti og Bók um forseta sem var breytt eftir að bókin var komin í prentsmiðju þegar hagkerfið hrundi. Menn tala um að 60 síður hafi horfið úr bókinni. Það virðist orðið mikið feimnismál fyrir Ólaf Ragnar Grímsson að sjást á ljósmyndum með útrásarvíkingum eða hafa flutt hvetjandi ræður fyrir útrásina. Slíkt efni virðist annaðhvort horfið eða slóðirnar faldar (linkarnir) frá þeim sem fara inná heimasíðu forsetans.
Slóðin á afhendingu Útflutningsverðlauna skaut upp í athugasemd við frétt um þetta mál á eyjan.is eftir að ég vakti athygli á þessu máli í fyrri grein minni. Ég fann ekki þessa slóð þegar ég skrifaði fyrri greinina þótt ég hafi eytt meira en klukkutíma á vef forsetans í að leita að þessu. Hvort forsetinn keyrði í Loftsköstum á skrifstofuna til að smella linknum aftur inná síðu sína veit ég ekki. Hinsvegar líkist þetta því sem gárungarnir á sorprit.com kalla "Hreinsgerningar" og þar sagt að Íslandsmeistari í sjónhverfingum viðskiptalífsins kenni þau fræði í Grísaskólanum við Höfðabakka.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 05:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
29.12.2008 | 23:11
Hreinsgerningar á Bessastöðum
Nú standa yfir miklar Hreinsgerningar á Bessastöðum. Tætararnir í fullum gangi, engu líkara en forsetinn sé nú á kafi í sögufölsun og að undirbúa flótta sinn til Afríku.
Búið er að fjarlægja flestar ljósmyndir úr boðum, veislum og móttökum á Bessastöðum af vef forsetans. Þar trónar nú auð myndasíða undir linknum Heimsóknir
Á vef forsetans finnast ekki lengur myndir af útrásarvíkingum og engar myndir frá afhendingu útflutningsverðlauna forseta Íslands. Allar útrásarræðurnar eru einnig horfnar af vef forsetans!
Ljósmyndir fyrir milljónir króna farnar í tætarann? Fréttir herma að forsetinn hafi borgað 1,6 milljón fyrir þessar myndir á fyrstu 10 mánuðum ársins.
Ég fann að vísu eina mynd, en á ensku útgáfu vefs forsetans, líklegast hefur hún gleymst þarna, því hún virðist ekki aðgengileg nema eftir krókaleiðum. Það er myndin af prins Hinrik á milli Jóns Ásgeirs Jóhannessonar Baugskóngs og demantsdrottningarinnar með steinhjartað einnig er sögð laumufjárfestir í Baugsfyrirtækinu Mosaik Fashions, frúin Dorrit sem stendur þarna á myndinni við hlið forsetans.
Mér datt ekki í hug þegar ég stakk uppá Mugabe sem varaforsetaefni með Ólafi, að dæmið myndi snúast þannig að Ólafur flytti í forsetahöllina hjá afríkumanninum. Ég hélt það yrði öfugt.
P.S. Orðið "Hreinsgerningar" er nýtt orð sem ég sá á sorprit.com Þar segir að þýðingin á orðinu sé "Dirty Business" og það tengist fjármálaleikfimi og sjónhverfingum sem kennt sé í Grísaskólanum Höfðabakka. Nánar á sorprit.com
![]() |
Flytja út bændur til Afríku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 30.12.2008 kl. 00:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.12.2008 | 19:36
Getum við fengið nöfnin?
Þetta var náttúrlega í fínu lagi eins og annað hjá Framsóknarbankanum. Væri ekki rétt að þeir birti lista yfir millifærslurnar, hverjir voru samningsaðilarnir og hvert peningarnir voru sendir. Bankaleynd ætti ekki að þurfa við slíkar löglegar og afskaplega eðlilegar færslur eins og hér um ræðir.
Voru þetta innlendir eða erlendir aðilar? Voru þetta aðilar sem tengdust Framsóknarflokknum eða öðrum stjórnmálaflokkum hér á landi? Tengdust þeir hluthöfum bankans eða stjórnendum? Hvert voru peningarnir sendir, utan Evrópulögsögu? Það eru fjölmargar spurningar sem þyrfti að svara til að almenningur geti sætt sig við Hreinsþvottinn á þessu hjá þeim félögum í spilltasta greni landsins.
Sjá nánar þessa grein: Hversvegna ekki í gæsluvarðhaldi?
P.S. Orðið "Hreinsþvottur" er nýtt orð sem ég sá á sorprit.com Þar á síðunni sorprit.com segir að þýðingin á þessu orði sé "Dirty Business" og þetta tengist fjármálaleikfimi sem kennd sé við Grísaskólann Höfðabakka.
![]() |
Engar ólögmætar færslur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.12.2008 | 16:56
Bréfið til Geir sem Mogginn neitaði að birta
Hér er bréf sem ég sendi til Geir Haarde 22. október s.l. og Morgunblaðið neitaði að birta:
Hr. Forsætisráðherra, nú er nóg komið!
Þinn tími er kominn Geir. Kominn tími á þig að fara frá völdum og víkja til hliðar áður en þú veldur Sjálfstæðisflokknum og Íslensku þjóðinni meiri skaða en þegar er orðið.
Ráðning pólitísks bankastjóra án undangenginna auglýsinga á tvöföldum ráðherralaunum hlýtur að vera dropinn sem fyllir mælinn hjá þjóðinni.
Óhugnarlegt er að horfa uppá hvernig þið hreinlega kunnið ekki að skammast ykkar. Orð þín eru gersamlega marklaus. Innihaldslaust froðusnakk af leiksviði Iðnó til að blekkja þjóðina. Er ráðning bankastjórans á ofurlaunum dæmi um að snúa bökum saman?
Hefði ekki verið nær að setja þak á laun opinberra starfsmanna í þeim hamförum sem nú dynja yfir okkur og lækka þá hæstlaunuðu? Hvað er það sem réttlætir hærri laun en almennt tíðkast á Íslandi til þeirra fallista sem nú stjórna landinu?
Atvinnurekstur landsmanna er að stórum hluta að stöðvast af völdum þeirra fjárglæframanna sem þið félagar í forystu Sjálfstæðisflokks og Framsóknar lyftuð í hæstu hæðir á síðasta áratug og færðuð þjóðargullið á silfurfötum nánast án endurgjalds.
Ég byrjaði að vara þjóðina við ykkur strax í aðdraganda forsetakosninga árið 1996 þegar þið voruð að gefa milljarða úr sameign þjóðarinnar til óprúttinna braskara sem hurfu með peningana úr sjávarútvegi og jafnvel til útlanda.
Síðan var haldið áfram og fjármálastofnanir einkavæddar með innistæðulausum keðjubréfum flokksvina á meðan þú drottnaðir yfir Fjármálaráðuneytinu í eigin persónu. Og nú þykist þú ætla að leiða rannsóknir á eigin misgjörðum.
Ég hef áður bent á Stjórnarráðið í fjölmiðlum og þá landráðamenn sem þar hafa setið undanfarin áratug. Ég kallaði eftir flengingu Davíðs á Lækjartorgi. Nú er þjóðin einnig farin að sjá í gegnum ykkar spuna. Kannski ætti að flengja ykkur báða á Lækjartorgi.
Á sama tíma og þitt teymi ræður bankastjóra úr einum nánast gjaldþrota banka í annan gjaldþrota banka á ofurlaunum sem eru í engu samræmi við stöðuna, ráðskist þið með eignir þessara félaga algerlega án óhlutdrægrar skoðunar eða eftirlits. Nánast eins og bankaræningjar ráðnir í lögregluna að rannsaka eigin misferli. Þá er ætlast til að við almennir ríkisborgarar og Íslensk fyrirtæki bíðum eftir okkar peningum sem ekki fást greiddir úr sömu gjaldþrota bönkum. Ég læt ekki bjóða mér svona rugl.
Ég hef í dag sent þér reikning uppá Kr. 419,583 sem eru dagvextir á þær 30 milljónir sem átti að leggja inná reikning míns fyrirtækis á Íslandi, frá einum af þínum gjaldþrota bönkum þann 3 október s.l. Miðast við 26,5% taxta sem Seðlabanki Íslands auglýsir á vefsíðu sinni í dag. Úr því að þið teljið ykkur geta greitt tæp 100 þúsund fyrir hvern vinnudag til nýja bankastjórans, ætti þér að vera leikur einn að greiða örlitla dráttarvexti á okkar peninga, fjármuni sem því miður voru látnir liggja í bankanum óhreyfðir eftir þínum ófyrirleitnu og fölsku tilmælum til þjóðarinnar vikurnar fyrir þrot.
Ég vona að þú sjáir sóma þinn í að biðjast lausnar fyrir þína ríkisstjórn án tafar. Forsendur þíns pólitíska umboðs eru brosnar, þín kosningaloforð fallin og gjaldþrota. Haldir þú áfram að spila með fjármuni okkar ertu engu skárri en aðrir Íslenskir Ponzi-Scheme fjárglæframenn sem nú þegar eru komnir á terror listann hjá Bresku krúnunni. Áframhald á þessu skipar ríkisstjórn þinni í sess með alræmdum lýðræðis-glæponum eins og afríkumanninum Mugabe.
Hvað varðar þrátíu milljón króna kröfu mína og dráttarvexti, áskil ég mér allan rétt til að mæta á þitt heimili og innheimta skuldina hjá þér persónulega fáist hún ekki greidd án tafar, og sitjir þú áfram á valdastól eftir daginn í dag. Ég er þess fullviss að fjöldi annarra kröfuhafa verða meira en tilbúnir að slást í þá för með mér veljir þú þann kostinn að drottna áfram með valdnýðslu yfir gjaldþrota búinu í trássi við velsæmi, lög og rétt. Með slíku hátterni hlýtur þú að verða persónulega ábyrgur gagnvart kröfum í búið.
Virðingarfyllst
Ástþór Magnússon
![]() |
Kviknakinn Geir og gullspilið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.12.2008 | 12:50
Hversvegna ekki í gæsluvarðhaldi?
Við vitum hverjir bera ábyrgðina á Kaupþing sukkinu. Þegar uppræta þarf spillingu þarf að uppræta haus mafíunnar.
Kaupþing svindlið var hugarsmíð Finns Ingólfssonar og Ólafs Ólafssonar. Þeir eru tvíhöfðinn á þessari mafíu. Hversvegna eru ekki þessir menn sóttir?
Þessi kattargangur í kringum heitan graut er að verða hlægilegur. Skiptum um menn hjá Ríkislögreglustjóra, Fjármálaeftirliti, öllum þessum stofnunum. Út með þetta spillingarpakk, þessar strengjabrúður sem kunna ekki annað en mafíósadans Íslenskrar pólítíkur.
Þegar pólitíska mafían vildi mig burt, tók það Ríkislögreglustjórann innan við 4 klukkustundir að sækja mig í gæsluvarðhald. Fyrir engar sakir. Það eitt að ég deildi á pólitíska skúrka. En landráðamenn eru látnir ganga lausir og komast upp með að stela hér öllu steini léttara.
![]() |
Gátu ekki tapað á samningunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
29.12.2008 | 12:27
Misnotkun fjölmiðla og Hreinsgerningar
Ofaná hörmungarnar sem dundu yfir okkur á árinu við útrás Jóns Ásgeirs og félaga með Íslenskar bankainnistæður og Glitnis sjóði í "ponsí" hringdansa og handónýt hlutabréf, eru síðustu dagar Morgunblaðsins á árinu notaðir undir "Hreinsgerningar" með forsíðuáróðri og tveggja síðna grein í blaðinu.
Ég minnist forsetakosninga fyrir rúmum fjórum árum þegar þetta sama blað, Morgunblaðið, notaði um 25 síður til að kynna stefnumál og framboð sitjandi forseta, frambjóðanda sem fór fram með stuðningi Baugs veldis Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, en veitti mér 10x10cm frímerkispláss á lélegri siðu inní blaðinu til þess sama. Ritstjórnin ritaði um leið leiðara þar sem deilt var á slíka mismunun fjölmiðla í Rússlandi, með steinum úr glerhýsi Morgunblaðsins var það kallað aðför að lýðræðinu. Hver er nú skrumskælingin enda var útkoma forsetakosninganna sem efnt var til hér á Íslandi árið 2004 að sovéskri fyrirmynd í fullu samræmi við þá nauðgun á lýðræðinu og skrumskælingu tjáningarfrelsis sem átti sér stað í Morgunblaðinu og öðrum fjölmiðlum hér.
Leikfimin í kringum eignarhaldið á 365 miðlum og DV lýsir vel vinnubrögðum Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. Þessir fjölmiðlar hljóta að eiga heimsmet í nafna og kennitölutöluflakki. Ég á hér á skrifborðinu hjá mér stefnur, útgefnar og í vinnslu, á DV fyrir ærumeiðingar þar sem er að finna 4 mismunandi nöfn á útgáfufélaginu s.l. 4 ár. Hvað sem öðru líður þá er eitthvað bogið við svona viðskipti enda kalla gárungarnir þetta "Hreinsgerningar".
Á síðunni sorprit.com er að finna upplýsingar um Hreinsgeringar og hverjir virðast standa bakvið þá hugmyndafræði og fjármálaleikfimi. Sjá nánar hér: http://sorprit.com
![]() |
Jón Ásgeir tekur dóma nærri sér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Frú Dorrit Moussaieff, þú sem fædd og uppalin ert í Jerúsalem, ætlar þú að sitja aðgerðarlaus í "stórasta landi heims", friðareyjunni Íslandi á meðan "litlustu" sálir heims, stjórnvöldin í Ísrael, myrða fólkið í næsta húsi?
Ætlar þú Dorrit ekki að lyfta litlafingri þessum fórnarlömbum til hjálpar?
Ég skrifaði þér bréf fyrr á þessu ári og bað þig um að aðstoða okkur við að kynna boðskap Friðar 2000 í Mið Austurlöndum. Að kynna nýja hugmyndafræði í friðarmálum. Þú svaraðir ekki bréfinu? Hversvegna? Er hjarta þitt jafnkalt og steinninn sem þú keyptir á uppboðinu í London fyrir 735 milljónir?
Fyrir hönd Friðar 2000 ítrekað ég boðið um að aðstoða ykkur hjónin að Virkja Bessastaði til friðarmála.
![]() |
Hóta að senda hermenn til Gaza |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.12.2008 | 22:37
Forkastanlegt og fyrirsjáanlegt
Eins og ég hef margsinnis reynt að benda stjórnvöldum hér á, mun enginn friður komast þarna á fyrir milligöngu bandaríkjamanna.
Djöflaríkið í vestri er stærsti vopnaframleiðandi og vopnasali heims. Fjármagninu, fjölmiðlunum, vopnaiðnaðinum er stjórnað af öfgafullum gyðingum og valdaþræðirnir liggja margir hverjir til sjálfs Ísrael.
Þessvegna er það að frambjóðendur til æðsta embættis í djöflaríkinu sækja þennan blett heim í aðdraganda kosninga til að bugta sig þar við kaldan og Guðlausan musterisvegginn.
Ég hef lagt það til í bréfi bréfi að konan með steinhjartað sem skilur hugsanlega betur en margir aðrir hvernig þetta kaldrifjaða fólk hugsar, taki sinn mann, forsetann okkar hönd í hönd, á næsta flug til Ísrael og reyni að tala um fyrir þessum morðingjum.
![]() |
Segja Hamas ábyrg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
27.12.2008 | 18:26
Gerðu þá eitthvað í þessu Ingibjörg
Ekki bara orðin tóm. Ekki meira væl hjá S.Þ. sem eru marklaus stofnun eins og í pottinn er búið á þeim bænum í dag. Hvað þýðir að tala við öryggisráðið þegar bandaríkin halda áfram að selja Ísrael vopn til að fremja fjöldamorð þegar einhverjum brjálæðingnum dettur í hug.
Það þarf alvöru aðgerðaráætlun frá Íslandi. Landinu sem gæti orðið land friðarins í augu alheims. Í næsta flug til Ísrael með forsetann ásamt sinni Ísraelsku frú, til að miðla málum. Við hjá Friði 2000 getum bakkað hann upp í því og sýnt honum hvernig á að gera þetta.
Ef forsetinn er of forskrúfaður, of snobbaður, of mikil glansdúkka til að bretta upp ermarnar og gera einhverju alvöru hluti, þá burt með slíkt skrípi og konuna með steinhjartað sem hefur ekki einu sinni svarað bréfum okkar með beiðni um aðstoð við að koma Friði á Í Mið Austurlöndum.
![]() |
Óverjandi aðgerðir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |