Hvar er Egill Helga með hársprey brúsann?

Þegar Silfur Egils nýddist á lýðræðislegum rétti lítils stjórnmálaflokks hér um árið og úthýsti formanni Húmanistaflokksins í aðdraganda alþingiskosninga, mætti ég ásamt fleirum í Fjölmiðlavaktinni og krafðist að litli stjórnmálamaðurinn fengi sæti í útsendingunni ásamt öðrum flokksforkólfum.

Þá var ég hrakinn í burt af makeup kerlingum Egils Helga sem úðuðu mér út með hársprey brúsa.  Vonandi hefur Egill þroskast síðan þetta gerðist og vonum að Baugsmiðlarnir fá einnig vitrun á nýju ári.

Til að forðast misskilning er ég ekki meðlimur í Húmanistaflokknum, kom að málinu vegna þeirrar mismunar og nauðgunar á lýðræðinu sem átti sér stað.


mbl.is Hafa ruðst inn á Hótel Borg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

He he.... já ég man eftir þessu.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 2.1.2009 kl. 01:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband