Færsluflokkur: Bloggar
28.4.2012 | 07:38
Kverkatak forsetans

Starfsstúlka Ólafs sendi það svar að hann vilji sýna mótframbjóðendum sínum virðingu með því að neita að mæta þeim á jafnréttisgrundvelli í kosningabaráttunni til að skilja kjarnann frá hisminu í umræðum um málskotsréttinn.
Með þessu sýnir Ólafur hinsvegar lítisvirðingu og heldur forsetakosningunum í gíslingu. Þótt Ólafi hafi tekist um tíma að blekkja þjóðina með lýðskrumi blekkir hann mig ekki.
Forsetinn sló sig til riddara með leikriti þar sem hann spilaði með málsskotsréttinn eftir eigin hentugleikum. Fyrst átta árum eftir að hann tók við embætti þegar kostunaraðilar framboðs hans (eigendur Norðurljósa-365 miðla) vildu með öllum ráðum stöðva fjölmiðlafrumvarpið. Stór mál m.a. Kárahnjúkar, öryrkjamálið og fyrstu Icesave lögin fóru hinsvegar í gegn með samþykki forseta.
Síðan eftir fimmtán ár í embætti þegar skoðanakannanir sýndu vaxandi óvinsældir Ólafs í kjölfar útrásarvíkingana smjaðursins þá greip hann til þess ráðs að nota aftur málskotsréttinn. Það gerði Ólafur í örvæntingafullri tilraun til að ná lýðhylli við nýju keisarafötin sín og hafði þetta lítið með hagsmuni þjóðarinnar að gera.
Á meðan erlendir vogunarsjóðir liggja eins og blóðsugur á bankakerfi landsmanna og soga til sín peninga, heimili og atvinnufyrirtæki galar forsetinn í útlöndum eftir afsökunarbeiðni afdánkaðs stjórnmálamanns í Bretlandi í stað þess spyrna við yfirstandandi bankaráni frá Bessastöðum.
Ólafur Ragnar er tækifærissinni sem verður aldrei forseti fyrir neinn nema sjálfan sig sagði samstarfsmaður hans til margra ára Steingrímur Hermannsson fyrrum forsætisráðherra við mig áður en lýðskrumarinn var kjörinn í embætti forseta Íslands árið 1996.
Nú er mál að Ólafur láti af því kverkataki sem hann er með á lýðræðinu, kveði niður sinn eigin Bessastaðadraug og þær kommúnísku hugsjónir sínar að sitja til eilífðarnóns á forsetastóli.
Farðu í friði Ólafur og gefðu þjóð þinni tækifæri til að velja sér nýjan forseta eftir lýðræðislegum leikreglum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.4.2012 | 21:51
Ný vefsíða og Facebook flugmiðaleikur

Nú vill ég innleiða beint lýðræði á Íslandi og nýta hraðbankakerfið sem kjörklefa fyrir þjóðaratkvæðagreiðslur. Gjáin milli þings og þjóðar verður best brúuð með þjóðaratkvæðagreiðslum. Við þurfum að taka þetta upp í umræðunni um embætti forseta Íslands. Ég skora á forsetaframbjóðendur að mæta í kappræður í Háskólabíó 1. maí til að skilja kjarnann frá hisminu í umræðunni um málsskotsréttinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.4.2012 | 15:45
Er RÚV búið að velja forsetann?
Mér var að berast tölvupóstur frá fréttastofu RÚV sem bendir til þess að stofnunin sé þegar búin að ákveða hver verði næsti forseti lýðveldisins og nú þurfi bara að skipuleggja kosningavöku og veislu í sjónvarpssal. Sjá netpóstinn hér:
Sæll,
ekki er ráð nema í tíma sé tekið, og við erum þegar komin á fullt að skipuleggja kosningavökuna 30. júní n.k.
Við búumst við fyrstu tölum kl. 23.00, og vildum gjarnan reyna að búa þannig um hnútana að frambjóðendur verði í sjónvarpssal þegar þær verða birtar.
Ég veit að enn er langur tími til stefnu, en þori ekki annað en að ræða þetta við þig núna strax.
Bestu kveðjur,
Sigríður Hagalín Björnsdóttir
Fréttastofu RÚV
Sími 515 3030 / 699 1989
![]() |
Kappræður forsetaframbjóðenda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.4.2012 | 01:21
Meðmælendalistum skilað undir skrumskældu lýðræði
Undirritaður hefur í dag sent afrit meðmælendalista með forsetaframboði ásamt rafrænni skrá til allra yfirkjörstjórna landsins. Frumrit listanna eru tilbúin til afhendingar og þess óskað að ráðuneytið taki við öllum frumritum eins og við fyrri forsetakosningar.
Vegna mismununar að undanförnu í helstu fjölmiðlum, þar sem m.a. starfsmenn ríkisfjölmiðla hafa talað niður mitt framboð og sagt að ekki sé um alvöru framboð að ræða, er það skýlaus krafa að meðmælendalistarnir verði yfirfarnir án tafar og vottorðum yfirkjörstjórna skilað um hæl.
Það væri á skjön við eðlilegar lýðræðisreglur, og varla við hæfi í þróuðu vestrænu ríki, ef kosningar hefjast án þess að búið sé að leiðrétta þann misskilning sem dreift hefur verið af ríkisfjölmiðlunum undanfarna mánuði að framboð mitt sé ekki alvöru forsetaframboð.
Ég skora því á Innanríkisráðuneytið að gera mér kleift að skila inn framboðinu og fá það vottað sem ALVÖRU FORSETAFRAMBOÐ áður en utankjörfundarkosning hefst.
Athygli Innanríkisráðherra, sem fer með framkvæmd kosninganna, er vakin á því að Fjölmiðlanefnd hefur svarað með útúrsnúningum beiðni minni um skoðun á mismunun í fjölmiðlum og hlutdrægri aðkomu stjórnarformanns og þáttastjóranda RÚV að forsetaframboðum.
Virðist Fjölmiðlanefnd sem kostar þjóðina 40 milljónir króna af fjárlögum ekki ætla að skila neinu fyrir þessa peninga, né virðist nefndin þekkja skyldur sínar samkvæmt lögum. Sjá meðfylgjandi bréf til nefndarinnar.
Væri ástæða fyrir Innanríkisráðherra að óska eftir því að kosningareftirlit ÖSE taki að sér eftirlitshlutverk fjölmiðlanefndar í aðdraganda þessara forsetakosninga?
Svar óskast sem allra fyrst,
Virðingarfyllst,
Ástþór Magnússon
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.4.2012 | 16:14
Kvörtun til Umboðsmanns Alþingis vegna Fjölmiðlanefndar
Engin svör hafa borist frá Fjölmiðlanefnd við fyrirspurn um beina aðkomu stjórnarformanns RÚV að vali á forsetaframbjóðanda og fleiri spurningum um mismunun fjölmiðla í umfjöllun.
Erlendur fræðimaður líkti RÚV í aðdraganda forsetakosninga árið 2004 við ríkisfjölmiðla í gömlu Júgóslavíu undir Slobodan Milosevic árið 1992. Viljum við láta þekkja Ísland af því að fjölmiðlar hér skekki lýðræðisþróun og greiði fyrir klíkuskap og misnotkun valds?
Er við hæfi að stjórnarformaður RÚV lýsi velþóknun á einu forsetaframboði og tefli því beint fram gegn öðrum? Væri ekki rétt til að gæta hlutleysis RÚV að stjórnarformaðurinn víkji sæti? Er við hæfi að þátttastjórnendur á RÚV tali um sum framboð sem alvöru og önnur ekki? Á ekki slíkur aðili að víkja úr ríkisreknum fjölmiðlum í sameign þjóðarinnar?
Er ekki hlutverk Fjölmiðlanefndar að gæta að fjölmiðlar veiti óhlutdrægar upplýsingar á jafnréttisgrundvelli? Er við hæfi að stórir Íslenskir fjölmiðlar séu reknir sem áróðursvélar með hugmyndafræði úr smiðju Göbbels til að stjórna vali þjóðarinnar á forseta?
Er hægt að bjóða þjóðinni upp á að nýstofnuð fjölmiðlanefnd taki hlutverk sitt með léttvægum hætti og meðhöndli ný fjölmiðlalög sem grín? Til hvers eru settar 39,1 milljón á fjárlögum 2012 í rekstur fjölmiðlanefndar ef það er ekki til að nefndin sinni eftirlitsskyldu sinni?
Íslensk þjóð hefur gengið í gegnum efnahagsleg áföll undanfarin ár sem má rekja beint til misnotkunar valds og klíkuskapar í stjórnsýslunni. Endurreisnin ber merki áframhaldandi klíkuskapar. Milljarðaskuldir forréttindastéttar eru nú afskrifaðar á kostnað almennings og atvinnutækjum ráðstafað með leynisamningum til fárra útvaldra rétt eins og áður.
Þjóðin má ekki glata því tækifæri sem liggur í vali á forseta. Réttur maður á Bessastöðum getur spyrnt við fótum til að uppræta spillinguna. Er ásættanlegt að fjölmiðlar stýri umræðunni fyrir sérhagsmunaöflin og blekki almenning til að kjósa varðhund kerfisins í embætti forseta Íslands?
Ég skora á Umboðsmann Alþingis að beita áhrifum sínum í þessu máli án tafar og áður en annað stórslys verður hér í stjórnsýslunni á kostnað þjóðarinnar.
Hér er fyrirspurnin til Fjölmiðlanefndar frá 26 mars s.l.:
Fjölmiðlanefnd
Borgartún 21
105 Reykjavík
27 mars 2012.
Fyrirspurn til Fjölmiðlanefndar vegna forsetakosninga:
Með tilvísun til yfirlýsinga og fyrirlestrar sem fluttur var af framkvæmdastjóra Fjölmiðlanefndar undir heitinu Ógna rangfærslur og hlutdrægar fréttir lýðræðinu? óskast álit Fjölmiðlanefndar á því hvort eftirfarandi samrýmist lögum og reglum um lýðræðislegar skyldur fjölmiðla og þá sérstaklega hvað varðar RÚV þar sem þeir fjölmiðlar eru í eigu ríkisins:
1. Árið 2004 og rússneskar forsetakosningar á Íslandi í boði RÚV:
Verður árið 2012 endurtekning á árinu 2004 en þá voru fjölmiðlarnir nánast lokaðir forsetaframbjóðendum. Einn þriggja frambjóðanda hafði þá sérstöðu að eiga greiðan aðgang að fjölmiðlum frá forsetaembættinu. Aðrir fengu ekki að kynna sín stefnumál með sama hætti. Engir umræðuþættir með frambjóðendum áttu sér stað í aðdraganda kosninganna fyrr nokkrum klukkustundum fyrir opnun kjörstaða. Niðurstaðan var svokölluð "rússnesk" kosning enda dæmigert um kosningar í einræðisríkjum. Erlendur fræðimaður líkti RÚV árið 2004 við ríkisfjölmiðla í gömlu Júgóslavíu undir Slobodan Milosevic árið 1992. http://frettir.forsetakosningar.is/fr%C3%A9ttir1/2012/03/14/hvatning-til-%C3%BAtvarpsstj%C3%B3ra
2. Er við hæfi að stjórnarformaður RÚV grafi undan einstökum framboðum?
Samrýmist það stöðu stjórnarformanns ríkisfjölmiðlanna RÚV að vera þátttakandi í hóp sem kallar sig "Betri valkost á Bessastaði" og taka þannig beina afstöðu gegn öðrum framboðum sem þegar er búið að tilkynna? Sjá http://www.vb.is/frettir/71074/ og tilvitnun: Björg Eva Erlendsdóttir, fyrrv. fréttakona og nú stjórnarformaður RÚV.
3. Er aðal þáttastjórnandi RÚV hlutdrægur og með hatursáróður?
Samrýmist það stöðu helsta stjórnanda umræðuþátta RÚV Egils Helgasonar, og sem einnig hefur verið þáttastjórnandi í kosningasjónvarpi RÚV, að skrifa á bloggsíðu sína eftir að komin eru fram tvö mótframboð gegn sitjandi forseta: "Enn er ekki komið í ljós hvort Ólafur Ragnar Grímsson fær alvöru mótframbjóðendur"
http://silfuregils.eyjan.is/2012/03/20/sumarkosningar-um-stjornarskra-og-forseta/
Gæti það flokkast undir hatursáróður í skilningi 27gr. fjölmiðlalaga að gefa í skyn með þessum hætti að undirritaður sé ekki alvöru frambjóðandi? Með þessu orðavali er ótvírætt verið að lítillækka þau framboð sem fram eru komin. Í þessu sambandi er einnig rétt að vekja athygli á því að undirritaður hefur á liðnum árum verið útilokaður frá þættinum Silfur Egils og synjað um tækifæri að kynna stefnumál framboða sinna þar á meðan aðrir frambjóðendur fengu greiðan aðgang eins og t.d. fyrir síðustu alþingiskosningar. Þátturinn hefur á sama tíma leyft niðrandi tilvitnanir um undirritaðann m.a. af einum þeirra sem nú hefur verið teflt fram sem mögulegum frambjóðanda af hópnum Betri valkost á Bessastaði. Sjá hér eina af mörgum kærum vegna Egils Helgasonar og RÚV sem ber nákvæmlega uppá 2 ár í dag þann 27 mars:
http://frettavakt.blog.is/users/a3/frettavakt/files/_tvarpsrettarnefnd-kaera-290309.pdf
4. Álitsgjöfum telft fram í RÚV til að grafa undan forsetaframboði
Eftir að undirritaður svo og annar einstaklingur hafa opinberlega lýst yfir framboðum sínum í komandi forsetakosningum ræddi RÚV við álitsgjafa, gamlan stjórnmálafræðingi, í þætti sem RÚV kallar Spegillinn og sem á að vera spegill líðandi stundar. Vísvitandi var þar farið með þær rangfærslur að sitjandi forseti verði sjálfkjörinn því enginn muni þora í mótframboð.
RÚV sá ekki ástæðu til að fjalla um þá leiðréttingu sem ég sendi þeim strax daginn eftir enda virðist um hreinan pólitískan spuna að ræða af hálfu fréttastofu RÚV sem ekki er einsdæmi:
http://frettir.forsetakosningar.is/fr%C3%A9ttir1/2012/03/17/%C3%A1litsgjafar-r%C3%BAv-ekki-me%C3%B0-%C3%A1-n%C3%B3tunum
5. Ræðst umfjöllun af því hvort starfsmenn RÚV verða í framboði?
Er Fjölmiðlanefnd kunnugt með hvaða hætti ríkisfjölmiðlarnir RÚV ætla að standa að kynningu framboða í komandi forsetakosningum. Ræðst það af því hvort einn eða fleiri fréttamenn RÚV verða meðal frambjóðenda en hópurinn sem stjórnarformaður fjölmiðlafyrirtækisins stendur á bakvið hefur nú þegar telft fram tveimur slíkum. Við síðustu alþingiskosningar var einu nýju framboði hampað umfram annað. Formaður þess framboðs var einmitt starfsmaður RÚV sem tók sér leyfi frá störfum og svaraði síma um skiptiborð RÚV á kosningaferðum sínum.
6. Hvernig mun Fjölmiðlanefnd standa vaktina um lýðræðislegar grundvallarreglur?
Mun Fjölmiðlanefnd gæta þess að fjölmiðlarnir sinni lýðræðislegum grundvallarreglum samkvæmt 26gr. fjölmiðlalaga í aðdraganda forsetakosninga 2012 og hvernig ráðgerir Fjölmiðlanefnd að standa vörð um neðangreindar greinar úr lögum um fjölmiðla í komandi forsetakosningum?
Lög um fjölmiðla
2011 nr. 38 20. apríl
26. gr. Lýðræðislegar grundvallarreglur.
Fjölmiðlaveita skal í starfi sínu halda í heiðri lýðræðislegar grundvallarreglur og standa vörð um tjáningarfrelsi. Hún skal virða mannréttindi og jafnrétti auk þess að hafa í huga friðhelgi einkalífs. Fjölmiðlaveita skal gæta þess að uppfylla kröfur um hlutlægni og nákvæmni í umfjöllun sinni um fréttir og fréttatengt efni og gæta þess að mismunandi sjónarmið komi fram, jafnt karla sem kvenna.
27. gr. Bann við hatursáróðri og hvatningu til refsiverðrar háttsemi.
Fjölmiðlum er óheimilt að hvetja til refsiverðar háttsemi. Bannað er að kynda undir hatri í fjölmiðlum á grundvelli kynþáttar, kynferðis, kynhneigðar, trúarskoðana, þjóðernis, skoðana eða menningarlegrar, efnahagslegrar, félagslegrar eða annarrar stöðu í samfélaginu.
Forseti Íslands í boði fjölmiðlafyrirtækis
Áhugavert er í þessu sambandi að sitjandi forseta var komið í embætti af fjölmiðlafyrirtækinu Norðurljósum sem rak áður Stöð2, Bylgjuna, Fréttablaðið og DV og naut hann þar stuðnings annarra þeirrar fréttakvenna nú orðuð við framboð að því að virðist á vegum RÚV eða stjórnenda þess. Þá var fréttastjóri Stöðvar 2 einmitt sá sem nú er útvarpsstjóri RÚV.
Reynsla undirritaðs af þátttöku í kosningum á Íslandi er að fjölmiðlar hafa verið með eindæmum hlutdrægir sem beinir þátttakendur og gerendur í atburðarrásinni. Þess vegna var athygli undirritaðs sérstaklega vakin á þeim orðum sem framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lét falla nýverið í erindi á Akureyri um að breytingar til hins verra hafi orðið á umfjöllun RÚV eftir sameiningu fréttastofu útvarps og sjónvarps og því að vegna mikilvægis fjölmiðla sem fjórða valdsins verður að vera hafið yfir allan vafa að pólitík mengi ekki störf fjölmiðlanefndar. En hvað með ríkisfjölmiðlana sjálfa, er allt í sóma með að þeir reki hlutdrægan pólitískan áróður fyrir menn og málefni sem eru stjórnendum RÚV velþóknanlegir en útiloki aðra?
Virðingarfyllst,
Ástþór Magnússon
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.4.2012 | 22:56
Til hamingju Sigurbjörg Jónsdóttir
Ánægja að kynna einnig aukaverðlaun dagsins, Drottningarhunang frá son.is.
http://www.facebook.com/forsetakosningar/app_201730886505500
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.4.2012 | 11:56
Ranghugmyndir um fyrirmyndarþjóðfélag
Friður 2000 varaði við því fyrir fimmtán árum að ofbeldi færi vaxandi í þjóðfélaginu. Við framleiddum stuttmyndir gegn ofbeldi og dreifðum til sjónvarpsstöðva til að sýna á undan og eftir kvikmyndum sem innihalda ofbeldi.
Þrátt fyrir að hafa bent á niðurstöður rannsókna m.a. á vegum UNESCO um vaxandi ofbeldi sem rakið er til aukins ofbeldis í sjónvarpi og tölvuleikjum, varð fálæti fjölmiðlanna við verkefninu til þess að það lagðist af. Á ráðstefnu um ofbeldi á vegum Kennarafélags Íslands var sýnd mikil andstaða við þetta verkefni Friðar 2000 af hálfu fulltrúa Stöðvar 2.
Ofbeldi er aldrei réttlætanlegt. Engin ástæða er fyrir nokkurn mann að lenda í slagsmálum. Ég hef t.d. aldrei á minni lífsævi lent í slagsmálum við annan mann. Hafi ég verið beittur ofbeldi hef ég tekið því án þess að slá til baka. Slíkt þurfum við að kenna okkar unga fólki til að uppræta ofbeldi í samfélaginu.
Um leið og ég fordæmi ómálefnalegar árásir á forsetaframboð Þóru Arnórsdóttur skora ég og samtökin Friður 2000 á forsetaframbjóðandann að gefa út afdráttarlausa yfirlýsingu þar sem hún leiðréttir ummæli sín sem má skilja á þann veg að henni finnist ofbeldi eðlilegur þáttur í samfélaginu. Það er mjög alvarlegt mál ef kjörinn verður forseti með slíkar ranghugmyndir um fyrirmyndarþjóðfélag.
Skýrslu UNESCO má nálgast á vef Friðar 2000: www.peace2000.org.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.9.2011 | 23:49
Hér eru 3 milljónir sem þú mátt sækja
Í Bláfjöllum bíða þín 3 milljónir króna. Þú þarft bara að keyra uppeftir og sækja draslið! Fullkomlega löglegt að mati Karls Vilbergssonar lögfræðings Lögreglustjórans í Reykjavík.
Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur tilkynnt Lýðræðishreyfingunni að það sé fullkomlega löglegt að skera á útsendingarkapla útvarpsstöðva og stela búnaði þeirra. Þið getið óhrædd farið í næsta loftnetsmastur og fjarlægt búnað fyrir milljónir króna án þess að sæta nokkurri ákæru. Þetta er innihaldið í bréfi Lögreglustjórans í Reykjavík til Lýðræðishreyfingarinnar þann 24 júní 2010. Bréfið var undirritað af Karli Vilbergssyni löglærðum fulltrúa Lögreglustjórans í Reykjavík.
Bréfið frá Karli löggu kom sem svar við kæru Lýðræðishreyfingarinnar vegna skemmdarverka aðstandenda útvarpsstöðvarinnar Kanans á búnaði Lýðvarpsins, en þessir aðilar skáru á útsendingarkapal úr sendi Lýðvarpsins og fjarlægðu loftnet úr mastri Lýðvarpsins. Fullkomlega löglegt samkvæmt úrskurði Lögreglustjórans í Reykjavík!
Í dag er hægt að keyra uppí Bláfjöll á bíl. Enginn snjór og fínn vegur upp fjallið. Og þar bíður þín útvarpsbúnaður Kanans sem þeir meta á 3 milljónir króna. Tilbúinn til að sækja hann í ólæstu skúrskrífli. Loftnetin á litlum staur fyrir utan. Hér eru myndir og skýringar hvernig þú berð þig að:
Þriggja milljón króna útvarpsbúnaður Kanans er í litlum skúr við hlið skíðabrekkunar í Kóngsgili. Þú ekur uppí Bláfjöll og þaðan upp skíðabrekkuna. Þú sérð síðan skúrinn rétt áður en þú kemur að skíðalyftunni á vinstri hönd.
Þetta er lítið skúrskrífli með litlum glugga á hinni hliðinni og engum lás.
Þetta er mastrið. Allir kaplar eru óvarðir. Auðvelt að klippa á kaplana. En réttast að nota einangraður klippur nema fyrst fara í skúrinn og aftengja rafmagnið því það er smá spenna á kaplilnum.
Svona liggur útsendingarkapallinn óvarinn á jörðu. Auðvelt að klippa á útsendinguna. En betra að nota klippur með einangrun svo þú fáir ekki stuð úr kaplinum.
Hér er sendirinn inní skúr. Lítill gluggi og við hliðina hurð sem sýnist ólæst.
Hér er hurðarlæsingin. Nylon band sem bundið er til að loka hurðinni!
Nú er bara að sækja draslið! Tek hatt minn ofan fyrir þeim sem tekur þetta drasl eignarnámi úr því að slíkt er í dag löglegt samkvæmt úrskurði Lögreglunnar í Reykjavík. Þar að auki er víst Kaninn í einhverju kennitöluflakki, þannig að það er einnig spurning um hver á þennan búnað? Ísland í dag, paradís krimma með velþóknun lögreglunnar!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.9.2011 | 09:26
Bandaríkjamenn myrtu börn í Írak - Fjölmiðlar þegja!

Í gær birtust fréttir af Wikileaks leka sem staðfestir að bandarísir hermenn handjárnuðu og myrtu ung börn í Írak þ.á.m. fimm börn undir 5 ára aldri og fjórar konur m.a. 70 ára gamalmenni.
Bandaríkjastjórn er hryðjuverkaríki sem á að gera útlægt úr samfélagi þjóðanna.
Áhugavert er að Íslenskir fjölmiðlar að Smugunni undanskylinni hafa ekkert fjallað um þetta grafalvarlega mál. RÚV, Morgunblaðið, Fréttablaðið og Stöð2 virðast málpípur stærsta hryðjuverkaríkis heims. Á sama tíma og glæpir bandaríkjanna gegn mannkyninu afhjúpast birtir hið veruleikafirrta fréttastofa RÚV frétt undir fyrirsögninni: "Batnandi ástand í Írak".


Fréttirnar frá Írak ættu að vera næg ástæða fyrir Íslensk stjórnvöld til að reka sendiherra bandaríkjanna úr landi ásamt sínu hyski.
Við eigum að taka byggingar þeirra hér á landi eignarnámi og gefa til góðgerðarmála enda hafa þeir ítrekað orðið uppvísir að njósnastarfsemi frá bandaríska sendiráðinu í Reykjavík.
Friður 2000 mun í dag senda þá kröfu til Utanríkisráðherra að hann reki bandaríska sendiherrann úr landi án tafar.
Sendiráðsskjölin: Skutu fimm smábörn til bana

Skjöl frá bandaríska utanríkisráðuneytinu sem Wikileaks hefur gert opinber varpa ljósi á atvik þar sem bandarískir hermenn eru taldir hafa tekið af lífi tíu óbreytta borgara í bænum Ishaqi í Írak árið 2006. Meðal þeirra voru kona á sjötugsaldri og fimm börn, þar af eitt fimm mánaða. Eftir að fólkið var skotið til bana voru gerðar loftárásir til að hylja slóðina. Í skjölunum eru birtar spurningar frá eftirlitsmanni Sameinuðu þjóðanna til bandarískra stjórnvalda en embættismenn í Írak höfðu krafist aðgerða í kjölfar atburðanna. Bandarísk yfirvöld neituðu að nokkuð óeðlilegt hefði getað átt sér stað.
Philip Alston starfsmaður Sameinuðu þjóðanna skýrði hinsvegar bandarískum embættismönnum frá því að krufning hefði leitt í ljós að fólkið hefði verið handjárnað og skotið til bana, þar á meðal fimm börn sem öll voru yngri en fimm ára. Þetta kemur fram á McClatchy.com.
Philip Alston frá Sameinuðu þjóðunum segist við blaðið ekki geta gefið frekari upplýsingar en staðreyndin sé sú að mannréttindaráð SÞ fylgi ekki eftir málum þegar ríki ákveði að virða að vettugi erindi sem berast frá eftirlitsmönnum stofnunarinnar. Þannig hafi farið um flest erindi til bandarískra yfirvalda á árunum 2006 til 2007 þegar Íraksstríðið var í hámarki. Engin viðbrögð var að fá hjá hermálayfirvöldum að sögn blaðsins.
Hátt í 35.000 borgarar féllu í Írak árið 2006 samkvæmt tölum Sameinuðu þjóðanna. Tæplega 36.700
Myrtu smábörn með köldu blóði

,,Snemma árið 2006, í bænum Ishaqi í Írak, voru Hawraa, fimm ára, Aisha, þriggja ára, Husam, fimm mánaða, Asmaa Yousif Maarouf, fimm ára, og Usama Yousif Maarouf, þriggja ára, handjárnuð og skotin í höfuðið af bandarískum hermönnum, skrifar Sólveig Anna Jónsdóttir á bloggið sitt.
,,Þetta kemur fram í bandarískum sendiráðsskjölum sem Wikileaks hefur birt. Hermennirnir réðust inní hús, söfnuðu 11 manns, þar með talið börnunum, saman í eitt herbergi og tóku alla af lífi. Að því loknu voru gerðar loftárásir á húsið, farartæki brennd og húsdýrin drepin.
WikiLeaks reveals murder of Iraqi children by US troops
Published: 01 September, 2011, 20:48

An Iraqi woman and her children walk by a US Soldiers from the First Battalion, 17th Infantry, as he guards other soldiers from possible sniper fire as they conduct a vehicle search at a checkpoint in Mosul, north of Baghdad (AFP Photo / Cris Bouroncle)
TAGS: Children, Crime, Military, Scandal, Iraq,Corruption, USA, Culture, War
The cable was signed off by Col. Fadhil Muhammed Khalaf, assistant chief of the Joint Coordination Center, and cites autopsies performed at the morgue of the Tikrit Hospital. The Join Coordination Center was based in Tikrit, hometown of Saddam Hussein, and served as a security center that was founded by US military personnel and staffed by Iraqi police officers that were trained by Americans.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.4.2011 | 07:47
Er og verður ávallt hóra!

Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)