Kverkatak forsetans

Ástþór skorar á Ólaf Ragnar í kappræður
Ólafur Ragnar Grímsson þorir ekki að mæta mér og öðrum forsetaframbjóðendum í kappræður um málskotsrétt forseta á baráttudegi verkalýðsins 1. maí þar sem í tilefni dagsins átti einnig að velta upp þeirri spurningu hvort forsetinn geti með einhverjum hætti staðið vörð um hagsmuni almennings í endurreisninni.

Starfsstúlka Ólafs sendi það svar að hann vilji “sýna mótframbjóðendum sínum virðingu” með því að neita að mæta þeim á jafnréttisgrundvelli í kosningabaráttunni til að skilja kjarnann frá hisminu í umræðum um málskotsréttinn.

Með þessu sýnir Ólafur hinsvegar lítisvirðingu og heldur forsetakosningunum í gíslingu.  Þótt Ólafi hafi tekist um tíma að blekkja þjóðina með lýðskrumi blekkir hann mig ekki.

Forsetinn sló sig til riddara með leikriti þar sem hann spilaði með málsskotsréttinn eftir eigin hentugleikum. Fyrst átta árum eftir að hann tók við embætti þegar kostunaraðilar framboðs hans (eigendur Norðurljósa-365 miðla) vildu með öllum ráðum stöðva fjölmiðlafrumvarpið. Stór mál m.a. Kárahnjúkar, öryrkjamálið og fyrstu Icesave lögin fóru hinsvegar í gegn með samþykki forseta.

Síðan eftir fimmtán ár í embætti þegar skoðanakannanir sýndu vaxandi óvinsældir Ólafs í kjölfar útrásarvíkingana smjaðursins þá greip hann til þess ráðs að nota aftur málskotsréttinn. Það gerði Ólafur í örvæntingafullri tilraun til að ná lýðhylli við nýju keisarafötin sín og hafði þetta lítið með hagsmuni þjóðarinnar að gera.

Á meðan erlendir vogunarsjóðir liggja eins og blóðsugur á bankakerfi landsmanna og soga til sín peninga, heimili og atvinnufyrirtæki galar forsetinn í útlöndum eftir afsökunarbeiðni afdánkaðs stjórnmálamanns í Bretlandi í stað þess spyrna við yfirstandandi bankaráni frá Bessastöðum.

Ólafur Ragnar er tækifærissinni sem verður aldrei forseti fyrir neinn nema sjálfan sig sagði samstarfsmaður hans til margra ára Steingrímur Hermannsson fyrrum forsætisráðherra við mig  áður en lýðskrumarinn var kjörinn í embætti forseta Íslands árið 1996.

Nú er mál að Ólafur láti af því kverkataki sem hann er með á lýðræðinu, kveði niður sinn eigin Bessastaðadraug og þær kommúnísku hugsjónir sínar að sitja til eilífðarnóns á forsetastóli.

Farðu í friði Ólafur og gefðu þjóð þinni tækifæri til að velja sér nýjan forseta eftir lýðræðislegum leikreglum.
 
Ástþór Magnússon - forsetakosningar.is

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þú tekur nú nokkuð STÓRT upp í þig þegar þú talar um að Ólafur Ragnar ÞORI EKKI í kappræður við þig og fleiri.  Með fullri virðingu fyrir þér og öðrum veit ég ekki um neinn sem getur haft Ólaf Ragnar undir hvað mælsku og ræðumennsku varðar.

Jóhann Elíasson, 28.4.2012 kl. 08:00

2 Smámynd: Ástþór Magnússon Wium

Hversvegna mætir hann þá ekki í slaginn? Ég hef ekki orðið vitni að þesssari miklu mælsku og ræðumennsku Ólafs nema þegar hann var að mæra bankarán útrásarvíkinga.

Ástþór Magnússon Wium, 28.4.2012 kl. 08:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband