xP Lýðræðishreyfingin býður Magnús Ólafsson leikara velkominn

Magnús Ólafsson Ekki er farið í manngreinarálit hjá xP Lýðræðishreyfingunni. Hjá xP eru allir velkomnir. Það eru síðan kjósendur sjálfir sem velja sína þingmenn af lista xP í persónukjöri og engin önnur uppröðun fer fram á listum Lýðræðishreyfingarinnar.

Þetta er ólíkt vinnubrögðum Borgarahreyfingarinnar en þar hafa sjálfskipaðir leiðtogar sem enginn hefur kosið um skipað sjálfa sig í efstu sætin fyrir luktum dyrum í flokksræðislegu bakherbergismakki.

Þegar Ástþór Magnússon lagði til lýðræðisleg vinnubrögð var hann í orðsins fyllstu merkingu borinn út af fundum hreyfingarinnar í Borgartúni og leikhúsinu Iðnó. Nú hefur Borgarahreyfingin hafið ófrægingarherferð gegn Magnúsi Ólafssyni leikara sem einnig vildi að menn sameinuðu kraftana til að koma á lýðræðisbreytingum.

Lýðræðishreyfingin býður Magnús Ólafsson leikara velkominn og er honum boðið sæti á lista xP í Kraganum þar sem kjósendum yrði síðan gefinn kostur á að ákveða það hvort þeir vilja Magnús til starfa á Alþingi Íslendinga. 

xp2.jpgFeiknalegur meðbyr er með framboði xP Lýðræðishreyfingarinnar og búið að safna öllum tilskyldum fjölda meðmælenda í báðum Reykjavíkurkjördæmum. Nú er verið að klára undirskriftarsöfnun í öðrum kjördæmum og hefur annar hver maður sem leitað er til skrifað undir stuðningsyfirlýsinguna.

xP Lýðræðishreyfingin hefur einnig fengið fjölda nýrra og efnilegra frambjóðenda til liðs við sig síðasta sólarhring eftir að störf þingmanna og ráðherra voru auglýst laus til umsóknar á job.is. Launakjör eru frá um 600,000 krónum á mánuði auk ýmissa fríðinda og sækja má um starfið á slóðinni: http://job.xp.is

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gísli Foster Hjartarson

Ég segi nú ekki meira en ja hérna hér flest er hægt að bjóða fólki upp á.

Gísli Foster Hjartarson, 3.4.2009 kl. 13:50

2 Smámynd: Friðrik Þór Guðmundsson

Þið eigið vel saman Ástþór, þú, Magnús og Eiríkur.

Friðrik Þór Guðmundsson, 3.4.2009 kl. 16:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband