Svar til kjósanda

Hulda sendi mér fyrirspurn: Vona að þú reiðist ekki framhleypninni í mér með að senda þér þessar línur. En mig langar að spyrja þig um fáein atriði sem mér finnast ekki koma nógu skýrt fram á klausunni um þig til að auðvelda mér kosninguna þann 27þm Því það ER virkilega erfitt að velja fólk til þessara starfa sem maður veit engin deili á. Ég ER bara að biðja um ein falt já eða nei engar útskýringar þær geta komið seinna
 
Vilt þú að verndun íslenskrar tungu sé tekin fram í stjórnarskrá 
Vilt þú efla vald forseta 
Viltu þú styrkja málskotsrétt forsetans 
Vilt þú afnema fiski kvótann / mjólkurkvóta  
Vilt þú breyta trúarvenjum okkar 
Vilt þú fleiri álver og líkar stórframkvæmdir 
Vilt þú Vera í efnahagsbandalaginu 
Vilt þú taka upp annan gjaldmiðil 
Vilt þú fjöl þjóðlegt samfélag 
Vilt þú Vera í schengen
 
Ég veit að stjórnlagaþingið snýst ekki um þessi atriði. En þau hjálpa mér að velja  fólkið  á þingið
Takk fyrir að líta á þetta blað. Gangi þér vel. kveðja Hulda


Kæra Hulda,

Öll málin sem þú spyrð um eru að mínu mati of stór og mikilvæg fyrir framtíð þjóðarinnar til að nokkrir einstaklingar valdir í fyrstu persónukosningum þjóðarinnar geti leyft sér að möndla með uppá eigin spýtur. 

Höfum við ekki fengið nóg af slíkri úreltri stjórnmálafræði eftir að horfa uppá misvitra fulltrúa á Alþingi taka kolrangar ákvarðanir með flokkadrætti og sérhagsmunapot í stað velferð þjóðarinnar að leiðarljósi?

Ég er í framboði til Stjórnlagaþings því ég vil færa valdið til fólksins í landinu. Ég vil koma hér á beinu og milliliðalausu lýðræði þar sem réttur einstaklingsins er virtur sem hluti af ákvarðanaferli stjórnsýslunnar.

Það hlýtur því að liggja í hlutarins eðli fái ég stuðning þjóðarinnar til Stjórnlagaþings, að þjóðaratkvæðagreiðslur skeri úr um þau mál sem þú spyrð um eins og mörg önnur.

Með kveðju
Ástþór Magnússon Wium
Framboð 7176 - www.austurvollur.is/thor 
LÍKA á Facebook.com/lydveldi

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Júlíusson

Hver er þessi "Hulda"? það er engin linkur á þessa manneskju? og ekkert eftirnafn?

Guðmundur Júlíusson, 19.11.2010 kl. 23:23

2 Smámynd: Ástþór Magnússon Wium

Fyrirspurnin kom með netpósti. Þar sem fjöldi fyrirspurna á svipuðum nótum hafa borist um ýmis málefni tók ég þetta svar sem dæmi hér á blogginu.

Ástþór Magnússon Wium, 20.11.2010 kl. 11:30

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég held þú sért ágætur, Ástþór.... þó þú sért létt geggjaður. En hver er það svo sem ekki.... ef út í það er farið?

Gunnar Th. Gunnarsson, 22.11.2010 kl. 00:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband