Færsluflokkur: Utanríkismál/alþjóðamál

Bandaríkjamenn í stríðsham - Sjálfstæði þjóðarinnar í hættu

Vopna­væða upp­lýs­ing­ar og gögn

„TikT­ok er byssa sem er miðað að höfði Banda­ríkja­manna,“ varaði Rich­ard Blu­ment­hal, öld­unga­deild­arþingmaður Demó­krata, við í kjöl­far trúnaðar­fund­ar í þing­hús­inu.

„Kín­versku komm­ún­ist­arn­ir eru að vopn­væða upp­lýs­ing­ar og gögn sem þeir eru stöðugt að safna frá 170 millj­ón­um Banda­ríkja­manna,“ sagði hann og út­skýrði að upp­lýs­ing­arn­ar væru svo hugs­an­lega notaðar til að hafa áhrif á umræðu um lýðræðis­leg mál í Banda­ríkj­un­um.

Njósnir bandaríkjanna ógna þjóðaröryggi Íslands og Evrópu

Nákvæmlega með þessum hætti halda bandaríkjamenn úti mestu njónsnastarfsemi sem mannkynið hefur nokkurn tíman séð og sem ógnar þjóðaröryggi Íslendinga. Íslenskir ráðamenn eru sofandi á verðinum. 

Nánar er fjallað um þetta hér:
https://forsetakosningar.is/sjalfstaedi-thjodarinnar-i-haettu/


mbl.is „Byssa sem er miðað að höfði Bandaríkjamanna“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hefur einhver reynt að ræða við Rússa um friðsamlegar lausnir?

Aðgerðir leiðtoga Íslands og Evrópu hafa undanfarin ár einkennst af stríðsyfirlýsingum gegn Rússlandi og niðurlægjandi orðum um forseta landsins. Á sama tíma þegar maður ræðir við Rússneskan almenning virðast flestir þeirra ánægðir með störf síns leiðtoga og flykkja sér á bakvið hann gegn því sem almenningur í Rússlandi sér sem árásir vesturlanda á sitt frelsi til viðskipta, ferðalaga og menningu.

Ekki er nóg með að búið er að banna Rússum og Íslendingum að stunda viðskipti sín á milli, Rússar eru einnig útilokaðir frá íþróttaviðburðum og menningu Evrópu. T.d. úthýstir frá Eurovision á meðan önnur þjóð sem er að stunda þjóðarmorð í Palestínu er velkomin. 

Nú er áróðursmaskína hergagnsaframleiðenda komin í yfirgír. Þeim er alveg sama hvort raðirnar hjá læknavaktinna lengjast niður á götu, peningana skal setja í drápstól til að heyja heitt stríð við Rússland. 

Hætt er við að slíkt stríð leiði til mikilla hörmunga fyrir okkur sjálf og önnur lönd Evrópu. Ísland er klárlega skotmark í heitu stríði stórveldanna, og sigur okkar er alls ekki öruggur og jafnvel ólíklegur gegn bandalagi Rússlands, Kína, Indlands og Íran. Þeir eru hreinlega með yfirburðarstöðu gegn Nató klúbbnum sem einnig getur meira að segja liðast í sundur eftir næstu forsetakosningar í bandaríkjunum.

Leiðtogar okkar eru komnir langt út af sporinu og eru að ýta okkur í þriðju heimsstyrjöldina á óngarhraða. Segjum nú STOPP, hingað og ekki lengra, Virkjum Bessastastaði til friðar.

Minni á borgarafund minn á Greifanum Akureyri í kvöld mánudaginn 26 febrúar kl. 20:30 þar sem við ræðum þessi mál.

 


mbl.is Eystrasaltsríkin búa sig undir innrás Rússa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Morgunblaðið varar við árás á Ísland

Svokallaðir sérfræðingar í varnarmálum flykkjast nú hver af öðrum í fjölmiðla með áróður hergagnaiðnaðirns að þjóðir Evrópu verði að setja stóraukin fjáraustur í hermangið.

Tveimur árum eftir að allt sauð uppúr milli Úkraníu og Rússlands birtir Morgunblaðið grein sem segir: “Líklegt að ráðist yrði á Keflavíkurstöðina í stríði” þar sem Fabian Hoffmann “sérfræðingur í varnarmálum og eldflaugahernaði” segir að miklar líkur séu á því að Rússar myndu ráðast á Ísland ef til átaka kemur á milli Rússlands og Atlantshafsbandalagsins.

Ég vakti ítekað athygli á þessari hættu í aðdraganda forsetakosninga árið 2016 og skoraði á þjóðina að grípa strax til aðgerða til að afstýra því að við myndum leiðast í styrjöld við Rússland.

Íslenskir ráðmenn í fullum herskrúða

Í stað þess að grípa til aðgerða til friðar klæddust íslenskir ráðamenn fullum herskrúða og greiddu fyrir vopnaflutninga með skattfé Íslensku þjóðarinnar til stríðs við Rússland. Utanríkisráðherra gerðist sölumaður dauðans fyrir bandaríska hergagnaframleiðendur. Í nafni Íslensku þjóðarinnar hitti hún bandaríska hershöfðingja í Washington og ferðaðist síðan með þeirra veganesti til leiðtoga Evrópuríkja að þrýsta á aukna fjármuni í hermangið.

Ég hef ítrekað undanfarinn áratug varað við því að ef styrjöld brýst út við Rússland gæti það þróast í kjarnorkustyrjöld á milli stórveldanna og slíkt gæti gerst á tiltölulega stuttum tíma.

Gæti rústað Reykjavík

Flugvöllurinn í Keflavík sem jafnframt gegnir hlutverki herflugvallar svo og kafbátastöðin í Hvalfirði eru augljóst skotmörk í slíkum átökum. Verði kjarnorkusprengjum skotið á þessar herstöðvar sem við Íslendingar hýsum með bandarísku herliði, gæti það lagt Reykjavík í eyði vegna geislavirkni sem líklegt er að myndi færast yfir höfuðborgarsvæðið. Við erum að horfa hér á ógn sem gæti útrýmt stórum hluta Íslensku þjóðarinnar.

Á margföldum hljóðhraða

Kjarnorkusprengjur myndu líklegast berast utan úr geimnum með langdrægum flaugum á margföldum hljóðhraða. Það er í hraun hlægilegur áróður að halda því fram að við getum varist slíku með einhverjum skotvopnum bandarískra hergagnaframleiðenda.

Það er kominn tími til að þjóðin taki á þessum málaflokki af festu og alvöru og hætti þátttöku í stríðleikjum úr smiðjum bandarískra hergagnaframleiðenda sem eru stærsta ógnin við heimsfriðinn í dag. Við getum byrjað á að Virkja Bessastaði til friðarmála, að forseti Íslands í stað þess að tala fyrir hernaði leiði menn saman til viðræðna um varanlegan frið.

Afstýrum þriðju heimsstyrjöldinni

Við þurfum samhent átak grasrótar, atvinnulífs og stjórnmála til að afstýra þriðju heimsstyrjöldinni sem er nú í fæðingu og mun hellast yfir okkur á næstu árum verði haldið áfram á sömu braut.

Hér eru myndbönd um þetta málefni sem voru birt á vef mínum forsetakosningar.is í aðdraganda forsetakosninga árið 2016:

Rússar vara við heimstyrjöld - Heimsfriðurinn hangir á bláþræði

Þjóðaröryggistefna sem ógnar Íslendingum

Vaknaðu núna!

Höfundur er forsetaframbjóðandi.

 

mbl.is Telur Rússa hafa áætlanir fyrir Keflavíkurflugvöll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Morgunblaðið varar við árás á Ísland

Svokallaðir sérfræðingar í varnarmálum flykkjast nú hver af öðrum í fjölmiðla með áróður hergagnaiðnaðirns að þjóðir Evrópu verði að setja stóraukin fjáraustur í hermangið.

Tveimur árum eftir að allt sauð uppúr milli Úkraníu og Rússlands birtir Morgunblaðið grein sem segir: “Líklegt að ráðist yrði á Keflavíkurstöðina í stríði” þar sem Fabian Hoffmann “sérfræðingur í varnarmálum og eldflaugahernaði” segir að miklar líkur séu á því að Rússar myndu ráðast á Ísland ef til átaka kemur á milli Rússlands og Atlantshafsbandalagsins.

Ég vakti ítekað athygli á þessari hættu í aðdraganda forsetakosninga árið 2016 og skoraði á þjóðina að grípa strax til aðgerða til að afstýra því að við myndum leiðast í styrjöld við Rússland.

Íslenskir ráðmenn í fullum herskrúða

Í stað þess að grípa til aðgerða til friðar klæddust íslenskir ráðamenn fullum herskrúða og greiddu fyrir vopnaflutninga með skattfé Íslensku þjóðarinnar til stríðs við Rússland. Utanríkisráðherra gerðist sölumaður dauðans fyrir bandaríska hergagnaframleiðendur. Í nafni Íslensku þjóðarinnar hitti hún bandaríska hershöfðingja í Washington og ferðaðist síðan með þeirra veganesti til leiðtoga Evrópuríkja að þrýsta á aukna fjármuni í hermangið.

Ég hef ítrekað undanfarinn áratug varað við því að ef styrjöld brýst út við Rússland gæti það þróast í kjarnorkustyrjöld á milli stórveldanna og slíkt gæti gerst á tiltölulega stuttum tíma.

Gæti rústað Reykjavík

Flugvöllurinn í Keflavík sem jafnframt gegnir hlutverki herflugvallar svo og kafbátastöðin í Hvalfirði eru augljóst skotmörk í slíkum átökum. Verði kjarnorkusprengjum skotið á þessar herstöðvar sem við Íslendingar hýsum með bandarísku herliði, gæti það lagt Reykjavík í eyði vegna geislavirkni sem líklegt er að myndi færast yfir höfuðborgarsvæðið. Við erum að horfa hér á ógn sem gæti útrýmt stórum hluta Íslensku þjóðarinnar.

Á margföldum hljóðhraða

Kjarnorkusprengjur myndu líklegast berast utan úr geimnum með langdrægum flaugum á margföldum hljóðhraða. Það er í hraun hlægilegur áróður að halda því fram að við getum varist slíku með einhverjum skotvopnum bandarískra hergagnaframleiðenda.

Það er kominn tími til að þjóðin taki á þessum málaflokki af festu og alvöru og hætti þátttöku í stríðleikjum úr smiðjum bandarískra hergagnaframleiðenda sem eru stærsta ógnin við heimsfriðinn í dag. Við getum byrjað á að Virkja Bessastaði til friðarmála, að forseti Íslands í stað þess að tala fyrir hernaði leiði menn saman til viðræðna um varanlegan frið.

Afstýrum þriðju heimsstyrjöldinni

Við þurfum samhent átak grasrótar, atvinnulífs og stjórnmála til að afstýra þriðju heimsstyrjöldinni sem er nú í fæðingu og mun hellast yfir okkur á næstu árum verði haldið áfram á sömu braut.

Hér eru myndbönd um þetta málefni sem voru birt á vef mínum forsetakosningar.is í aðdraganda forsetakosninga árið 2016:

Rússar vara við heimstyrjöld - Heimsfriðurinn hangir á bláþræði

Þjóðaröryggistefna sem ógnar Íslendingum

Vaknaðu núna!

Höfundur er forsetaframbjóðandi.

 

Hvað kostar forsetinn?

Síðan ég kynnti hugmyndafræðina Virkjum Bessastaði árið 1996 hafa tveir forsetar setið á Bessastöðum. Embættið hefur á þessum tíma kostað þjóðina um 10 milljarða króna á núvirði, um 35 þúsund krónur á hvern skattgreiðanda.

Embætti forseta Íslands eins og það er í dag er nánast óþarft í nútímasamfélagi smáþjóðar. Tilvistarkreppa embættisins hefur að undanförnu kristallast í svokölluðum “opinberum heimsóknum” forseta Íslands á milli húsa í eigin heimabyggð, Stór Reykjavíkursvæðinu.

Það er til betri leið

Hugmyndafræðin Virkjum Bessastaði hefur stuðning heimsþekktra fræðimanna í friðarmálum sem telja það raunhæfa möguleika að gera embætti forseta Íslands að boðbera friðar- og lýðræðisþróunar á heimsvísu. Með þessu væri hægt að laða alþjóðastofnanir til landsins, skapa 21 þúsund störf og auka þjóðartekjur um 600 milljarða. Um þetta er fjallað á vefnum forsetakosningar.is

Áhrifavald forseta

Þau áhrif sem forseti Íslands getur haft á þróun alþjóðamála er oft vanmetin hér á landi. Oscar Arias Sánchéz fyrrum forseti Costa Rica og friðarverðlaunahafi Nóbels skrifaði grein í Morgunblaðið þar sem hann fjallaði um verkefnið að Virkja Bessastaði með ofangreindum hætti. Oscar lýsir því í greininni hvernig hann gat sem forseti smáríkis komið á friði í Rómönsku Ameríku. Hann teldi hugmyndir mínar um að virkja Íslenska forsetaembættið á þessum vettvangi hafa raunverulega möguleika til árangurs.

Straumhvörf í alþjóða stjórnmálum

Á næstu árum má búast við verulegum breytingu á hinu alþjóðlega sviði. Aukin hætta er að við drögumst inní aukið styrjaldarástand með aukinni ásókn flóttamanna til landsins. Það er auðvitað óraunhæft að okkar litla þjóðfélag geti tekið á móti öllum þeim fjölda sem hingað mun leita í slíku ástandi. Það þarf að grípa í taumana strax, reyna að koma á friði bæði í Úkraníu og Mið Austurlöndum til að koma í veg fyrir slíka fólksflutninga. Forseti Íslands getur þar haft mikilvæg áhrif ef við virkjum embættið til friðar- og lýðræðisþróunar.

NATO samstarfið gæti horfið á einni nóttu

Það er fásinna að halda að NATO tryggji framtíðar öryggi Íslensku þjóðarinnar. Nýr forseti tekur við embætti í bandaríkjunum á næsta ári. Einn frambjóðenda sem talinn er líklegur til að ná kjöri í annað sinn hefur lýst því yfir að hann vilji draga sig úr NATO. Telur samstarfið ekki þjóð sinni til framdráttar. Við þá aðgerð er sá ímyndaði verndarvængur Íslendinga frá stærsta herveldi heims fokinn út í veður og vind.

Mér var sýnt árið 2025

Það kom fram í bókinni Virkjum Bessastaði sem ég dreifði á öll heimili landsins fyrir 28 árum að mér var sýnt að þetta væri langtíma verkefni og fyrst árið 2025 mætti búast við mikilvægum áfanga í friðarmálum. Þetta skýrir nokkuð þá óbilandi hugsjón og þrautseigju sem ég hef haft til að halda áfram göngunni til Bessastaða þrátt fyrir mikið mótlæti. Hér eitt af þremur ljóðum úr bókinni Virkjum Bessastaði sem lýsti hugljómun minni fyrir 30 árum:

Paradís á jörð

Stóllinn færðist hægt í gegnum mannfjöldann
framhjá pýramídanum mikla
burðarmennirnir silkiklæddir
fólkið var fyllt gleði
loksins var dagur friðar
þetta er árið 2025
loks var Hann hér
skipið stórt sem borg lýsti upp himininn
glitrandi sem perla í sólskini
ekkert hljóð nema fagnarhróp
mannkyns frjálst frá stríðsfjötrum
nú var paradís á jörð.

Ástþór Magnússon


Stuðningur heimsþekktra fræðimanna í friðarmálum við forsetaframboð Ástþórs

Þeir telja allir að hugmyndir Ástþórs um forsetaembættið til friðar- og lýðræðisþróunar í heiminum hafi raunverulega möguleika til árangurs.

Hvernig Ástþór Magnússon vill Virkja Bessastaði með því að gera forseta Íslands að leiðandi afli til friðar í heiminum er hugmyndafræði sem var þróuð í samvinnu við áhrifafólk í friðarmálum og heimsþekkta fræðimenn.

Meðal stofnenda Friðar 2000 árið 1995 var fyrrum forsætisráðherra Íslands Steingrímur Hermannsson sem mætti á stofnfund samtakanna í Háskólabíó þar sem hundruð íslendinga tóku þátt á annað hundrað friðarsamtök um allan heim gerðust meðstofnendur.

Hér eru þrír af helstu frumkvöðlum í friðarmálum heims sem allir hafa lýst yfir stuðningi við foretaframboð Ástþórs Magnússonar.

Prófessor Johan Galtung, virtasti fræðimaður heims í friðarmálum

Johan Galtung kom til Íslands til að lýsa yfir stuðningi við forsetaframboð Ástþórs Magnússonar. Hann hélt fyrirlestur í Háskóla Íslands um hugmyndafræðina að Virkja Bessastaði. Hann fer yfir þetta í myndbandi hér.

galtung_johan_author

Friðarverðlaunahafi, forsetinn sem kom á friði

Oscar Arias Sanchéz, friðarverðlaunahafi Nóbels 1987 og forseti Costa Rica frá 1986-1990, skrifaði grein í Morgunblaðið þar sem hann lýsir því að hugmyndir Ástþórs að Virkja Bessastaði til friðar- og lýðræðisþróunar í heiminum séu raunhæfar til árangurs. Hér má lesa greinina

Ástþór hitti Oscar Arias í Costa Rica og þessi mynd birtist af þeim í bókinni Virkjum Bessastaði.

Dietrich Fischer leiðandi prófessor og frumkvöðull í friðarmálum. Ráðgjafi S.Þ.

Prófessor Dietrich Fischer frumkvöðull í friðarmálum var MacArthur fellow in International Peace and Security hjá Princeton háskóla í bandaríkjunum og síðan stofnandi friðarháskóla í Evrópu.

Dietrich kom til Íslands og lýsti yfir stuðningi við hugmyndir Ástþórs um að Virkja Bessastaði í Kastljós viðtali. Dietrich skrifaði grein í Morgunblaðið um hvernig reynt var að grafa undan framboðinu þannig að það minnti á það sem hann varð vitni að undir einræðisherranum Slobodan Milosevic í Júgoslavíu árið 1992.

Greinin úr Morgunblaðinu er birt hér að neðan.

DietrichFischerProfessor

Reynt að þagga niður stuðninginn

Því miður var ýmislegt gert hér á landi til að grafa undan forsetaframboði Ástþórs og kynningum á hugmyndafræðinni að Virkja Bessastaði til friðar- og lýðræðisþróunar.

Eitt öfgafyllsta dæmið var Kastljós viðtal við Dietrich Fischer árið 2004.  Úr viðtalinu var klippt flest það sem skipti máli áður en það var sent út á ríkisfjölmiðlinum. Dietrich skrifaði eftirfarandi í Morgunblaðið:

Þessi leið til að hindra frjálsa og opna umræðu minnir einna helst á herferðina í Júgoslavíu árið 1992 þar sem talsmanni friðar, Milan Panic, var aftrað frá að kynna friðarstefnu sína fyrir kjósendum vegna þess að fjölmiðlum þar í landi var alfarið stjórnað af stuðningsmönnum þáverandi forseta landsins, Slobodan Milosevic.

"Ég vonast til að útgáfa viðtalsins við mig verði birt í fullri lengd og óritskoðuð fyrir kosningarnar 26. júní..."

TIL þeirra er málið varðar:

Dagana 11.-13. maí var ég staddur á Íslandi. Ríkissjónvarpið tók 45 mínútna viðtal við mig í tengslum við komandi forsetakosningar hér á landi. Þar sem viðtal þetta fór fram á ensku átti það að vera birt með íslenskum texta. Því var útsendingunni frestað. Ég heyrði rétt í þessu frá Ástþóri Magnússyni (ég styð málstað hans í friðarmálum) og hann tjáði mér að einungis tíu mínútna brot úr viðtalinu hefði verið birt í sjónvarpinu í kvöld og var þar ekki minnst einu orði á áhersluþætti mína um það hvernig forsetaembætti Íslands gæti beitt sér í friðarmálum á alþjóðavettvangi né heldur var minnst á hvað Ástþór Magnússon hyggst gera nái hann kjöri.

Ég nefndi og studdi eftirtalin þrjú markmið hans en heyrði að þau hefðu öll verið tekin út úr viðtalinu:

(1)að koma á fót stofnun í lýðræðisfræðum sem muni stuðla að virkara lýðræði, sem fyrirmynd fyrir alla heimsbyggðina;

(2)að breyta bandarísku herstöðinni á Íslandi í höfuðstöðvar friðargæsluliðs Sameinuðu þjóðanna;

(3)koma á friðarstofnun þar sem leitað verður úrlausna á málum deiluaðila víða að úr heiminum þar sem þeir geta hist ásamt reyndum sáttasemjurum.

Einnig benti ég á að þrátt fyrir að Ísland sé lítið land gæti það samt sem áður haft mikið forskot í að stuðla að friði. Ég minntist á tvo forseta í þessu sambandi:

Árið 1973 bauð forseti Finnlands, Urho Kekkonen, öllum ríkisstjórnum í Evrópu til ráðstefnu í Helsinki um öryggi og samvinnu í Evrópu, sem stóð til 1975, og undirbjó jarðveginn fyrir endalok kalda stríðsins.

Árið 1986 fundaði forseti Costa Rica, Oscar Arias Sanchez, með öðrum forsetum Mið-Ameríku og gerði samkomulag sem undirritað var af öllum forsetunum, sem endaði Contra-stríðið í Nicaragua, og varð að grundvelli annarra svipaðra friðarsáttmála í El Salvador og Guatemala.

Ég skýrði frá því að Ástþór Magnússon myndi, ef hann yrði kosinn forseti Íslands, nota þau tækifæri sem gæfust sökum stöðu hans, til að koma Íslandi á kortið sem uppsprettu friðar í heiminum.

Mér var tjáð að öllum þessum þáttum, sem voru kjarni umræðu minnar, hefði verið sleppt þegar hluti viðtalsins var sýndur í sjónvarpinu í kvöld. Ég verð að játa að ég er hneykslaður. Þessi leið til að hindra frjálsa og opna umræðu minnir einna helst á herferðina í Júgoslavíu árið 1992 þar sem talsmanni friðar, Milan Panic, var aftrað frá að kynna friðarstefnu sína fyrir kjósendum vegna þess að fjölmiðlum þar í landi var alfarið stjórnað af stuðningsmönnum þáverandi forseta landsins, Slobodan Milosevic.

Ég vonast til að útgáfa viðtalsins við mig verði birt í fullri lengd og óritskoðuð fyrir kosningarnar 26. júní, til þess að gefa íslenskum kjósendum kost á að ákveða sjálfir hvort þeir séu sammála eða ósammála þeim skoðunum sem ég lét í ljós, í stað þess að einhver komi fram við kjósendur eins og börn sem ákveðið er fyrir hvað þau mega sjá og hvað ekki.

Ég er þakklátur fyrir það tækifæri sem ég fékk til að tjá mínar skoðanir, en ég varð samt sem áður fyrir vonbrigðum þegar þær voru afskræmdar með því að klippa burtu kjarnann í máli mínu.

Með bestu kveðjum
Dr. Dietrich Fischer


Bandaríkjamenn myrtu börn í Írak - Fjölmiðlar þegja!

Sami skíturinn, annað rassgat!

Í gær birtust fréttir af Wikileaks leka sem staðfestir að bandarísir hermenn handjárnuðu og myrtu ung börn í Írak þ.á.m. fimm börn undir 5 ára aldri og fjórar konur m.a. 70 ára gamalmenni.

Bandaríkjastjórn er hryðjuverkaríki sem á að gera útlægt úr samfélagi þjóðanna.

Áhugavert er að Íslenskir fjölmiðlar að Smugunni undanskylinni hafa ekkert fjallað um þetta grafalvarlega mál. RÚV, Morgunblaðið, Fréttablaðið og Stöð2 virðast málpípur stærsta hryðjuverkaríkis heims. Á sama tíma og glæpir bandaríkjanna gegn mannkyninu afhjúpast birtir hið veruleikafirrta fréttastofa RÚV frétt undir fyrirsögninni: "Batnandi ástand í Írak". 

iraq-dad-dead-daughter.jpgElskumFridinn

Fréttirnar frá Írak ættu að vera næg ástæða fyrir Íslensk stjórnvöld til að reka sendiherra bandaríkjanna úr landi ásamt sínu hyski.

Við eigum að taka byggingar þeirra hér á landi eignarnámi og gefa til góðgerðarmála enda hafa þeir ítrekað orðið uppvísir að njósnastarfsemi frá bandaríska sendiráðinu í Reykjavík.

Friður 2000 mun í dag senda þá kröfu til Utanríkisráðherra að hann reki bandaríska sendiherrann úr landi án tafar.

 

Sendiráðsskjölin: Skutu fimm smábörn til bana


02.09.2011  |  Fréttir

Skjöl frá bandaríska utanríkisráðuneytinu sem Wikileaks hefur gert opinber varpa ljósi á atvik þar sem bandarískir hermenn eru taldir hafa tekið af lífi tíu óbreytta borgara í bænum Ishaqi í Írak árið 2006. Meðal þeirra voru kona á sjötugsaldri og fimm börn, þar af eitt fimm mánaða. Eftir að fólkið var skotið til bana voru gerðar loftárásir til að hylja slóðina. Í skjölunum eru birtar spurningar frá eftirlitsmanni Sameinuðu þjóðanna til bandarískra stjórnvalda en embættismenn í Írak höfðu krafist aðgerða í kjölfar atburðanna. Bandarísk yfirvöld neituðu að nokkuð óeðlilegt hefði getað átt sér stað.

Philip Alston starfsmaður Sameinuðu þjóðanna skýrði hinsvegar bandarískum embættismönnum frá því að krufning hefði leitt í ljós að fólkið hefði verið handjárnað og skotið til bana, þar á meðal fimm börn sem öll voru yngri en fimm ára. Þetta kemur fram á McClatchy.com.

Philip Alston frá Sameinuðu þjóðunum segist við blaðið ekki geta gefið frekari upplýsingar en staðreyndin sé sú að mannréttindaráð SÞ fylgi ekki eftir málum þegar ríki ákveði að virða að vettugi erindi sem berast frá eftirlitsmönnum stofnunarinnar. Þannig hafi farið um flest erindi til bandarískra yfirvalda á árunum 2006 til 2007 þegar Íraksstríðið var í hámarki. Engin viðbrögð var að fá hjá hermálayfirvöldum að sögn blaðsins.

Hátt í 35.000 borgarar féllu í Írak árið 2006 samkvæmt tölum Sameinuðu þjóðanna. Tæplega 36.700  

Myrtu smábörn með köldu blóði


02.09.2011  |  Raddir

,,Snemma árið 2006, í bænum Ishaqi í Írak, voru Hawra’a, fimm ára, Aisha, þriggja ára, Husam, fimm mánaða, Asma’a Yousif Ma’arouf, fimm ára, og Usama Yousif Ma’arouf, þriggja ára, handjárnuð og skotin í höfuðið af bandarískum hermönnum,” skrifar Sólveig Anna Jónsdóttir á bloggið sitt.
,,Þetta kemur fram í bandarískum sendiráðsskjölum sem Wikileaks hefur birt. Hermennirnir réðust inní hús, söfnuðu 11 manns, þar með talið börnunum, saman í eitt herbergi og tóku alla af lífi. Að því loknu voru gerðar loftárásir á húsið, farartæki brennd og húsdýrin drepin.”

Sjá blogg Sólveigar Önnu 

 

WikiLeaks reveals murder of Iraqi children by US troops

Published: 01 September, 2011, 20:48

An Iraqi woman and her children walk by a US Soldiers from the First Battalion, 17th Infantry, as he guards other soldiers from possible sniper fire as they conduct a vehicle search at a checkpoint in Mosul, north of Baghdad (AFP Photo / Cris Bouroncle)

An Iraqi woman and her children walk by a US Soldiers from the First Battalion, 17th Infantry, as he guards other soldiers from possible sniper fire as they conduct a vehicle search at a checkpoint in Mosul, north of Baghdad (AFP Photo / Cris Bouroncle)

TAGS: ChildrenCrimeMilitaryScandalIraq,CorruptionUSACultureWar


While this week marks the one-year anniversary since the US formally ended military operations in Iraq, a diplomatic cable exposed by WikiLeaks unearths a gruesome incident in which Americans handcuffed and executed children during a 2006 raid.

An uncensored diplomatic cable released through WikIleaks last week shows that not only did US troops brutally execute 11 Iraqis during an incident in March of 2006, but they then ordered in an airstrike to destroy the evidence of their wrongdoing.

Up until now, officials have either downplayed or denied the event, but the latest release courtesy of Julian Assange’s whistleblower site confirms what Iraqis have accused Americans of all along.

According to the newly released cable, American troops approached a house in Ishaqi, around 80 miles outside of Baghdad, and were met with gunfire. Once the firestorm subsided, however, the soldiers entered the home and handcuffed all of the residents, including several women and children. Once bound, the US troops then shot the civilians in the head and called in an air raid.

Allegations that the incident occurred have existed ever since the event, which was dated to have happened on March 15, 2006. The recent file released in a document dump from WikiLeaks finally confirms it by way of a United Nations investigator, who questioned the incident days later.

The newly-released cable documents correspondence between Phillip Alston, the UN’s special rapporteur on extrajudicial, summary or arbitrary executions, and American officials only 12 days after the raid occurred. According to the cable, Alston reached out to US officials after Iraqi civilians cried foul play and asked for a formal investigation into the matter. At the time, US officials denied they had done anything. McClatchy Newspapers reports that US military officials in Iraq dismissed allegation from the townspeople at the time, saying that their supposed eye-witness accounts were highly likely to be false and that an investigation was not necessary.

In Alston’s letter, however, the UN official states that American forces entered the house after firing at it — with support from an armed helicopter — and then executed 11 people in all. Three vehicles and the family’s animals were also destroyed.

Alston’s correspondence with US officials and analyses of the autopsy remained unpublished until WikiLeaks exposed the information last week.

Though the incident occurred over five years ago, the US has remained mostly mum on the issue. Speaking to McClatchy today, Alston says, “The tragedy is that this elaborate system of communications is in place but the (UN) Human Rights Council does nothing to follow up when states ignore issues raised with them."

The cable shows that the UN official was able to receive information from the autopsy of those killed, which revealed that each person in the house during the raid was handcuffed and shot in the head, including five children under the age of 5 years old and four women, one in her 70s.

Early on in the investigation, spokespeople for the US military said that an al-Qaeda-linked insurgent was located in the house and that American troops seized him from a first-floor room after a gun battle. The cables exposed by WikiLeaks, however, suggests that troops entered the house after 25 minutes of a shootout, handcuffing and shooting the residents once the coast was clear.

The cable was signed off by Col. Fadhil Muhammed Khalaf, assistant chief of the Joint Coordination Center, and cites autopsies performed at the morgue of the Tikrit Hospital. The Join Coordination Center was based in Tikrit, hometown of Saddam Hussein, and served as a security center that was founded by US military personnel and staffed by Iraqi police officers that were trained by Americans. 


Útilokað að höfuðstöðvar S.Þ. séu í hryðjuverkaríki

Tími er kominn á að leiðtogar Íslands og annarra lýðræðisríkja krefjist þess að höfuðstöðvar Sameinuðu Þjóðanna verði fluttar frá því morðóða hryðjuverkaríki bandaríkjunum.

Wikileaks uppljóstranir hafa til viðbótar ýmsum öðrum upplýsingum síðustu ára afhjúpað ríki undir stjórn brjálæðinga í ameríku. 

Snarklikkað fólk starfar einnig á flugvöllum bandaríkjanna. Fjöldi fólks hefur lent í klónum á þessu liði við komu til landsins. Gestir sem hafa þurft að sækja fundi eða ráðstefnur hjá S.Þ. hafa verið lítisvirtir m.a. sendiherra Indlands:


mbl.is Var gestur Birgittu í sendiráðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VISA og MASTERCARD svíkja lit

Visa og Mastercard eiga að halda sér á sínu sviði, greiðslumiðlun. Misnotkun þeirra á greiðslukerfinu til að verja alþjóðlega spillingu bandarískra pólitíkusa réttlætir aðgerðirnar gegn þeim.

Nú þurfum við nýtt greiðslukortakerfi. Nýtt hlutlaust kerfi sem ekki tengist trúðunum í Washington!


mbl.is Tölvuþrjótar herja á vef Visa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Utanríkisráðuneytið svarar ekki fyrirspurn um peningabruðl í sendiráðum

Hversvegna svarar ekki Utanríkisráðuneytið þessari fyrirspurn sem ég sendi þeim fyrir mánuði síðan:

Ég er að skrifa greinar um einstaka liði í fjárlögum, m.a. vegna sendiráða og Varnarmálastofnun.

Í þessu sambandi langar mig að skilja betur hvaða hlutverksendiráð hafa að gegna í nútíma samfélagi. Hvort við getum ekki sársaukalaust lokað sendiráðunum og að mestu leiti amk rekið þessa starfsemi frá Íslandi í gegnum síma og netið.
 
Þessvegna spyr ég:

1. Hvernig er tímanum varið hjá sendiráði? Er til einhver úttekt á því t.d. hvaða starfsemi fór fram á síðasta ári í sendiráðinu í London? Eða einhverju öðru sendiráði sé ekki slík greining til fyrir það sendiráð?

2. Hvað kostar rekstur sendiráðs t.d. í London á ársgrundvelli? Hvað kostar klukkustundin (vinnustundir) hjá sendifulltrúa?
Hvernig eru almenn launakjör sendiráðsstarfsmanna, laun og hlunnindi? Hvað kostar slíkur starfsmaður okkur?

3. Mér skilst á starfsmönnum sendiráðs að mikilvægur hluti af þeirra vinnu tengist menningarstarfi eða menningarútflutningi? Hvað er þetta nákvæmlega sem þarna er verið að tala um?

4. Þá er mér einnig sagt að sendiráð sé að greiða götu fyrirtækja sem hyggja á útflutning? Hefur þetta verið greint? Hvað fengu t.d. mörg fyrirtæki aðstoð frá sendiráðinu í London á síðasta ári? Hvernig aðstoð? Skilaði það einhverju? 
 
Gæti aðstoð við útflutningsfyrirtæki verið rekin frá Íslandi með haghvæmari hætti? Sjálfur hef ég reynslu af því að hringja í tvösendiráð og spyrja hvort þeir ættu lista yfir dreifingaraðila fyrir drykkjavörur í landinu. Upplýsingar voru ekki til staðar í hvorugu sendiráðinu. Í Þýzkalandi var mér boðið að láta gera lista og borga fyrir að búa til þann lista. Á endanum notaði ég netið sjálfur til að finna upplýsingarnar. T.d. væri ekki hægt að láta slíka vinnu fara fram frá Íslandi?

5. Mér skilst að sendiráð sjái um að gefa út neyðarvegabréf. Má ekki leysa þetta með ræðismönnum sem vinna sjálfstætt og fá greitt fyrir að gefa út slíkt vegabréf beint frá þeim sem sækjast eftir þjónustunni? Einnig langar mig að vita hvað voru gefin út mörg neyðarvegabréf s.l. ár hjá sendiráðinu í London?

Varnarmálastofnun:
Síðan langar mig að spyrja um Varnarmálastofnun? Hvað gerir þessi stofnun? Má ekki bara loka ratsjárstöðvunum sem hún rekur eða leigja þær öðrum þjóðum eða þeim NATO aðilum sem langar að vera í "stríðsleik"? Snúið útgjöldum kerfisins í tekjupóst í fjárlögum? Eða er ég að misskilja eitthvað með þessar ratsjárstöðvar?

Hafi mér yfirsést einhver veigamikil atriði þá endilega láttu upplýsingar um það fylgja með.

Með kveðju
Ástþór Magnússon

http://www.austurvollur.is/thor 


mbl.is Kostnaður nánast fjórfaldast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband