Færsluflokkur: Fjölmiðlar

Egill Helgason lýgur fullum hálsi!

Silfur EgilsMínútum eftir að ég sendi Umboðsmanni Alþingis stjórnsýslukæru vegna aðgerðaleysis Lögreglustjórans í Reykjavík gagnvart glæpastarfsemi Egils Helgasonar og RÚV barst mér eftirfarandi skeyti frá Agli þar sem hann treður salti í sárin með ósannindum og útúrsnúningum. Starfsmaður ríkisfjölmiðls sem lýgur fullum hálsi. Burt með þennan mann af RUV!

Sjá að neðan samantekt á umfjöllun og aðgang frambjóðenda Borgarahreyfingar í Silfri Egils: 

---------- Forwarded message ----------
From: Egill Helgason <ehelgason@simnet.is>
Date: 2009/10/22
Subject: Re: Stjórnsýslukæra vegna RÚV og Egils Helgasonar
To: Thor Magnusson <thor@lydveldi.is>


Sæll Ástþór. Það kom aldrei neinn frambjóðandi Borgarahreyfingarinnar í Silfrið.

Í þáttinn kom fólk sem var pólitískt aktíft síðastliðinn vetur og fór SÍÐAR í framboð fyrir Borgarahreyfinguna.

Sá sem komst næst því af frambjóðendum Borgarahreyfingarinnar að koma í Silfrið var Þráinn Bertelsson sem lýsti því yfir í þættinum að hann ætlaði að fara í framboð fyrir Borgarahreyfinguna.

Annars fjallaði ég mjög lítið um alþingiskosningarnar í Silfrinu.

mbk Egill Helgason

Borgarahreyfingin, umfjöllun.

Silfur Egils.
23. nóv. 2008 Gunnar Sig og Margrét P.
30. nóv. 2008. Ragnar Þ Ingólfsson.
11. jan 2009. Herbert Sveinbjörnsson.
1. mars 2009. Valgeir Skagfjörð.
8. mars. 2009. Þór Saari, Ragnar Þ. Ingólfsson.
22. mars. 2009. Þráinn Bertelsson.

Rúv.
27.okt. 2008.  Kastljós, Borgarafundur.
8. nóv. 2008.  Rás 1, Borgarafundur.
11. nóv. 2008. Rás 1. Borgarafundur.
17. nóv. 2008.  Rás 1. Borgarafundur.
17. nóv. 2008.  Sjóv.fréttir. Borgarafundur.
24. nóv. 2008. Sjónv.fréttir.  Borgarafundur.
24.02.2009. Borgarahreyfingin ætlar að bjóða fram til alþingis í vor (Hvað eru þau að gera)
24.02.2009 Borgarahreyfing vill koma á lýðræði
4. mars. 2009. Sjónv. Fréttir. Borgarahreyfingin.
4. mars. 2009. Kastljós. Borgarahreyfingin.
18.03.2009. Tilvera Jóhann Kristjánsson rætt við hann um ljóðabók og Borgarahreyfinguna
22. mars. 2009.  Fréttaaukinn.  Baldvin J.
27.03.2009. Þráinn og Magnús í framboð (Borgarahreyfingin)
01.04.2009 Jóhann Kristjánsson  - Stefna Borgarahreyfingarinnar
14. apríl. 2009. Sjónv. Fréttir. Borgarahreyfing.

Sjá hér Stjórnsýslukæruna:
http://lydveldi.blog.is/blog/lydveldi/entry/968762/

 


Stjórnsýslukæra vegna RÚV og Egils Helgasonar

Aðgerðaleysi lögreglu við glæpastarfseminni á RÚV hefur verið kærð til Umboðsmanns Alþingis.  Heilbrigt heilbrigt lýðræði og stjórnsýsla hlýtur að vera hornsteinn að kjörorðinu: Með lögum skal land byggja!

Stjórnsýslukæra
vegna RÚV og Egils Helgasonar

Í aðdraganda síðustu alþingiskosninga sendum við fjölda erinda og kærur vegna ítrekaðra brota RÚV og Egils Helgasonar þáttastjórnanda gegn Lýðræðishreyfingunni.

M.a. var kært til Lögreglustjórans í Reykjavík þar sem um var svo grófa mismunun að ræða hjá RÚV að varðaði við kosningalög og almenn hegningarlög.  Engin svör hafa borist frá embættinu. Einnig hafa engin svör borist frá Menntamálaráðuneytinu sem einnig fengu margítrekað kærur og kvartanir vegna málsins. Menntamálaráðherra hefur einnig brugðist skyldu sinni í þessu máli og hefur að engu lög og reglur um Ríkisútvarpið.

Þar sem stjórnsýsla og löggæsla landsins hefur landslög að engu, er þess óskað að Umboðsmaður Alþingis taki til umfjöllunar kærur okkar og kvartanir yfir brotum RÚV og Egils Helgasonar.

Nýjar upplýsingar hafa borist vegna framferðis Egils Helgasonar sem enn frekar undirstrika vanhæfi hans til að starfa á ríkisfjölmiðlunum sem eiga að gæta hlutleysis í umfjöllun sinni en það hefur þessi þáttastjórnandi svo sannarlega ekki gert:

Í útsendingu Bylgjunnar þann 16 ágúst s.l. sagðist Egill Helgason starfsmaður Ríkisútvarpsins-RÚV hafa kosið Borgarahreyfinguna við síðustu alþingiskosningar.  Hér er líklegast komin skýringin á því hversvegna Lýðræðishreyfingin var útilokuð frá þættinum Silfur Egils á RÚV í aðdraganda kosninganna á meðan 8 fulltrúar Borgarahreyfingarinnar fengu ítrekað aðgang að þættinum  á tímabilinu 23 nóvember – 22 mars s.l. Á sama tíma var Lýðræðishreyfingunni alfarið synjað um aðgang að Silfri Egils m.a. með þessum orðum eftir ítrekuð símtöl, símbréf og netpóst undirritaðs til stjórnenda Silfur Egils: „Sæll Ástþór, Ekki hringja í hana Halldóru, hún ræður engu um hvað er í þættinum. Ég mun ekki bjóða þér í þáttinn að sinni. Mbk Egill“

Líkur má leiða að því að ofangreint hátterni og mismunum RÚV gagnvart Lýðræðishreyfingunni hafði afgerandi áhrif á úrslit síðustu alþingiskosninga.

Hjálagt fylgja kærur frá 29. mars 2009 og 5 apríl 2009 sem sent var til Lögreglustjórans í Reykjavik og sem fjallaði um margvísleg brot RÚV gegn Lýðræðishreyfingunni. Krafist var og enn er þess krafist að skipt verði um yfirstjórn hjá RÚV og hlutaðeigandi brotamönnum innan Ríkisútvarpsins, þ.á.m. Agli Helgasyni verði vikið úr starfi og þeim refsað í samræmi við lög og reglur.

Ofangreind kæra hefur verið send Umboðsmanni Alþingis ásamt fjölda fylgiskjala. Eitt fylgiskjalanna er með þessari blogfærslu - afrit kæru til Lögreglustjórans í Reykjavík þann 5 apríl 2009.

 


mbl.is Lögreglan þarf að velja og hafna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt
Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Hversvegna tekur stelpan ekki á RÚV skúrknum?

Silfur EgilsHversvegna er ekki farið að núverandi lögum t.d. varðandi hlutleysi þáttastjórnenda á RÚV?

 Hversvegna tekur ráðherra stelpan ekki á ítrekuðum kvörtunum og kærum sem henni voru sendar í aðdraganda síðustu alþingiskosninga þegar Egill Helgason gróflega misnotaði aðstöðu sína með því að útiloka Lýðræðishreyfinguna frá þáttum sínum á RÚV meðan hann hampaði margítrekað aðstandendum og frambjóðendum Borgarahreyfingarinnar.  Þessi fjölmiðlaskúrkur gengur sífellt lengra í þeirri vissu að spilltir stjórnmála og löggæslumenn muni ekki taka á lögbrotum hans.

FjölmiðlasvínHversvegna tekur hún ekki á kvörtunum og kærum gagnvart fréttastofu RÚV sem margsinnis brutu núverandi lög í aðdraganda alþingiskosninga sem svo grófum hætti að varðar við hegningarlög.

VG stelpuskjátan í ráðherrastól hefur engan trúverðugleika með nýtt frumvarp meðan hún leyfir drullusokkunum sem stjórna fréttastofu og helstu þáttum á RÚV að fótum troða lýðræðið. Hún hefur ekki einu sinni svarað marg ítrekuðum kvörtunum Lýðræðishreyfingarinnar um brot RÚV á núverandi lögum.  Til hvers að setja lög ef ekki þarf að fara eftir þeim?  Nær væri að sparka í rassgatið á Lögreglustjóranum í Reykjavík með þeim skilaboðum að ekki sé viðunandi að stinga undir stól öllum kærum gegn RÚV fyrir brot á kosningalögum og hegningarlögunum í aðdraganda kosninga. 

Að setja lög sem ekki er ætlast til að farið sé eftir getur einungis stuðlað að enn frekara upplausnarástandi í þegar gerspilltu þjóðfélagi flokksdýranna.


mbl.is Nýtt fjölmiðlafrumvarp kynnt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Egill Helgason vanhæfur til starfa á RÚV!

Í útsendingu Bylgjunnar í morgun sagðist Egill Helgason starfsmaður ríkisfjölmiðlanna Ríkisútvarpsins-RÚV hafa kosið Borgaraheyfinguna við síðustu alþingiskosningar.

Silfur Egils
Hér er líklegast komin skýringin á því hversvegna Lýðræðishreyfingin var útilokuð frá þættinum Silfur Egils á RÚV í aðdraganda kosninganna á meðan 8 fulltrúar Borgarahreyfingarinnar fengu ítrekað aðgang að þættinum 23 nóvember - 22 mars s.l.  Á sama tíma var Lýðræðishreyfingunni alfarið synjað um aðganga að Silfri Egils m.a. með þessum orðum eftir ítrekuð símtöl, fax og email undirritaðs til stjórnenda Silfur Egils: "Sæll Ástþór, Ekki hringja í hana Halldóru, hún ræður engu um hvað er þættinum. Ég mun ekki bjóða þér í þáttinn að sinni. mbk Egill"

Ljóst er að Egill Helgason misnotaði aðstöðu sína í þágu eigins stjórnmálaflokks í aðdraganda alþingiskosninganna . Hann er því vanhæfur til starfa á ríkisfjölmiðlunum. Ítrekuð er krafa okkar frá 20. mars s.l. að Agli Helgasyni og Silfri Egils verði vikið úr dagskrá Ríkisútvarpsins/ RÚV.  

Í því ástandi sem ríkir á Íslandi er það mjög alvarlegt og í raun nánast landráð að stjórnendur ríkisfjölmiðla komist upp með að misnota aðstöðu sína og hefta lýðræðislega umræðu eins og raun bar vitni á Ríkisútvarpinu-RÚV í aðdraganda alþingiskosninganna 2009. Enda heldur Íslenska sukkið áfram, engin bankaræningjanna kominn í gæsluvarðhald og reynt að þagga niður óþægilega gagnrýni.  

Lýðræðishreyfingin mun ekki una slíku ástandi. Við ítrekum þau 12 erindi, kvartanir og kærur, sem við sendum í aðdraganda kosninga um margvísleg atriða er vörðuðu mismunun Ríkisútvarpsins-RÚV gagnvart Lýðræðishreyfingunni. Þessu máli er ekki lokið enda hefur Ríkisútvarpið ekki svarað neinu þeirra erinda sem við sendum stjórnendum RÚV og eftirlitsstofnunum.  Minnt er á að Lýðræðishreyfingin sendi 12 erindi og flutti 3 "leikrit" við útvarpshúsið í Efstaleiti í aðdraganda alþingiskosninganna. Þannig þurfti að berjast fyrir mannréttindum og lýðræði á Íslandi árið 2009!

Lýðræðishreyfingin áskilur sér allan rétt til að nota bæði hefðbundnar og óhefðbundnar leiðir til að ná fram rétti sínum gagnvart ríkisfjölmiðlunum. Slíkt getur m.a. falist í því senda út alla fréttatíma Ríkisútvarpsins - hvenær sem er alla daga og allan sólarhringinn - um eigin útvarpsrás og birta ásamt  tilheyrandi viðvörun til almennings um svívirðilega framkomu starfsmanna Ríkisútvarpsins. 

Virðingarfyllst,
Lýðræðishreyfingin
Ástþór Magnússon


Ofangreint er innihald í bréfi sent til:
Páll Magnússon útvarpsstjóri og stjórnendur Ríkisútvarpsins
Ríkisútvarpið, Efstaleiti 1, 150 Reykjavík. Símbréf 5153001

Nefndarskipun um endurskoðun laga um fjármál stjórnmálaflokkana

Bréf sent forsætisráðherra Jóhönnu Sigurðardóttur: 

Kvörtun vegna nefndarskipunar um endurskoðun laga um fjármál stjórnmálaflokkana

Lýðræðishreyfingin gerir athugasemdir við skipun í nefnd um endurskoðun laga um fjármál stjórnmálaflokkana en samkvæmt fréttum frá Forsætisráðuneytinu eiga allir stjórnmálaflokkar sem tóku þátt í nýafstöðnum alþingiskostningum fulltrúa í nefndina nema Lýðræðishreyfingin.

Lýðræðishreyfingin er nú aftur sniðgengin með beinum og skipulögðum hætti eins og við máttum þola af ríkisfjölmiðlunum RÚVog Ríkisútvarpinu í aðdraganda kosninganna en þar fengum við ekki aðgang á jafnréttisgrundvelli fyrr en settar höfðu verið upp leiksýningar við útvarpshúsið í Efstaleiti í mótmælaskyni til að vekja athygli á ósómanum.  Lýðræðishreyfingin neyddist til þess að setja á fót eigin útvarpsstöð (Lýðvarpið) til að koma boðskap sínum á framfæri þegar Ríkisútvarpið var algerlega lokað fyrir okkur meðan önnur ný framboð eins og Borgarahreyfingin sem starfsmaður Ríkisútvarpsins var í forsvari fyrir fékk þar nær óheftan aðgang. Ríkisútvarpinu tókst með þessu hátterni að skekkja úrslit kosninga og þannig auka enn frekar mismunun. Ekki er hægt að líða slíkar uppákomur í því sem á að kallast lýðræði. Lýðvarpið mun því halda áfram að veita spillingaröflunum aðhald með því að vekja athygli á óvönduð fréttum ríkisfjölmiðlanna.

Lýðræðishreyfingin harmar tvöfeldni og óheiðarleika þeirra stjórnmálamanna sem virðst hafa blekkt þjóðina við síðustu kosningar. Til að mynda lofaði fjármálaráðherra í kosningasjónvarpi að koma á fót markaðsskrifstofu til að laða til Íslands erlend fyrirtæki eftir tillögum Lýðræðishreyfingarinnar og í tvígang lýsti því yfir að hann myndi hringja í Ástþór Magnússon vegna þessa. Ekkert slíkt símtal hefur borist og ríkisstjórnin virðist ekkert ætla að gera í þessu mikilvæga hagsmunamáli þjóðarinnar og virðist þess í stað ætla að blóðmjólka heimilin í landinu með auknum sköttum og niðurskurði.

Lýðræðishreyfingin hefur ítrekað kært misbresti í framkvæmd kosninga til Öryggis og Samvinnustofnunar Evrópu og þá sérstaklega hvað varðar aðgang að lýðræðislegri umræðu í ríkisfjölmiðlunum. Lýðræðishreyfingin hefur einnig gert athugasemdir við hvernig fjármálum stjórnmálaflokkanna er háttað og var þetta m.a. rætt við fulltrúa ÖSE er þeir voru hér í aðdraganda síðustu kosninga svo og við fjármálaráðherra stuttu fyrir útsendingu hjá Stöð2 við síðustu kosningar. Það er því miður að ríkisstjórnin kjósi að útiloka Lýðræðishreyfinguna frá þessari umræðu með því að veita okkur ekki aðgang að nýskipaðri nefnd á jafnréttisgrundvelli.

Virðingarfyllst,
Lýðræðishreyfingin
Ástþór Magnússon  
Jón Pétur Líndal  
Guðrún María Óskarsdóttir


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Úrslit kosninga koma ekki á óvart

Áhugavert er að skoða úrslit kosninga fyrri ára og bera saman við nú. Ný framboð hafa yfirleitt náð litlu kjörfylgi. Misnotkun ríkisfjölmiðlanna áratugum saman endurspeglast í óvirku lýðræði við alþingiskosningar.

Ný framboð hafa yfirleitt ekki átt upp á pallborðið hjá þáttastjórnendum ríkisfjölmiðlanna þótt á þessu hafi verið einstaka undantekningar eins og nú með Borgarahreyfinguna en formaður hennar er starfsmaður Ríkisútvarpsins, var meira að segja staðinn að því að vera á launum frá ríkisfjölmiðlinum í framboðsferð á Akureyri.

Lýðræðishreyfingin gaf út framboðsyfirlýsingu 5 mánuðum fyrir kosningar, í nóvember 2008 en þá voru borgarafundir Borgarahreyfingarinnar fyrirferðamiklir hjá RÚV. Talsmaður Lýðræðishreyfingarinnar borinn út af fundum þeirra fyrir þær sakir að leggja til lýðræðisleg vinnubrögð. Þrátt fyrir þetta hélt RÚV áfram að útvarpa og sjónvarpa fundum Borgarahreyfingarinnar.

Fram til 15 apríl (10 dögum fyrir kosningar) fékk Lýðræðishreyfingin tækifæri til að kynna sín málefni í ríkisfjölmiðlunum með einu stuttu innleggi í broti af Kastljósþætti RÚV. Þetta gerðist  eftir að send höfðu verið á annan tugur erinda til útvarpsstjóra og efnt tvívegis til mótmæla/leiksýninga við útvarpshúsið. En það reyndist eina leiðin til að brjótast í gegn þarna. Fram að þeim tíma var símtölum okkar svarað með útúrsnúningum og Lýðræðishreyfingunni gersamlega úthýst úr ríkisfjölmiðlunum.

Silfur EgilsÁ sama tíma fékk Borgarahreyfingin 21 innslag í ríkisfjölmiðlunum meðal annars fleiri klukkutíma í útsendingum bæði sjónvarps og útvarps frá borgarafundum sínum. Einnig fengu frambjóðendur Borgarahreyfingarinnar amk sex innkomur í Silfur Egils á meðan Lýðræðishreyfingunni var algerlega úthýst. Við höfum ekki í eitt einasta skipti fengið að koma í þann þátt! Ég minnist þess einnig að sama var uppá teningnum við borgarstjórnarkosningar þegar Egill Helgason úthýsti Flokki mannsins úr leiðtogaumræðum á Skjá einum, eini stjórnmálaleiðtoginn sem var útilokaður frá spjallborðinu.

Líklegast hefur þessi þöggun verið í gangi áratugum saman. Úrslit kosninga fyrri áratuga benda til þess. Lélegt kjörfylgi Lýðræðishreyfingarinnar er ekkert einsdæmi og virðist það frekar venjan en undantekningin að ný framboð nái engu kjörfylgi. Í ágætri úttekt Morgunblaðsins á þessu í dag kemur í ljós að Bandalag jafnaðarmanna fékk 0,2% 1987, Verkamannaflokkur Íslands fékk 0,1% árið 1991, Heimastjórnarsamtök 0,6% 1991, Grænt framboð 0,3% 1991, í kosningunum 1995 fékk Kristileg stjórnmálahreyfing 0,2%, Vestfjarðarlistinn 0,4%, Náttúrulagaflokkur 0,6%, Suðurlandslistinn 0,7%, árið 1999 fékk Humanistaflokkurinn 0,4%, Kristilegi lýðræðisflokkurinn 0,3% og Anarkistar 0,1%.

Eitt mikilvægasta mannréttindamál Íslendinga er að hér komist á virkt og heiðarlegt lýðræði. Grunvallar reglur lýðræðis eru opnir og hlutlausir fjölmiðlar. Nauðsynlegt er að setja án tafar fjölmiðlalög sem tryggja óhlutdræga umfjöllun í aðdraganda kosninga. Einnig þarf að endurskoða kosningalögin til að gæta þess að öll framboð sitji við sama borð hvað varðar fjárstyrki. Að hafa frambjóðendur í þeirri stöðu að þeir þurfi að skrapa styrki úr atvinnulífinu er lýðræðinu beinlínis hættulegt. Í bland við ofríki einstakra ríkisstarfsmanna á stærstu fjölmiðlunum er Íslenskt lýðræði sannkallaður spegill skrípræðis.
mbl.is Ekki víst að langt sé í land
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í dag ertu frjáls

xp2.jpgÍ dag getur þú valið frelsi úr kreppu og höftum. Komist til áhrifa á Alþingi Íslendinga. Lýðræðishreyfingin er eina stjórnmálahreyfingin sem mun gefa þér málfrelsi og ákvarðanafrelsi í beinu og milliliðalausu lýðræði á Alþingi.

Í dag getur þú fengið frelsi undan ánauð flokksræðis. Gefið mútuþægum pólitíkusum langt nef. Veittu þeim ærlega refsingu með því að eiga þína eigin rödd og þitt eigið atkvæði á Alþingi.

Í dag skrifum við Íslandssöguna. Þetta er dagurinn sem þjóðin getur gert sögulegar lýðræðisumbætur og rekið spillinguna á dyr.

xP Lýðræðishreyfingin er eini raunhæfi kosturinn ef þú vilt byggja nýtt Ísland. Enginn annar býður þér að virkja þitt atkvæði á Alþingi. Þú þarft ekki að afsala þér atkvæðisrétti næstu fjögur árin. Í Lýðræðishreyfinguna áttu þína rödd og þitt atkvæði á Alþingi sem þú getur nýtt þér hvenær sem þú vilt.

Við ætlum að sækja þýfið, þá hundruði milljarða sem útrásarvíkingarnir stálu af þjóðinni og nota öll tiltæk ráð til að ná lögum yfir spilltu grísina. Við munum beita hryðjuverkalögum eins og bretar gerðu gegn Landsbankanum þannig að öll sund lokist hjá spilltum útrásarvíkingum erlendis og þeir verði nauðbeygðir að koma heim og skila peningunum.

Við munum markaðssetja Ísland sem land tækifæranna um allan heim og byggja upp nýja atvinnuvegi, nýja skattstofna og tekjur. Við munum semja við eigendur jöklabréfanna og fá þeim umbreytt í langtíma fjárfestingasjóð atvinnulífsins til að fá erlendu fjárfestana með í að byggja upp nýtt Ísland og losa þannig þrýsting af krónunni.

Við munum hagræða í stjórnkerfinu og ríkisreksrinum án skattahækkana. Við munum ekki leggja aukna skatta á aðþrengd heimili. Með víðtækri atvinnuuppbyggingu stækkum við kökuna og náum í nýja skattstofna.

Við munum fá hingað færustu hagfræðinga heims til að aðstoða okkur við að umbreyta Íslensku bönkunum úr sveitasparisjóðum í öflugar alþjóðlegar fjármálastofnanir. Þannig færum við súrefni í allt efnhagslífið, lækkum vexti og styrkjum gjaldmiðilinn.

Merktu xP á kjörseðilinn, það er eina raunhæfa lausnin úr kreppunni.
mbl.is Kjörstaðir opnaðir klukkan 9
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjarni Ben neitar að svara um peningana

bjarnibenvidtal.pngEftir að gera ítrekaðar tilraunir til að hringja í Bjarna Benediktsson formann Sjálfstæðisflokksins fórum við á stúfana með videóvél og hljóðnema.

Bjarni fór undan í flæmingi og neitaði að svara um hvort þeir ættu peningana til að endurgreiða ofurstyrki eins og framkvæmdastjóri flokksins lýsti yfir við Lýðvarpið fyrir nokkrum dögum

Í gær sagði Pétur Blöndal á Útvarpi Sögu við Ástþór Magnússon að flokkurinn eigi ekki þessa peninga til.

Hver er að segja satt og hver er að ljúga? Þjóðin þarf að vita það fyrir kosningar!

Hér má sjá viðtalið við Bjarna Ben

ATH: Bæði Stöð2 og RÚV slepptu þessari frétt í kvöld. Þeim var báðum tilkynnt um atburðinn. Þjóðin ætti að spyrja sig hversvegna þessir fjölmiðlar gangi ekki eftir svörum frá Sjálfstæðisflokknum og hversvegna þeir eru dottnir ofaní sama sukkið og fyrir bankahrunið?

http://www.youtube.com/watch?v=kN5vyKLeYc8


Leitar að 55 milljónum hjá ræningjum í Húsdýragarðinum

bjarnipeningarFramkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins Gréta Ingþórsdóttir upplýsti við Lýðvarpið FM100.5 fyrr í vikunni að hún sé tilbúin með peninga á reikningi flokksins til að endurgreiða 55 milljón króna ofurstyrki til flokksins eins og Bjarni Benediktsson formaður hefur lofað þjóðinni.

Í gær upplýsti hinsvegar Pétur Blöndal þingmaður Ástþór Magnusson í beinni útsendingu að þessir peningar séu ekki til hjá flokknum, en það væru hinsvegar til einhver veð. Á sama tíma sagði Pétur að "kínamúr" væri milli fjármála flokksins og þingmanna en samt virðist hann vita nákvæmlega hver staðan á bankareikningum flokksins.

Sjálfstæðismenn eru orðnir margsaga um endurgreiðslu á ofurstyrkjunum og fjárhagsstöðu flokksins. Hefur framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins haft uppi ósannindi um fjárhagsstöðuna? Er Bjarni Benediktsson að blekkja kjósendur með kosningaloforði um endurgreiðslu á ofurstyrkjum?

Lýðvarpið FM100.5 vill fá svör við þessum spurningum. Í símtölum við flokksskrifstofur Sjálfsstæðiflokksins sem útvarpað var á Lýðvarpinu FM100.5 í hádeginu var Ástþóri Magnússyni boðið að mæta í Húsdýragarðinn kl. 17, hitta ræningjana úr Kardimommubænum og spyrja Bjarna um týndu peningana. Ástþór tekur Sjálfstæðismenn á orðinu og mun mæta á staðinn með myndavél og hljóðnema til að fá málið upplýst.


Segist vera með tugmilljónir tilbúnar á reikningi flokksins en vilja ekki endurgreiða mútugreiðslurnar fyrir kosningar

Framkvæmdastjóri Sjálfstæðiflokksins segist vera með 55 milljónir tilbúnar á reikningi flokksins en flokkurinn ætlar ekki að endurgreiða ofurstyrki fyrir kosningar

sjalfstaedisflokkur.jpgÁ fréttavakt.is á Lýðvarpinu FM100.5 í hádeginu í dag sagðist framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins vera með peningana tilbúna á reikningi flokksins til að endurgreiða 55 milljón króna styrki sem kenndir hafa verið við mútuþægni.

Gréta Ingþórsdóttir nýskipaður framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins fór undan í flæmingi þegar Ástþór Magnússon spurði hana áleitinna spurninga á Lýðvarpinu FM100.5 um endurgreiðslu á ofurstyrkjum sem margir hafa kallað mútufé.

Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins lýsti því yfir á Bylgjunni í morgun að styrkirnir yrðu endurgreiddir 1. júní n.k. sem er nokkrum vikum eftir kosningar. Hinsvegar segir framkvæmdastjóri flokksins að peningarnir séu tilbúinir á reikningi flokksins til að endurgreiða strax í dag. Hversvegna er það þá ekki gert í dag spyr Ástþór Magnússon?

Hér má hlusta á símtalið:  auto-1240313984-115-003547726662


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband