Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Þjóðfundurinn: Virkjum Bessastaði

Samhljómur er í niðurstöðum Þjóðfundarins og stefnuskrá frambjóðanda 7176 til Stjórnlagaþings m.a. hvað varðar að Virkja Bessastaði, koma á beinu lýðræði og einfalda stjórnsýsluna.

Stefnuskrá frambjóðanda 7176: www.austurvollur.is/thor

Samantekt frá Þjóðfundinum: http://thjodfundur2010.is/other_files/2010/gogn/Samantekt-Thjodfundur-2010.pdf


mbl.is Stjórnarskrá fyrir fólkið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eins og skrifað uppúr minni stefnuskrá!

Frábært hvernig niðurstaða Þjóðfundarins undirstrikar þá stefnuskrá sem ég hef unnið með s.l. fimmtán ár!

Nú vona ég bara að þjóðin veiti frambjóðanda 7176 tækifæri til að hrinda þessum góðu málum í framkvæmd sem þátttakanda í smíði nýrrar stjórnarskrá á Stjórnlagaþingi.

Vefsíða framboðsins / Helstu stefnumál: www.austurvollur.is/thor
Facebook síða framboðsins: www.facebook.com/lydveldi
Heimasíða mín á Facebook: www.facebook.com/austurvollur


mbl.is Grunngildin skýrð á þjóðfundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þorir þjóðin að stíga skrefið?

Ég hef fylgst með því í einn og hálfan áratug hvernig atvinnupólitíkusar hafa spilað með þjóðina, fært fram kosningaloforð og síðan svikið flest þeirra.

Hvernig auðæfum þjóðarinnar hefur verið dreift til flokksgæðinga á kostnað almennings. Svokölluð "einkavæðing" Búnaðarbanka Íslands er eitt skýrasta dæmið um sukkið.

Ráðherra í ríkisstjórn Íslands notaði embætti sitt til að hagræða málum þannig að hann gæti síðan ásamt vinum sínum "keypt" bankann. 

Síðar er komið ljós að þetta var eitt stórt sýndarspil. Bankanum var einfaldlega stolið af þjóðinni og síðan notaður í einu stærsta fjársvikamáli okkar tíma. Þjóðin situr uppi með skellinn en ráðherrann fyrrverandi er nú eigandi stórfyrirtækis sem hann keypti fyrir stolnu peningana.

Við höfum stundum heyrt svipaðar sögur um misnotkun valds úr svokölluðum bananalýðveldum Afríku. Sjaldan tengt slíkt við "gamla góða Ísland".

Vandamálið liggur hjá þjóðinni sjálfri. Hjá kjósendum sem hafa hafnað nýjungum og kosið spilltu flokkana aftur og aftur. Hættan er sú að kjósendur velji fulltrúa þeirra inná Stjórnlagaþing.

Ég er í framboði til Stjórnlagaþings Nr. 7176. Ég vil varpa spillingunni á dyr fái ég til þess stuðning þjóðarinnar. Kynntu þér hugmyndir mínar á vefsíðunni: http://austurvollur.is/thor
Facebook: www.facebook.com/lydveldi


mbl.is Góður andi á Þjóðfundinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vitum svarið, en hver fyrirskipaði handtökuna?

Lítil þörf á að rannsaka stuðning Íslands við Írakstríðið. Vitað er að tveir snarbrjálaðir ráðherrar tóku þessa ákvörðun.

Rannsaka þarf hver fyrirskipaði handtöku og fangelsun Íslensks friðarsinna sem benti á hættuna sem myndi skapast til framtíðar fyrir Íslenska flugfarþega ef Icelandair flytti vopn og hermenn fyrir stríðsglæpamanninn Bush.

Lögreglumaður sem sagðist þekkja til málsins sagði mér eitt sinn að handtökuskipun mín hefði komið úr Stjórnarráðinu. Ef það er rétt er það alvarleg misnotkun lögreglu og réttarkerfis.

Handtaka mín og fangelsun vakti almenna hneykslan á alþjóðavettvangi. Yfir 10 þúsund mótmælabréf bárust til Íslenskra stofnana í gegnum vefkerfi Friðar 2000 þar til nettengingu samtakanna var lokað, einnig með einhverskonar pólitískri fyrirskipun til símafélags.

Meðal þeirra sem sendi forsætisráðherra bréf var formaður kommúnistaflokksins í Moskvu, fjöldi þingmanna frá ýmsum löndum, erlend Amnesty félög og fleiri mæt félög og einstaklingar.  Greinar birtust í erlendum blöðum og fjallað um málið í útvarpi m.a. í Ástralíu.

Sem betur fer tókst mér að stöðva þessa gersamlega brjáluðu þátttöku Íslands í stríðinu. Eftir óhefðbundin mótmæli mín í héraðsdómi hættu menn að tala um að senda Icelandair með vopn og hermenn til Írak. 

Fyrir þá sem ekki til þekkja, byggðist aðvörun mín á því að samkvæmt alþjóðlegum sáttmálum um stríðsrekstur missir borgaralegur aðili stöðu sína við þátttöku í stríðsreksri. Með öðrum orðum ef Íslenskt flugfélag tekur þátt í flutningum vegna stríðs, er það ekki lengur skilgreint sem borgaralegt flugfélag heldur er orðinn hluti af stríðsvélinni og þá um leið eru allar starfsstöðvar (og flugvélar) þess félags orðnar lögmætt skotmark. Af þessari ástæðu var hugmynd forsætisráðherra um að lána Íslenskar farþegavélar til Íraksstríðs gersamlega galin! 

Framboð 7176 til Stjórnlagaþings:
www.facebook.com/lydveldi
www.austurvollur.is/thor


mbl.is Vilja rannsaka ákvörðun um stuðning við Íraksstríð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sendum bandaríska sendiráðinu reikning

Bandaríska sendiráðið segist vera í sérstakri hættu sem skotmark hryðjuverkamanna.

Ástæðan er auðvitað sú að bandaríkin hafa farið með ofbeldi og hryðjuverkum gegn saklausu fólki eins og í mið-austurlöndum.

Þar hafa þeir farið rænandi og ruplandi eftir olíu.

Sendum bandaríska sendiráðinu reikning fyrir að skapa hugsanlega hættu af veru sinni á Íslandi. Við gætum byrjað á að skrifa reikning uppá 90 milljónir króna, sem er sú upphæð sem okkur bráðvantar núna til að útrýma matarbiðröðum næstu 12 mánuðina.

Framboð til Stjórnlagaþings: http://facebook.com/lydveldi


mbl.is Eftirlit nauðsynlegt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjáið video hér - Talar í hringi

Takið eftir hvernig formaður Sjálfstæðisflokksins talar út og suður. Hann gerði það fyrir kosningar og gerir enn. Ekki einsdæmi, virðist einhverskonar stjórnmálapest sem hefur lagst á þingmenn.

Gamla flokkadraslið er gegnumsýrt spillingu og ónýtt. Þessvegna virkar hvorki Alþingi né stjórnsýslan rétt eins og Gylfi Arnbjörnsson segir.

Nú þarf að söðla um. Ég er í framboði til Stjórnlagaþings með tillögur um skilvirkari og haghvæmari stjórnsýslu með beinu og milliliðalausu lýðræði. Framboð 7176. Á Facebook: www.facebook.com/lydveldi


mbl.is Bjarni mótmælir orðum Gylfa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Burt með matarbiðraðir eða burt með þig!

Jóhanna, þú getur leyst úr vanda þess fólks sem bíður vikulega í matarbiðröðum með einu pennastriki. Kostar smápeninga.

Leysa úr vanda heimilanna með uppstokkun fjárlaga. Loka sendiráðum. Loka Varnarmálastofnun. Engin listamannalaun eða bitlinga til þeirra sem þegar eru á launum eins og t.d. Þráinn Bertelsson.

Sækja stolnu peningana. Þjóðnýta fyrirtæki þjófanna, Frumherja, Samskip og fleiri.

Þetta er einfalt. Drífðu bara í þessu eða skilaðu inn þínu umboði til forseta Íslands.

Framboð 7176 til Stjórnlagaþings á www.facebook.com/lydveldi


mbl.is Jóhanna: sit út kjörtímabilið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Erlend fyrirtæki greiði sjálf allan kostnað

Uppbygging á Keflavíkurflugvelli þarf ekki að byggjast á fjárlögum Íslands.  Þeir sem þangað vilja greiði sjálfir fyrir þjónustu og aðstöðu. Íslendingar eiga að selja sína þjónustu ekki gefa hana. 

Ég hef undanfarin ár bent á þá möguleika að byggja upp Keflavíkurflugvöll sem miðstöð friðargæslu Sameinuðu Þjóðanna. Er E.C.A. rétti samstarfsaðilinn til að þróa okkur í þá átt? Er allt uppá borðinu hjá þessu fyrirtæki? Mun starfsemi þess leiða til þess að það byrji að draga úr hernaðarbrölti þjóða sem yrði jákvætt eða ætlar E.C.A. að markaðsfæra aukningu hernaðar sem yrði neikvætt fyrir Ísland. Hafa menn kafað ofaní þetta og spurt þessara spurninga? 

http://rt.com/Politics/2010-08-31/iceland-army-russian-jets.html

http://www.thetelegram.com/Business/Employment/2010-03-27/article-1440749/European-contractor-abandoned-5-Wing-plan/1

http://www.ft.com/cms/s/0/f2a90054-b460-11df-8208-00144feabdc0.html

Framboð 7176 til Stjórnlagaþings: www.facebook.com/lydveldi


mbl.is Herþotur E.C.A. verði skráðar í öðru landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýtt lýðveldi á Facebook.com/lydveldi

Nú er tækifæri til að koma með tillögur að nýju og heilbrigðara lýðveldi. Þar sem velferð þjóðarinnar er í fyrirrúmi. Einfaldari, skilvirkari og ódýrari stjórnsýsla með beinu og milliliðalausu lýðræði. Það er báráttumál frambjóðanda 7176 www.facebook.com/lydveldi


mbl.is Frambjóðendur kynntir á vefnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fullt af peningum til, skoðið fjárlögin

fjolskylduhjalpin-bidrod_1038202.jpgLítið mál er að leysa úr vanda þessa fólks.

Takið fjárlögin til skoðunar. Þau eru full af alskyns gæluverkefnum og bitlingum.

Hversvegna er þingmaður með aukalaun fyrir að hafa í fyrra lífi skrifað kvikmyndahandrit?

Hversvegna þarf tugi sendiráða sem afgreiða ekki einu sinni vegabréf og kunna lítið í viðskiptum?

Hversvegna þarf Varnarmálastofnun? Er ekki nærtækara að verjast sjúkdómum og hungursneyð?

Ég vil breyta þessu á Stjórnlagaþingi. Framboð 7176. Styðjið Facebook síðuna:
www.facebook.com/lydveldi


mbl.is Sífellt fleiri þurfa aðstoð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband