Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Hversvegna ekki gæsluvarðhald?

Kaupthing ÚtflutningsverðlaunHvað er í gangi hjá ykkur? Er verið að gefa þeim tækifæri að stinga af með milljarðana? Hversvegna eru ekki forstjórar Kaupthing ásamt Ólafi Ólafssyni í gæsluvarðhaldi?

FinnurOlafurHversvegna eru fangageymslur Íslendinga notaðar undir smákrimma sem lítil hætta stafar af á meðan glæpamennirnir sem settu þjóðfélagið á hausinn ganga lausir?

Mér er þessi útfærsla á "réttarríki" óskiljanleg 


mbl.is Fyrstur til að fá stöðu grunaðs manns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veruleikafirrtir

BakkabræðurEr Kaupthing orðið það veruleikafirrt að halda að lög náu yfir þessa menn? Eða eru það Bakkabræður sem eru orðnir veruleikafirrtir að halda að þeir komist upp með endalausa framsóknarmennsku?

Hversvegna er ekki búið að setja þetta lið í gæsluvarðhald? Ef farið hefði verið að mínum ráðum sem ég ítrekað kom á framfæri í aðdraganda alþingiskosninga væru það skýr skilaboð til útrásarvíkinga og annarra skúrka að á Íslandi ríkir vestrænt réttarríki.

En því miður er víst staðreyndin sú að Ísland er undir núverandi stjórn lítið betra en hefðbundið og gerspillt bananalýðveldi!


mbl.is Kæra Kaupþings beinist að stjórnendum Exista
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Endanlega búinn að gera í buxurnar!

Þetta er nú of langt gengið Ólafur Ragnar Grímsson! Hvernig dettur þér í hug að bera svona rugl á torg.

Starfsemi Íslensku bankanna, sérstaklega Kaupthing einkenndist af markaðsmisnotkun, sýndarviðskiptum og bankinn var í raun ekkert annað en stór Ponzí svikamylla þegar upp var staðið.

egg-on-face1-295x300Það er gersamlega út úr öllu velsæmi að Forseti Íslands sé að nota embætti sitt til að réttlæti slíka gjörninga. Nú held ég þú hafir endanlega gert í buxurnar.


mbl.is Íslensku bankarnir störfuðu samkvæmt reglum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engin samlíking!

FinnurOlafurÞað er eitt sem vantar í þetta hjá Evu. Það er hvernig Íslensk yfirvöld eru að bregðast skyldu sinni gagnvart almennum hluthöfum, innistæðueigendum bankanna og Íslensku þjóðinni en allir þessir aðilar eru að taka skellinn fyrir bankaræningjana sem ganga enn lausir með fulla vasa fjár!

Mál Madoffs kom upp eftir að bankahrunið átti sér stað. Hann var strax settur í gæsluvarðhald og nú er búið að gera eigur hans upptækar og dæma hann í 130 ára fangelsi! Á Íslandi ríkir framsóknarmennska drullusokka sem ælta sér að komast undan réttvísinni með sinn ránsfeng.


mbl.is Bankahrun líkist máli Madoffs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Borinn út af fundum þeirra

Mótmælandi fjarlægður af fundiÓlýðræðisleg og fasísk vinnubrögð aðstandenda Borgarahreyfingarinnar komu fram strax í upphafi á síðasta ári. Þá vísuðu þeir lýðræðinu á dyr og ítrekað báru mig út af fundum sínum, fyrst af fundi í Borgartúni og síðan í Iðnó, fyrir að bera upp tillögu um lýðræðisleg vinnubrögð.

Í tilefni landsfundar Íslensku fasistanna sem kenna sig við borgara landsins endurbirti ég grein mína frá 8 janúar s.l. en þá í tilefni af því að skipuleggjendur tróðu upp grímuklæddum frummælendum ásamt Lögreglustjóranum í Reykjavík, mætti ég einnig í leikbúning í Iðnó:

Kommúnistar báru jólasveininn út af Opnum borgarafundi

Ég gekk að dyrunum, fjöldi svartklæddra öryggisvarða í skeggræðum og ég smeygði mér hljóðlega framhjá þeim grímuklæddur sem jólasveinninn.

Barði stafnum hennar mömmu minnar sálugu í gólfið og hrópaði "Fær jólasveinninn að tala hér?"

Mikið fát kom á Gunnar leikstjóra sem hótaði að slíta fundinum ef jólasveinninn fengi orðið.  Ekki mátti heldur afhenda lögreglustjóra kærugjafir úr poka sveinka.

Eftir vel æfðum handabendingum af leiksviðinu var ég um leið umkringdur svartklæddum öryggisvörðunum sem tóku sig til og í orðsins fyllstu merkingu báru jólasveininn út af Opnum borgarafundi undir hrópum mínum "Það er verið að bera jólasveininn út af fundinum"

Kommúnistar fjarlægja fundargestÞegar út í bíl var komið og búið að taka niður skegg-grímu sveinka komu aðvífandi nokkrir fundargesta og sögðu að búið væri að "kjósa þig" inná fundinn. Ég gekk með þeim til baka að hurð leikhússins en þar biðu þá aftur öryggisverðirnir, nú ekki eins utangátta, og vörnuðu mér inngöngu.

Segir þetta ekki allt sem segja þarf um leiksýninguna Opinn borgarafund?

Útilokað er að byggja nýtt Ísland á grímuklæddum leiksýningum og sovét-fasískum vinnubrögðum. 

13.1.2009  Sjálfstæðismenn óttast að verða bornir út af "Lokuðum-borgarafundi"

 
mbl.is Þingmenn Borgarahreyfingarinnar gagnrýndir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er nú meira ruglið!

Glæpurinn heldur áfram á meðan útrásarvíkingar ganga lausir með vasana fulla af þýfi sem þeir stálu frá almennum hluthöfum og innistæðueigendum bankanna.

Og þið kjósið til valda aftur og aftur þá ónytjunga sem styðja þessa spillingu!


mbl.is Eignir Íslendinga í skattaskjólum jukust um 40%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

TILKYNNING TIL ÚTRÁSARVÍKINGA

Hér er uppkast að fréttatilkynningu fyrir Íslensk yfirvöld:

TILKYNNING TIL ÚTRÁSARVÍKINGA
Löregluómynd ÍslandsÞví miður erum við lepparnir á Djöflaeyjunni með óþægileg mál á ykkur er varða 10 ára fangelsi. Af tillitsemi við ykkur ágætu útrásarvíkingar er enginn settur í gæsluvarðhald og vonumst við til með þessu að veita ykkur nauðsynlegt svigrúm til að stinga af undan Íslenskri réttvísi og koma þýfinu haganlega fyrir á felureikningum í Karabískahafinu. Við þurfum auðvitað að geta tekið góða skál saman á snekkjum ykkar næsta sumar. Enginn getur sagt annað en við stöndum okkur einstaklega vel enda Íslensk fangelsi og gæsluvarðhaldsklefar yfirfullir af smákrimmum. Á Íslandi ríkir Framsóknarmennska og alvöru réttaríki!
Fjármálaeftirlitið, Embætti Ríkislögreglustjóra og Ríkisstjórn Íslands!


mbl.is Mörg dæmi um lögbrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Segja Íslandi stjórnað af alþjóðlegum glæpahring

Sá orðrómur gengur nú manna á meðal í Evrópu að Íslandi sé stjórnað af alþjóðlegum glæpahring. Forseti Íslands hafi notað embætti sitt til að sannfæra heiðvirða breska bankamenn að selja Kaupthing svikamyllunni virtan breskan banka og þannig seilst ofaní vasa breskra fjárfesta.

Menn segja á meðan Nígeríska spillingalögreglan leiti 19 stjórnenda fimm fjármálafyrirtækja sem ríkið þurfti að bjarga með 2,6 milljörðum dala, er stærstu Íslensku fyrirtækjunum t.d. á sviði flutninga og símasamskipta stjórnað af þeim mönnum sem stálu hundruðum milljarða af breskum, þýzkum og hollenskum innistæðueigendum. Enginn hafi verið dreginn til ábyrgðar á Íslandi.

Niðurstaðan er sú að Ísland sé griðarland helstu fjárglæframanna heimsins og því beri að varast að eiga viðskipti við Íslendinga.


Egill Helgason vanhæfur til starfa á RÚV!

Í útsendingu Bylgjunnar í morgun sagðist Egill Helgason starfsmaður ríkisfjölmiðlanna Ríkisútvarpsins-RÚV hafa kosið Borgaraheyfinguna við síðustu alþingiskosningar.

Silfur Egils
Hér er líklegast komin skýringin á því hversvegna Lýðræðishreyfingin var útilokuð frá þættinum Silfur Egils á RÚV í aðdraganda kosninganna á meðan 8 fulltrúar Borgarahreyfingarinnar fengu ítrekað aðgang að þættinum 23 nóvember - 22 mars s.l.  Á sama tíma var Lýðræðishreyfingunni alfarið synjað um aðganga að Silfri Egils m.a. með þessum orðum eftir ítrekuð símtöl, fax og email undirritaðs til stjórnenda Silfur Egils: "Sæll Ástþór, Ekki hringja í hana Halldóru, hún ræður engu um hvað er þættinum. Ég mun ekki bjóða þér í þáttinn að sinni. mbk Egill"

Ljóst er að Egill Helgason misnotaði aðstöðu sína í þágu eigins stjórnmálaflokks í aðdraganda alþingiskosninganna . Hann er því vanhæfur til starfa á ríkisfjölmiðlunum. Ítrekuð er krafa okkar frá 20. mars s.l. að Agli Helgasyni og Silfri Egils verði vikið úr dagskrá Ríkisútvarpsins/ RÚV.  

Í því ástandi sem ríkir á Íslandi er það mjög alvarlegt og í raun nánast landráð að stjórnendur ríkisfjölmiðla komist upp með að misnota aðstöðu sína og hefta lýðræðislega umræðu eins og raun bar vitni á Ríkisútvarpinu-RÚV í aðdraganda alþingiskosninganna 2009. Enda heldur Íslenska sukkið áfram, engin bankaræningjanna kominn í gæsluvarðhald og reynt að þagga niður óþægilega gagnrýni.  

Lýðræðishreyfingin mun ekki una slíku ástandi. Við ítrekum þau 12 erindi, kvartanir og kærur, sem við sendum í aðdraganda kosninga um margvísleg atriða er vörðuðu mismunun Ríkisútvarpsins-RÚV gagnvart Lýðræðishreyfingunni. Þessu máli er ekki lokið enda hefur Ríkisútvarpið ekki svarað neinu þeirra erinda sem við sendum stjórnendum RÚV og eftirlitsstofnunum.  Minnt er á að Lýðræðishreyfingin sendi 12 erindi og flutti 3 "leikrit" við útvarpshúsið í Efstaleiti í aðdraganda alþingiskosninganna. Þannig þurfti að berjast fyrir mannréttindum og lýðræði á Íslandi árið 2009!

Lýðræðishreyfingin áskilur sér allan rétt til að nota bæði hefðbundnar og óhefðbundnar leiðir til að ná fram rétti sínum gagnvart ríkisfjölmiðlunum. Slíkt getur m.a. falist í því senda út alla fréttatíma Ríkisútvarpsins - hvenær sem er alla daga og allan sólarhringinn - um eigin útvarpsrás og birta ásamt  tilheyrandi viðvörun til almennings um svívirðilega framkomu starfsmanna Ríkisútvarpsins. 

Virðingarfyllst,
Lýðræðishreyfingin
Ástþór Magnússon


Ofangreint er innihald í bréfi sent til:
Páll Magnússon útvarpsstjóri og stjórnendur Ríkisútvarpsins
Ríkisútvarpið, Efstaleiti 1, 150 Reykjavík. Símbréf 5153001

Nefndarskipun um endurskoðun laga um fjármál stjórnmálaflokkana

Bréf sent forsætisráðherra Jóhönnu Sigurðardóttur: 

Kvörtun vegna nefndarskipunar um endurskoðun laga um fjármál stjórnmálaflokkana

Lýðræðishreyfingin gerir athugasemdir við skipun í nefnd um endurskoðun laga um fjármál stjórnmálaflokkana en samkvæmt fréttum frá Forsætisráðuneytinu eiga allir stjórnmálaflokkar sem tóku þátt í nýafstöðnum alþingiskostningum fulltrúa í nefndina nema Lýðræðishreyfingin.

Lýðræðishreyfingin er nú aftur sniðgengin með beinum og skipulögðum hætti eins og við máttum þola af ríkisfjölmiðlunum RÚVog Ríkisútvarpinu í aðdraganda kosninganna en þar fengum við ekki aðgang á jafnréttisgrundvelli fyrr en settar höfðu verið upp leiksýningar við útvarpshúsið í Efstaleiti í mótmælaskyni til að vekja athygli á ósómanum.  Lýðræðishreyfingin neyddist til þess að setja á fót eigin útvarpsstöð (Lýðvarpið) til að koma boðskap sínum á framfæri þegar Ríkisútvarpið var algerlega lokað fyrir okkur meðan önnur ný framboð eins og Borgarahreyfingin sem starfsmaður Ríkisútvarpsins var í forsvari fyrir fékk þar nær óheftan aðgang. Ríkisútvarpinu tókst með þessu hátterni að skekkja úrslit kosninga og þannig auka enn frekar mismunun. Ekki er hægt að líða slíkar uppákomur í því sem á að kallast lýðræði. Lýðvarpið mun því halda áfram að veita spillingaröflunum aðhald með því að vekja athygli á óvönduð fréttum ríkisfjölmiðlanna.

Lýðræðishreyfingin harmar tvöfeldni og óheiðarleika þeirra stjórnmálamanna sem virðst hafa blekkt þjóðina við síðustu kosningar. Til að mynda lofaði fjármálaráðherra í kosningasjónvarpi að koma á fót markaðsskrifstofu til að laða til Íslands erlend fyrirtæki eftir tillögum Lýðræðishreyfingarinnar og í tvígang lýsti því yfir að hann myndi hringja í Ástþór Magnússon vegna þessa. Ekkert slíkt símtal hefur borist og ríkisstjórnin virðist ekkert ætla að gera í þessu mikilvæga hagsmunamáli þjóðarinnar og virðist þess í stað ætla að blóðmjólka heimilin í landinu með auknum sköttum og niðurskurði.

Lýðræðishreyfingin hefur ítrekað kært misbresti í framkvæmd kosninga til Öryggis og Samvinnustofnunar Evrópu og þá sérstaklega hvað varðar aðgang að lýðræðislegri umræðu í ríkisfjölmiðlunum. Lýðræðishreyfingin hefur einnig gert athugasemdir við hvernig fjármálum stjórnmálaflokkanna er háttað og var þetta m.a. rætt við fulltrúa ÖSE er þeir voru hér í aðdraganda síðustu kosninga svo og við fjármálaráðherra stuttu fyrir útsendingu hjá Stöð2 við síðustu kosningar. Það er því miður að ríkisstjórnin kjósi að útiloka Lýðræðishreyfinguna frá þessari umræðu með því að veita okkur ekki aðgang að nýskipaðri nefnd á jafnréttisgrundvelli.

Virðingarfyllst,
Lýðræðishreyfingin
Ástþór Magnússon  
Jón Pétur Líndal  
Guðrún María Óskarsdóttir


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband