Snargalin fjárlög - Áherslum snúið á haus

Óskiljanlegt hvernig bráðgáfaðir menn eins og Ögmundur Jónasson geta stutt þá þvælu sem yfirstandandi fjárlög eru og farið með niðurskurðarhnífinn á snarvitlaust skurðborð.

NATO-CLASS_A512Milljörðum eytt í gæluverkefni m.a. óþarfa varnarmálastofnun meðan skorið er niður í nærtækari vörnum í heilbrigðiskerfinu. Stafar slík hætta af innrás orustuþotna í landið að loka þurfi sjúkrarúmum til að verjast sprengjunum?

Hversvegna ekki að loka sendiráðum frekar en sjúkrahúsum? Spara þar 3 milljarða. Veikir Íslendingar hafa ekkert með sendiráð í útlöndum að gera. Hef búið erlendis meira og minna áratugum saman. Nánast aldrei komið í sendiráð. Nota netið og símann í samskiptum til Íslands. Hef hinsvegar þurft á sjúkrahúsi að halda er ég öklabrotnaði í hálku í Reykjavík. 

Flokkadraslið á Alþingi er ónýtt. Stokka upp allt kerfið. Það vil ég gera á Stjórnlagaþingi. Framboð mitt er 7176. Vefsíða framboðsins: http://austurvollur.is/thor 


mbl.is Vælir ekki undan slöku gengi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband