Kexruglað Alþingi - Það étur engin einhverja heimreið sjálfstæðishetju þjóðarinnar!

Ég tek undir með bændunum á Vestfjörðum sem í grein á Pressunni fjalla um bruðl stjórnvalda vegna 2ja aldar afmælis Jóns Sigurðssonar.

fjolskylduhjalpin-bidrod_1038202.jpgAlþingi hefur afgreitt frá sér kexrugluð fjárlög hlaðin fjölda óþarfa gæluverkefna meðan 1200 fjölskyldur bíða úti í kuldanum klukkutímum saman eftir vikulegri matarúthlutun. 

Í fjárlögum er að finna fleiri liði uppá tugir milljóna vegna þessa afmælis. Á annað hundrað milljónir á þessu ári. Hvílík veisla til viðbótar milljörðum bruðlað í alskyns aðra vitleysu. Afmælisbarnið hlýtur að snúa sér í gröfinni í hneykslan yfir forgangsröðun fjárlaga.

Það eru lágmarks mannréttindi að hafa til hnífs og skeiðar. Það étur engin einhverja heimreið sjálfstæðishetju þjóðarinnar.

Ég vil á Stjórnlagaþing og leggja þar fram tillögur að nýrri stjórnskipan. Ég vil einfaldara og skilvirkara kerfi en nú er. Framboðsnúmer mitt er: 7176. Meira hér: www.austurvollur.is


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband