9.12.2009 | 22:50
Asnar!
Íslenska þjóðin hlýtur að eiga heimsmet í asnaskap. Rekið Pál Magnússon og ráðið mig í staðin uppá prósentur. Ég tek engin föst laun, kem með eigin bíl, og get lifað góðu lífi á prósentum af rekstri RÚV um leið og ég sendi út sömu eða betri dagskrá. Asnarnir á RÚV kunna ekki að reka þetta batterí! Enda á hverju er von þegar starfsmönnum RÚV leyfist að vera á launum hjá stofnuninni í kosningaferðalagi Norður í landi. Minni á það þegar mér var gefið samband við formann Borgarahreyfingarinnar í gegnum skiptiborð RÚV og launadeildin sagði mér að hann væri í vinnunni á launum hjá ríkisfjölmiðlinum. En sjálfur sagðist forkólfur Borgarahreyfingarinnar vera í kosningaferðalagi fyrir norðan! Hvenær fáið þið þessi asnaþjóð nóg af þessu rugli?
Á launum hjá RÚV í framboðsferð
Birt: March 26, 2009
Formaður Borgarahreyfingarinnar Herbert Sveinbjörnsson er á ferð um landið í kosningabaráttu fyrir Borgarahreyfinguna á launum frá Ríkisútvarpinu.
Á launum hjá RÚV í framboðsferð thumbnailFram kom í fréttum í gær að annar forsprakki samtakanna Gunnar Sigurðsson leikstjóri búsettur í Reykjavík leiðir lista Borgarahreyfingarinnar í því kjördæmi sem hefur mest vægi atkvæði á landsvísu.
Íslenska þjóðin hefur verið blekkt með aðstoð Ríkisútvarpsins og RÚV sem hafa útvarpað og sjónvarpað fundum þeirra félaga á meðan öðrum er meinaður aðgangur að ríkisjölmiðlunum.
Strax á fyrsta fundi Ástþórs Magnússonar með Gunnari Sigurðssyni leikstjóra í lok nóvember 2008 mátti ráða að Gunnar og Herbert stefndu á alþingisframboð.
Ekki ólíklegt að það hafi verið ástæðan fyrir því að þeir félagar létu bera Ástþór út af fundi samtakanna í Borgartúni eftir að hann lagði til lýðræðislegar leikreglur, og aftur úr leikhúsinu Iðnó, en Lýðræðishreyfingin hafði þá þegar tilkynnt um væntanlegt framboð til alþingiskosninga.
Herbert skellti símanum á Ástþór þegar hringt var í hann um skiptiborð RÚV og honum sagt að þar væri búið að staðfesta að starfsmenn RÚV héldu að hann væri í vinnunni enda á fullum launum.
Sölukostnaður RÚV nemur hundruð milljónum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Bloggar, Fjölmiðlar, Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 22:55 | Facebook
Athugasemdir
Sukkarar
Rauða Ljónið, 9.12.2009 kl. 22:59
"Hvenær fáið þið þessi asnaþjóð nóg af þessu rugli?"
Aldrei. Ansaþjóð er og verður asnaþjóð. Það er margsannað.
Hörður Þórðarson, 10.12.2009 kl. 04:12
Leggjum rúv niður, burt með nefskattinn. Við þurfum bara að viðhalda langbylgjusendinum til nota í neyðarástandi.
Gullvagninn (IP-tala skráð) 10.12.2009 kl. 10:14
Heimsmet í asnaskap, já þar er alveg öruggt Ástþór.
kv.Guðrún María.
Guðrún María Óskarsdóttir., 12.12.2009 kl. 02:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.