21.10.2009 | 21:08
Hversvegna tekur stelpan ekki á RÚV skúrknum?
Hversvegna er ekki farið að núverandi lögum t.d. varðandi hlutleysi þáttastjórnenda á RÚV?
Hversvegna tekur ráðherra stelpan ekki á ítrekuðum kvörtunum og kærum sem henni voru sendar í aðdraganda síðustu alþingiskosninga þegar Egill Helgason gróflega misnotaði aðstöðu sína með því að útiloka Lýðræðishreyfinguna frá þáttum sínum á RÚV meðan hann hampaði margítrekað aðstandendum og frambjóðendum Borgarahreyfingarinnar. Þessi fjölmiðlaskúrkur gengur sífellt lengra í þeirri vissu að spilltir stjórnmála og löggæslumenn muni ekki taka á lögbrotum hans.
Hversvegna tekur hún ekki á kvörtunum og kærum gagnvart fréttastofu RÚV sem margsinnis brutu núverandi lög í aðdraganda alþingiskosninga sem svo grófum hætti að varðar við hegningarlög.
VG stelpuskjátan í ráðherrastól hefur engan trúverðugleika með nýtt frumvarp meðan hún leyfir drullusokkunum sem stjórna fréttastofu og helstu þáttum á RÚV að fótum troða lýðræðið. Hún hefur ekki einu sinni svarað marg ítrekuðum kvörtunum Lýðræðishreyfingarinnar um brot RÚV á núverandi lögum. Til hvers að setja lög ef ekki þarf að fara eftir þeim? Nær væri að sparka í rassgatið á Lögreglustjóranum í Reykjavík með þeim skilaboðum að ekki sé viðunandi að stinga undir stól öllum kærum gegn RÚV fyrir brot á kosningalögum og hegningarlögunum í aðdraganda kosninga.
Að setja lög sem ekki er ætlast til að farið sé eftir getur einungis stuðlað að enn frekara upplausnarástandi í þegar gerspilltu þjóðfélagi flokksdýranna.
Nýtt fjölmiðlafrumvarp kynnt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Bloggar, Fjölmiðlar, Löggæsla | Breytt s.d. kl. 21:27 | Facebook
Athugasemdir
Það er alveg stórmerkilegt að Íslendingum nægi einn fjölmiðlagúru sem framleiðir það sem sá hinn sami kýs að krydda að eigin vild í boði skattgreiðenda.
kv.Guðrún María.
Guðrún María Óskarsdóttir., 22.10.2009 kl. 01:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.