19.4.2009 | 23:58
Kjötsúpa verður naglasúpa eftir kosningar
Nú keppast gömlu skrímslaflokkarnir við að blekkja kjósendur með öllum tiltækum ráðum, meira að segja kjötsúpu!
Ef nægjanlegur fjöldi kjósendur lætur mútúþæga pólitíkusa snúa á sig er eins gott að þjóðin setji sig í stellingar að sötra naglasúpu næstu fjögur árin.
Eina vitið er xP Lýðræðishreyfingin sem ætlar að taka á spillingunni, endurheimta stolna fjármuni, snarauka atvinnu með alþjóðlegu samstarfi og endurskipuleggja fjármálakerfið.
Tryggðu eigin framtíð og losaðu börn þín úr ánauð víkinganna. Láttu ekki kjötsúpukatla blekkja þig í að afhenda þín lyklavöld til mútuþægra alþingismanna.
Lýðræðishreyfingin er eina stjórnmálaaflið sem mun færa þér völdin á Alþingi. Í gegnum rafrænt Almannaþing færð þú sjálfur kjósandi góður ótvíræðan atkvæðisrétt á Alþingi. Þingmenn Lýðræðishreyfingarinnar eru óspilltir nýliðar munu gæta þeirra grundvallar mannréttinda þinna að þjóðin ráði sér sjálf.
Með þvi að merkja við P Lýðræðishreyfinguna á kjörseðli losar þú þjóð þína úr þeirri ánauð að flokkseigendafélög og mútuþægir stjórnmálaflokkar mergsjúgi sameiginlega sjóði og stofnanir og skilji þig og fjölskyldu þína eftir úti í kuldanum með skuldirnar.
Settu x við P til að gæta þinna eigin hagsmuna og kjósa þína eigin persónu á þing. Nánar á www.xp.is
Kosningakjötsúpa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Evrópumál, Heilbrigðismál | Breytt 20.4.2009 kl. 00:06 | Facebook
Athugasemdir
Kjötsúpa? Það er nú sennilega það eina sem vert væri að þiggja af þeim
Eygló, 20.4.2009 kl. 03:47
Mér fannst þú komast vel frá þessum Zetuþætti. Ég hef sjálfur oft hugsað um þennan möguleika að nýta öryggiskerfi netbankana sem tæki í kosningum.
Ásgeir Rúnar Helgason, 20.4.2009 kl. 19:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.