Mun þjóðin kjósa um einstök mál í hraðbönkum?

Morgunblaðið 20.03.09:

Persónukjör, fækkun þingmanna og beint lýðræði

Flestir stjórnmálafræðingar eru sammála um að lýðræðið þurfi að leita uppruna síns og núverandi fulltrúakerfi sé barns síns tíma er henti ekki í nútíma upplýsingasamfélagi.

Íslenskt fulltrúalýðræði þróaðist í flokksræði með gróðrarstíu spillingar. Í bakherbergjum Alþingis eru þingmenn hvattir til hlýðni við flokkslínur sem oft á tíðum eru lagðar í stjórnarherbergjum fyrirtækja er maka síðan krókinn á ákvörðun Alþingis.

Stjórnmálaflokkar eru oft kenndir við flokkseigendafélög eða hagsmunaklíku fárra einstaklinga sem hafa náð undirtökunum og stýra þingmönnum flokksins eins og peðum á skákborði.

Slík útfærsla á lýðræði getur aldrei verið í þágu lýðsins. Í besta falli fær lýðurinn, þjóðin, þú og ég, einhverjar mylsnur af veisluborði hinna útvöldu í lýðræði flokkseigendafélaga.

 

Ófreskjur lýðskrumara

Því miður hafa flestir Íslensku stjórnmálaflokkanna þróast í slíkar ófreskjur lýðskrumara. Nánast er sama hvort litið er til hægri, vinstri eða miðju. Flokkarnir eru upp fyrir haus í fyrirgreiðslupólitík og gegnsýrðir spillingu. Þetta afhjúpast nú í kjölfar bankahrunsins.

Fjórflokkarnir boðuðu til kosninga undir þeim formerkjum að skipta út liðinu á Alþingi. Þjóðin vildi hreinsa út gömlu mislukkuðu tuggur gamla tímans.

Vandamálið er ekki aðeins hjá þessu annars ágæta fólki á þingi. Rót vandans liggur í sjálfu flokkskerfinu. Nýliðar eru mótaðir í gamla formið þegar þeir ganga í flokkinn. Enginn fer á þing fyrir fjórflokkana nema aðlaga sig flokknum og sýna undirgefni við flokkslínuna. Öðrum er varpað út á gaddinn. Flokkseigendafélagið og klíkur þeirra í uppstillingarnefndum og prófkjörum sér um það.

Eftir kosningar vitum við lítið hvaða mynstur verður á Alþingi. Kosningaloforð verða að engu í hrossakaupum flokkana um ráðherrastóla og völd. Einstaklingar kosnir með nokkur hundruðum atkvæðum á flokksþingi geta endað sem forsætisráðherra. Þjóðin kaus hann ekki og flest okkar jafnvel treysta ráðherranum ekki fyrir lífsafkomu okkar og framtíð. En vegna gallana í kerfinu hefur flokksvélin tekið af okkur völdin.

 

Er til betri leið?

Er ekki til betri leið að stjórna samfélaginu? Einfaldari, ódýrari og öruggari leið fyrir lífsstarf okkar og fjölskyldu?  Viljum við aftur í gömlu hjólförin, pólitík gærdagsins, sem kom þjóðinni á hausinn? Eða lærum við nú af mistökunum og fyrirbyggjum að slíkur útafakstur og hrun geti endurtekið sig?

Beint og milliliðalaust lýðræði er eina raunhæfa lausnin.  Slík uppstokkun á stjórnkerfinu mun moka út spillingunni. Beint lýðræði mun uppræta skúmaskot og hrossakaup á Alþingi. Þingmenn sem ekki hlusta á þjóð sína í beinu lýðræði verða valdalausir.

Lýðræðishreyfingin er kosningabandalag óháðra frambjóðenda sem vinna sjálfstætt með sín pólitísku stefnumál án flokkafjötra. Þannig rúmar kosningabandalag okkar fólk úr öllum áttum og andstæður í umdeildum málum, vinstri menn, hægri menn og allt þar á milli sem sameinast í baráttunni um beint og milliliðalaust lýðræði. Við viljum færa þér, einstaklingnum, valdið til að kjósa um einstök mál á Alþingi óskir þú þess:

 

Stefnuskrá Lýðræðishreyfingarinnar

1. Beint og milliliðalaust lýðræði:

  • Allir Íslenskir ríkisborgarar geti sent Alþingi tillögu að nýju lagafrumvarpi sem skal tekið til umföllunar ef stutt undirskriftum 1% kjósenda. Alþingismenn og ráðherrar geti einnig átt frumkvæði að nýjum frumvörpum.
  • Þingmenn fari með umræðu og nefndarstörf vegna frumvarpa á Alþingi og kynni fyrir þjóðinni m.a. á rafrænu þjóðþingi og vefsvæði.
  • Tilbúin frumörp lögð fyrir þjóðþing Alþingis til atkvæðagreiðslu t.d. 1.maí og 1.des ár hvert.
  • Hraðbankakerfið (sem nú er eign ríkisins) verði nýtt sem kjörklefar fyrir rafrænt þjóðþing. 
  • Ef nauðsyn krefur geti Alþingi samþykkt bráðabirgðalög sem gilda fram að næsta þjóðþingi.
  • Þingmenn fara með atkvæði þeirra sem ekki óska að neyta atkvæðisréttar á þjóðþingi Alþingis.

2. Tillaga að breytingum á Alþingi og ríkisstjórn:

  • Þingmönnum fækkað í 31.
  • Landið verði eitt kjördæmi.
  • Þingmenn verði valdir í persónukosningum.
  • Alþingi velur ráðherraefni á faglegum forsendum. Forseti, sem þjóðkjörinn umboðsmmaður lýðsins og eftirlitsaðili fyrir virku lýðræði, skipar síðan ráðherra og veitir þeim lausn eins og nú er.
  • Ráðherrar sitji ekki á Alþingi.
  • Ráðning dómara og æðstu embættismanna verði staðfest af þjóðþingi Alþingis.

 

Leggja fram nýtt frumvarp

Hver man ekki eftir umfangsmiklum undirskriftarsöfnunum, mótmælum og greinaskrifum almennings um heit mál. Hversvegna ættum við þjóðin að standa úti í kuldanum og mótmæla við Alþingishúsið? Við eigum mun einfaldari og betri leið.

Hafi einstaklingurinn leið til að fá nýtt mál sé tekið fyrir á Alþingi má losna við háværar og tímafrekar búsáhaldabyltingar í eitt skipti fyrir öll.

Til að koma í veg fyrir misnotkun er eðlilegt að krafa um að taka mál á dagskrá Alþingis sé stutt með einhverjum fjölda undirskrifta t.d. 1%  kjósenda sem eru nú rúm 2000 nöfn.

 

Hvernig þú virkjar þitt atkvæði á Alþingi

Þingmenn fari með atkvæði á Alþingi nema kjósandi taki atkvæðið til sín í einstökum málum. Það gerir kjósandinn yfir rafrænt þjóðþing sem starfar frá Alþingi yfir Internetið. Þar fari einnig fram borgarafundir, nefndarfundir, málefnahópar og önnur störf þingsins sem þjóðin getur fylgst með yfir netið og þar spunnist jafnvel umræðuhópar almennings.

 

Hversvegna kjósa í hraðbönkum?

Eitt helsta vandamálið sem kemur upp í umræðunni um beint lýðræði um internetið er að fólk sé ekki í lokuðum kjörklefa þegar greitt er atkvæði heima í tölvunni. Þannig geti fjölskyldumeðlimir haft áhrif á kjósandann og jafnvel stýrt því hvernig kosið er á heimilinu.

Leysa má úr þessu með að nýta hraðbanka sem kjörklefa. Fólk getur á leið sinni um bæinn kosið í næsta hraðbanka. Kosningar gætu farið fram yfir fleiri daga svipað háttað er með utankjörstaðakosningar. Daglega sýslum við með trúnaðarupplýsingar og viðhvæm gögn í hraðbönkum. Einfalt er að útfæra kosningar um þetta kerfi sem tryggir að kosningin sé leynileg, og hver einstaklingur geti aðeins kosið einu sinni í hverju máli.

 

Fækkun þingmanna

Þingmönnum verði fækkað í 31 og ríkisstjórn sé skipuð fagfólki sem sótt er utan þingsins. Ráðherrar sitji ekki á þingi nema á sérstökum fundum þegar þeir gefa skýrslur um störf sín til þingsins. Ráðning ráðherra gildi ekki lengur en fram að næstu kosningum.

 

Æðstu embætti

Ráðning dómara og annarra sem skipa æðstu embætti þurfi samþykkt frá Alþingi og jafnvel staðfestingu þjóðþingsins (í hraðbankakosningu) til að tryggja að ekki sé hægt að nota slík embætti sem pólitíska bitlinga.

 

Umboðsmaður lýðsins

Samkvæmt núgildandi stjórnarskrá er forseti Íslands í raun þjóðkjörinn umboðsmaður lýðsins. Forsetinn gæti sem slíkur orðið virkari öryggisventill en hann er í dag í nýju stjórnkerfi sem byggir á beinu lýðræði. 

 

Fjölmiðlar

Til að koma á virku lýðræði þurfa fjölmiðlar að vera opnir og lýðræðislegir. Styrkja þarf lög og reglur um fjölmiðla og tryggja að öllum stjórnmálaöflum sem gert jafnt undir höfði í umfjöllun.

 

Virkjaðu þitt atkvæði

Kynntu þér málið nánar á vefnum: www.lydveldi.is  og í síma 4500500.

Athygli er vakin á Lýðvarpinu, nýjum fjölmiðli á FM100.5 og www.frettavakt.is

Taktu þátt í prófkjöri á vefnum www.austurvollur.is


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Ingi Jónsson

Sæll Ástþór, Ég sá innslagið í Kastljósi í gær varðandi hraðbankaaðgang að beinu lýðræði. Þetta er snjöll hugmynd svo langt sem hún nær. Vandamálin sem ég sé eru að hraðbankar eru ekki nógu margir til að anna þjóðaratkvæðagreiðslum, nema veittur sé ríflegur frestur til að greiða atkvæði og að aðgengi fólks á landsbyggðinni getur verið gloppótt. Annars er öll svona umræða til góðs því nú sem aldrei fyrr þarf að halda beinu lýðræði á lofti.

Sigurður Ingi Jónsson, 20.3.2009 kl. 12:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband