28.11.2024 | 10:30
Var Íslensku forsetakosningunum stolið?
Blekkingarleikur óheiðarlegra frambjóðenda
Kjósendur þurfa að passa sig á að látta ekki blekkja sig í aðdraganda kosninga. Manneskjan sem náði kjöri sem forseti Íslands fyrir fáeinum mánuðum gerði friðarmálin að sínum og náði að sannfæra kjósendur um að hún vildi stuðla að friði. Líklegast náði Halla Tómasdóttir kjöri með afgerandi málflutningi gegn vopnakaupum sem hún sagðist finna yfirgnæfandi samhljóm með um allt land að þjóðin vilji ekki taka þátt í.
Nú virðist hinsvegar komið annað hljóð í strokkinn í loðnum útúrsnúningum í bréfum sem mér hafa borist frá embætti forseta Íslands eftir að búið er að samþykkja af tveimur flokkum á Alþingi vopnakaup fyrir milljarða króna og senda það til undirskriftar hjá forseta Íslands.
Mun forseti Íslands fremja landráð?
Fjárlagafrumvarp með sjö milljarða krónum til vopnakaupa og hernaðar var samþykkt á Alþingi af tveimur stjórnmálaflokkum, Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki. Þingmenn þeirra höfðu ekki umboð þjóðarinnar til slíkra verka. Samkvæmt skoðanakönnunum hafa þeir aðeins 20% stuðning kjósenda, eru langt frá því að njóta trausts þjóðarinnar.
Þjóðinn vill ekki taka þátt í vopnakaupum
Fyrir fáeinum mánuðum valdi þjóðin forseta sem í kosningabaráttu sinni hafnaði alfarið vopnakaupum og tók afgerandi afstöðu með átaki til friðar. Sagðist heyra mikinn samhljóm meðal þjóðarinnar að vilja ekki taka þátt í slíku athæfi. Vopnakaup væru hættulegasta öryggisstefnan sem þjóðin gæti tekið. Öruggasta stefnan væri að taka ekki þátt í þessum átökum. Við ættum að hjálpa með öðrum hætti en að senda vopn á vígvöllinn og vel væri hægt að semja um aðrar lausnir en þær að fjármagna vopnakaup. Þessi friðarboðskapur Höllu Tómasdóttur átti vafalaust stóran þátt í að hún náði kjöri sem forseti Íslands.
Lofaði að gefa þjóðinni úrslitaatkvæði
Halla Tómasdóttir birti þennan texta um málsskotsrétt forseta á heimasíðu sinni fyrir forsetaframboðið 2024: "Forseti Íslands hefur samkvæmt 26. grein stjórnarskrárinnar heimild til að vísa lögum í dóm þjóðarinnar. Málskotsrétturinn er mikilvægur öryggisventill, sem Halla er staðráðin í að nýta ef svo virðist sem gjá hafi myndast á milli þings og þjóðar. Hún telur mikilvægt að umgangast málskotsréttinn af virðingu og minnir á að forseta beri að hlusta vel á öll sjónarmið áður en komist er að þeirri niðurstöðu að þjóðin þurfi að hafa úrslitavald með atkvæðagreiðslu um hvort lögin öðlast gildi. Þetta gætu verið tilvik á borð við mannréttindi og grundvallarhagsmuni þjóðarinnar og næstu kynslóða eins og var í tilfelli Icesave."
Í Forystusæti RÚV varðandi málskotsrétt forseta segist Halla muni standa í lappir ef þörf er á. Ólafur Ragnar hafi gert rétt í að synja Icesave-samningum staðfestingar. Hvað mig varðar myndi ég vilja hlusta vel á þjóðina. Og ef ég skynjaði að um stór mál væri að ræða sem varða hagsmuni þjóðarinnar og næstu kynslóða, myndi ég vilja gefa þjóðinni úrslitaatkvæði ef svo virtist sem þingið væri að ganga úr takti við gildi og vilja þjóðarinnar.
Í kappræðum mbl.is 31 maí sagði Halla Tómasdóttir: Og nú spyr þjóðin um málskotsréttinn vegna þess að traustið á Alþingi er lágt og ég óttast ekki að nýta hann,.
Vopnakaupin eru landráð
Vopnakaup þvert á þjóðarvilja, ekki til varnar landsins, fjármögnuð af skattfé Íslendinga, til styrjaldar í fjarlægu landi utan NATO, eru um leið stríðsyfirlýsing og ögrun gegn stórveldi búið kjarnorkuvopnum sem hefur hótað að svara fyrir sig. Þannig er Íslenskri þjóð stefnt í verulega hættu af glannalegum stjórnarathöfnum.
Vopnakaupin eru á skjön við þjóðaröryggisstefnu landsins, NATO samninginn og sáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Að stofna öryggi ríkisins í hættu með stuðningi við erlent ríki eru landráð samkvæmt almennum hegningarlögum. Rökfærslur fyrir landráði komu fram í tveimur umsögnum til Alþingis um Fjárlagafrumvarpið sem lágu fyrir þegar vopnakaupin voru samþykkt þar í trássi við vilja þjóðarinnar af þingmönnum starfsstjórnar sem njóta ekki lengur trausts almennings. Í umsögnum Friðar 2000 og Hildar Þórðardóttur fyrrum forsetaframbjóðanda sem stutt var af lögfræðiáliti voru færð rök fyrir því hversvegna vopnakaupin eru landráð.
Mun forseti Íslands standa vörð um framtíð þjóðarinnar?
Mun Halla Tómasdóttir beita málsskotsréttinum til að afstýra því stórslysi að rótgróin Íslensk friðarmenning víki fyrir ofbeldisfullri heimsvaldastefnu og viðskiptahagsmunum hergagnaframleiðanda sem hafa þjóð okkar og leiðtoga að leiksoppi?
Eftir að hafa skoðað með lögmönnum vopnakaupin sem þegar hafa átt sér stað, og þá milljarða aukningu sem ráðgerð er í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2025 er það niðurstaða Alþjóðastofnunarinnar Friðar 2000 að ráðamenn hafi framið landráð.
Mun Halla Tómasdóttir svíkja kjósendur?
Mun Halla standa við kosningaloforðin og hafna vopnakaupum? Eða mun hún sem forseti að svíkja sína kjósendur og sjálf fremja landráð? Sem forseti hlýtur Halla Tómasdóttir einnig að taka tillit til þess að gjá hefur myndast á milli þings og þjóðar.
Nú er komin upp sú staða að alþingismenn sem njóta ekki verulegs stuðnings meðal þjóðarinnar hafa lagt á ráðin með vopnakaup Íslendinga. Hvorki þessir alþingismenn né forseti Íslands hafa umboð til vopnakaupa frá þjóðinni.
Halla Tómasdóttir hefur ekki svarað
Friður 2000 hefur sent erindi til forseta Íslands ásamt undirskriftum á annað þúsund Íslendinga og leitað eftir afgerandi svari við því hvað forsetinn ætli að gera nú þegar vopnakaupin koma til henn ákvörðunar. Þrátt fyrir ítrekanir og símtöl hefur svar ekki borist.
Á vefnum www.austurvollur.is má finna nánari upplýsingar.
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Bloggar, Heimspeki, Utanríkismál/alþjóðamál | Facebook
Athugasemdir
Mjög þörf og góð áminning. Ég er á því að síðustu FORSETAKOSNINGUM hafi hreinlega verið "STOLIÐ með undirferli og klækjum. Fyrir það fyrsta þegar "DJÚPRÍKIÐ" plataði Íslendinga til að kjósa "taktískt" því í rauninni var þeim sama hver af þeim sem voru í fimm efstu sætunum, í skoðanakönnunum myndu vinna, heldur var aðaláhyggjuefnið það að sumir frambjóðendur í "neðri" hlutanum vor farnir að bæta ótæpilega miklu fylgi við sig og aðallega þess vegna var farið að tala um að kjósa "taktískt" undir því yfirvarpi að koma "í veg fyrir að fyrrum Forsætisráðherra yrði kosin sem forseti lýðveldisins"........
Jóhann Elíasson, 28.11.2024 kl. 14:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning