29.11.2010 | 09:38
Ísland verði griðarstaður aðstandenda Wikileaks. Lokum bandaríska sendiráðinu í Reykjavík!
Hlustum ekki á bullið sem veltur nú uppúr Dönskum, Frönskum, Áströlskum, Bandarískum og öðrum spilltum stjórnvöldum.
Full ástæða er til að afhjúpa drulluna sem þvælist fyrir heimsfriði.
Ísland á að ganga fram fyrir skjöldu með opinberri yfirlýsingu um að Wikileaks og aðstandendur þess verði verndað með kjafti og klóm Íslenskara stjórnvalda.
Blásum á tilburði ríkisstjórnar Ástralíu til að þagga niður í Julian Assange.
Njósnir, lygasögur ríkisstjórna og annan viðbjóð spilltrar heimspólitíkur og hernaðar þarf að uppræta. Heiðarleiki og opið lýðræði er grundvöllur friðar í heiminum.
Látum ekki þagga niður í Wikileaks. Veitum öllum þeim sem starfa við þetta frábæra framtak og sem ofsóttir eru í heimlandi sínu eða annarsstaðar að undirlagi bandaríkjastjórnar, pólitískt hæli á Íslandi.
Lokum bandaríska sendiráðinu við Laufásveg og upprætum njósnir þeirra í Reykjavík. Þjóðnýtum bygginguna og afhendum Wikileaks undir sína starfsemi.
Skora á Utanríkisráðherra að kalla sendiherrann á sinn fund í dag og reka hann úr landi.
Sannleikurinn mun setja okkur frjáls.
Lekinn eyðileggur samskipti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Bloggar, Dægurmál, Utanríkismál/alþjóðamál | Facebook
Athugasemdir
Þar með geri ég ráð fyrir að þú teljir íslensk stjórnvöld "óspillt" ??
Kv.
KH
Kristján Hilmarsson, 2.12.2010 kl. 15:06
Ég er margbúinn að lýsa því yfir opinberlega hvað mér finnst um Íslensk stjórnvöld og hvernig þau hafa brugðist okkur.
Ástþór Magnússon Wium, 2.12.2010 kl. 15:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.