29.11.2010 | 09:27
Ísland veiti stofnanda Wikileaks pólitískt hæli. Sannleikurinn setur okkur frjáls!
Blásum á tilburði ríkisstjórnar Ástralíu til að þagga niður í Julian Assange.
Njósnir, lygasögur ríkisstjórna og annan viðbjóð spilltrar heimspólitíkur og hernaðar þarf að uppræta. Heiðarleiki og opið lýðræði er grundvöllur friðar í heiminum.
Látum ekki þagga niður í Wikileaks. Veitum öllum þeim sem starfa við þetta frábæra framtak og sem ofsóttir eru í heimlandi sínu eða annarsstaðar að undirlagi bandaríkjastjórnar, pólitískt hæli á Íslandi.
Lokum bandaríska sendiráðinu við Laufásveg og upprætum njósnir þeirra í Reykjavík. Þjóðnýtum bygginguna og afhendum Wikileaks undir sína starfsemi.
Skora á Utanríkisráðherra að kalla sendiherrann á sinn fund í dag og reka hann úr landi.
Sannleikurinn mun setja okkur frjáls.
Rannsókn á WikiLeaks í Ástralíu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Bloggar, Dægurmál, Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 09:30 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.