Hlustum ekki á bullið sem veltur uppúr Jens Stoltenberg.
Við erum þrjú hundruð þúsund manna þjóð sem eyðir fjórum milljörðum í nokkur sendiráð og Varnarmálastofnun. Við lokum sjúkrahúsum, finnst meiri hætta á innrás erlends herliðs en sjúkdómum.
Við látum 1200 fjölskyldur bíða úti í kuldanum eftir vikulegri matarúthlutun á meðan við splæsum í heiðurslaun handa öldnum þingmanni á fullum launum frá Alþingi en sem einhverntíman í fyrndinni skrifaði kvikmyndahandrit.
Við eyðum hundruðum milljóna í afmælisveislu til handa löngu látinni sjálfstæðishetju. Leggjum heimreið fyrir hann í afskekktum dölum meðan stór hluti þjóðarinnar en hnepptur í fátæktaránauð.
Sendið Jens Stoltenberg heim til Noregs og segið honum að hugsa þessi mál áður en hann kemur aftur til Reykjavíkur og ber svona þvælu á torg.
Þurfum raunhæfar tillögur að nýju lýðveldi. Beint og milliliðalaust lýðræði í stað ónýtu spilltu flokkanna. Einföldum stjórnsýsluna. Gefðu mér tækifæri til að taka til hendinni á Stjórnlagaþingi. Framboðsnúmer mitt er 7176 og vefsíðan er: www.austurvollur.is.
Segir Ísland á réttri leið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Bloggar, Dægurmál, Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 11:47 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.