Steingrímur, þitt aðgerðaleysi gerir þig samsekan!!!!

„Rán var það og rán skal það heita“ - Steingrímur J Sigfússon þú getur sparað stóru orðin ef þú ætlar áfram að sitja á rassgatinu og gera ekkert í málinu.

NÚ SKALTU SETJA HRYÐJUVERKALÖG YFIR ÞESSA MENN STRAX OG Í GÆSLUVARÐHALD MEÐ ÞÁ NÚNA!!!! Á þjóð okkar hefur verið unnið mesta efhahagslega hryðjuverk allra tíma.

Það er nú komin ærin ástæða til að sækja þjófagengið hvar sem það er að finna heima eða erlendis og setja umsvifalaust í gæsluvarðhald. Frysta allar eigur þeirra og gera fyrirtækin þeirra upptæk.

Ég margsagði þetta við þig og þjóðina í aðdraganda síðustu alþingiskosninga en þú gasprar eins og vindhani á þinginu og gerir nákvæmlega EKKERT í því að ná lögum yfir þessa menn.

Segðu af þér og boðaðu til kosninga. Sé það vilji þjóðarinnar í nýjum alþingiskosningum skal ég taka að mér að koma lögum yfir glæpagengið og hreinsa til í þessari spilltu stjórnsýslu hér.

Ástþór Magnússon 

Í viðtali við RÚV stuttu fyrir alþingiskosningarnar 2009:
"ef ég kemst hér til valda, þá fara útrásarvíkingarnir í fangelsi, þeir verða handteknir og settir í gæsluvarðhald og ef lögreglustjórinn gerir það ekki með mig yfir stjórnarráðinu þá verður hann rekinn... strax!"

Flokkadrasl!

http://www.youtube.com/watch?v=sTFufceo2as&feature=related

Ruglubull!

http://www.youtube.com/watch?v=vMYpRKkbJUs&feature=related

Þjóðin ráði - Útrásarvíkingana í fangelsi:
http://www.youtube.com/watch?v=0chaTHbEa00

Peningar frá þjófagenginu í kistum stjórnmálaflokka:
http://www.youtube.com/watch?v=kN5vyKLeYc8

Epli og appelsínur á RÚV:
http://www.youtube.com/watch?v=ORwkC8kqGLM


mbl.is „Rán var það og rán skal það heita“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú færð minn stuðning við að koma þessum glæpalýð í fangelsi, nú þarft þú að nýta tækifærið og vera sýnilegur. Það er mikil reiði í fólki og það treystir ekki þessu handónýta stjórnmálapakki sem situr á Alþingi núna. Nú þarf að koma nýtt val fyrir almenning í næstu kosningum. Nú er tækifærið, nýttu það.

Kveðja   Árni Karl

Árni Karl Ellertsson (IP-tala skráð) 12.4.2010 kl. 21:38

2 Smámynd: Ástþór Magnússon Wium

Árni, þú getur verið viss um að hefði ég fengið stuðning þjóðarinnar í síðustu kosningum og einhverju ráðið hér, þá hefðu þessir menn verið settir í gæsluvarðhald á síðasta ári, þeirra fyrirtæki gerð upptæk og umfangsmikil leit gerð strax að þýfinu sem þeir stálu af þjóðinni. Ég hef ekki farið í grafgötur með hvernig ég vil taka á þessu.

Ástþór Magnússon Wium, 12.4.2010 kl. 22:47

3 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Álfheiður sagðivið mig ( meðan hún var í stjórnarandstöðu ) að Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin kæmu í veg fyrir frystingu eigna helfararvíkinganna.

Þegar hún var komin í stjórn voru hverskyns hindranir í vegi fyrir því að slíkt væri hægt.

Núna tekur hún þátt í því ásamt meirihlutanum að skrifa svartasta kaflann í sögu þjóðarinnar.

Ólafur Ingi Hrólfsson, 13.4.2010 kl. 07:23

4 Smámynd: Elle_

Já, rán var það og rán skal það heita, segir Steingrímur.  Hann kallar það sem kom út úr skýrslunni líka HROLLVEKJANDI. 

HANN ÆTLAR SAMT AÐ KÚGA ÍSL. ÞJÓÐINA MEÐ ÓLÖGVÖRÐU ICESAVE.

Elle_, 13.4.2010 kl. 10:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband