Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Skjálfa á beinunum

Gömlu ónýtu flokkadruslurnar skjálfa nú á beinunum yfir Stjórnlagaþingi. Varðhundar gamla tímans eru um allt.

Creditinfo upplýsingafyrirtæki fjármagnseigenda tók uppá því í dag að blanda sér í pólitík við undirleik Heimdallar.

Reyna nú blekkja kjósendur með völdum lista yfir frambjóðendur. Sniðganga frambjóðendur sem eru þeim ekki þóknanlegir.  

En kjósendur geta náð til frambjóðanda 7176 á Facebook:
Facebook síða framboðsins: www.facebook.com/lydveldi


mbl.is Heimdallur telur stjórnlagaþing skrípaleik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

www.Facebook.com/lydveldi nær kannski kjöri?

Gæti verið að refskák RÚV og Creditinfo takist ekki?

Varðhundar valdastéttarinnar eru skíthræddir við Stjórnlagaþingið. Hræddir við frambjóðendur sem vilja umbylta kerfinu og kasta gömlu ónýtu flokkadruslunum á haugana í skiptum fyrir beint og milliliðalaust lýðræði.

Báðir þessir aðilar hafa sniðgengið mitt framboð á síðum sem þeir birta með listum yfir frambjóðendur til Stjórnlagaþings.

En kjósendur geta náð til frambjóðanda 7176 á Facebook:
Facebook síða framboðsins: www.facebook.com/lydveldi


mbl.is Sigraði þrátt fyrir að vera ekki á kjörseðlinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Marklaust Creditinfo - Hræðast frambjóðanda?

Eins og RÚV sleppir Creditinfo, fyrirtækið sem þjónar lögfræðimafíu ræningjabankanna, einstökum frambjóðendum á yfirliti sínu um framboð til Stjórnlagaþings. 

Framboð 7176 er með tvær Facebook síður og vefsíðu með hugmyndabanka sem þessir aðilar sniðganga í sinni umfjöllun. 

Valdastéttin hræðist suma frambjóðendur. Frambjóðandi 7176 vill umbylta stjórnkerfinu. Taka upp beint lýðræði. Taka völdin af ónýta flokkadraslinu og þeirra hyski. Færa valdið til fólksins í landinu.

Hér eru linkar á framboð 7176:
Heimasíða framboðsins: www.austurvollur.is/thor
Facebook síða framboðsins: http://www.facebook.com/lydveldi
Facebook síðan mín: www.facebook.com/austurvollur

Hér eru nokkur dæmi um það sem Íslenska glæpagengið hræðist:
Á Finnur að sleppa með skrekkinn og peningana?
Lögleidd rányrkja. Ríkið treður í poka ræningjanna
Ónýta flokkadraslið tefur fyrir - Loddaralausnir
Þú þarft að taka á grunnvandanum


mbl.is Fleiri konur en karlar með framboðssíðu á Facebook
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á Finnur að sleppa með skrekkinn og peningana?

frumherjiHversvegna er fyrrverandi bankamálaráðherra enn eigandi stórfyrirtækis sem hann keypti fyrir stolna peninga? Á Finnur að sleppa með skrekkinn og peningana?

FinnurOlafurHversvegna eru peningarnir sem stolið var af okkur með svokallaðri "einkavæðingu" bankanna og ponzí svindli ekki sóttir? Hversvegna er Frumherji, Samskip, Hagar og önnur fyrirtæki í eigu svindlaranna ekki þjóðnýtt?

Fyrir rúmum áratug kallaði ég Framsóknarflokkinn "Spilltasta greni landsins" sem var réttnefni. Eins og krabbamein hefur spillingin dreift sér í flesta stóla Alþingis og stofnanir. Í síðustu viku dæmdi pólitískt skipaður dómari fjölskyldu til að greiða ræningjabanka 58 milljónir. Aðeins bankinn naut velvildar, yfirtók þetta lán á 21 milljón með helmings afslætti frá ríkisbanka.   

Á Stjórnlagaþing vil ég til að setja nýjar leikreglur þar sem þjóðin er í forsæti í stað glæpahyskis gömlu flokkanna. Framboð Nr. 7176 www.austurvollur.is/thor 


mbl.is 22.000 með skuldir í löginnheimtu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eina rökrétta svarið við Icesave er: NEI!

Óskiljanlegt er hvernig tvær ríkisstjórnir létu hafa sig að ginningarfíflum í Icesave málinu.

FinnurOlafurÍ skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis virðist niðurstaðan sú að hvorki stjórnvöld né stofnanir hafi kannað réttarstöðu þjóðarinnar í málinu áður en lofað endurgreiðslu þýfis bankaræningja sem þjóðinni ber engar skyldur að borga.

Hvar eru þá peningarnir sem stolið var af okkur með svokallaðri "einkavæðingu" bankanna og ponzí svindli?

Hversvegna ganga bankaræningjarnir enn lausir? frumherji

Hversvegna er fyrrverandi bankamálaráðherra enn eigandi stórfyrirtækis sem hann keypti fyrir stolna peninga? Á Finnur að sleppa með skrekkinn og peningana?

Á Stjórnlagaþingi vil ég setja nýjar leikreglur. Þar sem þjóðin er er forsæti en ekki glæphyskið úr gamla flokkadraslinu. Framboð Nr. 7176 www.austurvollur.is/thor


mbl.is Lausn Icesave fyrir lok árs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skítkastið byrjað: "Ástþór Magnússon er í eigin flokki og heimi"

Merkilegt að stjórnmálastarfsemi á Íslandi geti ekki farið fram á málefnalegum nótum.

Frambjóðandi til Stjórnlagaþings sér af einhverjum ástæðum hag sinn að hreita í mig skítkasti á bloggi sínu og Facebook. Segir mig vera "í eigin flokki og heimi"

17 janúar 2009 lagði þessi frambjóðandi, Friðrik Þór Guðmundsson, titilaður blaðamaður, háskólakennari og stjórnmálafræðingur til þá frumlegu landhreinsun að Davíð Oddsson flyttist búferlum til Kyrrahafsins og "tæki Ástþór með sér".

Frambjóðandinn Friðrik segist ætla að auglýsa framboð sitt á Facebook fyrir 3-5 þúsund krónur og spyr hvort það sé "tortryggilegur fjáraustur". Þeir sem hafa kynnst heimi auglýsinganna og Facebook vita að þetta fæst ekki staðist og er eins og hvert annað lýðskrum.

Vel má vera að ég hafi einstaka sinnum gripið til óhefðbundna aðferða til að brjótast í gegnum fjölmiðlamúrinn með mín baráttumál rétt eins og Friðrik Þór sem segist tengjast búsáhaldabyltingunni gerði þegar hann tók uppá að berja potta og pönnur á Austurvelli.

Þegar ég sem forsetaframbjóðandi talaði um að Ísland væri lent í heljargreipum huldumanna sem væru að arðræna þjóðina, hagkerfið myndi hrynja vegna spillingar í bankakerfinu og fjármálamarkaðir væru að þróast í óábyrg spílavíti, upphófst mikill undirróður gegn minni persónu í fjölmiðlum og á netsíðum. Dregin var upp af mér fyrir þjóðinni persóna sem hvorki ég né þeir sem standa mér næst kannast við. Boðberinn skotinn til að enginn myndi trúa sannleikanum. 

Ég get fullvissað frambjóðandann um að ég er vel jarðtengdur. Þessvegna er ég er í framboði til Stjórnlagaþings. Ég vil leggja fram tillögur sem ég hef unnið með í 15 ár, að nýrri, einfaldari, skilvirkari og ódýrari stjórnskipan með beinu og milliliðalausu lýðræði.

Ég vona bara að Stjórnlagaþingið fari ekki ofaní þann sandkassa sem Alþingi er í dag og frambjóðendur láti af því að ausa drullu yfir hvorn annan í kosningabaráttunni.  Á Stjórnlagaþingi þarf að taka höndum saman um nauðsynlegar breytingar á leikreglum samfélagsins.

Framboð mitt er Nr. 7176. Vefsíða framboðsins er: www.austurvollur.is/thor


Lögleidd rányrkja. Ríkið treður í poka ræningjanna

Ekki þekki ég aðstæður þessarar fjölskyldu sem verið er að bera út af heimili sínu, en ég horfi agndofa uppá Íslensk stjórnvöld taka þjóðina í rassgatið.

FinnurOlafurFyrrverandi ráðherra bankamála fær banka, tryggingarfélag, bílaskoðunarfyrirtæki og fleira afhent til að spila með. Tapar hundruðum milljarða en enginn gengur á hann. Vinur hans fékk skipafélag sem hann gerði gjaldþrota og fékk aðstoð bankamafíunnar til að endurreisa.

Seðlabankastjóri reif af einu ræningjagenginu Glitni banka, en ríkisstjórnin gaf til baka með 47% afslætti.  Íslandsbanki fékk svo stuðning héraðsdómara til að ofsækja fjölskyldu með 58 milljón króna kröfu vegna gengisláns sem þeir yfirtóku fyrir aðeins 21 milljón frá þjóðinni! Enn eitt Íslenska bankasvindlið. Hvaða rök eru fyrir því að dæma fólk til að greiða að fullu sem bankinn yfirtók með 47% afslætti frá þjóðinni?

Stjórnkerfi ónýtt, frá Alþingi þar sem spilltar flokkstíkur verma sætin og niður stofnanir og dómstóla þar sem pólitískt skipaðir fulltrúar níðast á þjóðinni.  Ég vil á Stjórnlagaþing og varpa spillingunni á dyr. Nánar hér: www.austurvollur.is 


mbl.is Ætla að stöðva útburð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ræningjabæli - Er ekki kominn tími á útburð þingmanna af Alþingi?

FinnurOlafurÍsland er ræningjabæli. Bankaræningjar fara enn með hin raunverulegu völd. Ryksuga upp peninga stofnana og almennings.

Dómari dæmir fjölskyldu til að greiða banka meira en tvöfalt andvirði þess láns sem bankinn tók við af gjaldþrota banka í þjóðareigu.  Meira en tuttugu milljónir færðar í vasa ræningjanna.

Ráðherrar spóka sig á alþjóðlegum ráðstefnum og tala digurmannslega. Eyða milljörðum í gæluverkefni á meðan 1200 fjölskyldur eru við hungurmörk. Loka sjúkrahúsum og kyssa rassa í útlöndum með þátttöku í hernaðarbrölti. Eyða fjórum milljörðum í sendiráð og hernað. Aðeins 2% af upphæðinni þarf til að brauðfæða fjölskyldurnar. 

thrainn_bertelsson_5_prosent.jpgÞingmenn gefa sjálfum sér og vinum sínum bitlinga ofaná laun undir skrautyrðunum "heiðurslaun listamanns" eða eitthvað álíka fáranlegt.  Á meðan blæðir þjóðinni út. Er ekki kominn tími á útburð þingmanna af Alþingi?

Ég er í framboði til Stjórnlagaþings. Ég vil taka til hendinni og bera út ónýtu flokkana. Fá nýtt lýðveldi með beinu og milliliðalausu lýðræði. Framboð mitt er nr. 7176. Nánar á http://www.austurvollur.is/thor


mbl.is Tæplega 15 þúsund fjárnámsbeiðnir í ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þvæla veltur uppúr forsætisráðherra Noregs - Íslendingar eru EKKI á réttri leið!

Hlustum ekki á bullið sem veltur uppúr Jens Stoltenberg.

Við erum þrjú hundruð þúsund manna þjóð sem eyðir fjórum milljörðum í nokkur sendiráð og Varnarmálastofnun.  Við lokum sjúkrahúsum, finnst meiri hætta á innrás erlends herliðs en sjúkdómum.

Við látum 1200 fjölskyldur bíða úti í kuldanum eftir vikulegri matarúthlutun á meðan við splæsum í heiðurslaun handa öldnum þingmanni á fullum launum frá Alþingi en sem einhverntíman í fyrndinni skrifaði kvikmyndahandrit.

Við eyðum hundruðum milljóna í afmælisveislu til handa löngu látinni sjálfstæðishetju. Leggjum heimreið fyrir hann í afskekktum dölum meðan stór hluti þjóðarinnar en hnepptur í fátæktaránauð.

Sendið Jens Stoltenberg heim til Noregs og segið honum að hugsa þessi mál áður en hann kemur aftur til Reykjavíkur og ber svona þvælu á torg.

Þurfum raunhæfar tillögur að nýju lýðveldi. Beint og milliliðalaust lýðræði í stað ónýtu spilltu flokkanna. Einföldum stjórnsýsluna. Gefðu mér tækifæri til að taka til hendinni á Stjórnlagaþingi. Framboðsnúmer mitt er 7176 og vefsíðan er: www.austurvollur.is.


mbl.is Segir Ísland á réttri leið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Snargalin fjárlög - Áherslum snúið á haus

Óskiljanlegt hvernig bráðgáfaðir menn eins og Ögmundur Jónasson geta stutt þá þvælu sem yfirstandandi fjárlög eru og farið með niðurskurðarhnífinn á snarvitlaust skurðborð.

NATO-CLASS_A512Milljörðum eytt í gæluverkefni m.a. óþarfa varnarmálastofnun meðan skorið er niður í nærtækari vörnum í heilbrigðiskerfinu. Stafar slík hætta af innrás orustuþotna í landið að loka þurfi sjúkrarúmum til að verjast sprengjunum?

Hversvegna ekki að loka sendiráðum frekar en sjúkrahúsum? Spara þar 3 milljarða. Veikir Íslendingar hafa ekkert með sendiráð í útlöndum að gera. Hef búið erlendis meira og minna áratugum saman. Nánast aldrei komið í sendiráð. Nota netið og símann í samskiptum til Íslands. Hef hinsvegar þurft á sjúkrahúsi að halda er ég öklabrotnaði í hálku í Reykjavík. 

Flokkadraslið á Alþingi er ónýtt. Stokka upp allt kerfið. Það vil ég gera á Stjórnlagaþingi. Framboð mitt er 7176. Vefsíða framboðsins: http://austurvollur.is/thor 


mbl.is Vælir ekki undan slöku gengi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband