Færsluflokkur: Bloggar

Nefndarskipun um endurskoðun laga um fjármál stjórnmálaflokkana

Bréf sent forsætisráðherra Jóhönnu Sigurðardóttur: 

Kvörtun vegna nefndarskipunar um endurskoðun laga um fjármál stjórnmálaflokkana

Lýðræðishreyfingin gerir athugasemdir við skipun í nefnd um endurskoðun laga um fjármál stjórnmálaflokkana en samkvæmt fréttum frá Forsætisráðuneytinu eiga allir stjórnmálaflokkar sem tóku þátt í nýafstöðnum alþingiskostningum fulltrúa í nefndina nema Lýðræðishreyfingin.

Lýðræðishreyfingin er nú aftur sniðgengin með beinum og skipulögðum hætti eins og við máttum þola af ríkisfjölmiðlunum RÚVog Ríkisútvarpinu í aðdraganda kosninganna en þar fengum við ekki aðgang á jafnréttisgrundvelli fyrr en settar höfðu verið upp leiksýningar við útvarpshúsið í Efstaleiti í mótmælaskyni til að vekja athygli á ósómanum.  Lýðræðishreyfingin neyddist til þess að setja á fót eigin útvarpsstöð (Lýðvarpið) til að koma boðskap sínum á framfæri þegar Ríkisútvarpið var algerlega lokað fyrir okkur meðan önnur ný framboð eins og Borgarahreyfingin sem starfsmaður Ríkisútvarpsins var í forsvari fyrir fékk þar nær óheftan aðgang. Ríkisútvarpinu tókst með þessu hátterni að skekkja úrslit kosninga og þannig auka enn frekar mismunun. Ekki er hægt að líða slíkar uppákomur í því sem á að kallast lýðræði. Lýðvarpið mun því halda áfram að veita spillingaröflunum aðhald með því að vekja athygli á óvönduð fréttum ríkisfjölmiðlanna.

Lýðræðishreyfingin harmar tvöfeldni og óheiðarleika þeirra stjórnmálamanna sem virðst hafa blekkt þjóðina við síðustu kosningar. Til að mynda lofaði fjármálaráðherra í kosningasjónvarpi að koma á fót markaðsskrifstofu til að laða til Íslands erlend fyrirtæki eftir tillögum Lýðræðishreyfingarinnar og í tvígang lýsti því yfir að hann myndi hringja í Ástþór Magnússon vegna þessa. Ekkert slíkt símtal hefur borist og ríkisstjórnin virðist ekkert ætla að gera í þessu mikilvæga hagsmunamáli þjóðarinnar og virðist þess í stað ætla að blóðmjólka heimilin í landinu með auknum sköttum og niðurskurði.

Lýðræðishreyfingin hefur ítrekað kært misbresti í framkvæmd kosninga til Öryggis og Samvinnustofnunar Evrópu og þá sérstaklega hvað varðar aðgang að lýðræðislegri umræðu í ríkisfjölmiðlunum. Lýðræðishreyfingin hefur einnig gert athugasemdir við hvernig fjármálum stjórnmálaflokkanna er háttað og var þetta m.a. rætt við fulltrúa ÖSE er þeir voru hér í aðdraganda síðustu kosninga svo og við fjármálaráðherra stuttu fyrir útsendingu hjá Stöð2 við síðustu kosningar. Það er því miður að ríkisstjórnin kjósi að útiloka Lýðræðishreyfinguna frá þessari umræðu með því að veita okkur ekki aðgang að nýskipaðri nefnd á jafnréttisgrundvelli.

Virðingarfyllst,
Lýðræðishreyfingin
Ástþór Magnússon  
Jón Pétur Líndal  
Guðrún María Óskarsdóttir


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Úrslit kosninga koma ekki á óvart

Áhugavert er að skoða úrslit kosninga fyrri ára og bera saman við nú. Ný framboð hafa yfirleitt náð litlu kjörfylgi. Misnotkun ríkisfjölmiðlanna áratugum saman endurspeglast í óvirku lýðræði við alþingiskosningar.

Ný framboð hafa yfirleitt ekki átt upp á pallborðið hjá þáttastjórnendum ríkisfjölmiðlanna þótt á þessu hafi verið einstaka undantekningar eins og nú með Borgarahreyfinguna en formaður hennar er starfsmaður Ríkisútvarpsins, var meira að segja staðinn að því að vera á launum frá ríkisfjölmiðlinum í framboðsferð á Akureyri.

Lýðræðishreyfingin gaf út framboðsyfirlýsingu 5 mánuðum fyrir kosningar, í nóvember 2008 en þá voru borgarafundir Borgarahreyfingarinnar fyrirferðamiklir hjá RÚV. Talsmaður Lýðræðishreyfingarinnar borinn út af fundum þeirra fyrir þær sakir að leggja til lýðræðisleg vinnubrögð. Þrátt fyrir þetta hélt RÚV áfram að útvarpa og sjónvarpa fundum Borgarahreyfingarinnar.

Fram til 15 apríl (10 dögum fyrir kosningar) fékk Lýðræðishreyfingin tækifæri til að kynna sín málefni í ríkisfjölmiðlunum með einu stuttu innleggi í broti af Kastljósþætti RÚV. Þetta gerðist  eftir að send höfðu verið á annan tugur erinda til útvarpsstjóra og efnt tvívegis til mótmæla/leiksýninga við útvarpshúsið. En það reyndist eina leiðin til að brjótast í gegn þarna. Fram að þeim tíma var símtölum okkar svarað með útúrsnúningum og Lýðræðishreyfingunni gersamlega úthýst úr ríkisfjölmiðlunum.

Silfur EgilsÁ sama tíma fékk Borgarahreyfingin 21 innslag í ríkisfjölmiðlunum meðal annars fleiri klukkutíma í útsendingum bæði sjónvarps og útvarps frá borgarafundum sínum. Einnig fengu frambjóðendur Borgarahreyfingarinnar amk sex innkomur í Silfur Egils á meðan Lýðræðishreyfingunni var algerlega úthýst. Við höfum ekki í eitt einasta skipti fengið að koma í þann þátt! Ég minnist þess einnig að sama var uppá teningnum við borgarstjórnarkosningar þegar Egill Helgason úthýsti Flokki mannsins úr leiðtogaumræðum á Skjá einum, eini stjórnmálaleiðtoginn sem var útilokaður frá spjallborðinu.

Líklegast hefur þessi þöggun verið í gangi áratugum saman. Úrslit kosninga fyrri áratuga benda til þess. Lélegt kjörfylgi Lýðræðishreyfingarinnar er ekkert einsdæmi og virðist það frekar venjan en undantekningin að ný framboð nái engu kjörfylgi. Í ágætri úttekt Morgunblaðsins á þessu í dag kemur í ljós að Bandalag jafnaðarmanna fékk 0,2% 1987, Verkamannaflokkur Íslands fékk 0,1% árið 1991, Heimastjórnarsamtök 0,6% 1991, Grænt framboð 0,3% 1991, í kosningunum 1995 fékk Kristileg stjórnmálahreyfing 0,2%, Vestfjarðarlistinn 0,4%, Náttúrulagaflokkur 0,6%, Suðurlandslistinn 0,7%, árið 1999 fékk Humanistaflokkurinn 0,4%, Kristilegi lýðræðisflokkurinn 0,3% og Anarkistar 0,1%.

Eitt mikilvægasta mannréttindamál Íslendinga er að hér komist á virkt og heiðarlegt lýðræði. Grunvallar reglur lýðræðis eru opnir og hlutlausir fjölmiðlar. Nauðsynlegt er að setja án tafar fjölmiðlalög sem tryggja óhlutdræga umfjöllun í aðdraganda kosninga. Einnig þarf að endurskoða kosningalögin til að gæta þess að öll framboð sitji við sama borð hvað varðar fjárstyrki. Að hafa frambjóðendur í þeirri stöðu að þeir þurfi að skrapa styrki úr atvinnulífinu er lýðræðinu beinlínis hættulegt. Í bland við ofríki einstakra ríkisstarfsmanna á stærstu fjölmiðlunum er Íslenskt lýðræði sannkallaður spegill skrípræðis.
mbl.is Ekki víst að langt sé í land
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í dag ertu frjáls

xp2.jpgÍ dag getur þú valið frelsi úr kreppu og höftum. Komist til áhrifa á Alþingi Íslendinga. Lýðræðishreyfingin er eina stjórnmálahreyfingin sem mun gefa þér málfrelsi og ákvarðanafrelsi í beinu og milliliðalausu lýðræði á Alþingi.

Í dag getur þú fengið frelsi undan ánauð flokksræðis. Gefið mútuþægum pólitíkusum langt nef. Veittu þeim ærlega refsingu með því að eiga þína eigin rödd og þitt eigið atkvæði á Alþingi.

Í dag skrifum við Íslandssöguna. Þetta er dagurinn sem þjóðin getur gert sögulegar lýðræðisumbætur og rekið spillinguna á dyr.

xP Lýðræðishreyfingin er eini raunhæfi kosturinn ef þú vilt byggja nýtt Ísland. Enginn annar býður þér að virkja þitt atkvæði á Alþingi. Þú þarft ekki að afsala þér atkvæðisrétti næstu fjögur árin. Í Lýðræðishreyfinguna áttu þína rödd og þitt atkvæði á Alþingi sem þú getur nýtt þér hvenær sem þú vilt.

Við ætlum að sækja þýfið, þá hundruði milljarða sem útrásarvíkingarnir stálu af þjóðinni og nota öll tiltæk ráð til að ná lögum yfir spilltu grísina. Við munum beita hryðjuverkalögum eins og bretar gerðu gegn Landsbankanum þannig að öll sund lokist hjá spilltum útrásarvíkingum erlendis og þeir verði nauðbeygðir að koma heim og skila peningunum.

Við munum markaðssetja Ísland sem land tækifæranna um allan heim og byggja upp nýja atvinnuvegi, nýja skattstofna og tekjur. Við munum semja við eigendur jöklabréfanna og fá þeim umbreytt í langtíma fjárfestingasjóð atvinnulífsins til að fá erlendu fjárfestana með í að byggja upp nýtt Ísland og losa þannig þrýsting af krónunni.

Við munum hagræða í stjórnkerfinu og ríkisreksrinum án skattahækkana. Við munum ekki leggja aukna skatta á aðþrengd heimili. Með víðtækri atvinnuuppbyggingu stækkum við kökuna og náum í nýja skattstofna.

Við munum fá hingað færustu hagfræðinga heims til að aðstoða okkur við að umbreyta Íslensku bönkunum úr sveitasparisjóðum í öflugar alþjóðlegar fjármálastofnanir. Þannig færum við súrefni í allt efnhagslífið, lækkum vexti og styrkjum gjaldmiðilinn.

Merktu xP á kjörseðilinn, það er eina raunhæfa lausnin úr kreppunni.
mbl.is Kjörstaðir opnaðir klukkan 9
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjarni Ben neitar að svara um peningana

bjarnibenvidtal.pngEftir að gera ítrekaðar tilraunir til að hringja í Bjarna Benediktsson formann Sjálfstæðisflokksins fórum við á stúfana með videóvél og hljóðnema.

Bjarni fór undan í flæmingi og neitaði að svara um hvort þeir ættu peningana til að endurgreiða ofurstyrki eins og framkvæmdastjóri flokksins lýsti yfir við Lýðvarpið fyrir nokkrum dögum

Í gær sagði Pétur Blöndal á Útvarpi Sögu við Ástþór Magnússon að flokkurinn eigi ekki þessa peninga til.

Hver er að segja satt og hver er að ljúga? Þjóðin þarf að vita það fyrir kosningar!

Hér má sjá viðtalið við Bjarna Ben

ATH: Bæði Stöð2 og RÚV slepptu þessari frétt í kvöld. Þeim var báðum tilkynnt um atburðinn. Þjóðin ætti að spyrja sig hversvegna þessir fjölmiðlar gangi ekki eftir svörum frá Sjálfstæðisflokknum og hversvegna þeir eru dottnir ofaní sama sukkið og fyrir bankahrunið?

http://www.youtube.com/watch?v=kN5vyKLeYc8


Leitar að 55 milljónum hjá ræningjum í Húsdýragarðinum

bjarnipeningarFramkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins Gréta Ingþórsdóttir upplýsti við Lýðvarpið FM100.5 fyrr í vikunni að hún sé tilbúin með peninga á reikningi flokksins til að endurgreiða 55 milljón króna ofurstyrki til flokksins eins og Bjarni Benediktsson formaður hefur lofað þjóðinni.

Í gær upplýsti hinsvegar Pétur Blöndal þingmaður Ástþór Magnusson í beinni útsendingu að þessir peningar séu ekki til hjá flokknum, en það væru hinsvegar til einhver veð. Á sama tíma sagði Pétur að "kínamúr" væri milli fjármála flokksins og þingmanna en samt virðist hann vita nákvæmlega hver staðan á bankareikningum flokksins.

Sjálfstæðismenn eru orðnir margsaga um endurgreiðslu á ofurstyrkjunum og fjárhagsstöðu flokksins. Hefur framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins haft uppi ósannindi um fjárhagsstöðuna? Er Bjarni Benediktsson að blekkja kjósendur með kosningaloforði um endurgreiðslu á ofurstyrkjum?

Lýðvarpið FM100.5 vill fá svör við þessum spurningum. Í símtölum við flokksskrifstofur Sjálfsstæðiflokksins sem útvarpað var á Lýðvarpinu FM100.5 í hádeginu var Ástþóri Magnússyni boðið að mæta í Húsdýragarðinn kl. 17, hitta ræningjana úr Kardimommubænum og spyrja Bjarna um týndu peningana. Ástþór tekur Sjálfstæðismenn á orðinu og mun mæta á staðinn með myndavél og hljóðnema til að fá málið upplýst.


Segist vera með tugmilljónir tilbúnar á reikningi flokksins en vilja ekki endurgreiða mútugreiðslurnar fyrir kosningar

Framkvæmdastjóri Sjálfstæðiflokksins segist vera með 55 milljónir tilbúnar á reikningi flokksins en flokkurinn ætlar ekki að endurgreiða ofurstyrki fyrir kosningar

sjalfstaedisflokkur.jpgÁ fréttavakt.is á Lýðvarpinu FM100.5 í hádeginu í dag sagðist framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins vera með peningana tilbúna á reikningi flokksins til að endurgreiða 55 milljón króna styrki sem kenndir hafa verið við mútuþægni.

Gréta Ingþórsdóttir nýskipaður framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins fór undan í flæmingi þegar Ástþór Magnússon spurði hana áleitinna spurninga á Lýðvarpinu FM100.5 um endurgreiðslu á ofurstyrkjum sem margir hafa kallað mútufé.

Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins lýsti því yfir á Bylgjunni í morgun að styrkirnir yrðu endurgreiddir 1. júní n.k. sem er nokkrum vikum eftir kosningar. Hinsvegar segir framkvæmdastjóri flokksins að peningarnir séu tilbúinir á reikningi flokksins til að endurgreiða strax í dag. Hversvegna er það þá ekki gert í dag spyr Ástþór Magnússon?

Hér má hlusta á símtalið:  auto-1240313984-115-003547726662


Hvaðan komu peningarnir Ástþór? Hlustendum Bylgjunnar svarað um peninga, ÖSE, útvarpsstjórabíl og fleira

Hlustendur Bylgjunnar vildu vita um fjármögnun forsetaframboða, Lýðræðishreyfingarinnar, útvarpsstjórabíl og fleira. Hlustið hér á svör mín í bítið á Bylgjunni í morgun.
#Ástþór Magnússon talsmaður Lýðræðishreyfingarinnar sat fyrir svörum okkar og hlustenda

Lýðræðishreyfingin með 32,5% fylgi samkvæmt nýrri skoðanakönnun á mbl.is

Lýðræðishreyfingin með 32,5% fylgi samkvæmt nýrri skoðanakönnun á mbl.is

Samkvæmt nýrri skoðanakönnun í dag á bloggvef Morgunblaðsins sem 1170 manns hafa svarað er Lýðræðishreyfingin með 32,5% fylgi.

Vinstri Grænir 19,5%, Samfylking 13,7%, Framsókn 10,6%, Sjálfstæðisflokkur 22,2% og Borgarahreyfingin 1,5%.

Samkvæmt þessu er Lýðræðishreyfingin orðinn stærstu stjórnmálasamtök landsins.

Hægt er að sjá könnunina hér:
http://hvitiriddarinn.blog.is/blog/hvitiriddarinn/entry/856870/


Útrásarvíkingum tókst ekki að stöðva lýðræðið

Landskjörstjórn hefur úrskurðað lista Lýðræðishreyfingarinnar í Reykjavík gilda. Uppákoma útrásarvíkinga og spilltra stjórnmálaflokka til að stöðva Lýðræðishreyfinguna tókst ekki.

Ástþór Magnússon frambjóðandi Lýðræðishreyfingarinnar í Reykjavík norður hefur opinberlega lýst yfir að útrásarvíkingarnir Ólafur Ólafsson í Samskip og fleiri skuli sæta gæsluvarðhaldi á meðan rannsókn bankahrunsins standi yfir. Þessu mun Lýðræðishreyfingin beita sér fyrir fá hún stuðning kjósenda. Einnig að mútuþægni stjórnmálaflokkanna sæti lögreglurannsókn og þar skuli fara fram húsleitir án tafar. Verði Ríkislögreglustjóri og aðrir embættismenn ekki við þessum tilmælum mun Lýðræðishreyfingin beita sér fyrir því að embættisskúrkum verði vikið úr starfi.


Útrásarvíkingar reyna að stöðva Ástþór í Reykjavík

Yfirkjörstjórn Reykjavíkurkjördæmanna hafa úrskurðað lista Lýðræðishreyfingarinnar ógildan þvert á úrskurði annar kjörstjórna landsins. Oddviti yfirkjörstjórnar í Reykjavík norður er Erla Árnadóttir sem starfar fyrir lögmannstofuna Lex sem einnig hefur starfað fyrir Ólaf Ólafsson, Samskip, Baug og aðra útrásarvíkinga.

Ólafur og Ólafur hala inn frá KatarÁstþór hefur opinberlega lýst yfir að útrásarvíkingarnir Ólafur Ólafsson í Samskip og fleiri skuli sæta gæsluvarðhaldi á meðan rannsókn bankahrunsins standi yfir. Þessu mun Lýðræðishreyfingin beita sér fyrir fá hún stuðning kjósenda. Einnig að mútuþægni stjórnmálaflokkanna sæti lögreglurannsókn og þar skuli fara fram húsleitir án tafar. Verði Ríkislögreglustjóri og aðrir embættismenn ekki við þessum tilmælum mun Lýðræðishreyfingin beita sér fyrir því að embættisskúrkum verði vikið úr starfi.

Landskjörstjórn fjallar nú um eftirfarandi kæru Lýðræðishreyfingarinnar:

Kæra til landskjörstjórnar

Kröfugerð:    
1.    að oddviti yfirkjörstjórnar í Reykjavíkurkjördæmi norður víki sæti.
2.    að kjörstjórnarmenn yfirkjörstjórna beggja Reykjavíkurkjördæmanna afhendi upplýsingar um tengsl sín við stjórnmálaflokkana og útrásarfyrirtæki.
3.    að úrskurðir yfirkjörstjórna Reykjavíkurkjördæmis norður og suður 16. apríl 2009 verði felldir úr gildi.
4.    að það verði staðfest að framboðslistar Lýðræðishreyfingarinnar, P-lista, í Reykjavíkurkjördæmunum séu gildir framboðslistar.

Röksemdir:
Varðandi hæfi oddvita yfirkjörstjórnar í Reykjavíkurkjördæmis norður er á því byggt að Erla Árnadóttur oddviti yfirkjörstjórnar Reykjavíkur norður er lögmaður á sömu lögmannstofu og fyrirrennari hennar Þórunn Guðmundsdóttir, lögmannsstofunni Lex, en lögmannsstofan hefur mikið starfað fyrir útrásarvíkingana. Þórunn sagði í sjónvarpi fyrir framan þjóðina í janúar 2008 að það væri „nauðgun á lýðræðinu í landinu“ byði Ástþór sig aftur fram í kosningum hér á landi. Þá lét Þórunn að því liggja að Ástþór hefði blekkt kjósendur í forsetakosningunum árið 2004. Lex starfar einnig fyrir Ólaf Ólafsson og Samskip en Ástþór stendur nú í málaferlum við þessa aðila eftir að hafa lýst því yfir að hann vilji að lögregla kanni bókhaldsóreiðu hjá Samskip.

Um kröfu um afhendingu upplýsinga er á því byggt að úrskurðir yfirkjörstjórna séu til komnir af annarlegum ástæðum sem má rekja til þess  að Ástþór vilji beita sér fyrir því að útrásarvíkingarnir sem settu þjóðina á hausinn sæti gæsluvarðhaldi meðan rannsókn bankahrunsins stendur yfir og að það fari fram lögreglurannsókn á fjármálum stjórnmálaflokkanna og hugsanlegri mútuþægni þeirra.

Um úrskurðina er það að segja að við hjá Lýðræðishreyfingunni höfum fylgt leiðbeiningum þeim sem við höfum fengið frá dómsmálaráðuneytinu í hvívetna. Þá vísum við til þess að það sé ótvírætt að allir frambjóðendur hafa staðfest með undirskrift sinni vilja sinn til að vera í  framboði fyrir Lýðræðishreyfinguna á þeim lista þar sem yfirlýsingin er lögð fram. Enn fremur hafa fjögur kjördæmi úrskurðað framboðslista hreyfingarinnar að fullu gilda en þeir voru lagðir fram með sama formi og í Reykjavíkurkjördæmunum.

Til upplýsingar viljum við enn fremur koma því á framfæri að við lögðum fram meðmælalista í samræmi við leiðbeiningar dómsmálaráðuneytisins sem ráðuneytið hafði fengið í tengslum við umsókn um listabókstaf. Yfirkjörstjórnir Reykjavíkurkjördæmanna sendu okkur aftur út á örkina til að safna fleiri undirskriftum þar sem þær höfnuðu þessum tilteknu undirskriftum. Þetta er á skjön við yfirlýsingar fulltrúa ráðuneytisins sem staðfesti síðast í gærkvöldi að það væri afstaða ráðuneytisins bæði nú og við fyrri kosningar að slíkir meðmælendalistar væru fullgildir sem meðmælendur með framboðslistum. Við öfluðum þessara meðmælenda og lögðum fram en þetta varð til þess að dýrmætur tími fór forgörðum og allar tímaáætlanir röskuðust m.a. framboðsfundir með kjósendum.

Reykjavík, 16. apríl 2009.

Ástþór Magnússon
umboðsmaður fyrir Lýðræðishreyfinguna

Garðar Björgvinsson
umboðsmaður fyrir Lýðræðishreyfinguna

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband