21.11.2010 | 04:08
Viðtal í Harmageddon - Ýmsir áhugaverðir púnktar!
Var að setja myndband úr Harmageddon inná nýju Facebook síðuna. Margir ágætir púnktar í þessu viðtali. Hressir strákar þarna á Harmageddon!
Hér er slóðin:
![]() |
Ráðist að grunnstoðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 04:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.11.2010 | 01:41
Svar til kjósanda
18.11.2010 | 03:34
Þessvegna er ég þinn maður á Stjórnlagaþing
Ég er trúr minni hugsjón um nýtt og betra Ísland. Enginn kaupir mig. Enginn þaggar niður í mér. Ég hætti ekki fyrr en ég hef unnið mitt verk eða kominn undir græna torfu.Ég sá spillinguna sem gerjaðist undir yfirborðinu fyrr en nokkur annar. Ég var ómyrkur í máli strax árið 1996 er ég sagði í aðdraganda forsetakosninga að landinu væri "stjórnað af huldumönnum sem væru að arðræna þjóðina". Kallaði stjórnmálaflokk "Spilltasta greni landsins".
Ég sagði fjármálakerfið ónýtt, bankar og kauphallir myndu hrynja eins og spilaborg.
Á mig var ráðist úr öllum áttum. Reynt að gera boðskap minn tortryggilegan í fjölmiðlum. Skopmyndir birtar. Augu mín sem sáu spillinguna gerð tortryggileg. Kettir sagðir hlaupa undir sófa er ég birtist í sjónvarpi. Keisarinn í nýju fötunum reyndi að þagga niður óþægilega gagnrýni.
Nú þarf ég þinn stuðning að komast á Stjórnlagaþing með þá hugmyndafræði sem ég hef unnið með í hálfan annan áratug m.a: Beint lýðræði. Skilvirkari stjórnsýsla og fækkun þingmanna. Þjóðin njóti sjálf arðs auðlinda. Ísland verði málsvari friðar og tjáningarfrelsis. Réttlæti í öndvegi og fátækt útrýmt.
7176 Ástþór Magnússon Wium - Þinn maður á Stjórnlagaþing
Heimasíða: www.austurvollur.is/thor
LÍKA á www.facebook.com/lydveldi
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 03:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)