28.2.2024 | 06:34
Er Morgunblaðið orðið sorprit skrifað af drukknum unglingum?
Morgunblaðið virðist heldur betur fallið af stalli sínum ofaní saurugt ræsi sorpblaðamennsku sem vettvangur fyrir drukkna unglinga að bera gróusögur á torg.
Er Davíð að ljúka glæstum leiðtogaferli sem sorpritstjóri?
Ekki átti ég von á því að fyrrum hæstvirtur forsætisráðherra, seðlabankastjóri, eitt helsta skáld Íslands og leiðtogi þjóðarinnar í áratugi, Davíð Oddson, myndi enda sinn glæsilega starfsferil sem ritstjóri blaðsnepils sem skrifaður er af drukknum unglingum undir hans stjórn.
Málefnaleg umræða víkur fyrir gróusögum drukinna unglinga
Er þetta ástæða þess að flestir landsmenn eru hættir að lesa Morgunblaðið? Morgunblaðið er nú orðið nánast einblöðungur en var hér áður þykkt og veglegt dagblað, stærsti og útbreiddasti vettvangur málefnalegrar umræðu í landinu. Undanfarna daga hefur Morgunblaðið einkennst af hræðsluáróðri fyrir hergagnaframleiðendur um yfirvofandi kjarnorkuvopnaárásir á Ísland blandað í koktail við níðskrif drukinna unglinga um þekkta einstaklinga.
Gekk heim af tónleikum og mætti sóðalegu teymi Morgunblaðsins
Fyrir nokkrum dögum sótti ég styrktartónleika fyrir fórnarlömb á Gaza. Á vegi mínum heim urðu á leið minni þrjú ungmenni sem sögðust vera "blaðamenn". Gefum einu þessara ungmenna orðið: "Með kjúklingashawarma í annarri og Fendi-tösku í hinni hitti Nóttin Ástþór Magnússon eilífðarforsetaframbjóðanda. Herra Friður 2000 var að safna undirskriftum. Þrátt fyrir ölvunina datt Nóttinni ekki í hug að skrifa undir. Nóttin er enn að bíða eftir betri kandídat. Hún á von á því að vinur pabba bjóði sig fram um páskana."
Úturdrukkið unglingateymi á vegum Morgunblaðsins
Ég gekk beinustu leið frá umræddum styrktartónleikum með palestínumann mér við hlið sem við hjá Friði 2000 höfum tekið undir okkar verndarvæng og veitt húsaskjól ásamt konu hans og fjórum börnum þeirra sem urðu að flýja stríðsástand í sínum heimalandi. Þau bíða eftir því að komast aftur til síns heima þegar friður kemst á. Hvorugur okkar hafði bragðað dropa af áfengi þennan dag þegar úturdrukkið unglingagengi á vegum Morgumblaðsins varð á leið okkar.
Pabbastelpa fékk vinnu á Morgunblaðinu
Ég bíð þess einnig spenntur að sjá hvaða frambjóðendur koma úr páskaeggjunum í ár. Hvaða vinum pabbanna verður reynt að skjóta á loft af fjölmiðlum í þessum kosningum. Minnumst í leiðinni hvernig Morgunblaðið hefur skekkt málefnalega umræðu fyrir kosningar fyrri ára. Hér fylgir mynd frá árinu 2012. Stóra skiltið sem ég stend við sýnir umfjöllun um forsetaframbjóðanda sem var í náðinni hjá Morgunblaðinu í það skipti, í hinni hendi held ég á agnarlitlu spjaldi með allri umfjöllun Morgunblaðsins um mitt framboð sama ár.
Á endanum missti fjölmiðilinn flugið
Auðvitað með síendurteknum og ómálefnalegum áróðri, nú í bland við skrif drukinna unglinga sem þekja síður Morgunblaðsins, hefur einn stærsti fjölmiðill þjóðarinnar misst flugið og liggur nú í ræsinu með öðrum ómerkilegum sorpritum landsins.
Nýtt upphaf
Í dag les þjóðin kynningar beint og milliliðalaust frá frambjóðendum. Þannig er hægt að kynna sér mín stefnumál og hugmyndafræði um framtíð forsetaembættisins á vefnum www.forsetakosningar.is og hvernig við getum virkjað þetta góða embætti til að auks þjóðartekjur um 600 milljarða um leið og við sem þjóð látum gott af okkur leiða.
![]() |
Nóttin: Undirskriftasöfnun á djamminu og Arndís Pírati á Kiki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.2.2024 | 08:43
Hefur einhver reynt að ræða við Rússa um friðsamlegar lausnir?
Aðgerðir leiðtoga Íslands og Evrópu hafa undanfarin ár einkennst af stríðsyfirlýsingum gegn Rússlandi og niðurlægjandi orðum um forseta landsins. Á sama tíma þegar maður ræðir við Rússneskan almenning virðast flestir þeirra ánægðir með störf síns leiðtoga og flykkja sér á bakvið hann gegn því sem almenningur í Rússlandi sér sem árásir vesturlanda á sitt frelsi til viðskipta, ferðalaga og menningu.
Ekki er nóg með að búið er að banna Rússum og Íslendingum að stunda viðskipti sín á milli, Rússar eru einnig útilokaðir frá íþróttaviðburðum og menningu Evrópu. T.d. úthýstir frá Eurovision á meðan önnur þjóð sem er að stunda þjóðarmorð í Palestínu er velkomin.
Nú er áróðursmaskína hergagnsaframleiðenda komin í yfirgír. Þeim er alveg sama hvort raðirnar hjá læknavaktinna lengjast niður á götu, peningana skal setja í drápstól til að heyja heitt stríð við Rússland.
Hætt er við að slíkt stríð leiði til mikilla hörmunga fyrir okkur sjálf og önnur lönd Evrópu. Ísland er klárlega skotmark í heitu stríði stórveldanna, og sigur okkar er alls ekki öruggur og jafnvel ólíklegur gegn bandalagi Rússlands, Kína, Indlands og Íran. Þeir eru hreinlega með yfirburðarstöðu gegn Nató klúbbnum sem einnig getur meira að segja liðast í sundur eftir næstu forsetakosningar í bandaríkjunum.
Leiðtogar okkar eru komnir langt út af sporinu og eru að ýta okkur í þriðju heimsstyrjöldina á óngarhraða. Segjum nú STOPP, hingað og ekki lengra, Virkjum Bessastastaði til friðar.
Minni á borgarafund minn á Greifanum Akureyri í kvöld mánudaginn 26 febrúar kl. 20:30 þar sem við ræðum þessi mál.
![]() |
Eystrasaltsríkin búa sig undir innrás Rússa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.2.2024 | 10:30
Morgunblaðið varar við árás á Ísland
Svokallaðir sérfræðingar í varnarmálum flykkjast nú hver af öðrum í fjölmiðla með áróður hergagnaiðnaðirns að þjóðir Evrópu verði að setja stóraukin fjáraustur í hermangið.
Tveimur árum eftir að allt sauð uppúr milli Úkraníu og Rússlands birtir Morgunblaðið grein sem segir: Líklegt að ráðist yrði á Keflavíkurstöðina í stríði þar sem Fabian Hoffmann sérfræðingur í varnarmálum og eldflaugahernaði segir að miklar líkur séu á því að Rússar myndu ráðast á Ísland ef til átaka kemur á milli Rússlands og Atlantshafsbandalagsins.
Ég vakti ítekað athygli á þessari hættu í aðdraganda forsetakosninga árið 2016 og skoraði á þjóðina að grípa strax til aðgerða til að afstýra því að við myndum leiðast í styrjöld við Rússland.
Íslenskir ráðmenn í fullum herskrúða
Í stað þess að grípa til aðgerða til friðar klæddust íslenskir ráðamenn fullum herskrúða og greiddu fyrir vopnaflutninga með skattfé Íslensku þjóðarinnar til stríðs við Rússland. Utanríkisráðherra gerðist sölumaður dauðans fyrir bandaríska hergagnaframleiðendur. Í nafni Íslensku þjóðarinnar hitti hún bandaríska hershöfðingja í Washington og ferðaðist síðan með þeirra veganesti til leiðtoga Evrópuríkja að þrýsta á aukna fjármuni í hermangið.
Ég hef ítrekað undanfarinn áratug varað við því að ef styrjöld brýst út við Rússland gæti það þróast í kjarnorkustyrjöld á milli stórveldanna og slíkt gæti gerst á tiltölulega stuttum tíma.
Gæti rústað Reykjavík
Flugvöllurinn í Keflavík sem jafnframt gegnir hlutverki herflugvallar svo og kafbátastöðin í Hvalfirði eru augljóst skotmörk í slíkum átökum. Verði kjarnorkusprengjum skotið á þessar herstöðvar sem við Íslendingar hýsum með bandarísku herliði, gæti það lagt Reykjavík í eyði vegna geislavirkni sem líklegt er að myndi færast yfir höfuðborgarsvæðið. Við erum að horfa hér á ógn sem gæti útrýmt stórum hluta Íslensku þjóðarinnar.
Á margföldum hljóðhraða
Kjarnorkusprengjur myndu líklegast berast utan úr geimnum með langdrægum flaugum á margföldum hljóðhraða. Það er í hraun hlægilegur áróður að halda því fram að við getum varist slíku með einhverjum skotvopnum bandarískra hergagnaframleiðenda.
Það er kominn tími til að þjóðin taki á þessum málaflokki af festu og alvöru og hætti þátttöku í stríðleikjum úr smiðjum bandarískra hergagnaframleiðenda sem eru stærsta ógnin við heimsfriðinn í dag. Við getum byrjað á að Virkja Bessastaði til friðarmála, að forseti Íslands í stað þess að tala fyrir hernaði leiði menn saman til viðræðna um varanlegan frið.
Afstýrum þriðju heimsstyrjöldinni
Við þurfum samhent átak grasrótar, atvinnulífs og stjórnmála til að afstýra þriðju heimsstyrjöldinni sem er nú í fæðingu og mun hellast yfir okkur á næstu árum verði haldið áfram á sömu braut.
Hér eru myndbönd um þetta málefni sem voru birt á vef mínum forsetakosningar.is í aðdraganda forsetakosninga árið 2016:
Rússar vara við heimstyrjöld - Heimsfriðurinn hangir á bláþræði
Þjóðaröryggistefna sem ógnar Íslendingum
Höfundur er forsetaframbjóðandi.
![]() |
Telur Rússa hafa áætlanir fyrir Keflavíkurflugvöll |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |