Er og verður ávallt hóra!

Öfgamenn múslima umturnuðust útí danska Jyllands Posten yfir skopmyndum af spámanni. Á Íslandi gengur allt af göflunum vegna skopmyndar um pólitíska hóru.

FinnurOlafur
Framsóknarflokkurinn á sér langa sögu sem pólitísk hóra. Ævintýralegum fjárhæðum var stolið af þjóðinni af refum úr þessu spilltasta greni landsins. 

Sif Friðleifsdóttir svaf eins og prinsessan á bauninni í mjúku hóruskauti Framsóknarflokksins árum saman. M.a. sem ráðherra. Nú ganga sögur um að endurtaka eigi leikinn. 

Ég ætla rétt að vona að Morgunblaðið láti ekki undan móðursjúkum framsóknarmönnum og fari að biðjast afsökunar á skopmyndinni sem lýsir pólitísku hórunni með einstaklega skilmerkilegum hætti. 

Við meigum aldrei gleyma því sem Sif Friðleifsdóttir og félagar gerðu þessari þjóð þegar flokksmenn þeirra fóru rænandi og ruplandi um sjóði landsmanna.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband